Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.06.2020, Page 13
Fyrir 40 árum stigum við Íslendingar framfaraskref á heimsvísu og vorum til fyrirmyndar með því að vera
fyrst þjóða til að kjósa konu sem forseta í lýðræðislegum kosningum, frú Vigdísi Finnbogadóttur.
Bréf með yfirskriftinni ,,Takk fyrir að vera til fyrirmyndar” er hægt að nálgast hjá Póstinum,
í útibúum Landsbankans, í Nettó, Bónus og Krónunni. Bréfin má setja ófrímerkt í póst innanlands.
Hvetjum við alla landsmenn til að senda þessi bréf til fjölskyldu, vina, vinnustaða
og annarra sem bréfritarar vilja þakka fyrir að vera til fyrirmyndar á einn eða annan hátt.
Einnig er hægt að senda rafræn bréf á fjölmörgum tungumálum á heimasíðunni tilfyrirmyndar.is.
,,TAKK veggir” verða málaðir víða um land. Skemmtilegt er að taka myndir
af sér og sínum á og deila á samfélagsmiðlum.
Fylgstu með og taktu þátt!
www.tilfyrirmyndar.is | #tilfyrirmyndar | @tilfyrirmyndar