Morgunblaðið - 16.07.2020, Page 36

Morgunblaðið - 16.07.2020, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Tæpir 4 mánuðireru nú í for-setakosningar í Bandaríkjunum. Þessi fullyrðing sýnir að það vill gleymast að hvert sæti full- trúaþingmanns er einnig „laust til um- sóknar“ eins og gerist á tveggja ára fresti. Öldunga- deildin sér um staðfestuna á bænum því að einungis þriðj- ungur þeirrar deildar sætir endurkjöri á tveggja ára fresti, þar sem kjörtímabil þing- manna þar er 6 ár. Þótt þarna eigi sameiginlega í hlut nærri 500 þingmenn, sem fara með völd sem munar um, þá beinist athyglin langmest að forsetaframbjóðendunum tveimur. Stundum er sagt að kosningabarátta um forseta standi meira og minna í fjögur ár. Þetta á einkum við þegar forseti leitar endurkjörs. Þeg- ar ekki stendur svo á felst bar- áttan fyrst í prófkjörsslag í stóru flokkunum, svo keppni á milli forsetaefna sem stendur þá aðeins í hálft ár eða svo. Það er ekki sannfærandi að segja að Joe Biden hafi unnið prófkjörið í sínum flokki. Skyndilega rann upp fyrir demókrötum að þeir yrðu að sitja uppi með Joe Biden, sem forystan var búin að afskrifa sem óhæfan. Því þótt flokkur- inn hefði færst mjög til vinstri síðustu árin gæti það ekki gengið að hafa samansúrraðan, yfirlýstan vinstrisósíalista sem forsetaefni í Bandaríkjunum. Ekki endilega af hugsjóna- ástæðum heldur því að þar með yrði brautin breið, slétt og lögð „rauðum“ dregli fyrir Donald Trump. Fyrir fjórum árum var Bernie Sanders beittur miklu ofríki flokkseigenda í þágu Hillary. Eigendunum datt ekki í hug að þeir myndu lenda með gamla brýnið í fanginu aftur. Í knattspyrnulýsingum eru „gömlu brýnin“ rúmlega 30 ára. En í bandarískum stjórn- málum eru þau nærri því að slá í áttrætt. Bernie verður 79 ára í september nk. En þótt þetta sé myndarlegur aldur hjá stjórnmálamanni ber að við- urkenna að ekki er farið að slá jafnilla í kappann sjálfan eins og sósíalismann-kommún- ismann sem hann hangir í. Joe Biden verður ekki nema 78 ára í haust. Biden hafði stað- ið sig slaklega í prófkjörinu og óþægilega oft verið úti á þekju svo aumkunarvert var. Það er ekki bundið við Biden að þegar slíkt ferli er orðið jafn áber- andi og í hans tilviki getur það ekki annað en versnað með hverjum mánuði. Úrræðin hafa verið að geyma frambjóðand- ann ofan í kjallara, þar sem einungis innvígðir nálgast hann og setja honum fyrir talspjöld sem hann á erfitt með að klúðra. Hugsunin virðist vera sú að velja með Biden varaforsetaefni sem getið svo tekið emb- ættið yfir við fyrsta tækifæri, náist að fella Trump forseta. Kannanir á líklegum vilja fólks á kjördegi í nóvember eru Biden enn hagfelldar og veru- legur munur enn honum í hag. Hann er gjarnan 6-8% yfir og hærri tölur en efra markið sjást alloft en tölur neðan við neðri mörkin sjaldan. Spunameistarar repúblikana hugga sitt fólk með því að Hillary Clinton hafi verið hærri í könnunum á lokasprett- inum gegn Trump. Dukakis hafi einnig verið mun hærri en George H. W. Bush varaforseti í þeirra slag, sem hafi engu að síður unnist með yfirburðum. Spuninn á móti er helst sá að að stuðningsbilið hafi ekki ver- ið jafnmikið og stöðugt fyrir 4 árum og núna, og hvað varðaði Dukakis og Bush hafi and- staðan við Bush ekki jafnast á við hatrið á Trump, sem sé sterkasta afl kosninganna. Og það sé einmitt ástæða þess að „ásakanir“ andstæðinganna um að Joe „gangi ekki á öllum“ skipti ekki máli núna. Það sé ekki endilega verið að kjósa Joe inn heldur fyrst og síðast verið að kjósa Trump út. Ef það sé ekki aðeins helsta held- ur nánast eina markmið kosn- inganna breyti engu þótt Biden sé ekki alveg klár á eftir hvaða embætti hann sækist, ekki með á hreinu í hvaða fylki hann sé staddur og standi í þeirri mein- ingu og sé stoltur af að hafa hjálpað Mandela við