Morgunblaðið - 16.07.2020, Blaðsíða 56
FÓTBOLTINN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Elín Metta Jensen bjargaði stigi
fyrir Íslandsmeistara Vals þegar
liðið fékk Fylki í heimsókn í 6. um-
ferð úrvalsdeildar kvenna í knatt-
spyrnu, Pepsi Max-deildarinnar, á
Origo-völlinn á Hlíðarenda í kvöld.
Leiknum lauk með 1:1-jafntefli
en Elín Metta skoraði jöfn-
unarmark Vals í fyrri hálfleik.
Strax á upphafsmínútu leiksins
fékk Elísa Viðarsdóttir að líta beint
rautt spjald fyrir að ræna Árbæinga
upplögðu marktækifæri.
Fylkiskonur fengu vítaspyrnu að
auki sem Sandra Sigurðardóttir
varði en Árbæingum gekk illa að
nýta sér liðsmuninn í fyrri hálfleik.
Valskonur voru afar þéttar í síð-
ari hálfleik og freistuðu þess að
beita skyndisóknum. Hvorugu lið-
inu tókst hins vegar að skapa sér af-
gerandi marktækifæri í síðari hálf-
leik og liðin skiptu með sér
stigunum.
„Sólveig Jóhannesdóttir Larsen
er mikilvæg Fylkisliðinu, en eftir að
hafa misst af síðasta leik, sem var
jafntefli gegn nýliðum Þróttar úr
Reykjavík, kom hún aftur inn í liðið
í kvöld gegn Íslandsmeisturunum
og var allt í öllu. Fiskaði vítaspyrnu
og rautt spjald á Valsara í upphafi
leiks og skoraði mark Árbæinga eft-
ir laglegan sprett.
Íslandsmeistarar Vals léku manni
færri frá fyrstu mínútum og urðu að
láta sér stig duga í kvöld. Valsarar
misstigu sig aðeins tvisvar allt Ís-
landsmótið í fyrra, gerðu jafntefli í
tvígang gegn Breiðabliki sem end-
aði í öðru sæti. Það getur því reynst
dýrkeypt að tapa stigum í toppbar-
áttunni, þó það sé bara einu sinni,“
skrifaði Kristófer Kristjánsson m.a
í umfjöllun sinni um leikinn á mbl.is.
Valsarinn Elín Metta Jensen
skoraði áttunda deildarmark sitt í
sumar, en hún er markahæsti leik-
maður deildarinnar. Blikinn Berg-
lind Björg Þorvaldsdóttir kemur
þar á eftir með sex mörk og Þrótt-
arinn Stephanie Ribeiro og Vals-
arinn Hlín Eiríksdóttir eru jafnar í
3. sæti með fimm mörk hvor.
Fylkiskonan Sólveig Jóhannes-
dóttir Larsen skoraði fyrsta mark
sitt í sumar en hún er á láni hjá
Fylki frá Breiðabliki. Þetta var
þriðju leikur Sólveigar með Fylkis-
konum í deildinni í sumar, en hún
hefur verið dugleg að leggja upp
mörk fyrir liðsfélaga sína. Þetta var
jafnframt 300. mark Fylkis í efstu
deild.
Valsarar halda áfram að bæta
leikjum í safnið, en Sandra Sigurð-
ardóttir, markvörður Vals, lék 286.
leik sinn í efstu deild. Hún er leikja-
hæsti leikmaður deildarinnar frá
upphafi. Liðsfélagi Söndru hjá Val,
Dóra María Lárusdóttir, kemur þar
á eftir en hún lék leik númer 243 í
kvöld. Þá lék Ásgerður Stefanía
Baldursdóttir 242. leik sinn í efstu
deild og Málfríður Erna Sigurðar-
dóttir lék sinn 241. leik þegar hún
kom inn á sem varamaður fyrir
Dóru Maríu Lárusdóttur í síðari
hálfleik.
Dýrmæt stig
í súginn hjá
meisturunum
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Barátta Bryndís Arna Níelsdóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir takast á.
Elín Metta hélt uppteknum hætti
Fylkiskonur brenndu af vítaspyrnu
56 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 2020
Pepsi Max-deild kvenna
Valur – Fylkir ........................................... 1:1
Staðan:
Valur 6 5 1 0 18:3 16
Breiðablik 4 4 0 0 15:0 12
Fylkir 4 2 2 0 7:4 8
Selfoss 5 2 1 2 6:4 7
Þór/KA 4 2 0 2 8:8 6
Stjarnan 6 2 0 4 8:14 6
Þróttur R. 5 1 2 2 8:9 5
FH 5 1 0 4 2:10 3
ÍBV 5 1 0 4 5:15 3
KR 4 1 0 3 4:14 3
England
Burnley – Wolves..................................... 1:1
Jóhann Berg Guðmundsson kom inn á
sem varamaður hjá Burnley á 30. mínútu.
