Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.06.2020, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.06.2020, Blaðsíða 13
Fyrir 40 árum stigum við Íslendingar framfaraskref á heimsvísu og vorum til fyrirmyndar með því að vera fyrst þjóða til að kjósa konu sem forseta í lýðræðislegum kosningum, frú Vigdísi Finnbogadóttur. Bréf með yfirskriftinni ,,Takk fyrir að vera til fyrirmyndar” er hægt að nálgast hjá Póstinum, í útibúum Landsbankans, í Nettó, Bónus og Krónunni. Bréfin má setja ófrímerkt í póst innanlands. Hvetjum við alla landsmenn til að senda þessi bréf til fjölskyldu, vina, vinnustaða og annarra sem bréfritarar vilja þakka fyrir að vera til fyrirmyndar á einn eða annan hátt. Einnig er hægt að senda rafræn bréf á fjölmörgum tungumálum á heimasíðunni tilfyrirmyndar.is. ,,TAKK veggir” verða málaðir víða um land. Skemmtilegt er að taka myndir af sér og sínum á og deila á samfélagsmiðlum. Fylgstu með og taktu þátt! www.tilfyrirmyndar.is | #tilfyrirmyndar | @tilfyrirmyndar

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.