að brjót- ast út úr fangelsi. Það skipti þá ekki heldur máli þó að ekkert lifi eftir af afrekum Bidens sem varaforseta nema að gera bræður sína að stórefnamönn- um og hæfileikalausan son að stórríkum manni með því að koma þeim á spena, m.a. í Úkraínu og Kína. Slíkt geti alltaf komið fyrir, en sé ekki ámælisvert nema repúblikanar eigi í hlut. Og þetta sé heldur ekkert í samanburði við stóra markmiðið, að bola Trump út úr Hvíta húsinu, sem lygasag- an um rússagaldurinn hafi ekki dugað til, né heldur rann- sóknarréttur þingsins út af leynisímtali við forseta Úkra- ínu sem tugir manna hlustuðu á og var til í uppskrift í þinginu! Það má vel vera að réttlæt- ing demókrata á að styðja framboð Bidens, þótt hann sé fyrir löngu kominn fram yfir síðasta söludag, megi réttlæta með þessum hætti. En ekki er hátt á því risið. Var ekkert skárra til? Kórónuveiran hjálpar bæði til að gera Trump tortryggilegan og fela Biden frá bjálfahætti} Í kjallaranum, í kjallara … F yrir löngu hitti ég embættismann úr borgarkerfinu á förnum vegi og spurði hvernig gengi. Hjá mér var engin meining með spurning- unni. Viðbrögðin komu þess vegna á óvart. Með sárasaklausri kveðju snerti ég greinilega viðkvæma taug. Maðurinn varð flóttalegur til augnanna, skimaði í kring- um sig og dró mig svo inn í húsasund áður en hann svaraði lágum rómi: „Maður veit aldrei hver heyrir til manns.“ Æðsti stjórnandi átti sannarlega ekki að frétta hvað ein af silkihúf- um borgarinnar segði á förnum vegi. „Mér finnst nóg að vera tekinn á beinið einu sinni.“ Sagt er að vald breyti fólki. Sumir halda að þegar þeir eru komnir í ákveðna stöðu eigi þeir að breytast úr ljúfmennum í fanta. Um þetta eru margar sögur. Árið 1993 ákvað Össur Skarphéðinsson umhverfis- ráðherra að stytta rjúpnaveiðitímann, sem var umdeild ákvörðun. Ráðherrann var afar ósáttur við að starfs- maður undirstofnunar ráðuneytisins (Arnór Þ. Sigfús- son) tjáði sig opinberlega um málið, reyndar ekki í krafti embættis heldur sem rjúpnaveiðimaður. Í nefndaráliti minnihluta allsherjarnefndar Alþingis frá 1995 segir orðrétt: „Hringdi ráðherra þennan dag [á Þorláksmessu] í Arnór, minnti á að hann væri starfs- maður ráðuneytisins og sagði hann hafa farið „yfir grensuna“ í blaðaviðtalinu. Jafnframt tók ráðherra fram að þessu máli væri ekki lokið af sinni hálfu. Þetta upp- lýsti Arnór á fundi umhverfisnefndar Alþingis 15. apríl 1994. Fyrr þennan sama dag […] hringdi um- hverfisráðherra í Pál Hersteinsson veiði- stjóra og hafði uppi aðfinnslur út af viðtalinu við Arnór. Veiðistjóri bar það fyrir um- hverfisnefnd Alþingis 15. apríl 1994 að hann hefði svarað ráðherra á þá leið að hann teldi þessar deilur vissulega óheppilegar. Rjúpur og rjúpnaveiði heyrðu hins vegar ekki undir veiðistjóraembættið og ekki væri eðlilegt að hann legði hömlur á málfrelsi starfsmanns síns um slíkt efni þar sem hann tjáði sig sem meðlimur í Skotveiðifélagi Íslands á vett- vangi félagsins. Þá á ráðherra að hafa sagt: „Þú stjórnar Arnóri. Ég stjórna þér. Þessi ráðherra er ekki hræddur við að berjast. Ég minni þig í þessu sambandi á framkvæmda- stjóra náttúruverndarráðs sem nú er fyrrver- andi framkvæmdastjóri. Gleðileg jól.“ Nýlega stefndi ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur for- sætis- og jafnréttismálaráðherra konu fyrir dóm. Sak- irnar eru þær að kærunefnd úrskurðaði að mennta- málaráðherra hefði brotið jafnréttislög þegar ráð- herrann réð flokksbróður sinn, félaga sem nefndin segir ljóst að ekki hafi staðið konunni framar. Í orði talar ríkisstjórnin um jafnrétti, en þeir sem leita réttar síns hafa nú fengið aðvörun. Þeim verður mætt af fullri hörku. Önnur ríkisstjórn, aðrir ráðherrar, en sams konar skilaboð: Ég stjórna þér. Gleðilegt sumar! Benedikt Jóhannesson Pistill Ég