Morgunblaðið - 16.07.2020, Síða 39
Hringferð Börnin
við Jökulsárlón.
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Harpa Ingólfsdóttir Gígja fjármála-
stjóri er dugleg að ferðast og hefur
heimsótt fjarlæga staði á borð við
Kúveit, Jeríkó og Havaí. Hún ætlar að
nýta sumarið á Íslandi og ferðast vítt
og breitt um landið. Útilegur, skútu-
siglingar og hringferð um landið er
meðal annars á dagskrá.
Það er margt á döfinni hjá Hörpu í
sumar en hún er nýkomin af Gos-
lokahátíð í Vestmannaeyjum. „Ég fór
með yngri börnin mín á Goslokahátíð í
Vestmannaeyjum en þau höfðu aldrei
komið til Eyja. Þar tjölduðum við í
Herjólfsdal og tókum þátt í viðburðum
helgarinnar, sprönguðum og kíktum á
mjaldrana.
Sumarfríið hefst svo formlega á því
að ég bruna norður á Akureyri að
sækja dótturina og vinkonu hennar í
sumarbúðir á Hólavatn. Í kjölfarið
ætlum við að tjalda í Kjarnaskógi eins
og við höfum margoft gert áður. Ef
veður leyfir förum við kannski í skútu-
siglingu en pabbi minn er með skútu á
Pollinum.
Í ágúst er svo planið að fara með
fjölskylduna í hringferð þar sem
maðurinn minn hefur aldrei komið á
Austfirðina. Við vonumst til að komast
líka á Vestfirðina en tengdaforeldrar
mínir eiga hús á Tálknafirði og langar
okkur að stoppa þar í tvo, þrjá daga.“
Aðspurð hvað sé nauðsynlegt að
taka með í ferðalagið nefnir hún
nokkra mikilvæga hluti. „Ég hef farið í
tjaldútilegur þar sem ég hef annað-
hvort gleymt tjaldhimninum, tjaldhæl-
unum eða millistykkinu fyrir raf-
magnsofninn en allt þetta tel ég
bráðnauðsynlegt,“ segir Harpa.
Dreymir um að toppa
Hvannadalshnjúk
„Ég er búin að fara á flesta þá staði
sem mig hafði dreymt um en ég væri
alveg til í að fara á einhverja fallega
litla hitabeltiseyju og slaka á í sólinni.
Hérna heima á ég eftir að fara Lauga-
veginn og Hornstrandir. Það er líka
draumur að toppa Hvannadalshnjúk.“
Spurð um uppáhaldsstaði á Íslandi
nefnir Harpa Jökulsárlón. „Jökulsár-
lónið hefur alltaf verið í miklu uppá-
haldi hjá mér. Ég fór svo á Vestfirði í
fyrsta skipti á síðasta ári og fannst allt
svo fallegt en við gistum á Látrum.
Svo finnst mér alltaf gaman að koma
til Akureyrar og Vestmannaeyja.“
Nýtir tímann milli flugferða
Harpa er dugleg að leita uppi ódýrt
flug með áhugaverðum millilend-
ingum. „Ég myndi segja að ég væri
svona „low budget“-týpa. Ég elska fátt
meira en að kaupa ódýrt flug, t.d. með
millilendingu, þar sem ég get nýtt tím-
ann á milli ferða í að skoða staðinn.
Vinir mínir hafa gert óspart grín að
því að mér hljóti að finnast alveg rosa-
lega gaman að bíða á flugvöllum.“
Dvaldi í mánuð í Kúveit
Spurð um eftirminnilegustu ferða-
lögin nefnir hún ferðalag til Ísraels og
Palestínu. „Ég byrjaði á því að ferðast
til Dúbaí þar sem litli frændi minn bjó.
Þaðan lá leiðin til Kúveit þar sem ég
dvaldi í tæpan mánuð. Á meðan ég
dvaldi þar flaug ég til Jórdaníu og
ferðaðist þaðan til Palestínu og Ísr-
aels. Leiðin í gegnum landamærin tók
rúma þrjá tíma en þegar maður kemst
í gegn lendir maður í Jeríkó, sem er
talin ein elsta borg í heimi. Hún er
einnig lægsta borg í heimi en hún er
um 258 metrum undir sjávarmáli. Ég
heimsótti Betlehem og gisti í Jerúsal-
em.“
Myndir náðu ekki
að grípa fegurðina
„Að vera í Jerúsalem var mögnuð
upplifun en gömlu borginni er skipt í
fernt þar sem búa Armenar, gyðingar,
kristnir menn og múslimar. Ég man
svo vel þegar ég stóð á Golgatahæð og
horfði yfir og var að taka myndir. Ég
skoðaði myndirnar og áttaði mig þá á
að það þýddi ekkert að taka myndir
þarna. Þær náðu ekki á neinn hátt að
grípa fegurðina og tilfinninguna sem
maður fékk af því að vera þarna.
Á leiðinni heim stoppaði ég svo við
Dauðahafið, Jórdaníumegin, það var
mögnuð upplifun að fljóta í vatninu.
Þaðan lá leiðin til Istanbúl þar sem ég
stoppaði í tæpan sólarhring, kíkti á
Hagia Sofia og gekk um borgina. Ég
hafði dvalið þar í þrjár vikur 15 árum
fyrr þegar ég keppti á mínu fyrsta ól-
ympíuskákmóti. Þaðan flaug ég til
Noregs að hitta systur mína og viku-
gamla dóttur hennar sem ég var svo
heppin að kom á hárréttum tíma fyrir
mig að heimsækja. Þetta var því ansi
víðfeðmt og litríkt ferðalag, uppfullt af
skemmtilegum upplifunum, og ég er
reynslunni ríkari.“
Mælir ekki með að gleyma tjaldhælum
Harpa Ingólfsdóttir
Gígja fjármálastjóri ætl-
ar að vera á faraldsfæti
í sumar. Hún hyggst
fara með fjölskylduna í
skútusiglingar, útilegur
og hringferð um landið.
Látrabjarg Börnin í fallegu
veðri á fallegum stað.
Hringferð Harpa og maðurinn
hennar, Guðni Þorsteinn Guð-
jónsson, saman í siglingu.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 2020
Ferðalög á
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is |
Opið alla virka daga kl. 10-17
Passamyndir
Tímapantanir
í síma 568 0150
eða á rut@rut.is
Tryggjum
tveggja metra fjarlægð
og gætum ítrustu
ráðstafana.
Garðatorg 6 | s. 551 5021 | www.aprilskor.is
Ten Points Paris
Nú 13.995 kr. 27.990 kr.
Útsala