Morgunblaðið - 16.07.2020, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 2020
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna
gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga
frá dagsetningu áskorunar þessarar:
Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga
til og með 15. júlí 2020, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 6. júlí 2020 og
önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 15. júlí
2020, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti
í tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á
skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi,
gistináttaskatti, fjársýsluskatti, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi
af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, árgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir,
fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra,
ofgreiddri uppbót á eftirlaun, eftirlitsgjaldi Fjármálaeftirlitsins, árgjaldi handhafa markaðsleyfis,
veiðigjaldi og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru:
Tekjuskattur og útsvar ásamt álagi á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, útvarpsgjald,
gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa,
auðlegðarskattur og viðbótar auðlegðarskattur, fjármagnstekjuskattur ásamt álagi á
ógreiddan fjármagnstekjuskatt, ógreiddur tekjuskattur af reiknuðu endurgjaldi ásamt
álagi, búnaðargjald, sérstakur fjársýsluskattur, sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki,
jöfnunargjald alþjónustu, ofgreiddar barnabætur og ofgreiddar vaxtabætur.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum
gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að
leiða, á kostnað gjaldenda.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir
gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 25.000 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald
er 2.500 kr. auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem
fyrst til að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald,
afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald, fjársýsluskatt, gistináttaskatt og virðisaukaskatt,
búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda
bifreiðagjöld og kílómetragjald mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum
þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega
búast við að send verði út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin
hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu
áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum.
Reykjavík, 16. júlí 2020
Ríkisskattstjóri
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
Sýslumaðurinn á Austurlandi
Sýslumaðurinn á Suðurlandi
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum
Lúsmý hefur náð fótfestu á Ís-landi og er til vandræða,einkum fyrripart sumars.
Flugan er agnarsmá og getur því
verið erfitt að greina hana með ber-
um augum. Lúsmý heldur sig þar
sem er skjól og skuggi. Það leggst til
atlögu að nóttu til og verður fólk því
ekki vart við bitin fyrr en kláði og
bólga koma fram. Bitin eru ekki
hættuleg en geta valdið talsverðum
óþægindum, sérstaklega ef þau eru
mörg.
Í flestum tilfellum getur fólk sjálft
meðhöndlað einkennin og ganga þau
yfir á nokkrum dögum. Einstaka
sinnum geta einkenni þó verið það
slæm að fólk þarf að leita sér hjálpar
hjá heilbrigðisstarfsmanni.
Til þess að koma í veg fyrir bit er
mikilvægt að huga forvörnum. Ýmis
ráð geta reynst gagnleg til þess að
fyrirbyggja bit af völdum lúsmýs.
Þar má til dæmis nefna:
Loka öllum gluggum vel fyrir
nóttina og setja þétt flugnanet fyrir
glugga til þess að koma í veg fyrir að
lúsmý komist inn í híbýli.
Sofa í náttfötum og sokkum til að
hylja húðina.
Hafa viftu í gangi að næturlagi til
að koma hreyfingu á loftið. Þá getur
lúsmýið ekki athafnað sig.
Klæðast langerma bol og síðum
buxum í ljósaskiptum.
Bera á sig krem eða úða sem fælir
skordýr í burtu. Mælt er með vörum
sem innihalda DEET. Slíkar vörur
fást í apótekum. Mikilvægt er að
hafa í huga að börn eiga ekki að nota
vörur sem innihalda meira en 10%
DEET.
Ef fólk verður vart við bit eru
ýmis ráð sem hægt er að prófa heima
til þess að draga úr einkennum.
Kaldir bakstrar minnka bólgur og
draga úr óþægindum.
Passa að klóra ekki húðina, það
getur aukið hættu á sýkingu.
Parasetamól getur dregið úr
verkjum og óþægindum. Mikilvægt
er að fylgja leiðbeiningum um notk-
un á lyfi.
Væg sterakrem geta dregið úr
einkennum. Slík krem fást í apótek-
um án lyfseðils. Sterakrem eru ekki
ætluð til langtímanotkunar eða á
stór húðsvæði.
Ofnæmislyf eins og Lóritín eða
Histasín draga úr bólgu og kláða.
Hægt er að fá slík lyf í apótekum án
lyfseðils. Mikilvægt er að fylgja leið-
beiningum um notkun á lyfi.
