Morgunblaðið - 16.07.2020, Side 16

Morgunblaðið - 16.07.2020, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 2020 Njóttu þess að hvílast í hreinum rúmfötum Háaleitisbraut 58–60 • haaleiti@bjorg.is • Sími: 553 1380 GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA Við þvoum og pressum rúmfötin - þú finnur muninn! Morgunblaðið/Eggert Svell Börn verða að fara varlega þegar svell er útbúið. Þau verða að muna eftir að skrúfa fyrir. Afgreiddu 436 tryggingamál Úrskurðarnefnd í vátryggingamálum fjallar um ágreining um bótaskyldu, þar með talið sök og sakarskiptingu milli neytenda og vátryggingafélags. 436 málum var skotið til nefndarinnar á árinu 2019 og var lokið við að úrskurða í þeim síðustu eftir miðjan febrúar 2020. Úrskurðir eru á ýmsa vegu, oftar virðast þó tryggingafélögin hafa rétt fyr- ir sér en neytendur. Nefndin hefur starfað frá árinu 1994 og er vistuð hjá Seðlabanka Íslands. Áður en neytandi skýtur máli til nefndarinnar þarf hann að hafa fengið neit- un hjá viðkomandi tryggingafélagi. Ekki er tekið við máli nema fyrst hafi 9.200 kr. málskotsgjald verið greitt. Sex ára gamall drengur skellti harkalega aftur hurð á átta ára gömlum ísskáp með þeim af- leiðingum að allt rafmagn fór af skápnum. Var ísskápurinn dæmdur ónýtur. Eigandinn krafð- ist bóta vegna tjóns á ísskápnum úr innbús- kaskótryggingu en tryggingafélagið hafnaði bótaskyldu. Tryggingin tók til tjóns á lausa- fjármunum vegna skyndilegs eða ófyrirsjáan- legs utanaðkomandi atviks. Úrskurðarnefndin taldi að það hefði verið fyrirsjáanlegt utanað- komandi atvik þegar sonur eigandans lokaði ísskápnum með þeim hætti sem hann gerði. At- vikið félli því ekki undir bótasvið tryggingar- innar. Eyðilagði ísskap með því að skella hurðinni aftur Kona sem var á göngu með hund sinn varð fyr- ir því að annar hundur réðist á hund hennar, beit í háls hans og hristi til. Krafðist hún bóta úr ábyrgðartryggingu sem heilbrigðiseftirlit sveitarfélagsins var með fyrir alla skráða hunda í sveitarfélaginu. Hundurinn þurfti að- hlynningu dýralæknis sem kostaði 68 þúsund og áframhaldandi verkjameðferð þar sem kvarnaðist upp úr hálslið við árásina. Sonur eiganda árásarhundsins sem var með hundinn í umrætt sinn sagði að hundurinn hefði náð að losa sig úr taumi. Konan taldi að hann hefði ekki verið í ól en sonurinn hefði þó hlaupið á eftir honum og lagst ofan á hundinn til að fá hann til að sleppa hinum hundinum. Úrskurðarnefndin taldi að ekki hefði verið sýnt fram á saknæma háttsemi umsjónar- manns árásarhundsins, svo sem að hann hefði ekki verið í ól, og hann hefði brugðist rétt við. Þetta hefði verið óhappatilvik sem ekki væri bótaskylt úr umræddri tryggingu. Hundur beit í háls annars hunds og hristi hann til Maður sem varð fyrir því að bakpoka hans var stolið á veitingastað í London þarf sjálf- ur að bera helming tjónsins en trygginga- félagið ber hinn helminginn af farangurslið kortatryggingar. Maðurinn var á viðburði á staðnum með bakpoka við hlið sér þegar pokinn hvarf. Á öryggismyndavélum sást að maður kom inn á staðinn með svipaðan bak- poka og skipti honum út fyrir bakpoka mannsins. Í honum var fartölva, gleraugu, trefill og lesbretti sem maðurinn heimti ekki aftur. Tryggingafélagið hafnaði bóta- skyldu á grundvelli varúðarreglu og að ekki skyldi skilja við muni eftirlitslausa á al- mannafæri. Úrskurðarnefndin taldi félagið geta borið þessu við en þó þannig að sök mannsins hefði ekki verið það rík, m.a. með vísan til þess hvernig þjófnaðurinn var skipulagður, að tryggingafélagið gæti fríað sig allri ábyrgð. Fær bætur fyrir helming innihalds bakpokans Tvær stúlkur, 9 og 10 ára gamlar, voru að leik og ætluðu sér að búa til svell á bílaplani við húsið sem þær búa í með því að sprauta vatni úr garðslöngu. Vatn rann inn í kjallaraíbúð nóttina á eftir og varð þar tjón. Úrskurðar- nefndin taldi líkur á því að vatnið hefði komið úr slöngunni og jarðvegur stíflað niðurfall. Stúlkurnar hefðu átt