Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.08.2020, Page 18
Heilbrigð húð gerir
farðann mun fallegri
Ég veit að það ríkir mikið óöryggi hjá Íslendingum þegar kemur að því aðvelja sér húðvörur svo ég vil að bloggið mitt sé vettvangur þar semhægt sé að lesa sér frekar til og fræðast nánar um húðina, húðumhirðu
og snyrtivörur. Ég er meðal annars að skrifa um ólíkar húðgerðir og hvaða
vörur ber að varast og hvað ætti að nota. Ég hef einnig skrifað mikið um sýrur
en notkun á þeim velkist mikið fyrir mörgum. Í hverri færslu lærir lesandinn
ólíka hluti um húðina og hvernig sé best að hugsa um sitt stærsta líffæri, húð-
ina,“ segir Kristín.
Er full vinna að vera með bloggið eða starfar þú eitthvað annað?
„Ég starfa sem „account manager“ hjá Ghostlamp en eins og er er ég í fæð-
ingarorlofi með einn þriggja mánaða. Það er mikil vinna sem fer í að skrifa
blogg, mynda fyrir það og halda uppi síðunni. Húðin, húðumhirða og snyrtivör-
ur eru mitt helsta áhugamál og að veita öðrum fróðleik á þessu sviði er mikil
ástríða hjá mér. Með þolinmóðri fjölskyldu og góðu skipulagi gengur þetta vel
upp,“ segir hún.
Hvað drífur þig áfram á því sviði?
„Ég sjálf var í miklum bardaga við bólur á húðinni í mörg ár. Þetta hafði
gríðarleg áhrif á sjálfstraustið og öryggið. Þegar ég hafði aflað mér frekari
fræðslu og þekkingar í húðumhirðu fór ég að fá margar fyrirspurnir á Inst-
ragram-aðganginum mínum. Ég hafði svo gaman af að miðla minni reynslu og
fróðleik til annarra að ég ákvað að gera meira. Með tímanum eykst þörfin til að
miðla áfram öllu því sem ég hef lært til að geta mögulega hjálpað öðrum sem er
óöruggir með sína húðumhirðu.“
Hver er þín rútína þegar kemur að húðumhirðu?
„Ég byrja mína húðrútínu alltaf á góðri andlitshreinsun en hrein húð er það
mikilvægasta í húðrútínunni. Ef húðin er ekki hrein þá mun restin af húðrút-
ínunni bera takmarkaðan árangur. Nokkrum sinnum í viku nota ég AHA-sýrur
eftir hreinsun en það er ótrúlegt hvað slíkar sýrur geta gert mikið fyrir húðina.
Þær hreinsa burt dauðar húðfrumur, jafna yfirborð húðarinnar og búa til
greiðari leið fyrir kremin okkar.
Gott og virkt serum er lykillinn í minni húðrútínu en mitt mest notaða serum
er Double Serum frá Clarins, það vinnur á öllum vandamálum sem húðin getur
haft og hentar því öllum. Serumið vinnur gegn ótímabærri öldrun, mýkt, raka
og er stútfullt af andoxunarefnum. Ég enda svo rútínuna yfirleitt með góðu
rakakremi sem inniheldur góðan raka. Rakinn er afar mikilvægur fyrir húðina
en án hans fer húðin okkar að missa teygjanleika sinn og ljóma.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir þegar þú vaknar á morgnana?
„Dagurinn minn byrjar aldrei fyrr en ég er búin að bursta tennur og þrífa á
mér húðina. Á nóttunni svitnum við og ým-
is óhreinindi úr loftinu leggjast á húðina
okkar svo það er mikilvægt fyrir okkur að
ganga ekki út í daginn með þessi óhrein-
indi föst á húðinni.“
En það síðasta sem þú gerir áður en þú
ferð að sofa á kvöldin?
„Kvöldin eru minn tími en þegar börnin
eru sofnuð finnst mér ekkert betra en að
dekra vel við húðina mína fyrir svefn. Ég
nota gjarnan andlitsolíur í lok húðrút-
ínunnar minnar á kvöldin. Fyrir nokkrum
árum hélt ég að andlitsolíur stífluðu húðina
enn frekar og forðaðist þær. Eftir frekari
fræðslu komst ég að því að andlitsolíur
innihalda marga góða eiginleika og núna
get ég ekki verið án þeirra. Skemmtilegt
að segja frá því að andlitsolíur hjálpuðu
húðinni minni gríðarlega þegar ég var í
mikilli baráttu við bólurnar.“
Hvernig farðar þú þig dagsdaglega?
