Morgunblaðið - 16.07.2020, Síða 45

Morgunblaðið - 16.07.2020, Síða 45
MINNINGAR 45 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 2020 ✝ Málfríður Em-ilía Brink (Súsý) fæddist 23. júní 1960 á Long Island, New York í Bandaríkjunum. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Skógarbæ 10. júlí 2020. Foreldrar henn- ar voru Rannveig Magnúsdóttir Brink húsmóðir og hár- greiðslukona, f. 14. júlí 1933, d. 27. febrúar 1991, og John Mars- hall Brink, íþróttafulltrúi bandaríska hersins á Kefla- víkurflugvelli, f. 31. júlí 1926, d. 30. apríl 1965. Saman eignuðust þau sex börn. Elstur er Mark Kristján Brink, f. 25. maí 1954, sem eru Björn Már, f. 6. nóvem- ber 1979, Einar Freyr, f. 24. júlí 1986, John Arnar, f. 30. október 1987, og María Katrín, f. 10. nóvember 1989. Björn er giftur Tinnu Dahl Christiansen, f. 7. ágúst 1981, og eiga þau saman tvo syni, Svein- björn Sophus, f. 24. júní 2010, og Jóhann Sophus, f. 14. desember 2017. Sambýliskona Einars er Sukanya Nuamnui, f. 15. desem- ber 1988. Súsý og Sveinbjörn slitu sam- vistum. Árið 2008 giftist Súsý Rúnari Sigurðssyni rannsóknar- lögreglumanni, f. 22. júlí 1948, og lifir hann eiginkonu sína. Súsý stundaði nám við Öldutúnsskóla í Hafnarfirði og Breiðholtsskóla í Reykjavík. Hún var heimavinnandi hús- móðir þegar börn hennar voru ung en fór þá út á vinnumark- aðinn og vann síðustu árin hjá Myllunni sem bakari. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 16. júlí 2020, klukkan 13. næstur Róbert Magnús Brink, f. 27. nóvember 1955, þá Katrín Lovísa Brink, f. 3. ágúst 1957, María Brink, f. 19. janúar 1959, Málfríður Emilía Brink og Hörður Helgi Brink, f. 4. maí 1962. Þá eign- aðist Rannveig einnig Örn Valdi- mar Kjartansson, f. 6. júlí 1966, og Ragnar Pétur Ólafsson, f. 23. nóvember 1971. Fyrstu ár ævinnar bjó Súsý í Bandaríkjunum en síðar flutti fjölskyldan til Íslands. Sambýlis- maður hennar var Sveinbjörn Björnsson, f. 3. júlí 1958, og átti hún með honum fjögur börn, Á þessum erfiðu tímamótum er mér efst í huga þakklæti. Ég er þakklátur fyrir tímann sem við fengum saman, þó hann hafi orð- ið styttri en ætlað var. Ég er þakklátur fyrir góðar samveru- stundir sem við áttum í faðmi fjölskyldna okkar beggja og ferðalögin sem við fórum í saman. Við fórum reglulega til Kanarí- eyja því þér fannst hvergi betra að vera. Mér er einnig minnis- stæð ferðin til Ítalíu og hversu gaman þér fannst að koma til Feneyja. Enginn veit sína ævina fyrr en öll er og síðustu ár reynd- ust erfið í baráttu við sjúkdóm sem að lokum hafði betur, en minningar um góðu stundirnar lifa áfram. Björn Már, Einar Freyr, John Arnar og María Katrín, ég sendi ykkur og fjölskyldum innilegar samúðarkveðjur við fráfall móður ykkur. Hér við skiljumst og hittast munum á feginsdegi fira; drottinn minn gefi dauðum ró, hinum líkn, er lifa. (Úr Sólarljóðum) Rúnar Sigurðsson. Í dag kveðjum við Súsý systir. Ég og Súsý vorum mjög náin í okkar uppvexti. Hún og mamma voru einstaklega góðar vinkonur og studdu hvora aðra þegar á þurfti að halda í gegnum lífið. Þannig var Súsý iðulega með auga á mér sem yngri bróður og passaði upp á að maður fengi þá hlýju sem þurfti ef upp á vantaði. Seinna meir passaði ég oft börnin hennar sem var mikið traust þar sem þau voru ávallt hennar mesti fjársjóður. Súsý gat verið mikill húmoristi og stutt í hvellan