Morgunblaðið - 16.07.2020, Síða 38
38 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 2020
Klippt og beygt
fyrirminni og
stærri verk
ÍSHELLU 1 | HAFNARFIRÐI | S. 534 1500 | KAMBSTAL.IS
Það er grundvallar-
atriði í allri stjórn-
sýslu að fara vel með
fé. Sérstaklega er það
mikilvægt þegar verið
er að ráðskast með
fjármuni sem farið er
með í umboði annarra.
Þá skal hafa sérstaka
aðgát og gæta að rétt-
sýni. Ástæðulaust er
að fjölyrða um svo
sjálfsagðan hlut. Það er
því ótrúlegt að sjá ríkið
dragast inn í eins van-
reifað mál, ef til vill
réttnefnt fen, og svo-
kallaða borgarlínu. Það
er ekki bara stofn-
kostnaðurinn heldur
líka, og kannski ekki
síst, núvirtur rekstrar-
kostnaður sem er óviss.
Heyrst hafa tölur frá
150 milljörðum og allt
að 600 milljörðum. Er
ég til í að leggja í slíka
vegferð með mínar skattgreiðslur?
Nei, aldeilis ekki. Eru landsmenn,
búsettir t.d. á Akureyri og í Vest-
mannaeyjum, tilbúnir að styðja að
greiddar séu þessar fjárhæðir úr
sameiginlegum sjóðum, álögur
auknar og/eða seldar séu þeirra
eignir (ríkiseignir) til að hefja fram-
kvæmdir við gæluverkefni meiri-
hluta borgarstjórnar í Reykjavík?
Ekki trúi ég því.
Þegar opinber verkefni eru metin
þarf að skoða hvaða markmiði þeim
er ætlað að ná, og auðvitað þurfa
þau að vera til hagsbóta fyrir
þegnana. En skoðum fyrirhugaða
borgarlínu. Henni er, að því er fram
hefur komið hjá meirihlutanum í
Reykjavík, ætlað að útrýma einka-
bílnum. Ekki er það göfugt mark-
mið. Talað er um mikla mengun frá
einkabílnum, sem þó er ekki meiri
en 4% af heildarlosun okkar Íslend-
inga. En mengun frá einkabílum í
Reykjavík er að miklu leyti hægt að
skýra með rangri ljósastýringu og
þar af leiðandi töfum, því að greið
umferð mengar minna. Að ekki sé
minnst á þvergirðingshátt meiri-
hlutans í Reykjavík þegar kemur að
löngu nauðsynlegum fram-
kvæmdum t.d. við Sundabraut, sem
gæti losað okkur við halarófuna og
seinaganginn á Miklubraut tvisvar á
dag, auk þess að vera mikið öryggis-
atriði. Til viðbótar má nefna gatna-
mót Miklubrautar og Kringlumýr-
arbrautar, sem auðvitað eiga að
vera mislæg, sama má segja um
gatnamót Bústaðavegar og Reykja-
nesbrautar. Skoða á einnig að
tengja Suðurgötu við Reykjanes-
braut um Álftanes.
Aðalatriðið er samt: Viljum við
skattgreiðendur, á landinu öllu, að
fjármunum okkar sé varið í jafn
vanreifað mál og borgarlínu, þegar
haft er í huga hvert markmið með
henni er? Markmið sem ekki er til
hagsbóta fyrir borgarbúa, hvað þá
landsmenn alla.
Borgarlína – ábyrg fjármálastjórn
Eftir Ólaf Helga
Ólafsson
Ólafur Helgi
Ólafsson
»Eru landsmenn
reiðubúnir að
leggja fé sitt í vanreifað
gæluverkefni?