Ýmis krem og smyrsli sem kæla
húðina og draga úr kláða er hægt að
nálgast í apótekum.
Ef almenn ráð duga ekki
Í sumum tilvikum geta bit af völd-
um lúsmýs orðið það slæm að al-
menn ráð duga ekki. Við alvarlegum
ofnæmiseinkennum eins og
öndunarerfiðleikum, bólgu á hálsi,
svima, hröðum hjartslætti eða
meðvitundarskerðingu á strax að
leita á bráðamóttöku eða hringja í
112.
Ef bit hverfa ekki á nokkrum dög-
um eða versna jafnvel er ráðlagt að
fá mat heilbrigðisstarfsmanns. Það
sama á við ef fólk fær flensulík ein-
kenni og bólgna eitla. Hægt er að
leita á heilsugæsluna á dagvinnu-
tíma. Bæði er hægt að bóka tíma eða
óska eftir símtali frá lækni eða
hjúkrunarfræðingi. Einnig er hægt
að senda fyrirspurn á Mínum síðum
á Heilsuvera.is og fá ráðgjöf á net-
spjallinu. Á Heilsuvera.is er einnig
að finna fræðsluefni um skordýrabit.
Forvarnir
gegn lúsmýi
Ljósmynd/Vísindavefur HÍ
Bitvargur Lúsmý hefur fjölgað sér ört hér á landi á seinni árum og getur valdið fólki miklum ama.
Unnið í samstarfi við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins.
Heilsuráð
Margrét Björnsdóttir
fagstjóri hjúkrunar á
Heilsugæslunni í Garðabæ
Hvernig voru krakkaleikir í gamla daga
og í eldgamla daga? Því verður hægt
að kynnast af eigin raun á Landnáms-
sýningunni í Aðalstræti á laugardag-
inn frá kl. 13-14 þegar fram fara
„Krakkaleikir í Kvosinni“.
Landnámssýningin er á vegum
Borgarbókasafns Reykjavíkur.
„Í Reykjavíkurkvosinni hafa alltaf
verið krakkar, alveg frá víkingaöld, og
alls staðar þar sem krakkar búa vilja
þau leika sér. Þetta munum við skoða,
bæði úti og inni, alls konar krakkaleiki
sem voru vinsælir fyrir 100 árum eða
1.000 árum. Síðan munum við líka
prófa nokkra leiki til að sjá hvort þeir
eru jafnskemmtilegir í dag og þeir
voru þá,“ segir í tilkynningu Borg-
arbókasafns.
Hist verður fyrir framan Landnáms-
sýninguna kl. 13. Þátttaka er ókeypis
og það eina sem þarf að taka með sér
er góða skapið og leikgleðin!
Leiðsögumaður og leikjastjórnandi
er Jón Páll Björnsson, sagnfræðingur
og barnabókahöfundur.
Krakkaleikir í Kvosinni á Landnámssýningunni
Ljósmynd/Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Krakkaleikir Börn að leik í Austurbæjarskóla á síðustu öld.
Leikir eins og í gamla daga
Líf og fjór verður á Árbæjarsafni um
helgina, þar sem dýrin verða alls-
ráðandi. Á laugardaginn, frá kl. 13-
16, verður íslenski fjárhundurinn í
öndvegi. Fjöldi hunda mætir, ásamt
eigendum sínum, og verða til sýnis
fyrir gesti og gangandi. Sem fyrr er
aðgangur á safnið ókeypis fyrir
börn, öryrkja og menningarkorts-
hafa.
Sunnudagurinn á Árbæjarsafni
verður tileinkaður húsdýrunum og
yfirskrift dagsins er „Hani, krummi,
hundur, svín“. Á safninu búa ís-
lenskar landnámshænur, kindur,
lömb og hestar. Að auki koma fé-
lagar úr deild íslenska fjárhundsins
með nokkra hunda með sér.
Í húsi sem nefnist Lækjargata
verða tónleikar kl. 14 með Borgar-
blómum, hópi sem þrjár klassískar
tónlistarkonur skipa.
Dýrin allsráðandi á Árbæjarsafni um helgina
Hani, krummi, hundur, svín
Morgunblaðið/Ómar
Árbæjarsafn Íslenski fjárhundurinn
og fleiri dýr verða á vappi.