Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.08.2020, Page 4
FRÉTTIR VIKUNNAR
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.8. 2020
Löggiltur heyrnarfræðingur
Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is
Heyrnarþjónusta í alfaraleið
Heyrðu umskiptin með háþróuðum ReSound
gæðaheyrnartækjum.
Margir verðflokkar, SÍ niðurgreiðir heyrnartæki.
Heyrnargreining, ráðgjöf og heyrnartæki til
reynslu afgreidd samdægurs.
Hugmyndir eru uppi hjá SÁÁum að reisa nýtt sjúkrahúsá Kjalarnesi, sem þá kæmi
í stað Vogs. Við blasir að nýtt nafn
þarf á nýja sjúkrahúsið, enda stæði
það ekki lengur við neinn vog. Þar
hlýtur nafnið Kjölur að koma sterk-
lega til greina, enda markmiðið það
að koma fólki á réttan kjöl.
Bændasamtökin drógu fram að
samkvæmt upplýsingum frá hag-
stofu Evrópusambandsins (Euro-
stat) sé kjötverð á Íslandi hið næst-
hæsta í Evrópu, en aðeins í Sviss er
ketið neytendum dýrkeyptara. Af-
urðaverð til bænda sé hins vegar
hvergi lægra.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra skrifaði grein í Morgunblaðið,
þar sem hún lýsti viðhorfum sínum
til aðsteðjandi vanda af völdum kór-
ónuveirunnar, ekki þá síst hvað
varðar efnahagsáhrif hans og áhöld
um borgararéttindi vegna sóttvarn-
araðgerða. Benti hún á að miðað við
reynslu nágrannaþjóða þyrftu hert-
ar sóttvarnir ekki að leiða til meiri
samdráttar en linkulegri aðgerðir,
nýjustu sóttvarnaraðgerðir miðuðu
að því að halda veirunni í skefum en
einnig þannig að hagkerfi og sam-
félag yrðu fyrir sem minnstri trufl-
un, þó ferðaþjónustan væri ekki
svipur hjá sjón. Þá rifjaði hún upp
að í vor hefðu aðgerðirnar um
margt verið harkalegri, t.d. hvað
áhrærði atvinnufrelsi fólks, og sagði
fimm daga töf í sóttkví við komu til
landsins ekki skerða borgararétt-
indi.
Efnahagsáhrif komu skýrt í ljós
af fréttum um að ríflega 9.300 færri
bílaleigubílar hefðu verið í umferð í
júlí í sumar en gerðist í sama mán-
uði í fyrra. Talið er að á næstu vik-
um og mánuðum megi búast við því
að um 4.500 bílaleigubílar muni fara
í sölu, sem vafalítið mun hafa veru-
leg áhrif á markað notaðra bíla í
landinu.
Blankheitin hafa þó meiri áhrif á
bílaumferðina í landinu, því talið er
að um 2.600 ótryggð ökutæki séu í
umferð í landinu og tugmilljóna
króna tjón af þeim árlega, sem erf-
itt getur reynst að fá bætt. Það eru
þó ekki nema 0,7% allra ökutækja í
landinu, því þau voru rúmlega 382
þúsund um liðin áramót. Í landinu
búa um 360 þúsund manns.
Það segir kannski sína sögu um
þrengingar í efnahagslífinu, að jafn-
vel á Seltjarnarnesi var rekið upp
ramakvein þegar verðhækkun á
skólamáltíðum var kunngerð þar í
þorpinu. Þar mun skólamáltíðin
kosta 655 kr.
Maður stórslasaðist í Heiðmörk
eftir að hann bar eld að tívolíbombu,
sem hann kvaðst hafa gengið fram
á. Vinstri hönd og framhandleggur
tættust af honum.
Síðari skimun á ráðherraliðinu
leiddi í ljós að enginn þeirra var
smitaður af kórónuveirunni eftir
ríkisstjórnarfund á Hellu vikunni
áður, þar sem fjöldasmit kom upp.
