Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.06.2020, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.06.2020, Blaðsíða 14
VIÐTAL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.6. 2020 L íklega eru fáir menn sem hafa stigið ölduna í fimmtíu ár. Brynjólfur Oddsson, alþjóðlegur skipstjóri hjá Samherja, er einn af þeim en hann hóf ferilinn sem strákpjakkur árið 1970. Hann er nýlega hættur sem fastráðinn skipstjóri en segist þó ekki hættur á sjó. Hann sér nú fram á fleiri gæðastundir með fjölskyld- unni en barnabörnin eru orðin þrjú og verða fimm innan skamms. Á kaffihúsi í Kópavogi kynnir Brynjólfur sig fyrir blaðamanni og segist kallaður því sér- kennilega gælunafni Billó. „Systur mínar fundu upp á þessu ónefni þeg- ar ég var lítill. Ég kann ljómandi vel við það því ef ég er kallaður Brynjólfur finnst mér eins og verið sé að skamma mig,“ segir hann og brosir út í annað. Billó er með djúpa, hrjúfa rödd og talar hratt. Úr andliti hans má lesa einurð og festu skip- stjórans sem unnið hefur hörðum höndum alla ævi og aldrei kvartað yfir vinnu. Billó hefur lifað tímanna tvenna og rifjar upp lífið á sjó í hálfa öld en ótrúlega margt hefur breyst á þeim tíma, þótt markmiðið sé ávallt hið sama, að koma í land með nóg af fiski. Hálfdrættingur og skítkokkur Billó segist alltaf hafa haft gaman að því að vinna og þekkir ekkert annað. Hann er fæddur á Þykkvabæjarklaustri einn desemberdag árið 1955 en bjó lengst af í Kópavogi á uppvaxtarár- unum. „Ég var öll sumur hjá afa mínum í sveitinni og seinna hjá föðurbróður mínum sem tók við búinu á Þykkvabæjarklaustri. Síðasta sumarið mitt í sveit var ég þrettán ára og það sýnir vel tíðarandann að þarna var ekki eitt einasta far- artæki sem ég hafði ekki keyrt. Ég var farinn að keyra dráttarvélar átta, níu ára og ég man það var ákveðið afrek þegar ég fékk að keyra jepp- ann tíu ára gamall,“ segir Billó. „Ég er alinn upp sem sveitastrákur og ég hélt lengi vel að ég yrði bóndi. Móðir minni leist ekki á launin sem ég fékk í sveitinni og sagði þau varla duga fyrir buxnasliti þannig að hún ákvað að senda mig á sjó, en öll móðurættin er sjó- menn og skipstjórar,“ segir Billó. „Ég fór þannig fjórtán ára á Snæfell EA 740, sem var mikið aflaskip, tréskip sem gerði út frá Akureyri,“ segir Billó. „Ég stóð þá sex og tólf vaktir. Mér fannst það ofboðslega létt miðað við vinnuálagið í sveit- inni,“ segir hann og útskýrir fyrir blaðamanni sem ekki hefur migið í saltan sjó að þá vinna menn í tólf tíma og fá sex tíma hvíld. „Ég var fyrst hálfdrættingur og svo leysti ég af einn túr sem skítkokkur sumarið á eftir,“ seg- ir hann og útskýrir að aðalkokkurinn hafi farið í siglingafrí. „Kaupið var gott, sérstaklega miðað við kaup- ið í sveitinni en þar fékk ég aðallega lömb í laun.“ Var þetta ekki erfitt fyrir óharðnaðan ung- linginn? „Nei, ég hef örugglega fæðst gamall og svo man ég ekki eftir mér öðruvísi en vinnandi,“ segir hann og þvertekur fyrir að hafa grátið í kojunni. „Mér fannst þetta rosalega gaman. Það ólg- aði í mér blóðið.“ Varstu ekkert sjóveikur? „Jú, rosalega. Alveg rosalega. Allt sumarið og næstu sumur á eftir. Þetta er einhver hræðileg- asta veiki sem hægt er að upplifa. Það er ekkert sem linar hana. Maður lærir að lifa með henni hægt og rólega. Ég var sjóveikur meira og minna fyrstu árin. Ég man eftir einum jólatúr þar sem ég ældi galli inni í koju,“ segir Billó sem segir að þrátt fyrir sjóveiki fyrstu árin hafi hann ákveðið að gera sjómennskuna að ævistarfi. Ertu ekki löngu hættur að vera sjóveikur? „Jú, ég óx upp úr því á þriðja, fjórða ári. Ég er með sjóhraustustu mönnum.