Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.08.2020, Side 29
lægt knattspyrnu og raunar aldrei
stigið fæti á enska grund. Þegar
Lasso er beðinn á blaðamannafundi
að útskýra rangstöðuregluna vísar
hann í afstöðu hæstaréttar Banda-
ríkjanna til kláms árið 1964. „Það er
erfitt að skilgreina það en um leið og
menn sjá það vita þeir hvað það er.“
Annað er eftir þessu. Leikmenn
AFC Richmond eru agndofa og
áhangendurnir trúa ekki sínum eigin
augum. Til allrar hamingju hefur
Lasso enga hugmynd um hvað orðið
„wanker“ merkir en því rignir yfir
hann, innan vallar sem utan.
Þannig liggur landið í glænýjum
bandarískum gamanþáttum, Ted
Lasso, sem frumsýndir voru á efnis-
veitunni Apple TV+ um miðjan
þennan mánuð.
Sú eina sem gleðst er hinn nýi eig-
andi liðsins, Rebecca Welton, en það
er einlægur ásetningur hennar að
keyra AFC Richmond í þrot enda sé
liðið það eina í þessum guðsvolaða
heimi sem mörðurinn fyrrverandi
eiginmaður hennar kann að meta og
þykir vænt um. Í hennar huga er það
því snilldarbragð að ráða í starf
knattspyrnustjóra mann sem kann
ekki neitt, veit ekki neitt og getur
ekki neitt. Og við fyrstu sýn stendur
Ted Lasso fyllilega undir vænt-
ingum. Hann er alveg ofboðslega
amerískur á alla lund, blaðrar út í
eitt og finnst ekkert eðlilegra en að
mæta á morgni hverjum með öskju
af smákökum inn á skrifstofu eig-
andans sem hefur auðvitað allt ann-
að við tíma sinn að gera. Maðurinn
virðist ekki þekkja nokkur einustu
mörk í mannlegum samskiptum. En
hvað er a’tarna, hann er líka bara
helvíti viðkunnanlegur. Algjör
„happígólökkí“ Kani sem hefur
margfalt meiri áhuga á mannlegu
eðli og að laða fram það besta í fólki
en að vinna einhverja bjánalega
íþróttaleiki. Fyrir vikið veit Rebecca
ekki alveg hvar hún hefur hann.
Það vita skærustu stjörnur liðsins
ekki heldur. Fyrirliðinn, sem heitir
því ágæta nafni Roy Kent, hefur
marga fjöruna sopið og meðal ann-
ars unnið Meistaradeildina með
Chelsea. Hann er hins vegar kominn
af léttasta skeiði og nýtur ekki sömu
virðingar lengur. Lasso þarf að fá
hann til að taka betur utan um
mannskapinn og gefur honum meðal
annars bók með leyndum boðskap
um leiðtogahæfileika. Kent starir
opinmynntur á hann. „Bók!!!?“ Þeir
reiða ekki beinlínis vitið í þverpok-
um, sparkendurnir í þessum þáttum.
Moldríkir en einfaldir.
Síðan er það markahrókurinn og
aðalstjarna liðsins sem ber það
kostulega nafn Jamie Tartt. Hann er
uppfullur af hæfileikum en jafnframt
uppfullur af sjálfum sér og gæti ekki
staðið meira á sama um konseptið
liðsheild. Lasso þarf að fá hann til að
gefa meira af sér og vinna með hin-
um tíu inni á vellinum.
Óttast gulu pressuna
Ástkona Jamies er fyrirsætan Kee-
ley Jones sem jafnframt vinnur fyrir
AFC Richmond. Þegar hún var átján
ára sló hún sér upp með 23 ára göml-
um knattspyrnumanni og núna þeg-
ar hún er að verða þrítug er hún enn
þá að slá sér upp með 23 ára gömlum
knattspyrnumanni. Og ekki getur
hún hugsað sér að svíkja hann. Það
myndi þýða frétt í gulu pressunni
undir fyrirsögninni: Jamies Tart
Breaks Tartts Heart! Þetta er auð-
vitað útilokað að þýða á íslensku. Ég
er ekki að rugla í ykkur; hún óttast
þetta í raun og veru meira en allt
annað í þessu lífi.
Lasso rekur upp stór augu þegar
hann áttar sig á því að leikmennirnir
eru ekki allir enskir og uppaldir í
næstu götu; þvert á móti eru þeir
hvaðanæva úr heiminum, eins og
Nígeríumaðurinn ungi Sam Obi-
sanya sem er að koma undir sig fót-
unum þar um slóðir.
Ekki má heldur gleyma búninga-
piltinum. Hvað heitir hann nú aftur?
Jú, Nate. Lasso er fyrsti maðurinn
sem ávarpar hann að fyrra bragði og
kemur fram við hann af virðingu.
Nate til mikillar skelfingar og gleði í
senn. Þegar á reynir kemur í ljós að
Nate veit eitt og annað um knatt-
spyrnu og Lasso og aðstoðarþjálfari
hans, Beard, leita fyrir vikið kinn-
roðalaust í smiðju til Nate the Great,
eins og þeir kalla hann upp frá því.
Nokkuð sem vekur undrun hins tor-
tyggna blaðamanns The Independ-
ent, Trent Crimm, þegar hann kem-
ur í opinbera heimsókn á
æfingasvæði AFC Richmond.
Hvernig ætli greinin verði?
Ted Lasso fer fyrir
sínum mönnum í
AFC Richmond.
