Morgunblaðið - 15.06.2020, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 15.06.2020, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 2020 Sími 555 2992 og 698 7999 • Við hárlosi • Mýkir liðina • Betri næringar- upptaka Náttúruolía sem hundar elska Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta. Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við mælum með Dog Nikita hundaolíu. Páll Ingi Haraldsson EldurÍs hundar Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda • Gott við exemi • Betri og sterkari fætur VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Á föstudag birti Alþingi nefndarálit allsherjar- og menntamálanefndar um frumvarp dómsmálaráðherra um fjárhagslega endurskipulagningu at- vinnufyrirtækja. Frumvarpið er hluti af aðgerðapakka stjórnvalda og miðar að því að bjóða fyrirtækjum í tímabundnum rekstrarvanda upp á tiltölulega einfalda leið til að fá greiðsluskjól og semja við kröfuhafa um endurskipulagningu rekstrar. Nefndarálitið bendir til þess að ýmsar breytingar verði gerðar á upphaflegu frumvarpi, í takt við ábendingar hagsmunasamtaka og sérfræðinga úr ýmsum áttum. Meðal þeirra sem allsherjarnefnd fékk á sinn fund til að rýna í frumvarpið er Ingibjörg Björnsdóttir, lögmaður hjá Samtökum atvinnulífsins. Hún segir frumvarpið vera að taka á sig góða mynd og greinilegt að þingið hafi tekið tillit til þeirra ábendinga sem bárust. „Það hjálpaði að ráðu- neytið fékk hagsmunaaðila snemma að borðinu. Fengum við að koma at- hugasemdum á framfæri við undir- búning frumvarpsins og gátum þar bent á ýmis atriði sem þurfti að lag- færa ef frumvarpið ætti að hjálpa fyrirtækjum eins og stefnt er að. Er útlit fyrir að frumvarpið muni skapa mjög gott úrræði til að gera fyrir- tækjum mögulegt að vinna úr rekstrarvanda sem skapaðist vegna kórónuveirufaraldursins og gera það á öruggan og skilvirkan hátt.“ Núgildandi úrræði þung í vöfum Af áliti allsherjarnefndar má m.a. skilja að frumvarpið muni ná til ein- yrkja, þ.e. lögaðila með einn eða fleiri launþega, en í upphaflegu frumvarpi dómsmálaráðherra var kveðið á um að úrræðið næði aðeins til fyrirtækja með fleiri en einn starfsmann. Björg Ásta Þórðardótt- ir, yfirlögfræðingur Samtaka iðnað- arins, segir brýnt að ákvæði frum- varpsins gildi einnig um einyrkja enda mynda þeir stóran hluta af at- vinnulífinu og eru t.d. um 500 ein- yrkjar innan raða SI. „Einyrkjar eru ekki síður viðkvæmir fyrir áföllum eins og veirufaraldrinum og eiga sjaldnast í djúpa sjóði að sækja,“ segir hún. Björg minnir á að samhliða frum- varpi um fjárhagslega endurskipu- lagningu atvinnufyrirtækja hafi rík- isstjórnin lagt fram frumvarp sem á að sporna gegn misnotkun á hluta- félagaforminu og kennitöluflakki. „Það frumvarp kveður á um að heim- ilt sé að setja einstaklinga í tíma- bundið bann frá þátttöku í stjórnun hlutafélaga, þ.e. atvinnurekstrar- bann, og takmarkar það möguleika eigenda á að velja kennitöluflakk sem leið úr rekstrarvanda.“ Björg bætir við að þótt frumvarp um fjárhagslega endurskipulagn- ingu sé hugsað sem tímabundið úr- ræði gæti það orðið atvinnulífinu til góðs ef ákvæði frumvarpsins öðlast varanlegt gildi. „Þau úrræði sem fyrirtækjum í vanda hafa staðið til boða hingað til: að fá hefðbundna greiðslustöðvun eða fara fram á nauðasamninga, geta verið þung í vöfum og kostnaðarsöm. Nýja frum- varpið býður upp á skilvirkari leið en áður hefur þekkst hérlendis sem gefur fyrirtækjum í fjárhagserfði- leikum um leið möguleika á að halda áfram starfsemi.“ Ingibjörg tekur í sama streng og segir að með þeim úrræðum sem frumvarpið skapar megi vernda bæði hagsmuni skuldara og kröfu- hafa betur: „Það samræmist hags- munum hvorra tveggja, og hags- munum samfélagsins, að vernda þau verðmæti sem hafa myndast í rekstrinum en mikilvægt er að tryggja jafnræði kröfuhafa við frá- vik frá reglum gjaldþrotaskipta- laga,“ segir hún. „Nýja frumvarpið þýðir að fyrirtækjum standa til boða fjórir möguleikar vegna rekstrar- vanda af völdum kórónuveirufarald- ursins: þau geta farið í greiðsluskjól án frekari ráðstafana; farið í frjálsa samninga við kröfuhafa meðan á greiðsluskjóli stendur – sem er það sem flest fyrirtæki munu líklega nýta sér; þau geta gert einfaldaðan nauðasamning eða hafið hefðbundn- ar nauðasamningsumleitanir.