Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.06.2020, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.06.2020, Blaðsíða 6
VETTVANGUR 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.6. 2020 Fjarþjónusta fyrir betri heyrn ReSound Smart3D Afgreiðslutími 9:00-16:30 • Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is Fagleg þjónusta hjá löggiltum heyrnarfræðingi Við bendum þeim á sem komast ekki í heyrnarþjónustu til okkar að nýta sér forritið ReSound Smart3D í snjalltækjum og fá þar heyrnartækin sín fínstillt og uppfærð. Með fjarþjónustunni er snjalltæki notað til að senda heyrnarfræðingum beiðni um að breyta stillingu ReSound Linx 3D og Quattro heyrnartækjanna. Við svörum eins fljótt og auðið er. Nánari upplýsingar er á finna á www.heyrn.is eða í síma 534 9600. Ég fæ aldrei sterkari „bídduvarégekkiað-lendaíþessuáðan“ tilfinningu (déjà vu)en þegar kemur að kosningum. Mér finnst við alltaf vera að kjósa. Ekki að það sé leiðinlegt. Á þessu heimili er það gert við há- tíðlega athöfn. Gengið út í Hagaskóla, í kjör- deild 5, og atkvæðið sett á sinn stað. Svo er haldið upp á það með kaffibolla á kaffihúsinu okkar. Það er reyndar merkilegt að þetta eru fyrstu kosningarnar í tvö ár. Þar á undan kus- um við fjórum sinnum á tveggja ára tímabili. Það er meira að segja þannig að á átta árunum frá 2010-2018, kusum við ellefu sinnum. Þrisv- ar til þings, þrisvar til sveitastjórna, tvisvar til forseta og tvisvar um Icesave og svo einu sinni um niðurstöðu stjórnlagaráðs. Það er ekki eins og allar þessar kosningar hafi skipt sköpum um hvernig okkur líður en sumar þeirra hafa þó skilað breytingum og aðrar fest í sessi það sem meirihlutinn virðist vilja. En stundum veltir maður því fyrir sér hvort það sé algjörlega nauðsynlegt að kjósa núna. Staðan er þannig að annar frambjóðandinn er með þvílíka yfirburðastöðu að kosningasjón- varp RÚV verður á lengd við meðalfótbolta- leik. Það er óvenju lítil spenna fyrir þessum kosningum og einhverjir hafa svo sem velt því fyrir sér af hverju við erum að eyða peningum í svona óspennandi kosningar. Ekki að ég hafi neitt á móti því að menn bjóði sig fram. Hreint ekki. Staðan er bara sú að þetta virðist vera býsna frágengið mál. Óspennandi yfirburðir sem gerir það líklega að verkum að færri kjósa en myndu gera það við aðrar aðstæður. Sem er óstuð. Því skyndi- lega verður það þannig að það er tilgangslaust að kjósa, sama hvorn þú styður. Kosningar eru nefnilega svo mikið lykil- atriði í lýðræði. Og lýðræði er frábært, þótt það geti stundum virkað sem dálítið vesen. En samsetning orðsins segir okkur líka eitthvað um það hvað það táknar. Lýðurinn ræður. Til þess að það gerist þá verður hann að segja hvað hann er að hugsa. Kjörsókn í forsetakosningum hefur farið upp í 97 prósent en í síðast þegar við stóðum frammi fyrir svona óspennandi forsetakosn- ingum var kjörsókn rétt um 63 prósent. Hún var tæp 76 prósent í síðustu kosningum og í heild er staðan sú að færri kjósa en gerðu á ár- um áður. Mér finnst alltaf einhvers konar vanþakk- læti í því að kjósa ekki. Eins og við kunnum ekki að meta þann rétt að fá að kjósa okkur valdhafa og geta sagt til þegar við viljum breytingar. Nú eða þegar við viljum þær ekki. Ég hef eiginlega alltaf litið