Apple TV+
30.8. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Hringdu í síma 580 7000 eða farðu á heimavorn.is
HVARSEMÞÚERT
SAMSTARFSAÐILI
Öryggiskerfi
15:04 100%
VIRÐING Málmbandið Zakk Sab-
bath, sem stofnað var til heiðurs
goðunum í Black Sabbath, sendir í
næstu viku frá sér breiðskífuna
Vertigo sem er óður til fyrstu plötu
Black Sabbath, sem bar nafn sveit-
arinnar og fagnar fimmtugsafmæli
sínu í ár. Platan var tekin upp í
einni lotu, eins og tíðkaðist árið
1970, og verður aðeins fáanleg á ví-
nyl. Í Zakk Sabbath eru gítarleik-
arinn og söngvarinn Zakk Wylde,
bassafanturinn Rob „Blasko“ Nic-
holson og trymbillinn Joey Castillo.
Zakk Sabbath gefur út plötu
Zakk gamli Wylde í essinu sínu.
AFP
BÓKSALA 19.-25. ÁGÚST
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Stærðfræði 1 Gísli Bachman/Helga Björnsd.
2 Verstu kennarar í heimi David Walliams
3 Þín eigin saga – risaeðlur Ævar Þór Benediktsson
4 Þín eigin saga – Knúsípons Ævar Þór Benediktsson
5 Randafluga Ýmsir höfundar
6 Focus on Vocabulary Diane Schmitt
7
Maxímús músíkús
– þrautabók
Hallfríður Ólafsdóttir o.fl.
8 Inquiry into Life Sylvia Mader
9
Curious Incident Of The
Dog In the Night Time
Mark Haddon
10 Essentials of Chemistry Ýmsir höfundar
1 Stormboði Maria Adolfsson
2 Sjóræninginn Jón Gnarr/Hrefna L. Heimisd.
3 Sumar í París Sarah Morgan
4
Ýmislegt um risafurur
og tímann
Jón Kalman Stefánsson
5 Tíbrá Ármann Jakobsson
6 Gegnum vötn gegnum eld Christian Unge
7 Korku saga Vilborg Davíðsdóttir
8 Glæpur við fæðingu Trevor Noah
9 Mitt ófullkomna líf Sophie Kinsella
10 Þerapistinn Helene Flood
Allar bækur
Íslenskar kiljur
Ég á margar bækur, en les of fáar.
Þótt ég eigi að vita betur er ég lík-
lega að vonast eftir því að einhver
þekking flögri í hausinn á mér ef ég
hangi nógu lengi í
sama herbergi.
Ég hef þó lesið
þrjár óskáldaðar
bækur að undan-
förnu, sem verð-
skulda meðmæli.
Tvær þeirra fjalla
öðrum þræði um
baráttu fólks fyrir mannsæmandi
lífi. Önnur heitir Communal Lux-
ury, eftir hina amerísku Kristin
Ross. Bókin segir frá Parísar-
kommúnunni 1871, rótum hennar
og áhrifum. Anarkistar eru besta
fólk upp til hópa og Evrópubúar
nútímans eiga Parísar-
kommúnunni margt að þakka. Það
er líka skemmtilegt að lesa um ís-
landsför William Morris sumarið
1871. Hann dáist að almennu læsi
Íslendinga (fyrir tíma PISA-
kannana) og líkir
hrauninu við götu-
vígi í París. Hin bókin
er eftir Didier Eri-
bon og heitir Ret-
urning to Reims á
ensku. Eribon segir
frá því hvernig hann
gekk menntaveginn
á enda án þess að líta um öxl til að
vinna úr uppvexti sínum sem sam-
kynhneigður og bókhneigður í
samfélagi sem var honum andsnú-
ið í flestu. Bókin fjallar ekki síst um
eitur stéttaskiptingar og þá for-
dóma sem hún elur á. Ég komst við
nokkrum sinnum.
Sú þriðja heitir The Unin-
habitable Earth eftir David Wal-
lace-Wells. Eins og titillinn gefur til
kynna tíundar hún hvernig mann-
fólkið er búið að þjösnast á jörðinni
síðastliðna áratugi. Wallace-Wells
reynir að telja lesandanum (og lík-
lega sjálfum sér) trú
um að ekkert sé um
seinan, en ég held að
maður hljóti að vera
nokkuð efins eftir
lesturinn. Úps!
Ég las Kristnihald
undir Jökli eftir Hall-
dór Laxness í fyrsta skipti um dag-
inn. Hún kom mér til að hlæja upp-
hátt nokkrum sinnum og ég rakst á
mörg orð sem gott væri að blanda
saman við chiafræ og setja út á
hafragraut. Milkman eftir Anna
Burns er fín skáldsaga. Hún snertir
á þöggun, með-
virkni og því sem
kallað hefur verið
„gaslighting“.
Burns tekst að láta
lesandanum líða
mjög óþægilega,
sem er kúnst.
Kári, vinur minn, var að flytja og
bauð mér að taka nokkrar af sínum
bókum í tímabundið fóstur. Hann
er langtum betur lesinn en ég og
virðist aðeins umgangast góðar
bækur. Á meðan ég hef sankað að
mér einhverju af bókum um hvíta
karlmenn að gorta sig af því að
hafa klifið fjall fjarri heimabyggð,
myndskreyttum ferðabókum og
léttmeti eftir vel klippta Skandin-
ava, þá eru aðeins úrvalsrit í þess-
um safnkosti og ég vona að mér
takist að lesa eitthvað í Aiskýlosi,
Georges Bataille og allt þar á milli.
Ég er byrjaður að stara á kilina á
sumum og styttist kannski í að ein-
hver þeirra stígi dansinn milli nátt-
borðs, sófa og hillunnar þar sem
bækur í lestri enda stundum í mikl-
um ólestri.
EIRIK SÖRDAL ER AÐ LESA
Stari á kilina
Eirik Sördal er
þýðandi.