“ Uppdópaðir sjómenn Sextán ára gamall var Billó orðinn pokamaður á síðutogaranum Jóni Þorlákssyni og var þá þriðji æðsti maður á dekki. „Þetta var mikill starfstitill og ég var með tvo aðstoðarmenn, fjórtán og fimmtán ára. Þetta var sérstök vakt því af ellefu manna vakt erum við fimm sem urðum skipstjórar síðar, en þarna vorum við svo ungir að ef það kom slæpa fórum við bara í feluleik og síðasta leik,“ segir hann. „Á sjónum voru þá bæði svona strákar eins og ég og svo örlagafyllibyttur og heimilisleys- ingjar. Það var rosaleg dópneysla um borð. Ég man þegar ég fór minn fyrsta jólatúr fimmtán ára, og varð reyndar sextán ára í túrnum, þá tók viku að láta renna af mannskapnum. Þeir voru uppdópaðir og drukknir. Það var ekki um auð- ugan garð að gresja að fá mannskap. Það var stundum farið í fangelsi, Þórskaffi og Röðul og hreinsað út til að manna skipin. Á þessum tíma var amfetamín um borð í skipum bara eins og sælgæti,“ segir hann. „Síldarskipin voru á þessum tíma búin að hirða alla bestu sjómennina, fyrir ’68, en þá var síldarhrunið.“ Billó segir upphaf túranna hafa verið það versta, þar sem mannskapurinn var meira og minna undir áhrifum. „Kínverjum var stundum hent inn í klefana til að ræsa mennina á vaktina. Ég lenti í því. Það var ekki hægt að manna vaktir í heila viku í byrjun túra. Svo kláruðust birgðirnar af brenni- víninu og dópinu og þá fór þetta að færast í eðli- legt horf. Þetta voru svo hörkusjómenn þegar runnið var af þeim,“ segir Billó og segist þó ekki myndu vilja sætta sig við svona mannskap í dag. „Þetta var ekkert svona á öllum skipum á þessum tíma; síðutogararnir voru svolítið sér- stakir. Það er þarna að renna upp svanasöngur síðutogaranna og þegar skuttogararnir koma gjörbreyttist allt. Þetta var endalok ákveðins tímabils. Þessir menn máluðu bæina rauða þeg- ar þeir voru í landi og lifðu mest í leigubílum. Eyddu bara öllu þar til kom að næsta túr.“ Fann ástina í Lissabon Billó segist hafa notað sín laun til að borga fyrir skólagöngu og framfleyta sér, enda bað hann foreldra sína síðast um aur um þrettán ára ald- ur. Hann byrjaði á að fara í Vélskólann og tók svo Stýrimannaskólann með. Eftir að hann kláraði skólann fékk hann stöðu sem vélstjóri og svo síðar sem stýrimaður og skipstjóri. „Ég var tuttugu og fjögurra ára þegar ég varð fyrst skipstjóri, þá á litlu rækjuskipi yfir sumartíma. Lestin í því skipi var minni en kart- öflugeymslan í því stærsta sem ég hef verið á. En ég var gríðarlega stoltur af titlinum þarna. Ég byrjaði svo sem fastur skipstjóri 25 ára og hef verið það síðan,“ segir Billó og segist hafa verið á flestum tegundum fiskiskipa á ferlinum. „Ég hef fyrst og fremst verið á togveiðum. Ég var fyrst fyrir norðan á Blikanum sem móð- urbróðir minn átti. Þeir höfðu trú á mér og kannski þess vegna sem ég varð svona ungur skipstjóri. Svo fór ég til Grænhöfðaeyja á rann- sóknarskipinu Feng. Í þeirri ferð kynntist ég konunni minni Söndru Barbosa í Lissabon. Ég hafði þá ekki tekið frí lengi og stoppaði í Lissa- bon. Ég átti líka að læra portúgölsku sem gekk frekar illa,“ segir hann og brosir. Hann segir ástina hafa kviknað fljótlega eftir fyrstu kynni. „Bróðir hennar vann á hótelinu sem ég bjó á og hún var þar mjög mikið. Ég var þarna í átta vikur og tók fjögurra vikna námskeið í portu- gölsku. Hún kom svo á eftir mér til Afríku og við ákváðum svo að gifta okkur á leiðinni heim til Íslands,“ segir Billó en hann dvaldi í tvígang á Grænhöfðaeyjum, alls í rúmt ár. „Konan mín var með mér þar í bæði skiptin. Við höfðum þekkst í sex mánuði þegar við gift- um okkur því ég sá að það gekk ekki að fara með kaþólska stúlku til Íslands án þess að við værum gift. Þannig að planið var að gifta okkur í Lissabon þegar við vorum þar í stoppi á heim- leið eftir fyrri túrinn til Grænhöfðaeyja,“ segir Billó og útskýrir að það hafi reyndar verið erfið- leikum bundið að kvænast stúlkunni því til þess þurfti hann að vera með sérstaka fæðingarbók sem rakti ættartréð og væri einnig sakavottorð. Billó segir að slík „bók“ hafi ekki verið til á Ís- landi og því hafi þeim verið meinað að ganga í hjónaband í Portúgal. „Þetta gekk mjög illa þannig að við snerum þessu á hvolf og héldum brúðkaupsveisluna í Portúgal en giftum okkur um leið og við komum til Íslands.