á það sem borgaralega skyldu mína að trítla útí Haga- skóla og segja hvað mér finnst. Jafnvel þótt að ég hafi ekki alltaf iðað í skinninu yfir að koma skoðun minni á framfæri. Því segi ég: Í dag ætlum við að kjósa okkur forseta. Alveg sama hvernig kannanir líta út eða hvað okkur finnst um það að efnt sé til kosninga núna er lykilatriði að nýta það frelsi sem við höfum til að hafa áhrif á niðurstöðuna. Þannig, og einungis þannig, virkar lýðræðið. Okkur finnst það kannski ekkert sérlega merkilegt þegar hlutir ganga sinn vanagang en við myndum örugglega sakna þess ef við misstum það. ’Í dag ætlum við að kjósaokkur forseta. Alveg samahvernig kannanir líta út eðahvað okkur finnst um það að efnt sé til kosninga núna er lyk- ilatriði að nýta það frelsi sem við höfum til að hafa áhrif á niðurstöðuna. Þannig, og ein- ungis þannig, virkar lýðræðið. Á meðan ég man Logi Bergmann logi@mbl.is Kjördagur Allir sem fylgjast með gangimála erlendis vita að við höf-um fram til þessa farið í gegnum Covid-faraldurinn með minna raski á daglegu lífi en vel- flestar þjóðir í kringum okkur. Stærstan heiður af þeim árangri eiga landsmenn allir, fyrir að hafa tekið ráðgjöf sérfræðinga alvarlega, en stærstu þakkirnar fara til fram- línufólks á öllum sviðum. Nú þurfum við að verja þennan árangur með því að vera áfram ábyrg og skynsöm. Sigur gegn plágunni er ekki í höfn. Við megum ekki fagna of snemma. Höggið Við eigum mikið undir því að halda áfram á réttri braut og koma hjól- unum í gang. Því er nú spáð að sam- drátturinn vegna Covid muni nema níu prósentum á þessu ári og atvinnuleysi fara í 11 prósent. Reynist spárnar rétt- ar verður því um að ræða meiri samdrátt og meira atvinnuleysi en varð í kjölfar bankahrunsins 2008, þó að þá hafi aftur á móti verið um meiri skuldavanda að ræða hjá heimilunum en nú. Viðbrögðin Ríkisstjórnin hefur gripið til afger- andi ráðstafana til að lágmarka högg- ið á fólk og fyrirtæki og stuðla að kröftugri viðspyrnu. Hlutabótaleiðin; greiðsluskjól; laun á uppsagnarfresti; brúarlán; stuðningslán; lokunar- styrkir; frestun opinberra gjalda; jöfnun tekjuskatts á milli ára; barna- bótaauki; stuðningur við fólk í at- vinnuleit; átak í geðheilbrigðismál- um; styrking fjarheilbrigðisþjónustu; frístundastyrkur fyrir tekjulága; Ferðagjöf; sumarúrræði fyrir náms- menn; efling matvælaframleiðslu; markaðsátak í þágu ferðaþjónustu bæði innanlands og erlendis; útvíkk- un á „Allir vinna“; fjárfestingaátak; stórfelldur stuðningur við nýsköpun með auknum framlögum í Tækniþró- unarsjóð, hækkun endurgreiðslna vegna rannsókna- og þróunar, stofn- un Kríu, hvatasjóðs vísifjárfestinga, og tímabundnum stuðningi við nýsköpunarfyrirtæki með því sem við köllum stuðnings-Kríu. Hér er ekki einu sinni allt upp talið en heildarmyndin blasir við: Á örfá- um vikum var brugðist með afgerandi hætti við einum mesta samdrætti í okkar síðari tíma efnahagssögu. Efnahagslegur samdráttur – félagsleg vakning Ég nefndi áðan að landsmenn allir ættu heiðurinn af árangri okkar í bar- áttunni við Covid. Í þessu sambandi vil ég nefna að landsmenn eiga líka hlut í þeirri viðspyrnu sem er farin að eiga sér stað. Það sem ég á við er að á sama tíma og við höfum upplifað harkalegan efnahagslegan samdrátt höfum við