„Ég legg mest áherslu á húðina og vil ég að hún hafi fallegan ljóma. Ég vel
mér því alltaf farðagrunn sem inniheldur léttan ljóma. Ég nota alltaf fljótandi
farða og léttan hyljara undir augun. Mér finnst fallegar augabrúnir gera svo
mikið fyrir andlitið en ég nota bæði Dip Brow frá Anastasia Beverly Hills og
Urban Decay Brow Blade. Ég elska kinnaliti en mér finnst gaman að nota þá í
létta skyggingu á augun líka, ég hef verið að nota mikið kremkinnaliti und-
anfarið. Fallegt sólarpúður fyrir sólkyssta húð og létt gloss.“
Hver er þín uppáhaldssnyrtivara?
„Ég verð að segja NARS Natural Radiant Longwear farðinn en hann gerir
áferð húðarinnar svo fallega og endist ótrúlega vel. Einnig verð ég að nefna
SOS-farðagrunninn frá Clarins í litnum Peach. Grunnurinn gerir húðina svo
bjarta og veitir henni léttan ljóma. Ég nota hann einnig oft bara einan og sér
fyrir náttúrulegri lúkk.“
Hvað finnst þér skipta mestu máli þegar förðun er annars vegar?
„Undirbúningur húðarinnar. Falleg og heilbrigð húð getur gert heildarförð-
unina mun fallegri.
Ertu með einhver góð ráð fyrir þá sem vilja farða sig fallega en finnst þeir
hafa litla hæfileika?
„Mér finnst ég læra heilmikið nýtt af að horfa á fróðleg kennslumyndbönd.
Það er til hafsjór af myndböndum á YouTube þar sem allskonar hæfileikaríkt
fólk kennir öðrum ýmisleg trix. En það er þó mikilvægt að bera sig ekki saman
við aðra og þeirra förðun. Við erum öll ólík, með ólík andlitsföll og ólík augu.
Æfingin skapar meistarann sagði einhver, það er ekki eitthvað eitt rétt í förð-
un. Æfðu þig þar til þér líður vel með það sem þú ert að gera.“
Á hverju ætti slík manneskja að byrja?
„Til að ná fram fallegri förðun þarf fyrst og fremst að byrja á húðinni. Falleg og
heilbrigð húð gerir farðann mun fallegri, hann mun einnig endast mun betur. Góð-
ir burstar geta einnig gert gæfumuninn bæði í andlitsförðun og augnförðun.“
Hvað er uppáhaldið í hausttískunni?
„Ég er afar hrifin af því að ljómandi húð heldur áfram að vera vinsæl. Mér
finnst ljómandi húð tákna heilbrigða húð. Ég er sífellt að sjá meira af rósableik-
um kinnalitum sem paraðir eru saman með fallegri augnförðun í sama lit.
Einnig held ég að létt brúnt „smokey“ verði mjög vinsælt í haust.“
Double Serum
frá Clarins.
SOS farða-
grunnurinn
frá Clarins í
litnum
Peach.
Kristín elskar
góða farða og
er þessi farði
frá NARS í
miklu uppá-
haldi hjá
henni.
Kristín Samúelsdóttir, förðunarfræðingur og áhugaljósmyndari, er með mikla þörf til
að skrifa og mynda allskyns snyrtivörur. Hún heldur úti bloggsíðunni kristinsam.-
com þar sem lögð er áhersla á fróðleik varðandi húðumhirðu og snyrtivörur.
Marta María mm@mbl.is
Hún notar Dip Brow
frá Anastasia Beverly
Hills mjög mikið til að
móta augabrúnirnar
og gera þær fallegar.
Hér má sjá hvernig
hausttískan verður í ár
þegar kemur að förðun.
Í hausttískunni má sjá fallega rósa-
bleika kinnaliti sem eru paraðir
saman við heillandi augnförðun.
Kristín Samúelsdóttir
heldur úti vinsælu
snyrtivörubloggi undir
nafninu kristinsam.com.
Brow Blade frá
Urban Decay
er hið mesta
þarfaþing í
augabrúnirnar.
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.8. 2020
LÍFSSTÍLL