Morgunblaðið - 17.08.2020, Síða 24

Morgunblaðið - 17.08.2020, Síða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. ÁGÚST 2020 Við leigjum út krókgáma FRAMKVÆMDIR? til lengri eða skemmri tíma HAFÐU SAMBAND: sími: 577 5757 www.gamafelagid.is Hugsum áður en við hendum! 50 ára Lovísa er fædd í Toronto en hefur búið í Garðabæ frá 8 ára aldri. Hún er eigandi og framkvæmdastjóri Happ ehf. sem selur heilsumat. Maki: Jón Björnsson, f. 1968, forstjóri Origo. Börn: Daníel Ingi Ragnarsson, f. 1991, Andri Björn Jónsson, f. 1996, og Erna Ósk Jónsdóttir, f. 2001. Barnabarn er Hrafntinna Daníelsdóttir, f. 2017. Foreldrar: Emilía Björnsdóttir, f. 1945, d. 2004, rak sundlaugina á Hótel Loftleið- um, og Stefán Ævar Guðmundsson, f. 1945, fv. prentari á Morgunblaðinu, bú- settur í Brockville í Kanada. Lovísa Stefánsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Áhrifarík augnablik koma upp í samskiptum við almenning. Auktu kraft- inn til þess að hressa þá sem eru í kring- um þig við. Yfir höfuð hefðirðu gott af meira stuði og minni ígrundun. 20. apríl - 20. maí  Naut Það er eðlilegt að flækjast í smáat- riðunum. Talaðu aðeins við þann sem þú treystir fullkomlega fyrir þínum málum. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú þarft að laga ýmislegt í starfsháttum þínum og umfram allt þarftu að muna að æfingin skapar meistarann. En láttu samt engan þvinga þig til að gera eitthvað sem þú vilt ekki. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Einhverjir vilja að þú vitir ekki allt um þeirra gjörðir. En fyrirhyggja er væn- legri en að láta vaða á súðum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Dagurinn í dag er frábær fyrir skap- andi verkefni og afþreyingu með smáfólk- inu. Fáðu útrás fyrir listrænar tilhneigingar þínar. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þér þætti betra að þurfa ekki að hitta neinn, sérstaklega ekki þann sem hefur valdið þér vonbrigðum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Einhver sem stærir sig af mætti sín- um, efast um hann innst inni. Gerðu ráð fyrir því að sinna skapandi störfum á næstunni. Liðsandinn sem þú miðlar á eft- ir að smita frá sér. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Eitt er að þekkja tilgang sinn í lífinu, en það er hundrað sinnum magn- aðra að geta lýst því með orðum á blaði. Smáupplyfting gerir þig bara betur færan um að taka upp þráðinn aftur. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Að treysta einhverjum sem maður þekkir varla er hluti af ævintýri dagsins í dag. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú munt njóta þess að sinna handavinnu og gæludýrum í dag. Svaraðu viturlega og þú losnar við röð af erfiðum spurningum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þig langar til að kaupa eitthvað stórkostlegt í dag. Vertu sá sem stingur upp á óvæntum leik. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þér finnst þú loksins reiðubúinn til að tjá þarfir þínar og pælingar fyrir maka þínum. Reyndu að slaka á. hugleikið á þessum árum er mikil- vægi starfsþróunar í iðngreinum. Löngu áður en farið var að tala um fjórðu iðnbyltinguna var ég tals- maður fyrir því að iðnaðarmenn þyrftu stöðugt að vera að kynna sér nýjungar í tækni og þróun starfa og vera tilbúnir bæði þekkingarlega og getulega fyrir þær breytingar sem fram undan eru. Þessi skoðun mín verður alltaf raunverulegri með hverju árinu sem liður.