að gera sér grein fyrir af- leiðingunum og þær hefðu sýnt gáleysi með því að skrúfa ekki fyrir. Málið snerist um bæt- ur úr ábyrgðartryggingu fjölskyldutrygg- ingar annarrar stúlkunnar og var talið að eig- andi kjallarans ætti rétt á bótum. Stúlkurnar hefðu átt að skrúfa fyrir garðslöngu Kona sem varð fyrir því að bifreið hennar skemmdist þegar fjórar eða fimm innkaupakerrur runnu frá inngangi verslunar, út á akbraut og á bifreið hennar, þegar hún átti leið þar hjá, gerði kröfu um bætur úr ábyrgðartryggingu verslunarinnar. Taldi konan að aðbúnaður fyrir kerrur við verslunina væri óviðunandi og kerrur hrönnuðust þar upp. Tryggingafélagið færði þau rök fyrir synjun á kröfum konunnar að starfsmaður verslunarinnar hefði verið að taka saman kerrur umrædd- an dag og skapa pláss í kerruskýli. Kerrur við inngang væru vegna van- rækslu viðskiptavina. Úrskurðarnefndin taldi ekki að gögn lægju fyrir sem sönnuðu að kerrur hefðu safnast upp við innganginn vegna sak- næms athafnaleysis starfsmanna verslunarinnar og ætti konan því ekki rétt á skaðabótum. Hver ber ábyrgð á innkaupakerrunum? Eigandi íbúðar sem varð fyrir því að vatn sem notað var í vökvunar- kerfi kannabisplantna í íbúðinni fyrir ofan fékk úrskurð um að vá- tryggingafélaginu bæri að greiða tjónið úr húseigendatryggingu fjöl- býlishússins. Tryggingafélagið hafði hafnað bótaskyldu á þeim forsendum að vatnið hefði verið leitt með slöngu úr öðru herbergi en ekki komið úr leiðum hússins og félli það ekki undir skilmála. Úr- skurðarnefndin tók undir það en benti á að vatnið væri á ábyrgð eig- anda íbúðarinnar sem lekinn kom frá og nyti eigandinn trygginga- verndar vegna tjónsins. Því fékkst tjónið á neðri hæðinni bætt. Fékk bætt tjón vegna kannabisræktunar Kona sem rann til á hálu gólfi sundhall- ar á rétt á bótum úr ábyrgðartryggingu sveitarfélagsins. Konan taldi að sveitar- félagið bæri ábyrgð á slysinu, þar sem ekki hefði verið varað við hálu gólfi eftir skúringar. Tryggingafélagið hafnaði því að aðstæður í sundhöllinni hefðu verið óforsvaranlegar. Gat félagið þess að flísarnar væru búnar sérstakri hálku- vörn og skúringavél skildi ekki eftir sig bleytu á gólfi. Í áliti úrskurðarnefndar er bent á skjalfestar upplýsingar um að bleyta hafi verið á gólfinu, gólfið hafi verið nýskúrað og engar viðvaranir ver- ið. Féllst nefndin á að vara hefði átt við því að gólf gætu verið blaut vegna skúr- inga og sveitarfélagið hefði bakað sér skaðabótaábyrgð gagnvart konunni. Láðist að vara við hálu gólfi eftir skúringar Kona sem slasaðist þegar reiðhjól skullu saman skammt frá Egilsstöðum fyrir nokkrum árum krafðist skaðabóta fyrir líkamstjón sitt úr ábyrgðartryggingu hins hjólamannsins. Þau hjóluðu sam- síða en greinir á um atvik þess er hjólin skullu saman þegar hinn hjólreiðamað- urinn beygði fyrir konuna með þeim af- leiðingum að hjól hennar lenti á aftur- dekki hjóls hans og hún féll í jörðina og brotnaði illa. Úrskurðarnefndin taldi ósannað að rekja mætti slysið til þess að hjólreiðamaðurinn hefði tekið beygjuna andstætt umferðarreglum eða að öðru leyti sýnt af sér gáleysi, eins og áskilið væri í skilmálum tryggingarinnar. Konan ætti því ekki rétt á bótum. Hvor átti réttinn? Bifreið konu féll niður af tjakki og skemmdist. Vátryggingafélagið neitaði henni um bætur úr kaskótryggingu á þeim grundvelli að tryggingin næði ekki til falls heldur aðeins til hraps. Um það var deilt hvort skemmdirnar væru vegna hraps eða falls. Í áliti úrskurðarnefndarinnar er tekið undir skilning vátryggingafélagsins og bótaskylda ekki talin fyrir hendi. Orðið hrap vísi til þess þegar eitthvað hrapi í háu og þungu falli og meðal annars vísað til grjót- og stjörnuhraps. Ekki verði séð að fall bifreiðar af tjakki sé í samræmi eða tengslum við önnur atriði sem talin eru upp í umræddu skil- málaákvæði og bifreiðin hafi ekki hrapað í þeim skilningi. Fall er ekki það sama og hrap

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.