hlát- ur þó illa þyldi hún stríðni, sér í lagi frá okkur systkinunum. Það var síðan gott að fylgjast með henni hamingjusamri með Rúnari sínum síðustu ár að gera gera það sem henni fannst skemmtilegast, sem var að ferðast í sólina og fylgjast með börnum og barnabörnum. Milli okkar var ávallt hlýr strengur sem við fundum þegar við hitt- umst. Ég kveð þig með söknuði og hlýjum minningum í hjarta. Svo segir bros þitt, besta systir mín. Nú beinist aftur kveðja mín til þín, og brennheitt höfuð hneigi ég í tárum, mín hjartans vina frá svo mörgum árum. Um regni grátnar grundir sig grúfir nóttin hljóð, með grárri skímu bráðum fer að morgna. Mér finnst ég vera að syngja mitt sein- asta ljóð og sálar minnar lindir vera að þorna. Ég veit, þú hefðir sagt mér að herða huga minn. Ég hugga mig sem best til að gera vilja þinn. Ég geymi hvert þitt bros í minning minni. Ég man og skal ei gleyma samvist þinni. Ég vildi ég gæti fléttað þér fagran minniskrans. En fyrir augun skyggja heitu tárin. Svo vertu sæl, mín systir! Í faðmi fann- klædds lands. Þú frið nú átt. Við minninguna – og sárin. (Hannes Hafstein) Þinn bróðir Örn Valdimar Kjartansson. Hún Súsý elsku vinkona mín lést föstudaginn 10. júlí eftir erfið veikindi aðeins nýorðin sextíu ára og í raun verð ég bara sorgmædd og skil illa tilgang lífsins á stundu sem þessari. En þakklæti fyrir öll árin okk- ar og allt sem við brölluðum er efst í huga mínum og margar minningar sem rifjast upp í dag. Við Súsý kynntumst þegar við vorum tíu ára er ég flutti suður og urðum strax frá fyrsta degi góðar vinkonur og vorum síðan nánast óaðskiljanlegar í áratugi. Við ólumst báðar upp við mikla tónlist á heimilum okkar og Tom Jones, Engilbert Humperdinck, Elvis Presley og fleiri góðir voru á fóninum þar og við Súsý elsk- uðum þessa gömlu tónlist. Við vorum samtaka í því að eignast heimili og börn eins og í svo mörgu öðru og ólust börnin okkar upp saman að miklu leyti þar sem Súsý var á hverjum degi inni á mínu heimili eða ég inni á hennar. Við áttum jafnvel jól og aðrar hátíðir saman og við fórum í bú- staði og útilegur með börnin okkar. Húsafellið var í uppáhaldi og fórum við með hústjöldin okkar þangað flestar helgar í nokkur ár. Síðan tók við Þjórsárdalsrútu- tímabilið okkar en þar bjuggum við til okkar eigin hippaparadís þar sem börnin okkar gátu leikið sér frjáls. Eurovision var í uppáhaldi og horfðum við saman á hana í fleiri áratugi. Mikið spáðum við og spekúleruðum í lögunum og svo voru úrslitin skoðuð í ljósi okkar fyrirframgefnu stigagjafar. Þær eru margar minningarn- ar, karókí og lagið okkar Crazy með Patsy Cline og mörg önnur góð lög voru sungin af innlifun. Tónlist og aftur tónlist kemur upp í huga minn. Bræður hennar með gítarspil og söng, hugleið- ingar okkar um lífið, trúna sem við áttum báðar og leit okkar að svörum við stórum spurningum lífsins er bara brot af því besta. Súsý var mikill fagurkeri og húsmóðir ásamt því að vera góð móðir. Hún elskaði afkomendur sína og fátt var það sem hún var ekki til í að gera fyrir þau. Eins var hún svo glöð þegar Sveinbi litli fæddist en hún hafði þráð ömmutitilinn lengi. Ég var svaramaður Súsýar þegar hún giftist eftirlifandi manni sínum í Bústaðakirkju og það var stolt kona sem gekk þar inn kirkjugólfið í sínum hvíta smekklega kjól. Það var fallegur gleðidagur í hennar lífi. Súsý