Morgunblaðið - 16.07.2020, Side 32
32 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 2020
Komdu í BÍLÓ!
-
Nýskráður 06/2018, ekinn 29 Þkm. S-line álfelgur og
innrétting, nudd í framsætum ogmargt fleira!
Raðnúmer 380857
Nýskráður 06/2018, ekinn 29 Þkm. 18“ design álfelgur,
þakbogar, Bang & Olufsen hljómkerfi
Raðnúmer 251205
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is – ALLTAF VIÐ SÍMANN 771 8900 –
ÞÚ FÆRÐ LANGFALLEGUSTU
BÍLANA HJÁ OKKUR
es nS Lin
HLAÐNIR AUKAHLUTUM, LÍTIÐ EKNIR!
AUDI A3 E-TRON
Bensín og rafmagn (plug in hybrid), sjálfskiptir, stafrænt mælaborð, leiðsögukerfi,
18“ álfelgur, hraðastilli, fjarlægðarskynjarar, akreinavari, þráðlaus símahleðsla, LED
ljós. 5 ára ábyrgð, allt að 100þkm. Óaðfinnalegir í útliti!
KÍKTUVIÐ!VERÐ 4.390.000 kr. VERÐ 4.350.000 kr.
fundabúnaði vegna kórónuveir-
unnar.
„Okkar lausn er bæði í því að finna
peningaþvott, en hjálpar líka fólki að
skilja hvað það er að horfa á á skján-
um. Við hjálpum fólki að skilja hvað
er peningaþvottur og hvað ekki.“
Kerfið er hannað þannig að þjálf-
un starfsfólks tekur minni tíma. Það
sparar kostnað, tíma og fyrirhöfn.
Spurður um mælanlegan árangur
af notkun kerfisins segist Guðmund-
ur ekki geta gefið upp hvað afköst
aukast mikið við að greina peninga-
þvætti, en þau séu margföld á við
sambærileg kerfi.
Um fjármögnunina sjálfa segir
Guðmundur að mikill áhugi hafi ver-
ið á fyrirtækinu.
Núverandi fjárfestar líka með
Fjárfestarnir sem nú koma að
fyrirtækinu eru Karma Ventures og
byFounders, en einnig tóku núver-
andi fjárfestar þátt í útboðinu, Crow-
berry Capital og Preceptor Capital.
„Fjárfestar eins og byFounders
og Karma Ventures eru ómetan-
legir,“ segir Guðmundur. „Vilji
þeirra til að fara út fyrir þæginda-
rammann og fjárfesta við jafn erf-
iðar aðstæður og nú eru uppi segir
sitt um trú þeirra á því hvað við er-
um að gera. Við getum varla beðið
eftir samstarfinu við þá í framtíðinni.
Bæði fyrirtækin koma með gríðar-
legt virði inn í Lucinity í gegnum
tengslanet sitt og reynslu við að
byggja upp stórkostleg Saas-fyrir-
tæki (hugbúnaður sem þjónusta).“
1% árangur af baráttu
Eins og Guðmundur útskýrir er
kerfinu ætlað að berjast gegn pen-
ingaþvætti í heiminum, sem nemur
samtals trilljónum bandaríkjadala á
ári hverju. Eins og fram kemur í til-
kynningu frá fyrirtækinu reyna að-
ilar á markaði að stemma stigu við
þvættinu, en árangur er aðeins um
1%.
Í tilkynningunni segir einnig að
ágóðinn af peningaþvætti sé notaður
um allan heim til að fjármagna
verstu glæpi sem stundaðir eru, eins
og mansal og hryðjuverk.
Viðskiptavinir Lucinity eru bæði
smáir og stórir aðilar á fjármála-
markaði.
860 mkr. í miðjum faraldri
Morgunblaðið/Hari
Verðmæti Guðmundur segir að fjárfestarnir komi inn með gríðarlegt virði.
Berst gegn peningaþvætti Fjarfundir með fjárfestum á netinu
Trilljónir bandaríkjadala þvættaðar í gegnum fjármálakerfi heimsins árlega
Peningaþvætti
» Lucinity er með starfsstöð á
Íslandi og í New York.
» Átján manns starfa hjá fyrir-
tækinu í dag en stefnt er að því
að fjölga starfsmönnum í 30-
35 á þessu ári og í 45-50 á því
næsta.
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Nýsköpunarfyrirtækið Lucinity,
sem framleiðir gervigreindar-
hugbúnað sem hjálpar fyrirtækjum
að berjast gegn peningaþvætti, hef-
ur tryggt sér fjármögnun upp á rúm-
ar sex milljónir bandaríkjadala, eða
jafnvirði um 860 milljóna íslenskra
króna. Samtals hefur fyrirtækið
safnað níu milljónum dala frá því það
var stofnað árið 2018, eða jafnvirði
ríflega 1,3 milljarða króna. Þar af
koma 6,5 milljónir dala að utan.
Guðmundur Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri og stofnandi fyrir-
tækisins, segir í samtali við Morgun-
blaðið að vel hafi gengið við sölu á
hugbúnaði fyrirtækisins á síðustu
mánuðum. „Við sáum ákveðin tæki-
færi myndast í mars sl. Ástandið
sem skapaðist vegna kórónuveiru-
faraldursins varð til þess að margir
vöknuðu upp við vondan draum hvað
varðar varnir gegn peningaþvætti.