Sluppu þeir því úr sóttkví og gátu
haldið áfram að stjórna landinu. Var
því fagnað víða um land.
Helstu vandlætarar landsins af-
réðu um leið að fella talið um vin-
kvennahitting Þórdísar Kolbrúnar
Reykfjörð Gylfadóttur, enda ófært
að halda uppi hrópum að nema einni
stjórnmálakonu í einu. Var þess í
stað ákveðið að úthrópa Áslaugu
Örnu Sigurbjörnsdóttur fyrir að
hafa þegið far með þyrlu Landhelg-
isgæslunnar, án þess að hún hafi átt
frumkvæði að og baðst þó forláts á
þeim mistökum að hafa þegið farið.
Hinir ofvirku í athugasemdum
þögnuðu ekki fyrr en daginn eftir
þegar framhaldsleikritið um Kveik
& Samherja hélt áfram.
Frægasta Excel-skjal landsins
kom í leitirnar við grams hjá Verð-
lagsstofu skiptaverðs, en það fannst
á afviknum diski í afvikinni skúffu í
afvikinni geymslu hjá þessu óvenju-
lega fáliðaða stjórnvaldi. Skjalið var
ekki skýrsla og í því fólst ekki efn-
islegt mat og raunar virðist Kveikur
Ríkisútvarpsins hafa vitnað nokkuð
naumlega til þess, sem þar kom þó
fram. Kveiksmenn hrósuðu því sigri
og Samherjamenn líka. Kveinkuðu
svo hvorir sér undan hinum um
hríð.
Velta innlendra greiðslukorta í
gistiþjónustu jókst um 1½ milljarð
króna fyrstu sjö mánuði ársins. Það
var þó skammgóður vermir fyrir
hótelhaldara landsins, því á sama
tíma minnkaði erlenda kortaveltan í
greininni um 22,6 ma.kr. Á sama
tímabili dróst erlend kortavelta í
veitingageiranum saman um 10,5
ma.kr.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Ice-
landair, upplýsti það í viðtali við
Morgunblaðið að félagið hefði engar
skuldir afskrifað í samningum við
lánardrottna. Hann var brattur og
taldi félagið vera í sterkri stöðu
þegar áhrifa kórónuveirunnar hætti
að gæta, aðeins þó ef hlutafjárútboð
þess og lánasamningar gengi upp. Í
umróti á ferðamarkaði fælust marg-
vísleg tækifæri þegar fárviðrinu
slotaði.
Endi var bundinn á „ólýsanlega
martröð“ íbúa við Skaftahlíð í vik-
unni þegar Reykjavíkurborg afmáði
battavöll við Ísaksskóla, sem þar
var í óleyfi. Aftur væri kominn á
friður og ró þar í hverfinu eftir 50
ára óöld.
Sértækar sóttvarnaraðgerðir hafa
víða verið teknar upp, til dæmis í
skólum sem óðum taka til starfa.
Það á einnig við um göngur og rétt-
ir, þar sem nokkur hefð hefur verið
fyrir nánum samskiptum, jafnvel
nánum kynnum. Af því tilefni var
þeirri leiðbeiningu komið til áhuga-
manna um sauðfé að virða tveggja
kinda regluna hvað varðaði fé-
lagsnánd á og af fjalli.
Annars er samdráttur í þeirri
grein, sem svo mörgum öðrum. Tal-
ið er að um 16.000 færra fjár sé í
landinu en í fyrra, en ekki hefur
verið færra fé í landinu um hálfrar
aldar skeið. Af því leiðir að um
19.000 lömbum færra verður í slát-
urtíðinni í ár, svo talið er að um 300
t. minna verði af lambaketi á boð-
stólum í haust en í fyrra.
Efnahagsafleiðingar kórónuveir-
unnar koma víða fram. Þannig bár-
ust af því fregnir að veiking ís-
lensku krónunnar að undanförnu
hefði komið hart niður á íslenskum
lífeyrisþegum á Spáni, sem þar sóla
sig og sötra suðræna aldindrykki.