“ Hilmar situr í miðstjórn ASÍ og er í samninganefnd ASÍ. Jafnframt er hann kjörinn stjórnarmaður í Birtu og Landssambandi lífeyrissjóða. „Félagsstörf hafa verið brennandi stéttarfélag iðnaðarmanna á land- inu. Hilmar er formaður FIT. Hilmar var kosinn formaður Sam- iðnar – sambands iðnfélaga, árið 2013. Tólf félög iðnaðarmanna eiga aðild að Samiðn með rúmlega sjö þúsund félagsmenn í bygginga- greinum, málmgreinum, bílgreinum, tækniteiknun, skipasmíðum, garð- yrkju og snyrtigreinum. Samiðn annast m.a. kjarasamningagerð fyr- ir hönd aðildarfélaga sinna. Samiðn er í samskiptum við stjórnvöld, túlk- ar kjarasamninga og þess vegna mikilvægur málsvari fyrir þessi öflugu stéttarfélög. „Eitt af því sem mér hefur verið H ilmar Harðarson er fæddur 17. ágúst 1960 í Reykjavík. „Ég er fæddur og uppal- inn í Skipholtinu. Það var líf og fjör að alast upp í Skipholt- inu og þetta var skemmtilegt hverfi. Ég æfði fótbolta með Fram á mínum yngri árum og sótti æfingar á gamla Framvöllinn og svo í Safamýrinni. Ég hef allar götur síðan haldið með Fram,“ segir Hilmar. Hilmar hefur kynnst mörgum áhugaverðum einstaklingum á starfsævi sinni. Ekki síst eru margir minnisstæðir frá því hann bar út dagblöð sem strákur í hverfinu eða þegar hann vann sem sendisveinn á reiðhjóli fyrir vélaverkstæðið Kistu- fell. Síðar kynntist hann mörgum harðduglegum jöxlum sem unnu við byggingu verkamannabústaða í Breiðholti þar sem Hilmar komst ungur til að vinna sem handlangari múrara. Ekki eru síður eftirminni- legir skipsfélagar sem hann sigldi með á Eyrarfossi og Goðafossi. Hilmar hóf skólagöngu sína í Skóla Ísaks Jónssonar, síðan lá leið- in í æfingadeild Kennaraháskólans og Gagnfræðaskóla Austurbæjar. Að grunnskólanámi loknu hóf Hilm- ar nám við Iðnskólann í Reykjavík, þaðan sem hann lauk sveinsprófi í bifvélavirkjun en auk þess er hann með meistararéttindi í greininni. Jafnframt hefur Hilmar lokið kennsluréttindanámi frá mennta- vísindasviði Háskóla Íslands og er með leyfisbréf til kennslu í fram- haldsskóla. Hilmar starfaði hjá bifreiða- umboðinu Velti hf. og vann þar þar til hann stofnaði bílaverkstæðið Bíl- son. Lengst af vann Hilmar þó hjá Heklu hf. eða þar til hann var kjör- inn formaður Bíliðnafélagsins/ Félags blikksmiða. „Strax upp úr aldamótum var orðin hávær umræða um að mikilvægt væri að sameina stéttarfélög þannig að þau gætu bet- ur tryggt starfsskilyrði og starfskjör íslenskra iðnaðarmanna.“ Hilmar fann þessa knýjandi þörf og sam- ræðan hófst um sameiningu margra gamalla gróinna félaga og úr varð Félag iðn- og tæknigreiða – FIT sem í dag er stærsta einstaka áhugamál mitt ásamt því að veiða fisk á flugu og að ferðast. Ég hef ferðast mikið um hálendi Íslands og gengið fjöldamörg fjöll. Ég hef verið í félagsskapnum 52 fjöll sem er á vegum Ferðafélags Íslands. Við konan mín höfum einnig ferðast víða erlendis. Eftirminnileg- ustu ferðirnar eru til Ísraels og Pal- estínu, Mexíkó, Kúbu og Taílands. Þegar ég var yngri ferðaðist ég tals- vert til Ítalíu. Ég hef gaman af að kynna mér menningu annarra landa og er duglegur að fara á söfn þegar ég er á ferðalögum. En líklega má segja að fjölskyldan og vinna séu stærstu áhugamálin. Fjölskyldan er Hilmar Harðarson, formaður Samiðnar og Félags iðn- og tæknigreina – 60 ára Stórfjölskyldan Hilmar og Þorgerður ásamt börnum sínum, tengdabörnum og barnabörnum. Brennandi áhugi á félagsstörfum Með barnabörnin Hilmar Atli, Þorgerður, Una Margrét og Hilmar. Starfsfélagar Hilmar og Elmar Hallgríms Hallgrímsson, framkvæmdastjóri Samiðnar. 40 ára Inga Björg er Grindvíkingur og hef- ur alltaf búið í Grindavík. Hún er stuðningsfulltrúi í Grunnskólanum í Grindavík. Maki: Ekasit Thasa- phong, f. 1980, sjómaður á línubátn- um Sighvati hjá Vísi hf. í Grindavík Börn: Símon Logi, f. 2001, Júlía Ruth, f. 2003, og Björgvin Máni, f. 2012. Foreldrar: Gunnhildur Björgvinsdóttir, f. 1961, húsmóðir, og Símon Al- freðsson, f. 1960, yfirmaður bræðslu hjá fiskþurrkunarfyrirtækinu Haustaki á Reykjanesi. Þau eru búsett í Grinda- vík. Inga Björg Símonardóttir Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.