Morgunblaðið - 16.07.2020, Side 60
60 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 2020
VIÐ LEITUM AÐ
LISTAVERKUM
Áhugasamir geta haft samband í
síma 551-0400
ERUM AÐ TAKA Á MÓTI VERKUM Á NÆSTA LISTMUNAUPPBOÐ
Rauðarárstígur 12-14 · 105 Reykjavík · sími 551 0400 · www.gallerifold.is
Vinur minn, vindurinn
Eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur.
bbbbm
Bókabeitan.
Vorvindar, lognmolla, stórviðri og
bylur. Þau eru ótalmörg orðin sem
við eigum um íslenska veðráttu og
eru þeim sannarlega gerð góð skil í
bókinni Vinur minn, vindurinn eftir
Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur,
barnabókahöfund og teiknara.
Vinur minn, vindurinn kom fyrst
út árið 2014 og er jafnframt fyrsta
bók Bergrúnar. Bókin var tilnefnd
til Fjöruverðlaunanna og Barna- og
unglingabókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs sem segja má að
hafi gefið tóninn fyrir feril Berg-
rúnar. Í dag, sex árum síðar, er af-
rekaskrá Bergrúnar orðin ansi
myndarleg og hún er vel að því kom-
in, enda fáir höfundar sem ná jafn
vel til barna í máli og myndum eins
og hún.
Í þessari endurbættu útgáfu er að
finna úrval úr upprunalegu útgáf-
unni sem og Sjáðu mig, sumar! sem
fylgdi eftir vindinum árið 2015. Það
er skemmtilegt hvernig eiginleikum
vindsins og sumarsins er blandað
saman svo úr verður stórfengleg
upplifun, bæði fyrir þá sem lesa og
hlusta. Bókin er afar hentug fyrir
forvitin kríli sem eru ört að bæta sig
í málþroska.
Það þarf svo vart að taka fram
hversu heillandi teikningarnar eru,
bókin er fínasta stofustáss sem börn,
foreldrar, ömmur og afar, frænkur
og frændur hafa gaman af að grípa í
við alls konar tækifæri. Bókin er líka
kjörin til að taka með í ferðalagið í
sumar og fara þannig yfir hvernig
veður hefur verið um daginn, því það
getur jú verið margbreytilegt á land-
inu okkar fagra.
Gréta og risarnir
Eftir Zoe Persica og Zoë Tucker.
bbbnn
Salka.
Sænski loftslagsaðgerðasinninn
Greta Thunberg er án efa fyrirmynd
margra barna í dag. Og það engin
smá fyrirmynd. Nú styttist óðum í
að Greta hafi mótmælt hundrað
föstudaga í röð undir yfirskriftinni
„skólaverkfall fyrir loftslagið“.
Baráttan gegn loftslagsvánni er
stór og flókin og nú gefst yngstu les-
endunum kostur á að kynnast Gretu
og hugsjónum hennar. Nöfnunum
Zoe Persica og Zoë Tucker tekst að
einfalda flókinn vettvang loftslags-
mála og loftslagsbreytinga í bókinni
Gréta og risarnir.
Sögusviðið er fallegur skógur þar
sem Gréta býr. Smám saman fara
risar að ógna heimkynnum hennar
og dýranna. Risarnir höggva niður
trén til að byggja sér heimili en
ganga ansi hratt á skóginn. Húsin
verða að bæjum og bæirnir að borg-
um og nú er skógurinn að eyðast.
Gréta fær góða hugmynd og eftir-
leikinn þekkja flestir.
Gréta í skóginum er klædd gulri
regnkápu, rétt eins og hin sænska 16
ára Greta. En ólíkt því sem gerst
hefur í raunheimum sjá risarnir í
bókinni að sér þegar Gréta bendir
þeim á eyðilegginguna og biðjast af-
sökunar. En baráttu Gretu í raun-
heimum er ekki lokið og í lok bók-
arinnar má finna góð ráð fyrir börn
sem vilja leggja baráttunni lið.
„Enginn er of smár til að skipta
máli“ eru orð að sönnu og frásögnin
af Grétu og risunum blæs lesendum
byr í brjóst, stundum má alveg ein-
falda hlutina aðeins.
Útivera
Eftir Sabínu Steinunni Halldórs-
dóttur og Auði Ýri Elísabetardóttur.
bbbbm
Salka.
Eflaust mikla margir foreldrar
það fyrir sér að gera eitthvað
skemmtilegt og skapandi með
börnum sínum úti í náttúrunni,
undirrituð þeirra á meðal. En ekki
lengur.
