Morgunblaðið - 15.06.2020, Side 17
UMRÆÐAN 17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 2020
FRÁBÆR
TILBOÐ
Verð frá
990 ISK
HAPPY HOUR
15 to 18.00
VEGAN- OG GRÆNMETISRET
TIR
Í B
OÐ
I
Hádegistilboð kr. 990 - 1.990
Kl. 11:00 - 14:30
Kvöldtilboð kr. 1.990 - 2.990
Kl. 18:00 - 21:00
B A N K A S T RÆ T I 7 A | 1 0 1 R E Y K J AV Í K | ( + 3 5 4 ) 5 6 2 - 3 2 3 2 | S O L O N . I S
Réttindamál eldri
borgara utan vinnu-
markaðar eru óvið-
unandi hér á landi.
Óánægja er mikil og
óhjákvæmilegt virðist
að stjórnmálin komi
málefnum þeirra í
gott horf sem friður
gæti orðið um. Hér er
minnst á fjögur
helstu kerfin: Félags-
málakerfi verkalýðsfélaganna, al-
mannatryggingakerfið, lífeyr-
issjóðakerfið og sjúkratryggingar.
Af þessum kerfum eru sjúkra-
tryggingar í bestu horfi og verða
ekki ræddar frekar hér; allir njóta
jafnra trygginga svipað og í ná-
grannaríkjunum, þótt þær mættu
taka mikið meiri þátt í ýmsum
kostnaði við heilbrigðismál – sem
er dýr málaflokkur fyrir þennan
aldurshóp og hann hefur ekki í önn-
ur hús að venda.
Félagsmálakerfi
verkalýðsfélaganna
Verkalýðsfélögin hafa í sívaxandi
mæli samið um félagslegar lausnir í
stað krónutöluhækkana. Þannig
hefur velferðarkerfið þróast fyrir
hluta þjóðarinnar með-
an nýfrjálshyggjan
hefur hindrað að ríkið
hafi forystu í þessu efni
og þannig að kerfin nái
til allra.
Atvinnurekendur
greiða nú um 4% ofan á
heildarlaun launafólks
á vinnumarkaði í fé-
lagslega sjóði og eru
helstir: Orlofssjóður,
sjúkrasjóður, endur-
menntunarsjóður/nám-
skeiðssjóður og virkn-
isjóður (aðgangur að Virk). Hins
vegar greiðir launafólk nálægt
0,7% af heildarlaunum sínum til
verkalýðsfélaganna, ekki síst til
reksturs og stjórnsýslu þessara
sjóða.
Við starfslok missa launþegar öll
réttindi í þessum sjóðum með fáum
undantekningum og einvörðungu
að því er varðar víkjandi orlofs-
húsarétt. Engu að síður eru þeir
aldrei mikilvægari en eftir starfs-
lok; sjúkrasjóður af því að sjúkra-
kostnaður eykst með vaxandi aldri
og aðrir sjóðir – því gera þarf öldr-
uðum mögulegt að vera áfram virk-
ir í þjóðfélaginu þótt vinnuframlagi
sé lokið. Réttindaleysi í endur-
menntunarsjóðum/námskeiðs-
sjóðum, virknisjóðum og orlofs-
sjóðum neyðir eldri borgara til
einangrunar, bæði beinlínis vegna
kostnaðar, sem sjóðirnir myndu
annars dekka – og þannig að fé-
lagsstarf þeirra getur ekki verið
meðal almennings og verða þeir því
að sinna því í eigin hópi við aðrar
aðstæður en fólk á vinnumarkaði.
Þarf ekki að nefna hversu mik-
ilvægt það er fyrir alla aldurshópa
að vera saman í félagsstarfi og sú
hugmynd að eldri borgarar eigi
ekki að vera sýnilegir í samfélaginu
er engum samboðin. Þá myndi full
félagsleg þátttaka eldri borgara
stórefla rekstur aðila sem veita fé-
lagslega þjónustu, hvort sem um er
að ræða líkamsræktarstöðvar,
bridsklúbba, bókmenntaklúbba eða
golffélög.
Kjarni málsins er sá að eldri
borgarar og raunar allir utan
vinnumarkaðar þyrftu að hafa að-
gang að félagsmálakerfum verka-
lýðsfélaganna og þurfa meira á
þeim að halda en aðrir. Ef aðild
þeirra að sjóðunum yrði að veru-
leika mætti miða við að fólk væri í
þjónustu hjá því verkalýðsfélagi
sem það greiddi til við starfslok, en
stofna þarf sérstakt félagsmálafé-
lag fyrir þá sem eru utan verka-
lýðsfélaga – og er þá einkum átt við
verktaka-launþega.
Kostnaður af þessu yrði veruleg-
ur og hlyti að falla á ríkið í nútíma-
legu almannatryggingakerfi.
Almannatryggingakerfið
Um fjórðungur eldri borgara
nýtur ekki almannatrygginga og
mikill meirihluti fær skertar
greiðslur. Þessu þarf að breyta. Al-
mannatryggingar þurfa að vera
fyrir alla eins og í nágrannaríkj-
unum og er hjá okkur í sjúkra-
tryggingum. Til viðbótar almanna-
tryggingum þarf svo að hafa kerfi
félagslegrar aðstoðar sem getur
verið með mismikinn stuðning eftir
aðstæðum hvers og eins. Greiðslur
Tryggingastofnunar sem hafa ekki
aðrar tekjur en félagslegar eru allt
of lágar og samkvæmt rannsóknum
býr hátt hlutfall eldri borgara við
fátækt. Því verður að breyta.
Nú eru í gangi málaferli Gráa
hersins vegna skerðinga og einnig
er nauðsynlegt að fá úrskurð dóm-
stóla á réttmæti þess að hækkanir
greiðslna hafa ekki fylgt launa-
vísitölu. Þá gæti þurft að taka
ákveðið á fleiri málum.