upplifað félagslegan upp- gang, félagslega vakningu, félagslega sókn. Við höfum séð samhug, já- kvæðni og bjartsýni hvert hjá öðru. Ef eitt orð getur fangað kjarnann í þessu einkenni á samfélagi okkar þá er það líklega orðið „þrautseigja“. Það er enginn vafi í mínum huga að þrautseigja samfélags okkar skiptir sköpum til að ná þeirri viðspyrnu sem verður stærsta verkefni okkar á næstu mánuðum og misserum. Leiðarljós viðspyrnunnar: Framtak og frelsi Verkefninu að kveða niður Covid er ekki lokið en samhliða því þurfum við nú í auknum mæli að beina sjónum okkar að því verkefni að rísa aftur á fætur. Og þá þurfum við ný leiðarljós. Leiðarljós í viðspyrnunni. Leiðarljósið verður að vera að virkja einstaklingsframtakið til að auka aftur tekjur þjóðarbúsins. Ekk- ert er betur til þess fallið að auka tekjur þjóðarbúsins en athafnafrelsi; frjálst einstaklingsframtak. Við tölum stundum um verðmæta- sköpun í þessu sambandi, og að ríkið búi ekki til verðmæti heldur einstak- lingarnir. Það er ekki alveg nákvæmt orðalag því það er jú fleira verðmæti en tekjur. Öryggi, menntun og heil- brigði eru dæmi um verðmæti sem við erum flest sammála um að ríkið eigi að taka þátt í að tryggja okkur. En þegar kemur að tekjuöflun þá stenst enginn athafnafrelsi og einstaklings- framtaki snúning. Frelsi og framtak eru orkan sem knýr gangverk tekju- öflunar þjóðarbúsins. Og eitt er víst: það verða engin „orkuskipti“ í gang- verki tekjuöflunar. Það verður aðeins knúið með framtaki og frelsi. Svarið við Covid er hugvit Ríkið getur hugað að vélinni, séð til þess að hún sé í lagi, tryggt henni gott súrefnisflæði. Það ætlum við að gera, ekki síst með því að leggja þunga áherslu á nýsköpun. Það sem mun koma okkur upp úr Covid er hugvit. Við höfum nú þegar stigið stór skref í þeim efnum á grundvelli nýrrar nýsköpunarstefnu. Hið op- inbera getur búið til jarðveginn en til að nýta hann þarf hugvitssama og þrautseiga frumkvöðla og athafna- fólk. Í viðleitni þeirra til verðmæta- sköpunar reynir einmitt hvað mest á þrautseigjuna, sem ég nefndi áðan að væri einkenni á okkar samfélagi. Annað nauðsynlegt verkefni er að hagræða í ríkisrekstrinum. Við þurfum að kasta þeirri ranghugmynd að hag- ræðing feli alltaf í sér niðurskurð á þjónustu. Því getur einmitt verið öfugt farið. Við höfum einfaldlega ekki efni á því að reka stóru kerfin okkar með óbreyttum hætti. Það var orðið ljóst löngu fyrir Covid, m.a. vegna lýð- fræðilegra breytinga. Þarna er verk- efni sem við getum ekki einfaldlega velt yfir á komandi kynslóðir. Það væri vond pólitík. Í slíku verkefni felast mik- il tækifæri. Tækifæri til að stórauka nýsköpun innan ríkisrekstursins, sem leiða af sér nýjar lausnir, nýja tækni, aukið val og spennandi störf. Það er nefnilega hægt að endurhugsa margt í ríkisrekstri sem bætir þjónustu við borgarana, gerir kerfið skilvirkara og þannig sækjum við fram sem samfélag. Engin „orkuskipti“ í gangverki tekjuöflunar Úr ólíkum áttum Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir thordiskolbrun@anr.is ’Það er nefnilegahægt að endur-hugsa margt í ríkis-rekstri sem bætir þjón- ustu við borgarana, gerir kerfið skilvirkara og þannig sækjum við fram sem samfélag. Atvinna

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.