Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.08.2020, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.8. 2020
LÍFSSTÍLL
Við sjóinn í Garðabæ, nálægt Sjálands-hverfinu, er kominn glænýr veitinga-staður, Sjáland, sem var opnaður í byrj-
un sumars, nánast mitt í kórónuveiru-
faraldrinum fyrri, en þrátt fyrir það hefur verið
fullt út úr dyrum. Garðbæingar og nærsveit-
arfólk hafa tekið vel í þessa viðbót og segir
Almar Yngvi Garðarson, einn eigenda stað-
arins, að viðtökurnar hafi farið fram úr björt-
ustu vonum.
„Aðsóknin sprengdi allar væntingar. Gest-
irnir okkar eru aðallega Íslendingar og sérstak-
lega fáum við mikið af Garðbæingum. Þeir eru
duglegir að koma, bæði í hádegismat, kaffi og
kvöldmat. Eldra fólkið kemur í kaffið og yngri
kynslóðin sækir meira í kvöldin,“ segir hann.
„Við erum með pítsur allan daginn, hádegis-
seðil og kvöldseðil og svo er hér bröns um helg-
ar. Við höfum þurft að fækka aðeins borðum
vegna tveggja metra reglunnar,“ segir Almar
og segir að auk þess leigi þau út veislusal sem
hefur verið þéttbókaður, þótt afbóka hafi þurft
nokkuð vegna veirunnar. Þá er fólk duglegt að
bóka fram í tímann.
„2021 er orðið fullbókað og það er búið að
bóka eina fermingarveislu árið 2026.“
Horfum á björtu hliðarnar
Almar segir Sjáland vera eins konar bistró, en í
fínni kantinum.
„Við erum með flott starfsfólk í eldhúsinu
sem er með mikla reynslu og hafa einhver
þeirra ferðast um heiminn og unnið á Michelin-
stöðum,“ segir hann.
Á góðvirðisdögum er hægt að borða utan-
dyra.
„Það er allt fullt hér úti á pallinum þegar það
er sól. Við erum oft með viðburði þegar vel viðrar;
grill, plötusnúð eða lifandi tónlist,“ segir hann.
„Fyrir seinni bylgju kórónuveirunnar vorum
við með flotta tónlistamenn hér og var það mjög
vinsælt. Sérstaklega slógu Stebbi og Eyfi í
gegn,“ segir hann.
Almar segist vera bjartsýnn á veturinn.
„Við horfum á björtu hliðarnar. Við erum
komin með fastakúnna sem koma aftur og aftur.
Svo vonum við innilega að geta haldið hér hlað-
borð um jólin.“
Garðbæingar ánægðir
Almar segir kokkana leita í norræna eldhúsið
þegar kemur að matargerðinni.
„Þeir leita mikið út í náttúruna og tína bæði
ber, jurtir og blóm sjálfir. Fiskurinn er mest
pantaður í hádeginu og á kvöldin er vinsælt að
fara í þriggja rétta matseðil,“ segir hann og
bætir við að pítsurnar séu alltaf vinsælar.
Ólafur Ágústsson, kallaður Óli Gústa, er yfir-
kokkur á Sjálandi.
„Ég elda íslenskan og skandinavískan mat og
reyni að nota alíslensk hráefni,“ segir hann.
Spurður um uppáhaldsréttinn hugsar hann
sig lengi um.
„Mér finnst margt gott en nefni rauðrófu-
carpaccio. Við setjum í það andalifur sem gerir
það mjög sérstakt.“
Morgunblaðið/Ásdís
Bjart framundan á Sjálandi
Kokkarnir Víðir Erlingsson, Rúnar
Pierre Heriveaux og Ólafur
Ágústsson standa vaktina á Sjálandi.
Á Sjálandi í Garðabæ er eðal-
matur og útsýni út á haf.
Kokkarnir bjóða upp á
norræna matargerð og ekta
ítalskar pítsur.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Á góðviðris-
dögum er hægt
að sitja utandyra.
Staðurinn er
smekklega
innréttaður.
Fyrir 4
HVÍTT SÚKKULAÐI
BÚÐINGUR
500 g rjómi
80 g sykur
30 g hvítt súkkulaði
3 stk. matarlímsblöð
Sjóðið rjómann og
sykurinn saman og
setjið matarlímið út í.
Hellið heitri blönd-
unni yfir súkkulaðið
og blandað vel sam-
an. Búðingnum er svo
hellt í fallega skál þar
sem hann fær að
stífna yfir nótt í kæli
sé þess kostur, eða
allavega í fjórar klst.
JARÐARBERJA-
SÓSA
250 g jarðaber
10 g flórsykur
7,5 g ylliblómaedik
Setjið allt saman í
blandara og maukið í
fína sósu.
KRISTALLAÐ
HVÍTT SÚKKULAÐI
175 g hvítt súkkulaði
275 g sykur
100 g vatn
Bræðið súkkulaði yfir
vatnsbaði og setjið í
hrærivél. Sjóðið syk-
ur og vatn saman upp
í 140°C og hellið ró-
lega saman við
súkkulaðið á meðan
hrærivélin gengur
hægagang.
Raðið öllu fallega
ofan á rjómabúðing-
inn með ferskum
jarðarberjum.
Skreytið með ferskri,
villtri myntu og
kryddið ríflega með
svörtum pipar.
Íslensk jarðarber og
hvítt súkkulaði
Dekton er mjög slitsterkt og rispuþolið borðplötuefni.
Dekton þolir mikinn hita. Það má setja heita potta og pönnur
beint á steininn án þess að eiga það á hættu að skemma hann.
Blettaþolið SýruþoliðHögg- og
rispuþolið
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is