Lífeyrissjóðakerfið
Lífeyrissjóðakerfið er sífellt að
koma sterkara inn – en minnt skal
á að réttindi eldri borgara eru mjög
mismikil. Þannig hafa einyrkjar,
listamenn, hark-samfélagið og at-
vinnurekendur sem taka sér lítil
laun oft afar lítil réttindi – og hætt
er við að þessir hópar stækki eftir
því sem fleiri launþegar verða á
verktakagreiðslum, sem er vaxandi
tilhneiging, t.d. í tækni- og lista-
geirunum.
Lokaorð
Með breyttu samfélagi þarf að
þróa félagsmálakerfin og tryggja
að enginn falli utan þeirra. Eldri
borgarar eiga stór verkefni fram-
undan. Þeir þurfa að stunda áróð-
ur, málaferli – og jafnvel mótmæli
til að tryggja rétt sinn. Það virðist
ekkert gerast af sjálfu sér.
Réttindi eldri borgara
í félagslegum kerfum
Eftir Hauk
Arnþórsson »Eldri borgarar eru
réttlausir í félags-
málakerfum verkalýðs-
félaganna – en þyrftu
samt sterkara félagsnet
en aðrir þjóðfélags-
hópar
Haukur Arnþórsson
Höfundur er stjórn-
sýslufræðingur.
haukura@haukura.is
Réttindi eldri borgara
utan vinnumarkaðar
Staða réttinda í helstu
félagslegum kerfum
Félagsleg kerfi Réttindi
Félagsmálakerfi
verkalýðsfélaganna Engin
Almannatrygginga-
kerfið
Frá engum
til fullra
Lífeyrissjóðakerfið Frá litlum til mikilla
Sjúkratryggingar Jöfn fyrir alla
Þegar lög nr. 23/
2020 voru sett í mars
2020 var umræðan öll
á einn veg þannig að
fyrirtæki og launþeg-
ar gætu gert með sér
sérstakan ráðning-
arsamning fyrir tíma-
bilið 15. mars til 1.
júní. Mörg fyrirtæki
útfærðu þessa leið
þannig að launþegar
voru ráðnir í 25%
starf á þessu tímabili og áttu laun-
þegarnir í staðinn að sækja um
„hlutabætur“ að 75% í staðinn frá
Vinnumálastofnun. Í lögunum er
reyndar rætt um „atvinnuleys-
isbætur“ en ekki „hlutabætur“ eins
og umræðan gaf tilefni til að ætla.
Launþegar skrifuðu undir breytta
ráðningarsamninga í fullri vissu um
að laun fyrir þetta tímabil kæmu
frá tveimur aðilum, þ.e. vinnuveit-
anda og Vinnumálastofnun. Aldrei
var rætt um aðrar skerðingar en
þær sem lögin tilgreina, þ.e. há-
marksupphæðir launa frá vinnu-
veitanda og „atvinnuleysisbætur“
frá Vmst. mættu ekki nema hærri
upphæð en 700 þúsund krónum en
þó gert ráð fyrir að samanlögð laun
og bætur yfir 400 þúsund krónum
yrðu að hámarki 90% af fyrri laun-
um. Samanlögð laun og bætur und-
ir 400 þús. kr. áttu ekki að skerðast
samkvæmt texta laganna. Laun-
þegar töldu sig þannig vera með
það á hreinu að laun þeirra myndu
ekki skerðast meira á tímabilinu en
ákvæði laganna gaf tilefni til að
ætla.
Er heimilt að draga t.d. ellilíf-
eyri frá launum launþega?
Við síðustu útborgun samkvæmt
ákvæðum laga nr. 23/2020 brá svo
við, að launþegar sem jafnframt
eru orðnir ellilífeyrisþegar fá
skerðingu á launum sínum sem
nemur ellilífeyrinum. Hverju sætir
þetta? Fólk, sem er að vinna eftir
að 67 ára aldri er náð, fær ekki
skert laun á vinnumarkaðnum
vegna þess að það er
komið á ellilífeyr-
isaldur. Fólk fær sín
kjarasamningsbundnu
laun án tillits til þess
hvort það fær ellilíf-
eyri eða ekki. Engin
heimild er fyrir því í
lögum um vinnumark-
aðinn að hýrudraga
ellilífeyrisþega sem
halda áfram að vinna á
meðan heilsa þeirra
leyfir. Af hverju er
það heimilt við þessar
aðstæður? Ég þykist
viss um, að varla nokkur alþing-
ismaður, sem greiddi þessari laga-
setningu atkvæði sitt, hafi áttað sig
á þessari slægð. Reynt hefur verið
að óska eftir skýringum frá Vinnu-
málastofnun, en slíkum tilmælum
er einfaldlega ekki svarað. Við, sem
erum í þessari stöðu og fáum fyrir
maímánuð aðeins hluta af þeim
launum okkar, sem við sömdum um
að greidd yrðu samkvæmt ákvæð-
um laga nr. 23/2020, erum illa svik-
in.
Gaman væri að heyra frá þeim
sem settu þessi lög hvort þau hafi
öll verið meðvituð um þessa aðför
að launafólki sem jafnframt fær
greiddan ellilífeyri?
Var hlutabótaleiðin blekking
fyrir 67 ára og eldri?
Eftir Guðmund
Inga Gunnlaugsson » Launþegar sem
komnir eru á ellilíf-
eyrisaldur virðast vera
hýrudregnir vegna elli-
lífeyris í „hlutabótaleið-
inni“.
Guðmundur Ingi
Gunnlaugsson
Höfundur er á hlutabótum vegna
Covid 19.
gig@rang.is
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.
Atvinna