Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.08.2020, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.8. 2020
08.00 Strumparnir
08.20 Blíða og Blær
08.45 Dóra og vinir
09.10 Mæja býfluga
09.20 Adda klóka
09.45 Zigby
09.55 Mia og ég
10.20 Lína langsokkur
10.45 Latibær
11.05 Lukku láki
11.30 Ævintýri Tinna
12.00 Nágrannar
12.20 Nágrannar
12.45 Nágrannar
13.05 Nágrannar
13.30 Nágrannar
13.50 Friends
14.10 FC Ísland
14.40 Life and Birth
15.40 Katy Keene
16.25 Drew’s Honeymoon
House
17.35 60 Minutes
18.26 Veður
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.50 Sportpakkinn
19.00 Bibba flýgur
19.25 Steinda Con: Heimsins
furðulegustu hátíðir
20.00 Grantchester
20.50 Mystery 101: Dead
Talk
22.15 Pennyworth
23.10 Queen Sugar
23.55 Wentworth
ÚTVARP OG SJÓNVARP
Sjónvarp Símans
RÚV
Rás 1 92,4 93,5 Omega
N4
Stöð 2
Hringbraut
20.00 Uppskriftað góðum
degi á Norðurlandi
vestra – þáttur 2
20.30 Eitt og annað af grillinu
Endurt. allan sólarhr.
15.00 Joel Osteen
15.30 Charles Stanley
16.00 Trúarlíf
17.00 Times Square Church
18.00 Tónlist
18.30 Ísrael í dag
19.30 Jesús Kristur er svarið
20.00 Blönduð dagskrá
21.00 Blönduð dagskrá
22.30 Gegnumbrot
23.30 Tónlist
24.00 Joyce Meyer
20.00 Mannamál (e)
20.30 Suðurnesja-magasín
Víkurfrétta
21.00 Alive í Hljómahöll
Endurt. allan sólarhr.
11.25 The Block
12.25 The Block
13.25 Dr. Phil
14.10 Dr. Phil
14.55 Carol’s Second Act
15.20 90210
16.30 Family Guy
16.50 The King of Queens
17.10 Everybody Loves Ray-
mond
17.35 A Million Little Things
18.20 This Is Us
19.05 Með Loga
20.00 The Block
21.20 The Act
22.15 Billions
23.10 Love Island
06.55 Morgunbæn og orð
dagsins.
07.00 Fréttir.
07.03 Tríó.
08.00 Morgunfréttir.
08.05 Málverk í útvarpi.
09.00 Fréttir.
09.03 Samtal.
10.00 Fréttir.
10.05 Veðurfregnir.
10.15 Bók vikunnar.
11.00 Guðsþjónusta í Hafn-
arfjarðarkirkju.
12.00 Hádegisútvarp.
12.20 Hádegisfréttir.
12.40 Veðurfregnir.
13.00 Bítlatíminn.
15.00 Glans.
16.00 Síðdegisfréttir.
16.05 Sumartónleikar.
17.25 Orð af orði.
18.00 Kvöldfréttir.
18.10 Kínverski draumurinn.
18.50 Veðurfregnir.
18.53 Dánarfregnir.
19.00 Óskastundin.
19.40 Orð um bækur.
20.35 Gestaboð.
21.30 Úr gullkistunni.
22.00 Fréttir.
22.05 Veðurfregnir.
22.10 Á reki með KK.
23.10 Frjálsar hendur.
24.00 Fréttir.
00.05 Næturútvarp Rásar 1.
07.15 KrakkaRÚV
07.19 Molang
07.23 Húrra fyrir Kela
07.46 Hrúturinn Hreinn
07.53 Klingjur
08.04 Lalli
08.11 Grettir
08.23 Nellý og Nóra
08.30 Robbi og Skrímsli
08.52 Hæ Sámur
08.59 Unnar og vinur
09.21 Ronja ræningjadóttir
09.45 Sammi brunavörður
09.55 Þvegill og skrúbbur
10.00 Reikistjörnurnar
11.00 Óvæntur arfur
12.00 Ísþjóðin með Ragnhildi
Steinunni
12.25 Eystrasaltsfinnarnir
12.55 Víkingur Heiðar leikur
Bach
15.00 Lifað í voninni
16.00 Hinseginleikinn
16.15 Lögin hennar mömmu
17.15 Landakort
17.20 Menningin – samantekt
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 KrakkaRÚV
18.01 Stundin okkar
18.25 99% norsk
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir
19.35 Veður
19.45 Smáborgarasýn Frí-
manns
20.05 Í góðri trú – saga ís-
lenskra mormóna í Ut-
ah
20.45 Löwander-fjölskyldan
21.45 Innrásin frá Mars
22.40 Nöldurseggurinn
00.20 Hljóðrás: Tónmál tím-
ans – Berlínarmúrinn
og fall kommúnismans
12 til 16 Þór Bæring Besta blandan af tónlist á
sunnudegi og létt spjall með Þór Bæring. Hækkaðu í
gleðinni með K100.
16 til 18 Tónlistinn Topp40 með Dj Dóru Júlíu. Einn
vinsælasti plötusnúður landsins kynnir 40 vinsælustu
lög landsins á hverjum einasta sunnudegi. Tónlistinn
er eini opinberi vinsældalisti landsins.
18 til 00 K100 tónlist Besta tónlistin dunar í allt
kvöld.
