Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.06.2020, Blaðsíða 19
fatahönnuðum. Hún fylgist líka með íslenskri
fatahönnun og skrifaði einmitt ritgerð um að-
stæður íslenskra frumkvöðla á sviði fatahönn-
unar í meistararitgerð sinni frá Viðskipta-
fræðideild Háskóla Íslands.
„Þar tók ég viðtöl við sjö kvenkyns hönnuði
sem voru allar búnar að vera með rekstur í
nokkurn tíma og féllu undir það að vera frum-
kvöðlar. Hálfu ári eftir að ég tók viðtölin voru
þær allar hættar rekstri. Þær voru með búðir
en voru búnar að færa sig út úr því að vera
sjálfar með búðarrekstur og sinna þessu sam-
an. Í síðustu kreppu fór íslenski fataiðnaður-
inn rosalega á flug og ég er að vona að það ger-
ist aftur núna. Það er alltaf verið að tala um að
það eigi að auka nýsköpun. Fatahönnun er
eitthvað sem getur fært landinu ótrúlega mik-
ið. Það þyrfti miklu meira utanumhald um
þetta og stuðning.“
Alda Júlía segir það alls ekki vonlaust að
vera fatahönnuður á Íslandi en segir að margt
mætti vera betra. Hæfileikarnir eru til
staðar en það vantar meiri rekstr-
arlegan stuðning frá yfirvöld-
um að hennar mati. Alda
Júlía segir fatahönnuði
einfaldlega ekki hafa
tíma til að sinna öllu
sem viðkemur fyrir-
tækjarekstri.
„Þú getur ekki
verið að hanna heilu
línurnar, sauma þær
og láta framleiða
þær á sama tíma og
þú átt að standa vakt-
ina í búðinni þinni og
selja.“
Fer eftir góðri reglu
frá ömmu
Alda Júlía leggur mikið upp úr því að
nota fötin sín vel og segist þannig til dæmis
friða samviskuna. Hún keypti til dæmis tjull-
pils á Asos sem hún hefur notað yfir 70 sinn-
um. Pilsið er gott dæmi um hversu skrautlegur
og sparilegur stíll Öldu Júlíu er. Hún segist
meðal annars hafa mætt í pilsinu í vinnuna.
Ólíkt mörgum öðrum sem temja sér að kaupa
sjaldan föt og nota fötin vel á Alda Júlía ekki
klassískar flíkur á borð við bláar gallabuxur,
auk þess eru einu stigaskórnir hennar sjálflýs-
andi.
Alda Júlía fer óhefðbundnar leiðir í að raða
saman flíkum. Það er ekkert eitt ákveðið bann-
að en lykillinn felst í því að velja eina flík eða
aukahlut í aðalhlutverk hverju sinni.
„Ég kom einu sinni í rauðum kjól og í gulri
peysu yfir og maðurinn minn sagði að ég
væri eins og hálfþroskuð paprika. En þetta
fer líka eftir því hvernig manni líður í föt-
unum. Ég held að amma mín hafi sagt eitt af
þremur: Kjóllinn má vera stuttur en ekki
líka þröngur og fleginn. Þú þarft að velja eitt
af þessu. Þú mátt ekki vera með risastórt
hálsmen, risastóra eyrnalokka og alla hring-
ana. Þetta snýst um að velja einn fókus-
punkt.“
Amma Öldu Júlíu hafði mikil áhrif á hana og
kynnti henni snemma tísku.
„Amma mín var rosalega flott kona og átti
mikið af klæðskerasaumuðum kjólum. Ég er
nefnd eftir henni og við vorum góðar vin-
konur. Þegar ég var tíu ára setti hún mig í
allt of stóra hælaskó af sér og lét mig labba
um húsið, upp og niður stiga, með bók á
höfðinu til að kenna mér að ganga á háum
hælum.“
Er eitthvað á óskalistanum fyrir sumarið?
„Ég er þriðja árið í röð að hugsa um hvort
ég eigi að kaupa mér klassískan rykfrakka. Nú
er ég samt að meta hvort blazer-jakki úr
siffonefni með blómamynstri sé kannski frekar
málið,“ segir Alda Júlía sem þarf að vega og
meta fatakaup sín vel og það getur tekið sinn
tíma.
Alda Júlía er sumarleg
í skrautlegum jakka
og hvítum buxum.
Skórnir fá að njóta
sín uppi á hillu.
Alda Júlía er
hrifin af höttum.
Alda Júlía kann að meta
áberandi skartgripi.
28.6. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19