Manchester City – Bournemouth ........... 2:1
Newcastle – Tottenham........................... 1:3
Arsenal – Liverpool.................................. 2:1
Staðan:
Liverpool 36 30 3 3 77:29 93
Manch. City 36 24 3 9 93:35 75
Chelsea 36 19 6 11 64:49 63
Leicester 35 17 8 10 65:36 59
Manch. United 35 16 11 8 61:35 59
Wolves 36 14 14 8 49:38 56
Tottenham 36 15 10 11 57:46 55
Sheffield United 35 14 12 9 38:33 54
Arsenal 36 13 14 9 53:45 53
Burnley 36 14 9 13 40:48 51
Everton 35 12 9 14 41:52 45
Southampton 35 13 6 16 45:58 45
Newcastle 36 11 10 15 37:55 43
Crystal Palace 35 11 9 15 30:45 42
Brighton 35 8 12 15 36:52 36
West Ham 35 9 7 19 44:59 34
Watford 35 8 10 17 33:54 34
Bournemouth 36 8 7 21 37:62 31
Aston Villa 35 8 6 21 38:65 30
Norwich 36 5 6 25 26:68 21
B-deild:
Brentford – Preston................................. 1:0
Bristol City – Stoke.................................. 1:1
Birmingham – Charlton........................... 1:1
Nottingham Forest – Swansea ............... 2:2
Ítalía
Bologna – Napoli ..................................... 1:1
Andri Fannar Baldursson kom inn á sem
varamaður á 78. mínútu hjá Bologna.
Rússland
Krilija Sovetov – Krasnodar .................. 0:0
Jón Guðni Fjóluson var ónotaður vara-
maður hjá Krasnodar.
Pólland
Jagiellonia – Slask Wroclaw .................. 2:1
Böðvar Böðvarsson lék fyrstu 60. mín-
úturnar með Jagiellonia.
Grikkland
AEK Aþena – PAOK ............................... 0:0
Sverrir Ingi Ingason var ónotaður vara-
maður hjá PAOK.
Bandaríkin
New York City – Orlando....................... 1:3
Guðmundur Þórarinsson lék fyrri hálf-
leikinn með New York City.
Svíþjóð
AIK – Sirius .............................................. 1:2
Kolbeinn Sigþórsson var ekki í leik-
mannahópi AIK.
Växjö – Rosengård .................................. 0:3
Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik-
inn með Rosengård.
Eskilstuna – Kristianstad ....................... 2:3
Svava Rós Guðmundsdóttir lék allan
leikinn með Kristianstad og skoraði eitt
mark. Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar liðið.
Djurgården – Vittsjö............................... 2:1
Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn
með Djurgården.
Uppsala – Umeå....................................... 3:0
Anna Rakel Pétursdóttir lék allan leik-
inn með Uppsala.
Noregur
Bodö/Glimt – Kristiansund.................... 2:1
Alfons Sampsted lék allan leikinn með
Bodö/Glimt.
Sandefjord – Aalesund ........................... 1:0
Emil Pálsson lék fyrstu 54. mínúturnar
með Sandefjord en Viðar Ari Jónsson var
ekki í hóp.
Hólmbert Aron Friðjónsson og Davíð
Kristján Ólafsson léku allan leikinn með
Aalesund og Daníel Leó Grétarsson fyrstu
65. mínúturnar.
Strömsgodset – Mjöndalen..................... 2:1
Ari Leifsson var ónotaður varamaður
hjá Strömsgodset.
Dagur Dan Þórhallsson kom inn á sem
varamaður á 79. mínútu hjá Mjöndalen.
Vålerenga – Haugesund ......................... 1:0
Matthías Vilhjálmsson lék allan leikinn
með Vålerenga.
Molde – Viking......................................... 5:0
Axel ÓskarAndrésson lék allan leikinn
með Viking.
KNATTSPYRNA
1. deild kvenna, Lengjudeildin:
Ásvellir: Haukar – Víkingur R ............ 19.15
Vivaldi-völlur: Grótta – Tindastóll ...... 19.15
Nettóvöllur: Keflavík – ÍA................... 19.15
Kópavogsvöllur: Augnablik – Fjölnir...... 20
Í KVÖLD!