var tíður gestur á heimili foreldra minna, sérstaklega eftir að mamma hennar dó, og merki- legt finnst mér að mamma og hún kveðja báðar þennan heim með nokkurra mánaða millibili. Lík- lega sitja þær núna saman í himnanna sal með kaffibollann og sígaretturnar og horfa niður til okkar hinna með kærleika. Orðin mín eru óttalega fátæk- leg núna og þau segja bara brota- brot af því sem hjarta mitt vildi geta sagt og Guð einn veit að Súsý átti kærleika minn og vin- áttu alla tíð hvort sem við vorum aðskildar eða í umgengni og ég sakna gamalla og góðra stunda sem við áttum. Ég geri orð John Lennons að lokaorðunum mínum eða „Lífið er það sem hendir þig á meðan þú leggur á ráðin um annað“. Ég bið Guð að blessa heimför þína, elsku Súsý mín, og hafðu þökk fyrir allt og allt, ég mun sakna þín. Þar til við hittumst á ný, Þín vinkona Linda. Málfríður Emilía Brink kvæðasti ferðafélagi sem hægt var að hugsa sér. Alltaf var gaman, allt var frábært og allt- af gat hún miðlað málum. Erla var fallega hugsandi manneskja. Hún var fordóma- laus, hafði ríka réttlætiskennd og næma tilfinningu fyrir þeim sem minna máttu sín. Halldóra mágkona hennar naut svo sannarlega góðs af því og sakn- ar hennar óendanlega. Sorgin er meiri en með orð- um verði lýst. Við kveðjum okk- ar hæfileikaríku og heillandi tengdadóttur og erum þakklát fyrir samfylgdina. Reynar Kári og dæturnar eiga minningu um elskandi eiginkonu og móður. Megi góður Guð styrkja þau í sorginni. Jóhanna Einarsdóttir og Bjarni Reynarsson. Ég minnist elskulegrar mág- konu, vinkonu og samstarfs- konu minnar Erlu Dísar. Þegar ég kynntist Erlu urðum við mjög fljótt góðar vinkonur. Erla var flink handavinnukona og svo listræn og hugmyndarík. Hún hjálpaði mér mikið þegar ég sýndi verkin mín með „List án landamæra“ og þegar ég sýndi á „Hönnunarmars“. Ég gat alltaf leitað til hennar ef eitthvað var. Hún var alltaf til staðar fyrir mig og gaf mér góð ráð. Erla bauð mér vinnu hjá sér sem aðstoðartextílkennari og það var gaman að fá að að- stoða hana í kennslunni. Mér fannst líka gaman að fá að að- stoða hana með stelpurnar hennar. Við fórum í mörg góð ferða- lög saman með fjölskyldunni. Það voru góðar stundir. Erla var alltaf svo jákvæð og skemmtileg. Við áttum t.d. margar góðar stundir á Hvammeyri á Tálknafirði. Ég á góðar minningar um hana Erlu mína sem munu allt- af fylgja mér. Ég elska hana svo heitt og sakna hennar mikið. Halldóra Sigríður. Elskuleg mágkona mín Erla Dís, sem var mér eins og systir, er fallin frá langt fyrir aldur fram. Sorgin hellist yfir og minningarnar streyma fram. Góðar minningar um einstaka konu sem hafði hlýja nærveru og sá alltaf jákvæðu hliðarnar á öllum málum. Þannig eru t.d. ógleymanleg öll ferðalögin sem fjölskyldur okkar fóru í saman hér heima og erlendis. Erla Dís var þar jafnan hrókur alls fagn- aðar, skemmtileg og lífsglöð. Erla var listhneigð, metnaðargjörn og skarpgreind. Hún átti einnig einstaklega gott með mannleg samskipti sem nýttist henni vel í öllu sem hún tók sér fyrir hendur, ekki síst í textílkennslunni. Á því sviði skaraði hún fram úr og lagði metnað sinn í að miðla af þekk- ingu sinni og reynslu til nem- enda sinna. Eftir Erlu liggja fjölmörg listaverk sem bera vott um þá miklu sköpunargáfu sem hún hafði til að bera. Erla var með eindæmum hjartahlý og tók upp hanskann fyrir þá sem