Morgunblaðið - 16.07.2020, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 16.07.2020, Blaðsíða 41
LJÓSI PUNKTURINN Dóra Júlía Agnarsdóttir dorajulia@k100.is Nú er árið 2020 meira en hálfnað og óhætt að segja að það hafi verið óvana- legt og eflaust mörgum lærdómsríkt. Nú þegar hversdagsleiki okkar er orð- inn annasamari en fyrr á árinu fannst mér svolítið áhugavert að spyrja nokkra einstaklinga í kringum mig: Hvað myndirðu segja að þú hefðir lært mest af 2020 hingað til? Svörin voru fjölbreytt og mjög áhugaverð en að mörgu leyti svipuð í kjarnann. Það er greinilegt að margir hafa tileinkað sér jákvæðni og núvit- und ásamt fróðleik og upplýsingum. Mig langar til þess að deila þessum svörum með ykkur. Helga Hvanndal landvörður „Kannski er 2020 góð áminning um að njóta þess staðar sem maður er á og alls þess sem hann hefur upp á að bjóða. Til dæmis að nota og borða af- urðir úr nærumhverfinu sem þarf ekki að flytja yfir hálfan hnöttinn, sem maður sá svo greinilega þegar flutn- ingasamgöngur lágu niðri, og að vera meira á stað og stund í núinu.“ Sigurður Gunnarsson, útvarpsmaður, dagskrár- og tónlistarstjóri K100 „Að lífið eins og maður þekkir það er ekki sjálfsagt. Og það þarf ekki alltaf að vera með allt á fullu til þess að hafa gaman og líða vel.“ Katrín Eyjólfsdóttir, dansari og nemi í San Francisco „Eiginlega bara að ekkert er sjálfgefið.“ Sandra Björg Helgadóttir, athafna- kona og þjálfari „Sennilega hvað maður hefur í raun litla stjórn yfir lífinu í stóra samheng- inu og hvað það er mikilvægt að sjá það góða í öllum aðstæðum sem verða á vegi manns.“ Guðrún Kjartansdóttir, lyfjafræð- ingur og framlínustarfsmaður „Ekkert kemur lengur á óvart! Ekkert er nokkurn tímann fyrirséð og ekkert ætti lengur að koma okkur á óvart. Því er svo mikilvægt að njóta augnabliksins og koma vel fram.“ Kristjana Margrét Kristjánsdóttir, fyrrverandi skólastjóri „Mikilvægt að fara eftir reglum. Fara eftir því sem fræðin og fræði- mennirnir segja. Upplifa að svona veirur eru raunverulegar og geta gert mikinn skaða. Að eiga góða fjölskyldu sem hjálpast að er ómetanlegt.“ Agnar Hansson verðbréfasali „Allt getur gerst!“ Ljósmynd/Unsplash 2020 Íslendingar hafa lært og upplifað ýmislegt það sem af er ári. Virðast margir vera þeirrar skoðunar að árið hafi kennt þeim eitthvað nýtt um lífið. Hvað hafa Íslend- ingar lært af 2020? DJ Dóra Júlía finnur ljósa punktinn í tilverunni og flytur góðar fréttir reglulega yfir daginn í útvarpinu og á K100.is. Hún ræddi við nokkra Íslendinga um það hvað þeir hefðu lært hingað til af árinu 2020. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 2020 Á palli: VIÐAR Smágrár Opið : 8-18 v i r ka daga, 10-14 laugardaga • S ími 588 8000 • s l ippfe lag id. i s Á grindverki: VIÐAR Húmgrár Viðarvörn Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Pétur Óskar tónlistarmaður mætti í morgunþáttinn Ísland vaknar á K100 í gær og ræddi þar um tónlist- arlífið, tilveruna og nýja lagið Lion sem hann gaf út á dögunum. Dýrkar að vera ljón Pétur segist „dýrka að vera ljón“, en listamannsnafn hans, Leone, þýð- ir einmitt ljón á ítölsku sem er ein ástæðan fyrir því að hann tók upp nafnið. Nafnið er að auki skírskotun í leikstjórann Sergio Leone sem er þekktastur fyrir spagettívestra sína, sem Pétur Óskar kveðst vera afar hrifinn af. Segist hann vera hræddur um að hafa fæðst á vitlausum tíma og stað- festir að hann sé dálítið „70’s-frík“ en hann segir að tónlistarmynd- bandið sem væntanlegt er við lagið Lion beri vott af stíl gamla leikstjór- ans. Lagið, sem er í amerískum folk- popp-stíl, segir Pétur að sé nokkurs konar „sjálfspepp“ en það er samið að sögn eftir að hann upplifði van- virðingu í sinn garð frá bæði vinnu- félögum og konu í lífi sínu. „Þá kom þessi lína í hausinn á mér: I’m a lion. Ég samdi þetta út frá því,“ sagði Pétur Óskar. „Stundum þarf maður að láta meðvitundina vita af því að maður sé nú nokkuð góður á því líka.“ Fjallar um ákveðna stúlku Tónlistarmaðurinn segir að lagið fjalli í raun um ákveðna stúlku sem hann var í sambandi með og við- skilnað þeirra. „Ég er svona aðeins að láta hana vita hver ég er í dag,“ segir hann. Pétur Óskar hefur þó ekki aðeins verið virkur í tónlistinni upp á síð- kastið en hann starfar einnig sem leikari og hefur að sögn leikið bæði í Þýskalandi, Lúxemborg og Frakk- landi en hann lék meðal annars ný- lega hlutverk þingmannsins Svavars Gestssonar í væntanlegu verki frá Vesturporti. Hægt er að nálgast lagið Lion á streymisveitunni Spotify undir nafn- inu Oscar Leone en hlusta má á allt viðtalið við Pétur Óskar á K100.is. Ljósmynd/Aðsend Ljón Pétur Óskar eða Oscar Leone segist dýrka tenginguna við ljón en nýj- asta lag hans heitir einmitt Lion. Er lagið nokkurs konar „sjálfspepp“ og fjallar að sögn um samband hans við ákveðna stúlku og viðskilnað þeirra. Vildi láta ákveðna stúlku vita hver hann væri í dag Tónlistarmaðurinn og leikarinn Pétur Óskar Sigurðsson, sem er þekktur undir listamannsnafninu Oscar Leone, gaf út lagið Lion á dögunum en tónlistarmyndband við lagið er að auki væntanlegt á næstunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.