Útivera hefur að geyma 52
„spennandi hugmyndir til að fjölga
gæðastundum fjölskyldunnar úti í
náttúrunni á öllum árstímum“, eins
og segir í lýsingu.
Hugmyndirnar eru margvíslegar,
allt frá gömlum og góðum sem við
þekkjum flest, líkt og fuglaskoðun
og lautarferð, til frumlegra nýrra
ævintýra á borð við sjóræningjafjör,
garnaflækju og pítsupartí (sjón er
sögu ríkari). Auk þess er að finna
hugmyndir sem margir kannast við
sem hafa fengið skemmtilega til-
breytingu, til dæmis með því að úða
snjókarla og ýmsar snjófígúrur í öll-
um regnbogans litum.
Í bókinni má einnig finna góð ráð
til að auka útiveru með börnum.
Sabína Steinunn er með sér-
þekkingu á hreyfifærni barna
með áherslu á útivist í námi
og starfi og
það er
greini-
legt að
efnið
er
henni
afar hugleikið.
Tekst Sabínu að
setja fram
fjöldann allan af
hugmyndum með
einföldum en á sama
tíma skapandi hætti. Hug-
myndirnar eru 52 talsins og
hægt að framkvæma um vet-
ur, sumar, vor og haust, allt
eftir eðli hverrar og einnar.
Hugmyndirnar ná til barna á öllum
aldri en nýtast líklega best börnum
sex ára og eldri. Auður Ýr Elísa-
betardóttir myndskreytir bókina
með fallegum hætti og tekst að koma
hugmyndum höfundar vel til skila.
Kötturinn sem átti
milljón líf
Eftir Yoko Sano.
bbbbn
Ugla.
Ótal barnabækur eru til um ketti
en engin eins og bókin um köttinn
sem átti milljón líf: Kötturinn sem
dó milljón sinnum og lifði milljón
sinnum. Skapari hans, japanski
verðlaunahöfundurinn Yoko Sano,
hefur snert hjörtu barna sem og
fullorðinna um heim allan með
þessari stílhreinu en töfrandi frá-
sögn. Bókin kom fyrst út á jap-
önsku í Tókýó árið 1977. Nú, 43 ár-
um síðar, er hún aðgengileg á
íslensku í þýðingu Miyako Þórðar-
sonar.
Eigendur kattarins eru af
ýmsu tagi, allt frá
þjófum til kónga.
Þeir eiga það allir
sameiginlegt að
þykja mjög
vænt um
köttinn en
hann er
hins vegar
ófær um að
endur-
gjalda þeim
ást sína, allt
þar til hann
lærir að elska
aðra meira en sjálf-
an sig.
Kötturinn sem
átti milljón líf er
þannig dæmi um
klassískar barna-
bókmenntir með
djúpan boðskap, að
minnsta kosti fyrir yngstu lesend-
urna, og í leiðinni þörf áminning
fyrir þá sem eldri eru. Ugla sér um
útgáfuna sem er stílhrein og bókin
er virkilega eiguleg.
Útivera,
ógnir og ást
Yfirlit yfir nýútkomnar
íslenskar barnabækur
Erla María Markúsdóttir erla @mbl.is
Frakkinn Fréd-
éric Boyer mun
fara fyrir dag-
skrárnefnd
RIFF-kvik-
myndahátíðar-
innar í ár og ber
ábyrgð á keppn-
isflokknum
„Vitranir“.
Flokkurinn er
tileinkaður nýj-
um leikstjórum sem skara fram úr
meðal annars fyrir að nota nýjar
leiðir til miðlunar. Boyer er
þungavigtarmaður í heimi
kvikmyndahátíða, er listrænn
stjórnandi Tribeca-hátíðarinnar í
New York og Les Arcs European
Film Festival sem eru báðar með-
al þekktustu kvikmyndahátíðanna.
Hann hefur einig verið aðal-
dagskrárstjóri Directors’ For-
tnight-hluta kvikmyndahátíð-
arinnar í Cannes.
RIFF-hátíðin hefst 24. sept-
ember næstkomandi.
Dagskrárnefndin er ein burðar-
stoða RIFF og í henni sitja auk
Boyers þau Hrönn Marinósdóttir,
Guðrún Helga Jónasdóttir, Ana
Catala og Giorgio Gosetti.
Boyer stýrir dagskrárnefnd RIFF
Frédéric
Boyer