Morgunblaðið - 16.07.2020, Blaðsíða 33
FRÉTTIR 33Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 2020
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Tímapantanir í síma 533 1320
Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2
Sveppaeyðing
Lasermeðferð
Lasermeðferð sem losar þig
við svepp í nögl er bylting-
arkennd meðferð, byggð á
nýjustu tækni á markaðnum.
Sími 555 2992 og 698 7999
Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra
Gott fyrir:
• Maga- og þarmastarfsemi
• Hjarta og æðar
• Ónæmiskerfið
• Kolesterol
• Liðina
Læknar mæla með selaolíunni
Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð
Óblönduð
– meiri virkni Selaolía
Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en
konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika
í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð
að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar
breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið
niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað
áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var
með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir
að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og
húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað
Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni
bætta líðan og heilsu.
Guðfinna Sigurgeirsdóttir.
„Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga
á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“
byrjun seinki.“ Brynjar stofnaði
fyrirtækið ásamt Jónu Kristínu
Hauksdóttur, unnustu sinni, árið
2015, en frá þeim tíma hefur Soccer
& Education USA hjálpað til við að
útvega knattspyrnufólki skólastyrki
upp á 3,5 milljarða króna samanlagt
ef með eru taldir þeir leikmenn sem
fara út í haust.
Öruggt umhverfi
Spurður hvort einhverjir nem-
endur veigri sér við því að fara til
Bandaríkjanna þar sem faraldurinn
er enn í miklum vexti segir Brynjar
lítið um það. „Auðvitað hafa ein-
hverjir áhyggjur. Klárlega. En
skólarnir veita greinargóðar upp-
lýsingar um stöðu mála og hafa
skýrar reglur um hvernig eigi að
haga sér. Krakkarnir munu búa á
heimavist og eru í öruggu og af-
mörkuðu umhverfi enda ná skóla-
stjórnendur að stýra umferðinni
þar,“ segir Brynjar. Þó ríkir óvissa
um keppnistímabilið sjálft og við-
búið er að það muni hefjast eftir
áramót á mörgum stöðum en vaninn
er að það hefjist skömmu eftir skóla-
byrjun.
Kórónuveiran hefur aftur á móti
áhrif á ferðaskrifstofuhluta fyrir-
tækisins, Icelandic Soccer Travel, en
120 manna hópur ungra knatt-
spyrnuiðkenda í Bandaríkjunum átti
að koma hingað til lands í sumar. Sú
ferð frestast fram á næsta ár. Mark-
hópur ferðaskrifstofunnar er Banda-
ríkin og segir Brynjar að viðbrögð
íslenskra stjórnvalda við veirunni
hafi vakið mikla athygli vestanhafs
og það muni hjálpa til við markaðs-
setningu þeirra þegar að því kemur.
„Ísland er vinsælt ferðamannaland
en fótboltinn hefur líka vakið gríðar-
lega mikla athygli vestanhafs,“ segir
Brynjar. Fyrirtækið hefur einnig
skipulagt ferðir íslenskra liða til
Bandaríkjanna, þ.á m. ferðir karla-
liða FH og KR á þessu ári.
60 leikmenn til Bandaríkjanna
Skólastyrkir Brynjar, annar frá vinstri, og Jóna, lengst til hægri.
Kórónuveiran setur ekki strik í reikninginn hjá Soccer & Education USA Fresta hópferðum
BAKSVIÐ
Pétur Hreinsson
peturh@mbl.is
Sextíu nemendur á vegum fyrir-
tækisins Soccer & Education USA
halda að óbreyttu til náms í Banda-
ríkjunum í haust á skólastyrk þrátt
fyrir heimsfaraldur kórónuveiru. Að
sögn Brynjars Benediktssonar, ann-
ars stofnenda fyrirtækisins, fengu
fyrstu nemendurnir á vegum Soccer
& Education dvalarleyfi fyrir náms-
menn í landinu í gær. „Það voru já-
kvæðar fréttir,“ segir Brynjar í sam-
tali við Morgunblaðið.
Hann segir að í raun setji kórónu-
veiran lítið úr skorðum hvað þennan
hluta starfsemi fyrirtækisins varðar.
„Það sem gæti breyst er að einhverj-
ir fara aðeins seinna út eða að skóla-
Íslenska gámafélagið var rekið með
rúmlega 35 milljóna króna hagnaði
á síðasta ári, sem er álíka hagnaður
og árið á undan, en þá nam hagn-
aðurinn tæpum 34 milljónum
króna.
Í nýbirtum ársreikningi félagsins
kemur fram að félagið búist í heild
við góðu rekstrarári árið 2020.
Jafnramt segir að kórónuveiru-
faraldurinn hafi haft gífurleg áhrif
til skemmri tíma á rekstur félagsins
og býst félagið við að langtímaáhrif
verði nokkur. Svartsýnustu spár fé-
lagsins gera ráð fyrir allt að 12%
samdrætti, sem mætt verður með
lækkun kostnaðar og með því að
finna nýjar tekjur, eins og fjallað er
um í ársreikningnum. Stefnt er að
16% EBITDA-hlutfalli á þessu ári
og tekið er fram að lækkkun stýri-
vaxta, endurfjármögnun og
greiðsluhlé lána styðji mjög vel við
lausafjárstöðu félagsins.
85 á hlutabætur
85 starfsmenn fóru á hlutabótaleið-
ina hjá félaginu í apríl og maí sl. og
fækkað var um sex stöðugildi. Sam-
kvæmt heimasíðu fyrirtækisins
starfa 300 manns hjá Íslenska
gámafélaginu víða um land.
Eignir félagsins í lok ársins 2019
námu 4,8 milljörðum króna og juk-
ust um rúm fjögur prósent milli
ára. Eigið fé Íslenska gámafélags-
ins nam rúmum 1,7 milljörðum
króna í lok ársins og jókst einnig
lítillega.
Tekjur fyrirtækisins námu tæp-
lega 5,1 milljarði króna á síðasta
ári og jukust tekjurnar um tæplega
300 milljónir milli ára. Árið 2018
voru tekjurnar til samanburðar
tæpir 4,8 milljarðar króna.
Eigendur félagsins eru tveir;
Gufunes ehf. sem á 50% hlut og
Frakkir ehf. sem sömuleiðis á helm-
ingshlut. tobj@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Sorp Starfsemin byggist að mestu
leyti á sorphirðu og flokkun.
Íslenska gámafélagið
hagnaðist um 35 mkr.
Búast við góðu rekstrarári í ár