Morgunblaðið - 15.06.2020, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 2020
sláttuvélar
Rafhlöðu-
ÞÓR FH
Akureyri:
Baldursnes 8
603 Akureyri
Sími 568-1555
Opnunartími:
Opið alla virka daga
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is
Herferð borgaryfirvalda gegnmiðbænum tekur á sig ýms-
ar myndir og hefur margvíslegar
afleiðingar. Ein þeirra kom fram
fyrir skömmu þegar bókabúð og
kaffihúsi Máls og menningar var
lokað um
óákveðinn tíma.
Annar eigandifyrir-
tækisins, Arndís
Björg Sig-
urgeirsdóttir,
tjáði sig við
mbl.is um ástæð-
ur þessarar ráðstöfunar og
nefndi að kórónuveirufaraldurinn
hefði haft slæm áhrif. En vandinn
er mun djúpstæðari: „Ég held
hreinlega að það sé búið að venja
fólk af því að koma í bæinn. Við
sem erum með verslanir við
Laugaveg og í nágrenninu, sér-
staklega á neðri hluta Skóla-
vörðustígs, höfum látið yfir okk-
ur ganga mjög erfitt
viðskiptalegt umhverfi und-
anfarin ár. Það eru stöðugar
götulokanir og stöðugar fram-
kvæmdir í miðbænum sem hafa
dregið verulega úr okkur þrótt,“
sagði Arndís.
Og hún bætti við: „Okkar sölu-tölur fara gjörsamlega eftir
því hvort göturnar eru lokaðar
eða opnar, það er bara þannig.
Það þýðir ekki að bera okkur
saman við einhverjar nágranna-
borgir þar sem er ágætisveður
sex mánuði á ári.“
Þetta er augljóst en vefst mjögfyrir meirihlutanum í borg-
arstjórn, sem lætur sér ekki
nægja að loka götum og snúa við
umferð til að fæla fólk enn frekar
frá. Hann gengur jafnvel svo
langt að reyna að fá lögum breytt
til að geta læst enn kirfilegar og
tryggt að enginn sem þarf að
fara ferða sinna í bíl vogi sér í
miðbæinn.
Arndís Björg
Sigurgeirsdóttir
Augljós sannindi
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Reykvíkingar eru hvattir til að halda
upp á þjóðhátíðardaginn, 17. júní,
með því að skreyta heimili sín og
garða með fánum og öðru í fánalit-
unum og gleðjast með vinum og fjöl-
skyldu. Af hálfu Reykjavíkurborgar
eru hátíðahöld með breyttu sniði
vegna kórónuveirunnar.
Hefðbundin morgunathöfn á
Austurvelli verður í beinni útsend-
ingu í sjónvarpi RÚV þar sem Katr-
ín Jakobsdóttir forsætisráðherra
heldur ávarp og fjallkonan frum-
flytur ljóð. Að venju sjá nýstúdentar
um að leggja blómsveig að leiði Jóns
Sigurðssonar og Ingibjargar Ein-
arsdóttur í Hólavallakirkjugarði.
Sýningin Næsta stopp um borgar-
línuna og uppbyggingu hennar er í
Ráðhúsinu. Þá er fólk hvatt til að
þátt í leiknum Teljum fána. Leik-
urinn er innblásin af vinsælustu af-
þreyingu ársins. Á þjóðhátíðardegi
teljum við fána í stað bangsa. Veg-
farendur geta svo reynt að koma
auga á fána í gluggum, görðum, á
girðingum eða annars staðar í hverf-
inu. Tvö heppin hljóta glæsileg og
menningarleg verðlaun fyrir fjölda
fána.
Fyrir þá sem ætla að bregða sér
niður í bæ verður létt stemning í
miðborginni frá kl. 13 til 18; með
tónlistarflutningi, sirkussprelli, leik-
list og fleiru skemmtilegu þar sem
kappkostað er að skapa óvæntar
upplifanir. sbs@mbl.is
Breyttur bragur á þjóðhátíðardeginum
Reykvíkingar gleðjist og skreyti
heima Sprellað í miðborginni
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Þjóðhátíð Forseti Íslands og for-
sætisráðherra á hátíðarstundu.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Fólk hér á svæðinu tengir sig við
Erró. Frá gamalli tíð eru á fjölmörg-
um heimilum í sveit til myndir sem
listamaðurinn málaði á æskudögum
sínum hér,“ segir Eva Björk Harð-
ardóttir, oddviti Skaftáhrepps. Hún
er meðal þeirra sem skipuð hafa ver-
ið í starfshóp á vegum Lilju Alfreðs-
dóttur menntamálaráðherra um
starfsemi og uppbyggingu Erró-
seturs á Kirkjubæjarklaustri. Gerð-
ar hafa verið teikningar að listasetri
sem tileinkað yrði Erró og á
Klaustri sér fólk þetta sem viðbót
við aðra menningarstarfsemi þar.
Skissur, myndir og minnisblöð
Auk Evu eiga sæti í starfs-
hópnum, skipaðir af mennta-
málaráðuneytinu, Eiríkur Þorláks-
son sem er formaður og Rúnar
Leifsson. Þetta fólk er nú að viða að
sér ýmsum upplýsingum, skissum,
myndum og minnisblöðum og öðru
slíku um Errósetur sem tiltækt er.
Erró, Guðmundur Guðmundsson,
fæddist árið 1932. Frá þriðja aldurs-
ári og fram undir tvítugt bjó hann á
Kirkjubæjarklaustri hjá móður sinni
og fósturföður. Eystra komst hann
meðal annars í kynni við Jóhannes
Kjarval sem átti rætur sínar á þess-
Tenging við Erró
Stefnt að listsetri á Kirkjubæjar-
klaustri Heimafólk lumar á myndum
Eva Björk
Harðardóttir
Erró – Guðmundur
Guðmundsson
um slóðum. Lýsir Erró í ævisögu
sinni að þau kynni hafi mótað sig
mjög. Eftir myndlistarnám í
Reykjavík hélt listamaðurinn svo ut-
an til náms og starfa og hefur í ára-
tugi búið í París og verið leiðandi
maður í listinni.
Á Kirkjubæjarklaustri eru nú
hafnar framkvæmdir við gestastofu
Vatnajökulsþjóðgarðs, sem verður
sunnan við Skaftá. Til stendur að
tengja gestastofuna við þorpið með
göngubrú yfir ána og þar eru skissur
frá Kjarval hafðar í huga.
„Að skapa tengingu frá gestastofu
með Kjarvalsbrú að Errósetri er
áhugaverð hugmynd. Nú þegar
Erró nálgast nírætt finnst okkur
mikilvægt að af framkvæmdum geti
orðið sem fyrst og þeim lokið meðan
meistarans nýtur enn við,“ segir Eva
Björk.