Morgunblaðið - 16.07.2020, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 2020
Hafi einhver búist við vaxandihelgislepju á Fréttablaðinu
með nýjum herrum á þeim bæ hafa
þeir orðið fyrir
vonbrigðum.
Nýverið tókfastur
pistlahöfundur
á baksíðu
blaðsins sig til
og réðist á
þingmann sem fór í skapið á honum
með hætti sem hefði venjulega varla
náð inn í sorpblöðin.
Var þar að auki djákni að látaprestlærðan fá það og sparaði
sig lítt.
Og í gær, miðvikudag, þótt langtsé í helgi, þá birtist óvenju-
legur lofsöngur í ritstjórnargrein
um Sólveigu Önnu Jónsdóttur, sem
sögð var mestur hvalreki sem skolað
hefði á fjörur verkafólks um árabil.
Sá hvalreki var áður frægasturfyrir að vanhelga Alþingi með
skrílslátum þar og birtast svo í
framhaldinu með hóp upphlaups-
manna til að gera hróp að dóm-
stólum til að tryggja að hvalrekinn
þyrfti ekki að bera ábyrgð á gjörð-
um sínum.
Fordæmt var í leiðaranum droll íráðuneytum, sem Sólveig Anna
hefði réttilega steytt hnefa gegn og
ekki síður hitt að skjaldborg hefði
verið slegin um atvinnurekendur í
varnarbaráttu gegn veirunni, eins
og gert er um allan heim
Þetta eru óneitanlega ný og af-gerandi skilaboð frá fríblaðinu.
Spurningin er því þessi: Hvað ger-ist um næstu helgi?
Helgar þulur
og krot
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Í nýrri framkvæmdasjá á vef Veitna má fletta upp
framkvæmdum á vegum fyrirtækisins eftir póst-
númeri. Einhverjir Reykvíkingar hafa rekist á að
afreinar af Hringbraut og inn á Bústaðarveg og öf-
ugt hafa verið lokaðar um hríð. Veki þetta furðu eða
valdi þetta jafnvel örlitlum óþægindum má glöggva
sig á tímaramma og ástæðu verksins inni á fram-
kvæmdasjánni, þar sem í þessu tilfelli kemur í ljós
að verið er að endurnýja hitavatnslögn frá tönkum í
Öskjuhlíð og inn í vesturhluta borgarinnar. Þetta er
aðeins ein af fjölda framkvæmda á vegum Veitna
þessa stundina en þær hafa aldrei verið eins margar
og umfangsmiklar og þetta árið, eftir að bætt var í
starfsemina til að mæta atvinnuleysi í kjölfar
kórónuveirunnar. Til þess að forða því að aukið um-
fang starfseminnar leiddi til upplýsingaóreiðu var
brugðið á það ráð að safna framkvæmdunum á einn
stað og þar tekur Finnur svonefndur á móti manni.
Hann er öryggiskeila og gegnir þannig þegar hlut-
verki einkennismerkis fyrir framkvæmdir á vegum
Veitna. Veitur fjárfesta í verkefnum fyrir níu millj-
arða árlega en sex bættust við nú í faraldrinum.
Þjónustan nær til 70% íbúa landsins.
Finnur finnur framkvæmdirnar
Hægt að fletta upp
framkvæmdum í hverfinu
Einkennismerki Öryggiskeilan Finnur hjálpar
til við að finna framkvæmdir á vegum Veitna.
Grassláttur í Reykjavík er á áætlun
og hefur gengið nokkuð vel það
sem af er sumri. Þetta segir Bjarni
Brynjólfsson, upplýsingafulltrúi
Reykjavíkur. „Þetta er allt á ætlun.
Það eru farnar nokkrar umferðir á
hverju sumri og það er alltaf verið
að slá á einhverjum stöðum,“ segir
Bjarni og bætir við að svæðið sem
um ræðir sé mjög stórt. „Þetta er
mjög mikið svæði sem þarf að slá
þannig að það þarf að fara víða,“
segir Bjarni.
Líkt og undanfarin sumur hefur
nokkur fjöldi einstaklinga kvartað
undan litlum grasslætti í borginni
vegna frjókornaofnæmis. Er mikið
gras talið ýta undir ofnæmis-
viðbrögð. Að sögn Bjarna eru
kvartanirnar álíka margar og síð-
ustu ár. „Það er ekkert meira en
venjulega enda er ekkert illa slegið
hjá okkur,“ segir Bjarni.
Aðspurður segist hann gera ráð
fyrir að farnar verði þrjár til fjórar
umferðir á hverju svæði. Þá verði
slegið svo lengi sem spretta er.
aronthordur@mbl.is
Grassláttur í borginni
samkvæmt áætlun
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Græn svæði Það eru stór svæði sem þarf að slá hjá borginni.
Eldhúsinnréttingar
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
Sumaropnun:
Mán. – Föst. 10–17
Laugardaga LOKAÐ
2
0
0
0
—
2
0
2
0