“ Að því sögðu þá eru enn nokkur atriði í frumvarpinu sem Alþingi mætti taka til nánari skoðunar. Björg bendir á að til að fyrirtæki geti fengið skjól samkvæmt ákvæð- um nýja frumvarpsins þurfi að hafa orðið meira en 75% tekjusamdráttur hjá þeim. „En við vitum af fyrirtækj- um sem eiga í verulegum rekstrar- vandræðum þótt tekjusamdráttur- inn hafi orðið minni en 75%. Hér er líka ósamræmi við önnur úrræði stjórnvalda, eins og hlutabætur sem sækja má um við 35% tekjufall og stuðningslán sem má fá við 40% tekjufall,“ segir Björg og þykir vanta betri rökstuðning fyrir því að miða við 75% tekjusamdrátt enda virðist talan ekki byggð á faglegu mati á þeim rekstrarvanda sem inn- lend fyrirtæki glíma við í augnablik- inu. Í sameiginlegri umsögn SA, SI, SAF og Litla Íslands er einnig lagt til að fyrirtæki geti lagt beiðni um fjárhagslega endurskipulagningu inn með rafrænum hætti, og að úr- ræði frumvarpsins nái líka til fyrir- tækjasamstæðna. Í umsögninni er jafnframt bent á nauðsyn skatta- legrar eftirgjafar vegna skuldaaf- skrifta sem samið er um á grundvelli þessa úrræðis. Ef kröfuhafar gefa eftir hluta af skuldum myndi það reiknast sem tekjur í bókhaldi fyrir- tækisins sem um ræðir og auka skattbyrði þess sem því nemur. Það dregur svo úr möguleikum félagsins til þess að koma sér aftur á flot. Eðli- legast væri því, að mati samtakanna, að hagnaður vegna afskrifta skulda yrði skattfrjáls. Mætti gilda til frambúðar Morgunblaðið/Eggert Kröggur Hagsmunasamtök fyrirtækja binda miklar vonir við frumvarpið. Ingibjörg Björnsdóttir segir það sam- ræmast hagsmunum kröfu- hafa, eigenda fyrirtækja og samfélagsins að vernda þau verðmæti sem fyrirtæki hafa myndað með rekstri sínum.  Ánægja er með þá mynd sem er að komast á frumvarp um tímabundið úrræði til að auðvelda fyrirtækjum í rekstrarvanda að endurskipuleggja rekstur sinn Hnökrar » Fyrirtæki þurfa að hafa orð- ið fyrir 75% tekjusamdrætti til að nýta úrræði frumvarpsins. » Þetta hlutfall gæti verið of hátt og virðist ekki byggjast á faglegu mati. » Óæskilegt ef fyrirtæki í vanda þurfa að greiða hagnað sem skapast í bókhaldi vegna afskrifta skulda. Björg Ásta Þórðardóttir Ingibjörg Björnsdóttir 15. júní 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 134.47 Sterlingspund 169.63 Kanadadalur 99.2 Dönsk króna 20.403 Norsk króna 14.028 Sænsk króna 14.481 Svissn. franki 142.0 Japanskt jen 1.2519 SDR 185.96 Evra 152.1 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 182.1439 Hrávöruverð Gull 1735.85 ($/únsa) Ál 1582.0 ($/tonn) LME Hráolía 37.88 ($/fatið) Brent ● Tveir áhrifamiklir þingmenn vinna nú að því að leggja fyrir Bandaríkjaþing nýtt frumvarp sem miðar að því að auka sjálfstæði bandarísku flugmálastjórn- arinnar (FAA) við mat á öryggi nýrra flugvéla. Að sögn Reuters eru það repúblikaninn Rog- er Wicker og demókratinn Maria Cantwell sem standa að frum- varpinu en bæði eru í forystu- hlutverkum í við- skiptanefnd öld- ungadeildar Bandaríkjaþings. Frumvarpið á að koma í veg fyrir að flugvélaframleiðendur geti haft óeðlileg áhrif á vottunarferli stofnunarinnar. Verði frumvarpið að lögum mun það veita FAA heimild til að ráða til sín eða losa sig við starfsmenn Boeing sem fengnir eru til að sinna vottunarstörfum fyrir hönd stofnunarinnar, auk þess að FAA verður heimilað að ráða sérstaka öryggisráðgjafa til starfa. Jafnframt kveður frumvarpið á um að með reglulegu millibili fari fram víð- tækar úttektir á störfum stofnunar- innar, auk þess að FAA fær heimild til að ráðstafa 150 milljónum dala á komandi tíu árum til að þjálfa og ráða til sín sér- fræðinga sem þróa munu tæknistaðla fyrir nýjar lausnir flugvélaframleiðenda. Eins og Morgunblaðið hefur fjallað um hefur FAA sætt mikilli gagnrýni fyrir vinnubrögð sín við vottun bandarísku Boeing 737 MAX-þotnanna. Tvær 737 MAX-farþegaflugvélar fórust með stuttu millibili árin 2018 og 2019 og létu 346 manns lífið í slysunum. Hefur notk- un flugvélanna verið bönnuð um allan heim frá því í mars á síðasta ári og sitja nú um 790 flugvélar óhreyfðar á með- an fundin er ásættanleg lausn á hönn- unargallanum sem talinn er hafa valdið slysunum tveimur. ai@mbl.is Endurskoða reglur um öryggisvottun flugvéla Fastar 737 MAX- þotur Boeing hafa verið kyrrsettar í u.þ.b. 15 mánuði. STUTT

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.