Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.08.2020, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.8. 2020
LESBÓK
UMDEILD Bandaríska söngkonan Cardi B hefur varið lag sitt
WAP, sem hún flytur með söngkonunni Meghan Thee Stallion,
en bæði lagið og ekki síður myndbandið hafa farið fyrir brjóstið
á mörgum frá því það kom út í byrjun mánaðarins. Þær stöllur
hafa þar kynferðislega tilburði í frammi. „Lagið fer fyrst og
fremst í taugarnar á íhaldssömu og mjög trúuðu fólki en
ég ólst á hinn bóginn upp við tónlist sem þessa. Öðrum
kann að þykja þetta kynlegt og dónalegt en í mínum
huga er þetta bara eðlilegt,“ sagði Cardi B í ástralska
útvarpsþættinum The Kyle and Jackie O Show. Hún
áréttaði þó að lagið væri ætlað fullorðnum og að hún
myndi aldrei leyfa Kulture, tveggja ára gamalli dóttur
þeirra rapparans Offset, að hlusta á lagið eða horfa á
myndbandið.
Cardi ekki á nálum
MÁLMUR Málmgoðið Kerry King hefur ekki
setið auðum höndum síðan hljómsveit hans,
Slayer, lagði upp laupana seint á síðasta ári.
„Ég hef verið mjög heppinn með riff á árinu
2020,“ sagði hann við YouTube-rás gítar-
framleiðandans Dean. „Kannski er það vegna
þess að maður kemst ekki spönn frá rassi en
riffin hafa ekki látið á sér standa. Þetta er
prýðilegt efni og ég er kominn með nóg til að
fylla tvær plötur. Nú þarf ég bara að velja
ellefu eða tólf bestu lögin. Fyrsta platan
ætti að verða sjóðheit,“ bætti King við en
ekki liggur enn fyrir hverjir muni spila með
honum á téðum plötum.
Riffin streyma fram hjá Kerry King
Kerry King í ham á tónleikum með Slayer.
AFP
Breska leikkonan
Sheridan Smith.
Grínið kom við
kaunin á henni
ÁFALL Breska leikkonan Sheridan
Smith kveðst hafa átt mjög bágt
eftir að spéfuglinn Graham Norton
gerði grín að henni á Bafta-verð-
launahátíðinni fyrir fjórum árum.
Þetta kemur fram í nýrri heimild-
armynd á ITV. Leiksýningu, sem
Smith tók þátt í, hafði þá verið af-
lýst vegna „tæknilegra örðugleika“
en síðar kom í ljós að það var vegna
þess að Smith var ekki allsgáð. „Við
erum öll spennt að fá okkur drykki
í kvöld eða eins og þeir segja í leik-
húsinu, nokkur glös af tæknilegum
örðugleikum,“ sagði Norton og
Smith, sem var í salnum, kveðst
hafa upplifað mikla niðurlægingu
frammi fyrir kollegum sínum. Hún
var háð kvíðalyfjum á þessum tíma
og leið illa andlega.
Hún hefur verið svikin ítryggðum, ekki bara einusinni, ekki bara tvisvar og
ekki bara þrisvar. Því lýkur með
skilnaði eftir tólf ára hjónaband og
hún fær nokkuð óvænt í hendurnar
knattspyrnufélagið sem bóndi henn-
ar átti með miklu stolti, enska úr-
valsdeildarliðið AFC Richmond.
Hennar fyrsta verk er að reka knatt-
spyrnustjórann vegna þess að hann
klæðist alltof stuttum stuttbuxum á
æfingum og svo bara vegna þess að
henni hefur aldrei líkað við hann.
Hún á og hún má og knattspyrnu-
stjórinn yfirgefur sviðið bölvandi og
ragnandi. Framkvæmdastjóra al-
mannatengslasviðs félagsins bregð-
ur álíka mikið og knattspyrnustjór-
anum en býðst strax til að leggja
fyrir hana lista yfir hugsanlega eft-
irmenn hins brottrekna. „Nei, takk.
Það er óþarfi. Ég er þegar búin að
finna nýjan knattspyrnustjóra,“ seg-
ir hún kotroskin.
Og hver skyldi það nú vera? Jú,
Ted Lasso. Hvaða Ted? Jú, Ted
Lasso. Almannatengillinn er engu
nær né heldur áhangendur liðsins.
Ted Lasso er Bandaríkjamaður og
fyrrverandi þjálfari áhugamannaliðs
í ruðningi; raunar nýbúinn að vinna
með þeim einhvern framrúðubikar.
Og hvað? Hefur hann einhverja
reynslu af knattspyrnu? Nei, alls
enga. Hann hefur aldrei komið ná-
Hvernig getur þjálfari bandarísks áhugaliðs í
ruðningi orðið knattspyrnustjóri liðs í ensku úr-
valsdeildinni í knattspyrnu? Svarið fáið þið í nýj-
um gamanþáttum í sjónvarpi. Nú, eða bara hér.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Rebecca Welton, eigandi liðsins, ræður Ted Lasso á vafasömum forsendum.
Apple TV+
„Happígó-
lökkí“ gaur
Maðurinn á bak við Ted Lasso, karakt-
erinn og þættina, er bandaríski leik-
arinn Jason Sudeikis, sem jafnframt
leikur titilhlutverkið. Karakterinn mun
fyrst hafa komið fram á sjónarsviðið í
auglýsingum bandarísku sjónvarps-
stöðvarinnar NBC Sports vegna um-
fjöllunar um ensku knattspyrnuna
vestra. Sudeikis þróaði þættina í sam-
vinnu við Bill Lawrence, Joe Kelly og
Brendan Hunt og er einnig einn af
framleiðendum þeirra. Sudeikis þekkj-
um við úr gamanmyndum á borð við Horrible Bosses og Hall Pass.
Breska leikkonan Hannah Waddingham leikur Rebeccu Welton
en hún er jafnframt söngkona og er þekktust fyrir að hafa komið
fram í söngleikjum á West End. Juno Temple leikur Keeley Jones,
Nick Mohammed fer með hlutverk Nate og Brendan Hunt leikur
Roy Kent. Af öðrum leikurum í Ted Lasso má nefna Brett Gold-
stein, Phil Dunster og Jeremy Swift.
Úr smiðju Jasons Sudeikis
Jason Sudeikis.
Cardi B hress
að vanda. AFP
Veiðivefur
í samstarfi við