minna mega sín. Þannig reyndist hún systur minni, Halldóru Sigríði, sér- staklega vel og var Erla hennar besta vinkona. Ég verð Erlu ævinlega þakklátur fyrir hvað hún var góð við Halldóru. Það var mér mikil ánægja þegar Erla Dís og Reynar Kári gengu í hjónaband vorið 2019. Þetta var löngu tímabært, enda áttu þau að baki langt samband sem hafði gefið af sér ríkulegan ávöxt – systurnar Ísafold Evu, Halldóru Móeyju og Bjarneyju Ósk. Minning Erlu Dísar mun lifa í gegnum þær um ókomna tíð. Þó að við Erla Dís værum ólík ríkti á milli okkar kær vin- átta, trúnaður og gagnkvæm virðing. Erla leitaði gjarnan til mín til stuðnings og ráðgjafar þegar eitthvað bjátaði á. Mér þótti vænt um að hún sagði oft að ég væri „hennar besti mað- ur“. Núna er Erla farin en ég ætla mér eftir sem áður að standa undir því nafni með því að styðja eftirlifandi eiginmann hennar og börn af öllum mætti á þeim erfiðu tímum sem fram undan eru. Megi góður Guð geyma Erlu okkar og styrkja hennar nán- ustu í þessari miklu sorg. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Einar Hugi Bjarnason. Elsku vinkona okkar, það er með sorg og söknuði að við kveðjum þig. Þú hefur verið traustur fasti í lífi okkar allra lengi, og saman höfum við verið í matarklúbbi á tólfta ár, ferðast saman, eldað saman, hlegið saman, grátið saman. Þú auðgaðir líf okkar með orku þinni og listfengi, hafðir næmt auga, næma bragð- lauka og næmar, fíngerðar hendur. Dugnaður einkenndi þig alla tíð. Þú varst svo dríf- andi og atorkusöm, hafðir fjörugt ímyndunarafl, fékkst alls kyns hugmyndir og ef þér datt í hug að gera eitthvað gát- um við bókað að þú myndir gera það alla leið. Það var fal- legt að fylgjast með því hvað þú áttir hlýtt og gott samband við mágkonu þína og sem dæmi varstu óþreytandi við að vinna að ýmsum verkefnum með henni. Þú varst svo skapandi og skemmtileg kona, flinkur hönn- uður og fagurkeri sem kunni að meta smáatriðin í lífinu. Mennt- un var þér kappsmál og þú varst stolt af menntun þinni og starfi. Þú hafðir sterka rétt- lætiskennd og þér var kvenna- samstaða hjartfólgin. Þú varst gefandi og góð vinkona vina þinna og við áttum frábærar stundir saman sem munu ylja okkur um ókomna tíð. Þar má sem dæmi nefna þegar við fór- um saman í ógleymanlega ferð til Almería á Spáni með litlu krílin og héldum upp á tveggja ára afmæli Ísafoldar Evu á sundlaugarbakkanum. Ótal minningar streyma fram úr ferðalögum innanlands, hvort sem við vorum saman á Siglu- firði, í Grettislaug, á Suðureyri eða Tálknafirði, í brúðkaupum og veislum eða í fjöruferðum varstu alltaf óaðfinnanlega klædd og smart. Þú verður að eilífu partur af okkur og fjöl- skyldunum okkar. Matarklúbb- urinn fór sem ein eining í gegn- um allar meðgöngur saman, fyrstu skrefin okkar allra sem mæður og feður tókum við hlið við hlið og í styrk hvert af öðru. Við stofnun klúbbsins var að- eins eitt barn fætt, nú eru þau þrettán, og okkur finnst við eiga hlutdeild í þeim öllum. Við erum þakklát fyrir allar gæða- stundirnar sem við áttum með ykkur Reynari og öllum börn- unum okkar. Þú varst áhyggju- laus og góð móðir, sem fannst mikilvægt að veita dætrum sín- um frelsi til að vera börn. Þú hafðir aldrei áhyggjur af því að stelpurnar ykkar óhreinkuðu fötin sín eða neitt í þá veru, þær áttu að fá að drullumalla og skapa. Þú elskaðir heitt og varst til í að leggja mikið á þig fyrir þau sem þú elskaðir. Það er þyngra en tárum taki að þurfa að kveðja þig í dag. Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli. (Reinhold Niebuhr) Hvíl í friði, elsku Erla Dís okkar. Matarklúbburinn – Ástrós, Valtýr, Edda Sif, Steindór Ingi, Sigurveig, Árni Freyr, Unnur og Einar. Hún var kona. Hún var kröft- ug og hún var klár. Hún var með munninn fyrir neðan nefið og hjartað á hárréttum stað. Hún var stórskemmtileg. Eng- um þurfti að leiðast í kringum hana. Hún var fjölhæf og ástríðufull. Hvort sem það var vefnaður, femínismi, uppeldis- mál, sörubakstur, skófatnaður eða endurvinnsla á textílefnum var okkar kona með hlutina á hreinu og gott betur en það. Við héldum að við værum kunnugar drifkrafti og áræðni en hún sýndi okkur að hennar drif- kraftur var á öðru og áður óþekktu plani. Um leið og hún rúllaði sér í lest með okkur frá Englandi til Skotlands þar sem við vorum í þrautpakkaðri námsferð gerði hún sér lítið fyr- ir og kláraði mastersritgerð í kennslufræðum. Erla Dís var elskuð. Mikið óskaplega sem hún var elskuð ofan í hjartaræt- ur. Hún var dýrkuð og dáð af ungum og öldnum. Hún sáði fjölmörgum fegurðarfræjum í huga og hjörtu nemenda sinna sem og alls síns samferðafólks. Við þökkum af öllu hjarta fyrir að hafa lánast að kynnast Erlu Dís ofan í kjarnann hennar og fyrir að hafa mátt eiga í henni vinkonu, stuðning, hlýju og gleði. Við vonum að hún hafi fundið hvað hún var okkur kær og að hún hafi tekið þá elsku og ást með sér inn í nóttina og nýj- an dag. Hjartans vinkona. Við sendum öllum aðstand- endum Erlu Dísar samúð og hlýju á þessum erfiðu tímum og biðjum góðar vættir að vera dætrum hennar styrkur og stoð á lífsins leið. Fyrir hönd þinna eilíflega elskandi Diplótex-systra, Lilý Erla Adamsdóttir. Ég trú ekki að ég sitji hér og skrifi minningargrein um þig, elsku Erla. Síðustu dagar hafa einkennst af gremju, reiði og þrúgandi sorg. Ég get ekki sætt mig við að þetta hafi farið svona, að ég fái aldrei að sjá þig aftur og fái aldrei aftur að tala við þig. Þetta er bara of ósann- gjarnt. Síðustu daga hef ég hugsað um þig og allt sem við höfum gert saman. Öll samtölin okkar og þessa vináttu sem var svo ótrúlega sérstök af því hún byggðist á svo mikilli hrein- skilni og einlægni, það voru okkar einkunnarorð. Ég hef hugsað mikið um það þegar við vorum óléttar að Jonna og Ísafold, allar Aktu Taktu-samlokurnar, Mario Bros, ferðalögin, grillpartíin, út að borða-klúbbinn, ASOS-kaup- in og löngu símtölin, þegar Reynar spurði hver væri í sím- anum og þú svaraðir „Birna,“ þá vissi hann betur og fann sér eitthvað annað að gera, þetta gat jú tekið svona tvo tíma. Ég er líka búin að hugsa um hversu mikill klettur þú hefur verið við hlið mér í öllu. Þú tal- aðir alltaf um mikilvægi þess að vera jákvæð, sterk, umburðar- lynd og að upplifa tilfinningar sínar. Það er það sem ég ætla að gera. Ég ætla að taka allt sem þú kenndir mér og ég ætla að tileinka mér það allt. Ég ætla að vera til staðar fyrir Reynar, Ísafold, Móey, Bjarney og alla hina sem þótti svo óendanlega vænt um þig og ég ætla að segja þeim hversu frábær þú varst. Hversu hvetj- andi, hugrökk, skapandi, ákveð- in og hugulsöm þú varst. Það er eina leiðin fyrir mig til að lifa á þín elsku besta vinkona mín. XO, Birna. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.