Bankar hættu að geta séð með góðu
móti hvað peningaþvottur var, því
gömlu kerfin náðu ekki nógu vel utan
um þetta. Einnig hafði það áhrif að í
ástandinu fóru allir að vinna heima.“
Skilja betur hvað er á skjánum
Guðmundur segir að Lucinity hafi
því farið í viðræður við erlenda fjár-
festa um aðkomu að fyrirtækinu og
það hafi gengið vel þrátt fyrir að
fundirnir hafi farið fram með fjar-
þétt úr minni hagkerfum, með minni
fljótandi gjaldmiðla, í öryggi stóru
myntanna. Við höfum séð það sama
gerast á okkar mörkuðum og öðrum
sambærilegum mörkuðum.“
Vaxtamunur ekki skýringin
Jón Bjarki telur aðspurður að
minni vaxtamunur milli Íslands og
útlanda sé ekki meginskýringin á
veikingu krónunnar að undanförnu.
Þ.e.a.s. að minni vaxtamunur hafi
ekki leitt til mikils fjárstreymis úr
landi. Hjá Seðlabankanum fékkst
það svar að ekki væru veittar upplýs-
ingar um einstaka viðskipti á gjald-
eyrismarkaði. Hins vegar var vísað á
nýjustu tölur um veltu á markaði frá
13.7. Þær eru endurbirtar hér á graf-
inu, ásamt gengisvísitölunni.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræð-
ingur Íslandsbanka, segir sölu er-
lendra fjárfesta á ríkisbréfum eiga
þátt í veikingu krónunnar síðustu
daga. Með því skipti þeir út krónum
fyrir erlendan gjaldeyri.
„Allra síðustu daga virðist ein
helsta skýringin á veikingunni vera
sú að einn af stærri erlendum eig-
endum innlendra ríkisbréfa hefur
verið að selja bréfin og krónurnar,“
segir Jón Bjarki. Eftir því sem hann
best veit hafi umræddir fjárfestar
valið þessa tímasetningu á sölunni.
„Þetta er áframhald á þróun sem
hefur litað þetta ár en stóru fjárfest-
arnir hafa verið að færa sig jafnt og
Sala á ríkisbréfum á þátt í veikingunni
Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir erlenda fjárfesta leita á stærri markaði
Velta á gjaldeyrismarkaði og gengisvísitala*
25. júní til 13. júlí 2020
7
6
5
4
3
2
1
0
209
207
205
203
201
199
197
195
25. 26. 27. 28. 29. 30. 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. 13.
júní júlí
Velta, ma.kr. Gengisvísitala
6,5
2,2
0 0
0,6
2,5
0,3
1,3
0,3
1,3 1,4
0,6 0,6
Dagleg velta á gjaldeyrismarkaði, ma.kr.
Gengisvísitala
* Lægri vísitala þýðir hærra
gengi krónunnar og öfugt
Heimild: Seðlabankinn/mbl.is
204,3
207,3
● Úrvalsvísitala
aðallista Kaup-
hallar Íslands
hækkaði um
0,45% í gær. Mest
hækkuðu bréf Ice-
landair, eða um
2,16% í tveggja
milljóna króna við-
skiptum. Næst-
mest hækkun varð
á bréfum Arion
banka, eða um 1,88% í 399 milljóna
króna viðskiptum. Var lokagengi bank-
ans 65,1 króna fyrir hvern hlut í lok
dags í gær. Þá hækkuðu bréf smásölu-
fyrirtækisins Festar um 1,52% í 70
milljóna króna viðskiptum.
Mesta lækkun gærdagsins varð á
bréfum Iceland Seafood, um 1,5% í
fimm milljóna króna viðskiptum.
Úrvalsvísitalan hækkaði
um 0,45% í gær
Viðskipti Ice-
landair hækkaði.
16. júlí 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 140.41
Sterlingspund 175.8
Kanadadalur 103.03
Dönsk króna 21.441
Norsk króna 14.885
Sænsk króna 15.351
Svissn. franki 149.41
Japanskt jen 1.3074
SDR 194.54
Evra 159.6
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 186.3934
Hrávöruverð
Gull 1798.2 ($/únsa)
Ál 1664.5 ($/tonn) LME
Hráolía 42.24 ($/fatið) Brent
● Samkvæmt
gögnum Seðla-
banka Íslands um
veltu innlendra
greiðslukorta í júní
nam kortavelta
tengd verslun og
þjónustu innan-
lands 78,6 millj-
örðum króna og
jókst hún um 17%
milli ára miðað við
fast verðlag. Eins og fram kemur í
Hagsjá Landsbankans er það veruleg
aukning og viðsnúningur frá þróun síð-
ustu mánaða.
Í Hagsjánni segir að í mars og apríl
hafi mælst samdráttur milli ára og í
maí hafi mælst aukning upp á 2%
þegar fyrstu tilslakanir á samkomu-
banni tóku gildi.
Miðað við niðurstöðu júnímánaðar
virðist sem Íslendingar margir hverjir
ætli að gera nokkuð vel við sig í
sumarfríinu innanlands, eins og það er
orðað í Hagsjánni, og gæti neysla
innanlands orðið meiri en í fyrri
sumarfríum.
Kortavelta innanlands
í júní jókst um 17%
Frí Íslendingar
gera vel við sig.
STUTT