Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.08.2020, Síða 17
komust að þeirri niðurstöðu að málsmeðferðin í Flór-
ída stæðist ekki. Þófið hafði gengið margoft til
Hæstaréttar Flórída sem heimilaði hvert afbrigðið af
öðru til að tryggja að demókratar gætu haldið áfram
að láta telja atkvæði aftur í hagfelldum kjördæmum
Flórída. Voru frægar myndir til af því þegar rýnt var
á kjörseðlana, sem gataðir voru af kosningavélum, til
að kanna hvort lufsa eftir götunina héldi enn svo fella
mætti það af frambjóðandanum sem áður hafði verið
talið að hefði fengið það, þótt lufsan gæti engu breytt
um vilja kjósandans!
Af sjö dómurum í Flórída voru 6 opinberlega
skráðir sem flokksbundnir demókratar og einn sem
óháður! Hæstiréttur Bandaríkjanna hafði á fyrri
stigum þófsins hafnað því að láta til sín taka, en nú
þegar mánuður var liðinn frá kosningum fékk hann
enn beiðni um að stöðva skrípaleikinn sem var mjög
niðurlægjandi fyrir Bandaríkin, sem virtust ófær
um að birta úrslit forsetakosninga! Fimm dómarar
af 9 samþykktu þá að stöðva talninguna á meðan
beðið væri efnislegrar meðferðar. Málflutningur fór
fram og málið gekk í dóm og þá úrskurðaði Hæsti-
réttur, sjö dómarar af 9 (!), að úrslitin í Flórída
skyldu standa. Það var ótvíræð ákvörðun æðsta
dóms landsins.
Óvæntustu bandamenn án
þess að vita það
Fyrir fjórum árum voru skoðanakannanir lengi hag-
stæðar demókrötum og höfðu sannfært þá um að úr-
slit kosninganna 2016 væru í hendi. Reyndar töldu
þeir sigurstundina upp runna þegar Donald Trump
var valinn sem frambjóðandi repúblikana. Trump
væri algjörlega óhefðbundinn frambjóðandi og margt
það sem hann léti út úr sér á fundum vegna prófkjörs
repúblikana myndi koma flokknum í koll. Þetta mat
varð til þess að stöðvarnar sem styðja demókrata
ákaft ákváðu að sýna beint frá öllum fjöldafundum
sem Trump héldi. Það þýddi þá um leið að Donald
Trump varði sáralitlu fé til kosningabaráttu sinnar.
Fréttastöðvarnar áttuðu sig ekki á í sjálfumgleði
sinni að Trump blés í herlúðra til að vekja þá sem
höfðu gefist upp á að gera upp á milli hefðbundnu
frambjóðendanna sem allir voru steyptir í sama mót.
Þeim, sem fylgdust með úr fjarlægum löndum, varð
ekki alltaf um sel þegar þessi frambjóðandi tók flugið
í prófkjörsbaráttunni. Hann uppnefndi menn af litlu
tilefni og hann sagði álit sitt á hinum „frægu frétta-
mönnum“ sem horfðu hlakkandi á hann verða sér til
skammar, að þeirra mati. Þeir birtu hvert orð sem
féll af vörum hans, sannfærðir um að fíflið færi sjálf-
viljugt á foraðið og þeir þyrftu ekki annað en að
senda allt út og endursenda svo næstu daga bestu bit-
ana. Þórðargleðin reyndist þeim dýrkeypt.
Vissulega vorum við mörg, vel siðað þunglamalegt
Norður-Evrópufólk, ekki móttækileg fyrir töktum og
tiktúrum frambjóðandans. Það gekk t.d. á ýmsu í
prófkjöri repúblikana: „Ljúgandi Ted“ var einn þar.
„Úr sér bræddur Bush“ var annar (Jeb forsetasonur
og bróðir). Bréfritara, sem kynnst hafði Jeb sem við-
kunnanlegum heiðursmanni, var óneitanlega brugðið.
Hvað eftir annað sagði hann við sjálfan sig, þegar
mest gekk á: „Þar fór hann með það.“ „Nú gæti hann
verið búinn.“
En Trump vildi umtal sem skæri hann frá öðrum í
fjölmennum hópi í prófkjörinu og illt umtal væri mun
betra en ekkert. Forsetinn hefur dregið úr svona ein-
kunnagjöf, en á þó spretti.
Enn að slást um 4 ára gömul úrslit
Demókratar ákváðu í raun að viðurkenna ekki kjör
Trumps. Og óhugnanlegast var að valdamenn í stofn-
unum, sem verja eiga Bandaríkin gegn hættulegustu
óvinum, misnotuðu þær til að koma forsetanum frá.
Spurning er um það hvort og þá hve stóran þátt fráfar-
andi forseti og varaforseti tóku í athæfinu. Það tókst að
telja nýjum dómsmálaráðherra trú um, að hann yrði að
víkja til hliðar svo skipa mætti sérstakan saksóknara
með her manna með sér til að kanna „ásakanir“ um að
Rússar hafi komið Trump í Hvíta húsið. Af hverju átti
Pútín að vera svona hræddur við Hillary?
Alls konar fólk lagði trúnað á þessa vitleysu, jafnvel
þeir sem ætla mátti að seint myndu glepjast. Málið var
ekki aðeins byggt á sandi heldur á „leyniskýrslu“ sem
verktakar á vegum kosninganefndar demókrata höfðu
látið semja og ekki var heil brú í, eins og ljóst er nú.
Fullyrt var, þegar málið var blásið upp, að færustu
hakkarar Rússa hefðu náð að hakka sig inn í tölvu
John Podesta, formanns kosningastjórnar. Það þurfti
ekki ofurmenni til því á daginn kom að aðgangsorð
hans var „password“!!
Og af því að orðrómi um að Trump hefði stolið
kosningunum hafði verið komið af stað töldu demó-
kratar sig hafa rétt til að sýna honum og þjóðinni
dónaskap og mæta ekki við innsetningu nýs forseta.
Upplýst hefur verið að frambjóðandi demókrata hafði
samband við Bush yngri til að ýta á að hvorugt þeirra
myndi mæta til þessarar miklu athafnar. Bush yngri
tók ekkert slíkt í mál.
Kannski hætta menn nú loks að tala um dellukenn-
ingarnar og horfa til framtíðar. Það gæti verið tíma-
bært.
Löngu tímabært.
Morgunblaðið/Eggert
30.8. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17