Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.06.2020, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.06.2020, Blaðsíða 19
fatahönnuðum. Hún fylgist líka með íslenskri fatahönnun og skrifaði einmitt ritgerð um að- stæður íslenskra frumkvöðla á sviði fatahönn- unar í meistararitgerð sinni frá Viðskipta- fræðideild Háskóla Íslands. „Þar tók ég viðtöl við sjö kvenkyns hönnuði sem voru allar búnar að vera með rekstur í nokkurn tíma og féllu undir það að vera frum- kvöðlar. Hálfu ári eftir að ég tók viðtölin voru þær allar hættar rekstri. Þær voru með búðir en voru búnar að færa sig út úr því að vera sjálfar með búðarrekstur og sinna þessu sam- an. Í síðustu kreppu fór íslenski fataiðnaður- inn rosalega á flug og ég er að vona að það ger- ist aftur núna. Það er alltaf verið að tala um að það eigi að auka nýsköpun. Fatahönnun er eitthvað sem getur fært landinu ótrúlega mik- ið. Það þyrfti miklu meira utanumhald um þetta og stuðning.“ Alda Júlía segir það alls ekki vonlaust að vera fatahönnuður á Íslandi en segir að margt mætti vera betra. Hæfileikarnir eru til staðar en það vantar meiri rekstr- arlegan stuðning frá yfirvöld- um að hennar mati. Alda Júlía segir fatahönnuði einfaldlega ekki hafa tíma til að sinna öllu sem viðkemur fyrir- tækjarekstri. „Þú getur ekki verið að hanna heilu línurnar, sauma þær og láta framleiða þær á sama tíma og þú átt að standa vakt- ina í búðinni þinni og selja.“ Fer eftir góðri reglu frá ömmu Alda Júlía leggur mikið upp úr því að nota fötin sín vel og segist þannig til dæmis friða samviskuna. Hún keypti til dæmis tjull- pils á Asos sem hún hefur notað yfir 70 sinn- um. Pilsið er gott dæmi um hversu skrautlegur og sparilegur stíll Öldu Júlíu er. Hún segist meðal annars hafa mætt í pilsinu í vinnuna. Ólíkt mörgum öðrum sem temja sér að kaupa sjaldan föt og nota fötin vel á Alda Júlía ekki klassískar flíkur á borð við bláar gallabuxur, auk þess eru einu stigaskórnir hennar sjálflýs- andi. Alda Júlía fer óhefðbundnar leiðir í að raða saman flíkum. Það er ekkert eitt ákveðið bann- að en lykillinn felst í því að velja eina flík eða aukahlut í aðalhlutverk hverju sinni. „Ég kom einu sinni í rauðum kjól og í gulri peysu yfir og maðurinn minn sagði að ég væri eins og hálfþroskuð paprika. En þetta fer líka eftir því hvernig manni líður í föt- unum. Ég held að amma mín hafi sagt eitt af þremur: Kjóllinn má vera stuttur en ekki líka þröngur og fleginn. Þú þarft að velja eitt af þessu. Þú mátt ekki vera með risastórt hálsmen, risastóra eyrnalokka og alla hring- ana. Þetta snýst um að velja einn fókus- punkt.“ Amma Öldu Júlíu hafði mikil áhrif á hana og kynnti henni snemma tísku. „Amma mín var rosalega flott kona og átti mikið af klæðskerasaumuðum kjólum. Ég er nefnd eftir henni og við vorum góðar vin- konur. Þegar ég var tíu ára setti hún mig í allt of stóra hælaskó af sér og lét mig labba um húsið, upp og niður stiga, með bók á höfðinu til að kenna mér að ganga á háum hælum.“ Er eitthvað á óskalistanum fyrir sumarið? „Ég er þriðja árið í röð að hugsa um hvort ég eigi að kaupa mér klassískan rykfrakka. Nú er ég samt að meta hvort blazer-jakki úr siffonefni með blómamynstri sé kannski frekar málið,“ segir Alda Júlía sem þarf að vega og meta fatakaup sín vel og það getur tekið sinn tíma. Alda Júlía er sumarleg í skrautlegum jakka og hvítum buxum. Skórnir fá að njóta sín uppi á hillu. Alda Júlía er hrifin af höttum. Alda Júlía kann að meta áberandi skartgripi. 28.6. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.