Dj Dóra Júlía
finnur jákvæðu
punktina á hverj-
um degi á K100.
Í vikunni sagði
hún frá sniðugu
uppátæki í skóla
í Bandaríkj-
unum: Víða um
heim hefur þurft
að takmarkma
leikfimi og íþróttir í skólum vegna kórónuveirufarald-
ursins. Skólayfirvöld ALC í bænum Dubuque í Iowa-
fylki í Bandaríkjunum hafa fundið aðra leið til að nem-
endur geti stundað holla hreyfingu en gætt um leið að
nálægðartakmörkunum. Um leið geta þeir lagt eitt-
hvað gott af mörkum. Skólinn býður nú upp á íþrótta-
einingar fyrir nemendur sem hjálpa eldri borgurum og
fólki sem glímir við veikindi með garðvinnu heima hjá
þeim. Tvær flugur í einu höggi og bæði lausnamiðað
og skemmtilegt.
Þarf ekkert vottorð í leikfimi
Það var fyrir mörgum árum. Éghafði skrifað langa grein umbestu framherjana í glæstri
sögu hins merka enska knattspyrnu-
félags Liverpool, Roger Hunt, Kevin
Keegan, Kenny Dalglish og þá
gaura, og var mættur með hana inn á
háborð Morgunblaðsins til að láta
setja hana upp. Á móti mér tók
kumpánlega að vanda Björn Ólafs-
son, í daglegu tali kallaður Konsert-
meistarinn hér í Móunum; marg-
reyndur útlitshönnuður með mikið
jafnaðargeð sem hefur látið hlutina
passa hér í blaðinu í bráðum þrjátíu
ár og skeint þá ófáa, óharðnaða
blaðamenn af alúð og mannkærleik.
„Einn daginn valhoppa þeir svo um
bleiulausir,“ er Konsertmeistarinn
vanur að segja.
Nema hvað. Á ljósmynd af einni
kempunni lá markmannsblók á grúfu
í forinni einhvern tíma á áttunda ára-
tugnum, þegar knattspyrnuvellir
minntu meira á kartöflugarða en ný-
lögð græn gólfteppi. „Er þetta ekki
Kevin Keelan?“ veltur þá upp úr
Konsertmeistaranum. Mig rekur
ekki oft í vörðurnar þegar kemur að
fornum enskum sparkmenntum en
þarna var ég mát. „Tja, ég skal ekki
segja, Björn minn.“
Ég er þeirrar gerðar að óvissa fer
alla jafna mjög illa með mig, þannig
að ég lagðist þegar í stað í rann-
sóknir. Og hvað haldið þið? Konsert-
meistarinn hafði lög að mæla; auðvit-
að var þetta Kevin gamli Keelan sem
varði mark Norwich City á árunum
1963 til 1980. Hugsið ykkur!
En hver er Kevin Keelan og hvað
varð um hann?
Kappinn fæddist í Kalkútta á
Breska Indlandi, þar sem faðir hans
gegndi hermennsku, á því herrans
ári 1941 og verður því áttræður á
næsta ári. Keelan hóf feril sinn hjá
Kidderminster Harriers árið 1956 en
færði sig yfir til Aston Villa tveimur
árum síðar, þar sem hann lék sína
fyrstu deildarleiki 1960. Eftir að hafa
komið stuttlega við hjá Stockport
County, aftur hjá Kidderminster
Harriers og loks Wreham í Wales
festi Norwich kaup á honum árið
1963. Keelan stóð sem fastast milli
stanganna hjá liðinu allt fram til árs-
ins 1980, samtals í 673 leikjum, sem
er félagsmet.
Tvisvar leikmaður ársins
Keelan var í tvígang valinn leik-
maður ársins hjá Norwich en vann
aldrei til verðlauna með liðinu; næst
komust þeir gulgrænklæddu því
þegar þeir lutu í gras gegn Totten-
ham Hotspur í úrslitaleik deildar-
bikarsins 1973.
Keelan gekk til liðs við New Eng-
land Tea Men (sem er mergjað heiti
á knattspyrnuliði) í Bandaríkjunum,
fyrst sem lánsmaður 1978 en síðan
fyrir fullt og fast 1980. Hann lék
einnig nokkra leiki með systurfélag-
inu, Jacksonville Tea Men, innan-
húss áður en hann lauk ferlinum
1981 hjá Tampa Bay Rowdies. Tea
End myndi maður segja, ætlaði mað-
ur að gerast sniðugur.
Keelan kunni vel við sig í Tampa
og settist þar að. Var um tíma að-
stoðarþjálfari og markmannsþjálfari
hjá bæði Rowdies og Mutiny, sem
spyrna þar um slóðir, og háskólaliði
Tampa. Þá vann hann einnig um
tíma hjá fyrirtæki sem sérhæfir sig í
dreifingu á augnlinsum en er nú sest-
ur í helgan stein, að því er næst verð-
ur komist. Fæ það staðfest hjá Kons-
ertmeistaranum. orri@mbl.is
Kevin Keelan er
goðsögn hjá
Norwich City.
Twitter
HVAÐ VARÐ UM KEVIN KEELAN?
Kunningi
Konsertmeistarans
Kevin Keelan á efri ár-
um. Hann hefur lengi
búið í Bandaríkjunum.
itv.com
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
fyrir mánudaginn 7. september
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur
Börn &
uppeldi
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 11. september