Höfundur er cand. oecon.
olafur@marcus.is
Ef skoðuð er land-
námssaga okkar virðist
lítill vafi á að land-
námssaga Norðmanna
muni vera stórlega stíl-
færð til að þóknast
þeirra hagsmunum og
þeirra hugmyndum um
landnám Íslands. Eins
og sjá má af sögum
hins grískættaða Pí-
þeasar sem bjó í hinni
grísku nýlendu Massilíu eða Mar-
sey í Frakklandi sigldi hann norður
um höf og allt til eyjarinnar Thule,
sem hann nefndi svo. Samkvæmt
áliti nútímasérfræðinga er ekki
nokkur vafi á að þar á hann við Ís-
land en nafnið Thule er almennt
talið í dag þýða eitthvað sem er
langt í burtu. Samkvæmt frásögum
Píþeasar mun Ísland hafa verið
byggt mönnum löngu fyrir skráða
frásögn Norðmanna því þar segir
hann greinilega og vel frá mönnum
sem bjuggu í landinu og bjuggu
þeir í jarðholum að hans sögn, sem
þá munu vera hellar þeir sem víða
eru þekktir um sunnanvert landið.
Eins og þeir vita sem þekkja minj-
ar í landinu þá eru víða um sunn-
anvert landið hellar í móbergi og
bergi sem auðunnið er með þeim
áhöldum sem þeirrar tíðar menn
réðu yfir. Fróðlegt er að skoða lýs-
ingar hans frá því þegar hann fór
til eyjarinnar í norðrinu eitthvað
um það bil 1.330 árum fyrir skráð
landnám Íslands en samkvæmt frá-
sögum Norðmanna var landið full-
byggt árið 930, sem mun vera um
það bil um Krists burð og í mínum
huga er ekki nokkur vafi á því að
landnámssaga hinna norsku land-
námsmanna muni skálduð upp af
Norðmönnum til að þurrka út sögu
hinna keltnesku manna sem fyrir
voru í landinu þegar þeir námu hér
land. Hinir norsku víkingar voru
vel vopnfærir menn en þeir menn
sem fyrir voru í landinu eða Kelt-
arnir voru menn friðsamir og
kristnir og vildu hafa sín kristnu
gildi í fyrirrúmi. Hinir norsku vík-
ingar hröktu þá því frá þeim svæð-
um og jörðum sem þeir höfðu hafið
búsetu á og er í mínum huga ekki
nokkur vafi á að svo muni vera því
örnefni, sérstaklega um sunnanvert
landið, vitna um veru og búsetu
hinna keltnesku
manna þar. Nægir að
nefna Dímonarnöfnin
þar sem Stóri-Dímon
og Litli-Dímon liggja
á mörkum Fljóts-
hlíðar og Eyjafjalla í
Austur-Landeyjum,
en þau nöfn munu
vera komin úr írsku
máli og þýða eitthvað
tvennt; dæmi um það
eru tveir klettar eða
fjöll eða eitthvað
tvennt sem er eins á máli því sem
hinir keltnesku menn töluðu. Má
hér nefna fleiri bæjarnöfn sem og
staðarnöfn vítt og breitt um Suður-
landið, einnig má víða um sunnan-
vert landið sjá hella og ummerki
sem ætla má að rekja megi til kelt-
neskra manna en hinar rituðu
heimildir sem við höfum tiltækar
benda sterklega á að svo muni
vera. Einnig má benda á að sam-
kvæmt írskum heimildum hafði Páll
postuli dvalið og komið til Írlands
og boðað sína kristnu trú og þar
með nafnið Jesú sem mun þýða og
vera borið fram á þeirra máli Isua
eða Isu og munu Norðmenn hafa
séð sér hag í því og sett á svið sög-
una um landnám landsins sem þá
hugsanlega er fölsuð af þeim. Hafa
þeir séð að þeir gætu nefnt nafnið
út frá sínum hagsmunum og falsað
söguna um landnámið með því að
setja fram söguna um fjörð fullan
af ís þar sem þeir gátu notað hið
írska nafn eða Isu og breitt því í ís
og þannig sé hin snilldarlega sam-
setta saga þeirra um landnámið
komin til. Í mínum huga gæti land-
námssaga okkar, eins og hinir
norsku víkingar settu hana fram,
verið fölsuð til að þjóna hags-
munum þeirra. Kennimenn okkar
ættu að skoða mál þetta frá þessu
sjónarmiði.
Landnám Íslands
og trúarbrögðin
Eftir Hjálmar
Magnússon
Hjálmar Magnússon
» Í mínum huga gæti
landnámssaga
okkar, eins og hinir
norsku víkingar settu
hana fram, verið
fölsuð til að þjóna
hagsmunum þeirra.
Höfundur er fv. framkvæmdastjóri.
Atvinna