Um 700 Íslendingar eiga lögheimili
á Fölu ströndinni sem við þá er
kennd, Costa Blanca, en verður héð-
an í frá nefnd Kostar blanka.
Þingstubburinn svonefndi hófst á
fimmtudag, en þar verður nær að-
eins fjallað um breytingar á fjár-
málastefnunni í ljósi breyttra að-
stæðna vegna kórónuveirunnar.
Brýn veirumál má þó taka fyrir, svo
sem frumvarp ríkisstjórnarinnar
um 2 mánaða framlengingu hluta-
bótaleiðarinnar, að tekjutengdar at-
vinnuleysisbætur fari úr 3 mán-
uðum í 6, auk ríkisábyrgðar á
lánalínu handa Icelandair. Í um-
ræðum kom fram að útlit væri fyrir
mesta efnahagssamdrátt í heila öld.
Stjórnarandstaðan gagnrýndi að-
gerðir ríkisstjórnarinnar lágum
rómi.
Á fimmtudagsmorgun fór fram
fjarfundur í Efnahags- og við-
skiptanefnd þingsins, þar sem dr.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri var
gestur. Smári McCarthy, þingmað-
ur Pírata, spurði út í samgöngu-
fjárfestingar en seðlabankastjóri
drap meðal annars á að furðu
gegndi að Reykjavíkurborg hefði
ekki látið verða af gerð Sundabraut-
ar. Þingmaðurinn lét vera að svara
Ásgeiri, heldur sagði það á Face-
book að svarið væri eiginlega galið,
enda væri Ásgeir ekki sérfræðingur
í vegagerð, borgarþróun, umhverf-
ismálum eða álíka. Ekki dygði að
fjárfesta í steinsteypu og samöngu-
mannvirkjum. Smári hefur sem
kunnugt er fengið Óskarsverðlaunin
í stærðfræði.
Í öðrum fréttum var að Reykja-
víkurborg ætlar að reisa nýja mal-
bikunarstöð, vafalaust í viðleitni
sinni til þess að „útrýma fjöl-
skyldubílnum“, líkt og Sigurborg
Ósk Haraldsdóttir, borgarfulltrúi
Pírata og formaður skipulags- og
samgönguráðs borgarinnar, orðaði
það svo skýrt á dögunum.
Ekki eru það aðeins ferðamenn,
sem ekki skila sér til Íslands, því
jafnvel makríllinn virðist tregari til
þess að synda inn í íslenska lögsögu
en verið hefur undanfarin ár. Göng-
urnar eru raunar með mesta móti,
en hlutfall makríls sem kemur inn
fyrir íslenska lögsögu hið minnsta.
Árið 2017 var þannig sjö sinnum
meira af makríl í lögsögunni en nú.
Varaseðlabankastjóri taldi rétt að
benda á það að ef stýrivextir skyldu
einhverntímann þokast upp á við
aftur myndi greiðslubyrði óverð-
tryggðra lána með breytilegum
vöxtum hækka verulega og snögg-
lega. Afborganir og vextir gætu
þannig skyndilega hækkað um
helming.
Grunur margra um að allt væri
að fara til Helvítis styrktist þegar
brennisteinsfnykurinn af heita vatn-
inu á höfuðborgarsvæðinu jókst
skyndilega. Ástæðan reyndist þó
aðeins vera bilun í Hellisheiðar-
virkjun. Er okkur sagt.
Bjarni Benediktsson fjármála-
ráðherra skipaði starfshóp sem á að
skila reglulegum greiningum á efna-
hagslegum áhrifum sóttvarnar-
kosta, með tilliti til hagsmuna ólíkra
samfélagshópa og geira hagkerf-
isins. Í starfshópnum situr m.a. Már
Guðmundsson, fyrrverandi seðla-
bankastjóri, sem er örugg vísbend-
ing um að ráðherra muni fleygja
greiningum hópsins ólesnum.
Helvíti og
Costa Blanca
Munið tveggja kinda regluna.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
23.8.-28.8.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is