Morgunblaðið - 15.06.2020, Síða 32

Morgunblaðið - 15.06.2020, Síða 32
#TILFYRIRMYNDAR Gríman, Íslensku sviðslistaverðlaunin, verður afhent við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu í kvöld kl. 20. Að vanda verður sjónvarpað beint frá viðburðinum. Veitt eru verðlaun í 18 flokkum auk heiðursverðlauna Sviðslista- sambands Íslands og samtals hlutu 88 listamenn og sýn- ingar tilnefningar þetta árið. Uppfærsla Þjóðleikhússins á Atómstöðinni – endurliti í leikstjórn Unu Þorleifsdóttur hlaut flestar tilnefningar til Grímunnar eða 12. Ítarlega er fjallað um úrslitin í blaðinu á morgun auk þess sem rætt er við heiðursverðlaunahafa ársins. Gríman 2020 afhent í beinni í kvöld MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 167. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Fyrstu umferðinni í úrvalsdeild kvenna í fótbolta lauk með sjö marka slag ÍBV og Þróttar í Vestmannaeyjum í gær. Fylkiskonur eru sigurvegarar umferðarinnar en þær lögðu að velli öflugt lið Selfyssinga sem hefur ætl- að sér stóra hluti á þessu Íslandsmóti. »26 Sjö mörk í Eyjum og Fylkiskonur sigurvegarar fyrstu umferðar ÍÞRÓTTIR MENNING fornleifum, bókakosti og þá hugar- fari. Mikill fjöldi varðveittra dánarbúa kom Má skemmtilega á óvart. „Þarna er þverskurður af þjóðinni,“ segir hann og vísar til þess að upp- lýsingar séu um auðugt fólk en líka einstaklinga sem höfðu hvorki til hnífs né skeiðar, og allt þar á milli. „Skráning eftirlátinna eigna fór aðallega fram vegna arfsins en ætti fólk nánast ekki neitt var þetta gert til að sjá hvort ekki mætti kosta hluta útfararinnar.“ Hann segir að gullöld þessara gagna hafi verið frá um 1820 til um 1870 en á því tímabili liggja fyrir upplýsingar um næstum þriðja hvern látinn Íslending frá tví- tugu til níræðs. Sambærileg gögn séu til víða í nágrannalöndum, ekki síst í Svíþjóð, en til dæmis í Noregi séu þau mestmegnis um vel stætt fólk. Már segir að gögnin sem slík séu tiltölulega aðgengileg, en vonlaust sé að leita að skjölum sem varða ákveðna einstaklinga eða bæi. „Ég hafði lengi vitað af þessum papp- írum en þegar ég fór að skoða þá fyrir alvöru sá ég strax að nauðsyn- legt væri að gera leitarbæra skrá yf- ir einstaklingana til þess að aðrir gætu nýtt sér gögnin. Vonandi verða einhverjir ánægðir!“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Skráin „Leitarbær“ yfir varðveitt dánarbú fólks á Íslandi frá miðri 18. öld fram í byrjun 20. aldar verður gerð aðgengileg á veraldarvef á haustmánuðum. Már Jónsson, pró- fessor í sagnfræði við Háskóla Ís- lands, hefur unnið við að taka saman þessi gögn undanfarinn áratug og lauk því verki á dögunum. Stofninn úr skránni er unninn upp úr pappírum í skjalasöfnum sýslu- manna á Þjóðskjalasafni, þar sem dánarbú, uppboð og arfaskipti er að finna í nokkur hundruð bindum og enn fleiri kössum. Már útskýrir að væru erfingjar ungir eða fjarverandi bar hreppstjórum og sýslumönnum að gera nákvæma skrá yfir eigur fólks við andlátið, svo sem fatnað, bækur, búsáhöld, verkfæri og skepnur. Engu mátti sleppa. „Upp- lýsingar liggja fyrir um rúmlega 33 þúsund manns,“ segir hann. Til hlið- ar við skrásetninguna hefur hann gefið út fjórar bækur með sýnis- hornum úr þessum efnivið og gerir sér vonir um að þær verði fleiri. „Ómetanlegar upplýsingar um einstaklinga og hagi þeirra eru í gögnunum,“ segir Már. Í skránni verði á einfaldan hátt hægt að finna það sem til er um einstaklinga, bæi og sóknir en jafnframt megi leita eftir aldri og eignastöðu. Þar að auki hafi Þjóðskjalasafn nú þegar lagt út nokkuð af stafrænum myndum af skiptabókum og dánarbúum, sem þá megi í framhaldinu nýta en að öðr- um kosti fara á safnið. Ódrepandi áhugi Ódrepandi áhugi á fortíðinni held- ur Má við efnið og raunar þykir hon- um ekkert skemmtilegra en að vinna með skjöl, enda fastagestur á Þjóðskjalasafninu frá því í febrúar 1978. Hann segir að afar mikilvægt sé að sagan gleymist ekki og enn mikilvægara sé að afla nýrrar þekk- ingar en ekki bara jórtra á því sem fólk þykist vita. „Í dánarbúum er margt mjög áhugavert um kjör fólks af öllum stigum,“ segir hann, og full- yrðir að skráin muni gagnast fróð- leiksfúsum almenningi og fræði- mönnum á öllum sviðum, ekki síst um ættfræði og byggðasögu, en líka við athuganir á efnismenningu og Þverskurður þjóðar  Upplýsingar um 33.000 dánarbú aðgengilegar í Leitarbæ Morgunblaðið/Árni Sæberg Hólavallagarður Már Jónsson við leiði langalangömmu sinnar, Kristínar Ólínu Þorvaldsdóttur, sem lést í Reykjavík 27. nóvember 1879, 46 ára göm- ul. Hún hafði eignast átta börn og lifðu fjögur. Dánarbú hennar er varðveitt, skráð 20. apríl 1880, og þremur vikum síðar var mestur hluti eignanna seld- ur á uppboði fyrir ríflega 500 krónur. Upphæðin hrökk ekki fyrir skuldum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.