Arnar Grétarsson var ráðinn þjálf-
ari KA í efstu deild karla í knatt-
spyrnu í gær eftir að Óla Stefáni
Flóventssyni var sagt upp störfum í
gærmorgun. Óli Stefán tók við
þjálfun KA eftir tímabilið 2018 og
hafnaði liðið í 5. sæti úrvalsdeild-
arinnar á síðustu leiktíð. Liðið hef-
ur hins vegar byrjað yfirstandandi
tímabil illa og er í ellefta og næst-
neðsta sæti deildarinnar með þrjú
stig eftir fimm leiki. Arnar mun
stýra liðinu út tímabilið í það
minnsta en lesa má viðtal við þjálf-
arann á mbl.is/sport/efstadeild/.
Breytingar
á Akureyri
Akureyri Arnar Grétarsson er mætt-
ur aftur í efstu deild karla eftir hlé.
Morgunblaðið/Eva Björk
Guðjón Þórðarson hefur verið ráð-
inn þjálfari knattspyrnuliðs Vík-
ings í Ólafsvík og hann tekur við af
Jóni Páli Pálmasyni sem sagt var
upp störfum fyrr í vikunni.
Guðjón er einhver reyndasti
þjálfari landsins en hann þjálfaði
síðast lið NSÍ í Færeyjum á síðasta
ári en lið hans hafnaði í þriðja sæti
úrvalsdeildarinnar þar í landi.
Síðasta íslenska lið sem Guðjón
þjálfaði var Grindavík árið 2012.
Hann tekur við liðinu eftir leik
gegn Aftureldingu í 1. deild karla,
Lengjudeildinni, á föstudaginn.
Ólafsvík Guðjón Þórðarson er
mættur aftur í íslenska boltann.
Guðjón mættur
til Ólafsvíkur
Morgunblaðið/Ernir
VALUR – FYLKIR 1:1
0:1 Sólveig J. Larsen 17.
1:1 Elín Metta Jensen 24.
M
Elín Metta Jensen (Val)
Guðný Árnadóttir (Val)
Lillý Rut Hlynsdóttir (Val)
Málfríður Anna Eiríksdóttir (Val)
Sandra Sigurðardóttir (Val)
Cecilia Rán Rúnarsdóttir (Fylki)
Berglind Rós Ágústsdóttir (Fylki)
Stefanía Ragnarsdóttir (Fylki)
Sólveig J. Larsen (Fylki)
Þórdís Elva Ágústsdóttir (Fylki)
Rautt spjald: Elísa Viðarsdóttir
(Valur) 1.
Dómari: Gunnþór S. Jónsson – 7.
Áhorfendur: 231.
Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl
og grein – sjá mbl.is/sport/fotbolti.
Baráttan um síðustu Evrópusætin í
ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu
er enn galopin eftir úrslit gærdags-
ins.
Landsliðsmaðurinn Jóhann Berg
Guðmundsson kom inn á sem vara-
maður á 30. mínútu hjá Burnley,
sem gerði dramatískt jafntefli gegn
Wolves í Burnley.
Þá skoraði Harry Kane tvívegis
fyrir Tottenham, sem vann öruggan
3:1-sigur gegn Newcastle á St.
James‘ Park.
Bournemouth er í erfiðri stöðu í
átjánda sæti deildarinnar eftir tap
gegn Manchester City í Manchester,
en liðið er nú fjórum stigum frá
öruggu sæti þegar liðið á tvo leiki
eftir af tímabilinu.
Arsenal er áfram með í baráttunni
um Evrópusæti eftir ótrúlegan 2:1-
sigur gegn Englandsmeisturum
Liverpool í London.
Liverpool átti 24 marktilraunir
gegn þremur marktilraunum Arsen-
al en allt kom fyrir ekki. Arsenal
fagnaði langþráðum sigri, en liðið
var án sigurs í síðustu tveimur leikj-
um sínum.
Sjöunda sæti deildarinnar mun
gefa sæti í Evrópudeildinni og það
er því mikið undir í dag þegar Leic-
ester tekur á móti Sheffield United.
Eins og sakir standa eiga Burn-
ley, Arsenal, Sheffield og Tottenham
og Wolves öll möguleika á síðustu
Evrópusætunum en Tottenham og
Wolves standa best að vígi.
AFP
Sigurmark Reiss Nelson tryggir Arsenal sigur gegn Liverpool.
Allt undir í lokaleikjum tímabilsins
Arsenal lagði
meistarana í London