stjórna Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen undir reiðhjól, með þeirri undan- tekningu að þeim megi ekki aka á ak- braut. Aðspurður segir Eyþór að lík- lega þyrfti lagabreytingu til að heimila akstur rafhlaupahjóla á ak- braut. „Samvisku reiðhjólamanna er treyst hverju sinni, til dæmis til að hjóla ekki á Sæbrautinni. En meðal- hraði rafhlaupahjóla gæti samt verið töluvert hærri en reiðhjóla,“ segir Eyþór og bætir við að honum væri heimilt að fara hringveginn á hjóli en ekki rafhlaupahjóli. „Við trúum því að létt raf- drifin farartæki séu ferðamáti framtíðarinnar,“ segir Eyþór að lokum. 20.000 krónur fyrir að fara ógætilega Lögreglan hefur heim- ild til að sekta hjólreiða- menn um 20 þúsund krónur fyrir ógætilegar hjólreiðar á göngugötu, samkvæmt reglugerð um sektir sem sett var í kjölfar umferðarlaga nr. 1240/2019. Kemur þetta fram í svari Samgöngustofu við fyrirspurn Morgunblaðs- ins um hvort lögregla hefði heimild til að beita sektum við akstri umfram göngu- hraða á göngugötum á raf- hlaupahjólum. Eru ekki örugglega allir á gönguhraða? Í drögum að nýrri reglugerð frá samgöngu- og sveitarstjórnar- ráðuneytinu um gerð og búnað reiðhjóla eru gerðar auknar kröfur til öryggisbúnaðar rafhlaupahjóla og gert refsivert að aka rafhlaupahjóli með far- þega. Eyþór Máni Steinarsson, rekstrarstjóri Hopp, segir leigu- hjólin uppfylla öll skilyrðin sem sett eru í drögunum. 8. gr. draganna er sér- staklega tileinkuð raf- hlaupahjólum og er þar í fyrsta sinn lagt bann við fleiri en einum farþega á rafhlaupahjólum. Þá er í 10. gr. lagt til að viðurlög verði samkvæmt reglugerð um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðar- lögum og reglum á grund- velli þeirra. Bann við far- þega innleitt REGLUGERÐ Farþegar eru nú óheimilir á hjólunum. Morgunblaðið/Eggert Rafhlaupahjól Hjólunum má oft ekki aka hraðar en á gönguhraða. FRÉTTASKÝRING Veronika S. Magnúsdóttir veronika@mbl.is Vinsældir rafhlaupahjólahafa stóraukist og eru nú300 rafhlaupahjól á götumReykjavíkur. Samanlagt hafa þau ferðast yfir 500.000 km, sem jafngildir ferð til tunglsins og rúmlega það. Breyttar samgöngur kalla eftir breyttu lagaumhverfi og hafa því verið kynnt ný drög að reglugerð um reiðhjól og rafhlaupahjól, þar sem fjöldi farþega er takmarkaður og öryggiskröfum lýst. Reglugerðin breytir því þó ekki að óheimilt er að aka hjólum og raf- hlaupahjólum hraðar en á göngu- hraða á göngugötum, samkvæmt umferðarlögum nr. 77/2019. Reið- hjólamönnum er heimilt að aka á ak- brautum en umferð rafhlaupahjóla er þar óheimil. „Þessi umferðarlög eru gefin út í fyrra en gerðu ekki að ráð fyrir þessum tækjum. En það þarf að upp- færa lögin í samræmi við tæknina og það er eðlilegt að svona aðstæður komi upp,“ segir Eyþór Máni Stein- arsson, rekstrarstjóri Hopp, sem mun leggja til að umferð rafhlaupa- hjóla verði heimil á akbrautum, til þess að auka öryggi vegfarenda. Telur eðlilegt að sama gildi um reiðhjól og rafhlaupahjól „Við munum leggja til í umsögn að þessari heimild verði bætt við. Það er almennt talað um það í reglu- gerðinni að gera sérflokk um raf- hlaupahjól, sem væri líka full- komlega eðlilegt, svo reglurnar endurspegli núverandi umhverfi. Það þyrfti að vera hægt að vera á rafhlaupahjólum á götunum og göngugötum líkt og gildir um reið- hjól,“ segir Eyþór og heldur áfram: „Síðan er hægt að spyrja sig hverjum er betra að deila vegakerf- inu með, rafmagnsökutækjum, hvort það eru göturnar eða gangstéttirnar. Að sjálfsögðu ættu göturnar að deila sínu vegakerfi með rafhlaupahjólum frekar en gangstéttirnar, þar sem gangandi vegfarendur fara hægar og eru ekki með brynju af bíl í kringum sig,“ segir Eyþór. Í núgildandi umferðarlögum er ekki að finna skilgreiningu á raf- hlaupahjólum og eru þau flokkuð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.