Morgunblaðið - 17.08.2020, Side 2

Morgunblaðið - 17.08.2020, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. ÁGÚST 2020 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratug a reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið Borgarbúar nutu sín í hátt í 20 stiga blíðu í Reykjavík í gær. Á útisvæðinu við Dillonshús á búsettar á sama stað, því annað hefði verið brot á tveggja metra reglunni svokölluðu. Árbæjarsafni er eins gott að gera ráð fyrir að hóparnir á hverju borði hafi verið fjölskyldur Hressing í sögulegu umhverfi Morgunblaðið/Ómar Snorri Másson snorrim@mbl.is Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra segir að sér hafi ekki þótt það sjálfgefin ákvörðun að ferðamenn sem hingað koma þurfi frá og með miðvikudeginum að fara í tvöfalda sóttkví, fyrst við landamærin og svo eftir 4-6 daga, til þess að gengið sé úr skugga um að þeir séu ekki smitaðir af kór- ónuveirunni. Ákvörðunin hefur verið umdeild, en Katrín segir ríkisstjórnina þó alla standa við hana. „Ég segi það samt sjálf, eftir að hafa legið yfir þessu, að mér fannst þetta ekki sjálfgefin niðurstaða. Við ræddum ýmsa valkosti en við stönd- um öll á bak við þessa niðurstöðu,“ segir Katrín við Morgunblaðið. Sig- ríður Á. Andersen, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, er á meðal þeirra sem gagnrýnt hafa ákvörð- unina. Hún sagði við mbl.is um helgina að lítið færi fyrir grundvallarmannréttindum í um- ræðu um sóttvarnaaðgerðir hér á landi og telur að færa hefði þurft ríkari rök fyrir því að herða aðgerð- ir með þessum hætti á nýjan leik. Katrín segist fagna umræðu um aðgerðirnar. „Það er gott að takast á um þetta en ég held að gögnin séu þannig að það sé mikilvægt að grípa til harðari aðgerða. Við skoðuðum valkosti sóttvarnalæknis út frá hag- rænum og samfélagslegum rökum. Hagrænu rökin virðast hníga að því að það sé réttara að herða á aðgerð- um en slaka og samfélagslegu rökin, eins og skóla-, íþrótta- og menning- arstarf, höfum við ítrekað farið yf- ir,“ segir Katrín. Fari niður í einfalda sýnatöku Aðgerðirnar sem taka gildi á mið- vikudaginn fela í sér verulega herð- ingu á skimunarfyrirkomulagi á landamærunum. Síðustu mánuði hefur það gilt að ferðamenn frá öruggum löndum fá að koma inn í landið án sýnatöku en þeir sem koma frá hættusvæðum hafa þurft að fara í eina skimun við komuna. Þá hafa þeir sem búsettir eru hér á landi þurft að viðhafa 4-6 daga heimkomusmitgát við heimkomu uns síðari sýnataka hefur staðfest að viðkomandi sé veirulaus. Nýtt fyrirkomulag mun fela það í sér að allir sem koma til landsins, hvort sem það eru erlendir ferða- menn eða Íslendingar, þurfa að fara í 4-6 daga sóttkví þar til sýnataka tvö er afstaðin. Katrín segir yfirvöld mjög meðvituð um að þegar reynsla verði komin á þetta fyrirkomulag verði hægt að endurskoða það. „Ef faraldurinn fer síðan aftur að þróast með réttum hætti í einhverjum löndum verður þá unnt að breyta sýnatökunni í einfalda sýnatöku fyr- ir þau lönd,“ segir hún. Fyrirhugaðar breytingar á landa- mærunum hafa skiljanlega ekki skilað sér til gervallrar heims- byggðarinnar, eins og sást á um- fjöllun breska blaðsins Sunday Tim- es í gær, þar sem ferðaþyrstir voru hvattir til þess að skella sér til Ís- lands, þar sem aðeins þyrfti að fara í eina sýnatöku við landamærin. Það eru gamlar upplýsingar en Katrín segir að unnið sé að því að upplýsa önnur ríki um þessa ákvörðun og að þar skipti einmitt máli að þetta hafi ekki verið ákveðið með sólarhring- sfyrirvara heldur nokkurra daga. Gott að takast á um ákvarðanirnar Morgunblaðið/Eggert Hertar aðgerðir Breytingin var kynnt á blaðamannafundi á föstudaginn.  „Ekki sjálfgefin niðurstaða“ að herða skimun á landamærum  Fyrsti áfangi afléttingar verður ein- föld sýnataka fyrir ferðamenn frá öruggum löndum  Veruleg herðing tekur gildi á miðvikudaginn Katrín Jakobsdóttir Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að hagsmunaaðilar í ferðaþjónustu hafi ekki haft vitneskju um að til stæði að herða aðgerðir á landamær- um, eins og kynnt var á föstudaginn. Þegar það var gert „fékk atvinnu- greinin áfall eins og hún lagði sig,“ segir Bjarnheiður. „Okkar skoðun er að þetta jafn- gildi lokun á landinu, að skrúfa fyrir komur erlendra ferðamanna hingað. Venjulegir ferðamenn geta ekki un- að við að sitja í sóttkví í 4-6 daga, þegar þeir dvelja flestir að meðaltali í sjö til átta nætur. Þessar fréttir setja í raun og veru það í uppnám sem var hægt og rólega byrjað að byggjast upp aft- ur hér á landi,“ segir Bjarnheið- ur. Mikill hluti at- vinnugreinarinn- ar er að vinna á uppsagnarfresti að sögn Bjarn- heiðar og vonir voru bundnar við að hægt væri að ráða hluta þessa starfsfólks aftur nú þar sem horfur voru að skána. „Nú minnka líkurnar á því verulega,“ segir hún. „Við sjáum líka strax að þetta eykur líkur á fjöldagjaldþrot- um þegar líður á haustið og leiðir til miklu hærra atvinnuleysis en hefði orðið ef þetta hefði verið gert öðru- vísi. Það er bara grafalvarlegt mál.“ Ríkisstjórnin fjallaði um það á föstudaginn að ákvörðunin byggði á hagrænu mati. Talið væri að það hefði meiri jákvæð efnahagsleg áhrif að minnka líkur á smiti í samfélaginu með hertri skimun en það hefði að hafa landið áfram opið fyrir ferða- mönnum. Bjarnheiður segir að það séu þættir í kostnaðarábatagreining- unni sem Samtök ferðaþjónustunnar séu ekki sátt við, svo sem þar sem til- tekið er að meðaleyðsla ferðamanns skili 120.000 krónum inn í íslenska hagkerfið. Sú tala er of lág, segir Bjarnheiður. snorrim@mbl.is Eykur strax líkur á fjöldagjaldþrotum í haust  Ósátt við herta skimun  Áætlun í hagrænu mati of lág Bjarnheiður Hallsdóttir Karlmaður á fimmtugsaldri, öku- maður bifhjóls, lést eftir að hann missti stjórn á hjóli sínu á Þjóðvegi 1 skammt vestan Stigár í Austur- Skaftafellssýslu í gær. Tildrög slyssins eru til rann- sóknar en maðurinn virðist hafa fallið og runnið eftir götunni í veg fyrir bifreið sem kom úr gagn- stæðri átt, að því er kemur fram í tilkynningu lögreglunnar á Suður- landi. Endurlífgunartilraunir á vett- vangi báru ekki árangur og var hann úrskurðaður látinn þar. Slysið var tilkynnt neyðarlínu klukkan 13.36 á laugardag og var umferð stýrt fram hjá vettvangi. Tæknideild lögreglunnar á höf- uðborgarsvæðinu kom á vettvang ásamt fulltrúa rannsóknarnefndar samgönguslysa. Vinnu á vettvangi lauk um klukkan 19 á laugardags- kvöld. Banaslys í A-Skafta- fellssýslu  Tildrög slyssins til rannsóknar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.