Morgunblaðið - 16.07.2020, Side 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 2020
www.danco.is
Heildsöludreifing
yrirtæki og verslanir
Sumarleikföng í úrvali
Kynntu þér málið og pantaðu
á vefverslun okkar www.danco.is
Kútar
S ndlau Sundboltar
120x120x87 cm
Fótbolta-
æfingasett
Vatnsblöðrur
Hoppubolt
50 cm
Fötusett
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Aðeins örskammt frá þjóðveginum
á Sandskeiði, þar sem umferðin
streymir áfram viðstöðulaust til
beggja átta, er falinn fjallasalur.
Dalur í kvos milli fjalla, umluktur
háum hlíðum á alla vegu og fáir
eiga þangað erindi. Í rauninni eng-
inn, nema flökkusálir sem finnst
gaman að skoða landið sitt og leita
uppi áhugaverða staði. Þetta er
Jósepsdalur, sem er á sýslumörk-
um Gullbringu- og Kjósarsýslu og
Árnessýslu og innan landamæra
Ölfuss.
Á Sandskeiði, skammt fyrir neð-
an Litlu kaffistofuna, er skilti sem
vísar veginn að Bolöldum, þar sem
eru malargryfjur og leiksvæði mót-
orsportsfólks. Einnig er þar merk-
ing um Jósepsdal, en þegar þangað
er ekið þarf að taka krók fram hjá
torfærubrautum vélhjólafólks. Svo
er ekið um holóttan malarveg ofan
og austan við flugvöllinn á Sand-
skeiði í átt að Vífilsfelli. Svo áfram
upp austurhlíð þess á hrygg sem
tengist Sauðadalshnjúkum. Af
hæðinni þar blasir Jósepsdalur við.
Smiðurinn bölvaði og ragnaði
Í fyrndinni bjó í dalnum þjóð-
sögum samkvæmt smiður sem Jós-
ep hét. Hann var listasmiður á járn
en hafði þann löst að bölva og
ragna þegar á móti blés er hann
stóð við aflinn. Því fór svo að æðri
máttarvöld gripu í taumana, svo
bær Jóseps sökk ofan í jörðina og
allt hans fólk og fleira til. Ekkert
hefur síðan til þeirra spurst segir
þjóðsagan, sem að efni og inntaki
er svipuð mörgum frásögnum sem
gengið hafa milli kynslóða.
Að lengd er Jósepsdalur um 2,5
km og breiðastur um 500 m. Botn
dalsins er í 300 m hæð og yfir eru
fjöll sem ná allt að 600 m hæð. „Er
kreppt að dalnum frá öllum áttum
og víðsýninu ekki fyrir að fara,“
segir Tómas Einarsson í leiðarlýs-
ingu um svæðið í Árbók Ferða-
félags Íslands 1985. Norðarlega í
Jósepsdalnum heitir Ólafsskarð,
sem þar er milli hnjúka í fjalls-
hrygg. Þar var áður fjölfarin leið
milli Ölfuss og byggðanna við
Faxaflóa.
Vikur og móberg
Vikurkenndur jarðvegur og mó-
berg eru áberandi í Jósepsdal.
Gróðurinn er viðkvæmur og raun-
ar allt í náttúru svæðisins, sem
minnir leikmann að sumu leyti á
Landmannaafrétt. Jeppaslóðar
liggja þvers og kruss um dalbotn-
inn, sem í snjóbráð á vorin verður
stöðuvatn. Dalurinn er snjóakista
og var fyrr á árum vinsælt skíða-
svæði. Fólk úr Ármanni helgaði
sér svæðið og reisti þar skíðaskála
sem hét Himnaríki. Af skíðasport-
inu spruttu svo ýmis örnefni, svo
sem Páskabrekka, sem er aust-
anvert í Vífilsfellinu, en þar renndi
fólk sér gjarnan á skíðum um
páskana.
Frá skíðaferðum í Jósepsdal fyrr
á tíð segir meðal annars í bókinni
Um tímann og vatnið eftir Andra
Snæ Magnason sem út kom í fyrra.
Breytingar á náttúru heimsins
og bráðnun jökla eru meginstef
hennar. Svo fór líka að þegar
minna varð um snjó í Jósepsdal
lagðist skíðasport þar af og var
flutt suður í Bláfjöll.
Í jaðri höfuð-
borgarsvæðis
Vin við Vífilsfell
Er að baki Blá-
fjöllum Var
himnaríki Ár-
menninganna
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Leyndarstaður Horft yfir Jósepsdal til suðurs af hrygg sem lokar dalnum að norðan. Viðkvæmur mosagróður er áberandi í dalnum, sem slóði liggur um.
Jósepsdalur
Kortagrunnur: OpenStreetMap
Vífi lsfell
Bláfjöll
Ólafsskarð
Jós
ep
sd
alu
r
SandskeiðBl
áfj
öll
Reykjavík
Bo
la
öl
du
r
Litla
kaffi stofan
■
1
Flugsýn Horft yfir Jósepsdal til norðurs sl. vetur úr flugvél
frá Erni. Vífilsfell er hér lengst til vinstri og efst.
Jósepsdalur falinn fjallasalur
Leiðsögn Skiltið vísar veginn. Í Jósepsdal er beygt
af Suðurlandi skammt fyrir neðan Litlu kaffistofuna.
„Jósepsdalur er leynistaður og
friðsældin er mikil,“ segir Magn-
ús Ásgeirsson úr Reykjavík, sem
blaðamaður hitti á ferð í dalnum
á dögunum. Báðir þekktu til
dalsins en voru ekki kunnugir
staðháttum svo tali tæki. Fannst
því rétt að bæta úr og gera vett-
vangskönnun. Magnús, sem er
viðskiptafræðingur, hefur í ára-
raðir verið starfsmaður hjá N1 og
hefur meðal annars starfs síns vegna flakkað víða um landið. „Ég man
eftir að hafa komið hingað sem unglingur þegar þetta var vinsælt skíða-
svæði,“ segir Magnús enn fremur.
„Frá páskum um 1970 minnist ég þess að hljómsveitin Pops var hér
með spilirí. Nokkrum árum síðar, þegar ég var viðloðandi borgarmál í
Reykjavík, var ákveðið að flytja aðstöðu skíðafólks sunnar og upp í Blá-
fjöll og þar var í aðalhlutverki Elín Pálmadóttir, blaðamaður á Morgun-
blaðinu, sem þá var einnig í borgarstjórn. Sú ákvörðun var góð. Fyrir vikið
koma fáir í Jósepsdal, sem gerir staðinn heillandi. Fólk sem stundar jóga,
hugleiðslu eða þarf jarðtengingu ætti að koma hingað.“
Aðstæður voru kannaðar
MAGNÚS FÓR Í HELGARBÍLTÚR Í JÓSEPSDALINN
Helgarbíltúr Magnús Ásgeirsson á
ferðalagi í Jósepsdal á jeppanum.