“ Alls ekkert minna en Dalvík Við heimkomuna fluttu ungu hjónin til Dalvík- ur. „Mér fannst þetta fínn staður að búa á en eftir á að hyggja var þetta kannski ekki heppi- legasti staðurinn fyrir konu sem fædd er í Afr- íku og alin upp í fjölmenni,“ segir Billó og út- skýrir að Sandra sé fædd í Mósambík. Fjölskylda hennar flutti svo til Portúgals þegar hún var um tólf ára gömul. „Hún kvartaði ekki mikið en ég gat nú skilið það að hún væri ekkert rosalega ánægð í snjó- kistunni Dalvík. En við fluttum svo til Akureyr- ar,“ segir hann en þar hafa þau búið alla tíð síð- an og unað hag sínum vel. „Eina skiptið sem hún hefur sett mér stólinn fyrir dyrnar var þegar mér var boðið skipstjóra- starf á Þórshöfn, að taka við Stakfellinu, sem var stærra skip en ég var þá með. Þar var mér boðið gull og grænir skógar og frítt húsnæði. En hún sagði þvert nei. Hún vildi ekki búa á stað sem væri minni en Dalvík,“ segir Billó. Þau hjón eiga tvö uppkomin börn, Odd Jó- hann, sem fetaði í fótspor föður síns og er einnig skipstjóri hjá Samherja, og Jöru Fatimu, flug- mann hjá Icelandair. „Við erum öll að stjórna stórum farar- tækjum.“ Billó byrjaði að vinna hjá Samherja snemma á tíunda áratug síðustu aldar. „Ég byrjaði fyrst hér heima og síðan hef ég nánast fylgt Samherja í evrópsku útrásinni. Ég var um skeið hjá bresku fyrirtæki og fór þaðan til Þýskalands. Það var mjög sérstakt því þar fór ég á eitt af stærstu fiskiskipum Evrópu. Ég var búinn að sjá þessi stóru skip sem ungur maður þegar ég var í siglingatúr til Cuxhaven, en það voru til átta skip af þessari tegund. Ég man ég hugsaði þá að það væru meiri líkur á því að ég yrði forseti á Íslandi en að ég yrði skip- stjóri á svona skipi. En svo var ég skipstjóri á svona skipi í tólf ár. Þetta voru langflottustu skipin á Norður-Atlantshafi þegar þau voru ný í kringum 1972-74.“ Meira en íslensk bræla Þrátt fyrir að hafa starfað víða um heim hefur Billó alltaf búið á Íslandi, en þau hjón eiga einn- ig heimili í Portúgal þar sem þau verja fríum sínum. Billó vandist fljótt að vera í löngum túrum og þá lengi í burtu frá konu og börnum. „Í byrjun voru túrarnir oft fjörutíu daga túr- ar, stundum sextíu.“ Túrarnir hjá Billó áttu enn eftir að lengjast. „Ég man alltaf eftir því þegar ég var eitt sinn beðinn um að fara yfir á skipið Kiel og hjálpa þeim með veiðarfærin en þeir höfðu verið í veru- legum vandræðum með að veiða fisk árið á und- an. Skipstjórinn fékk hjartaáfall og var settur í land og ég var beðinn um að hjálpa til. Ég vissi alveg að ég væri að fara þarna yfir til að taka við skipinu, þótt annað væri sagt. Ég var sóttur í annað skip og fluttur um borð í Kiel. Ég man það var logn og fullt tungl og ég hugsaði; mikið ofboðslega er guð góður við mig að leyfa mér að prófa þetta allt saman. Það var svo fyrsti 120 daga túrinn sem ég tók. Þá fór ég að heiman í byrjun janúar og kom heim í maí,“ segir hann en á Kiel réð hann ríkjum frá 2001 til 2014. Aðspurður hvar hann hafi aðallega verið við veiðar svarar hann: „Mest hef ég verið við norsku ströndina og norður í Barentshafi. Og bæði við Austur- og Vestur-Grænland og í Flæmska hattinum. Við veiðum mest þorsk og karfa og allt er fryst um borð,“ segir Billó. Hann segir það venjast vel að vera svo mán- uðum skiptir á sjó. „Þetta er ákveðin áskorun. Það er ýmislegt sem kemur upp á í svona túrum; veikindi, slys og annað, en sem betur fer hefur verið lítið um stærri slys. Ég hef verið gríðarlega lánsamur hvað það varðar; það hefur aldrei neinn dáið um borð hjá mér og mjög lítið um slys.“ „Það bjó í mér ævintýralöngun“ Í hálfa öld hefur Brynjólfur Oddsson siglt um höfin blá. Fjórtán ára var hann ráðinn sem hálfdrættingur á tréskip og áratug síðar var hann orðinn skipstjóri, starfi sem hann hefur gegnt síðan. Billó, eins og hann er kallaður, hefur upplifað margt á löngum ferli; sjóveiki, öldur á hæð við fjöll og sjóferðir sem vara svo mánuðum skiptir. Hann segir tímann hverfa á túrum enda kemst ekkert annað að en að drepa fisk. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.