Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.08.2020, Qupperneq 32
SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST 2020
Þættirnir Í góðri trú – saga íslenskra mormóna í Utah
segja áður ósagða sögu fyrstu vesturfaranna, íslenskra
mormóna sem fluttu til fyrirheitna landsins í Utah-ríki í
Bandaríkjunum á seinni hluta 19. aldar og í byrjun þeirr-
ar 20. Mormónatrú var á 19. öld álitin villutrú á Íslandi
og máttu iðkendur hennar sæta ofsóknum af hendi yfir-
valda fyrir trúarskoðanir sínar. Framleiðendur eru hjón-
in Birna Pétursdóttir, sem jafnframt er leikstjóri og
handritshöfundur, og Árni Þór Theodórsson, sem einnig
annast kvikmyndatöku og klippingu. Fyrsti þátturinn er
á dagskrá Ríkissjónvarpsins í kvöld, sunnudagskvöld, og
hinir tveir næstu sunnudagskvöld.
„Á árunum 1854-1914 er talið að um 400 íslenskir mor-
mónar hafi flutt vestur um haf, eini hópur vesturfara
sem fór af trúarlegum ástæðum,“ segir í kynningu.
„Suma þeirra má jafnvel kalla trúarlega flóttamenn. Lít-
ið hefur verið fjallað um þennan sérstæða hóp vestur-
fara, en afkomendur þeirra, mormónar í Utah dagsins í
dag, hafa varðveitt sögu forfeðra sinna og íslenska arf-
leifð, sem er í þeirra huga algjörlega samofin trúnni.“
Skjáskot
Saga trúarlegra flóttamanna
Í góðri trú – saga íslenskra mormóna í Utah eru nýir íslenskir heimildar-
þættir í þremur hlutum sem hefja göngu sína í Ríkissjónvarpinu í kvöld.
Úr þáttunum Í
góðri trú – saga
íslenskra mor-
móna í Utah.
„Fáar konur hafa lifað við breyti-
legri æfikjör, en Eugenia ekkja
Napoleons þriðja, er lést í síð-
asta mánuði 94 ára gömul.“
Með þessum orðum hófst and-
látsfrétt í Morgunblaðinu fyrir
réttum eitt hundrað árum,
sunnudaginn 29. ágúst 1920.
„Faðir hennar var spanskur
aðalmaður. Hún ólst upp í París
og í hinu mesta gleðskaparlífi
með móður sinni í baðstöðunum
í Frakklandi. Vakti hún alstaðar
aðdáun og athygli fyrir dæmafáa
fegurð sína, klæðaskart og lífs-
gleði,“ sagði enn fremur.
„Veturinn 1847-48 hitti hún
Boneparte prins sem síðar varð
Napoleon þriðji í fyrsta skipti og
hryggbraut hann þá. Þau hittust
aftur fjórum árum síðar og gekk
þá saman með þeim og árið
1853 tók hann hana sér fyrir
drotningu. Unga drotningin fékk
brátt orð á sig fyrir skart og
skemtanafíkn og sérstaklega
hvað hún var ötul að finna nýja
„móða“, en jafnframt þessu
vann hún mikið að líknar-
starfsemi og kom á fót líknar-
stofnunum fyrir börn, sjúklinga
og ellihruma. Þau hjónin áttu að-
eins eitt barn; það var sonur og
fæddist 1856.“
GAMLA FRÉTTIN
Dæmafá
fegurð
Eugenia eiginkona Napóleóns þriðja eða María Eugenia Ignacia Agustina de
Palafox-Portocarrero de Guzmán y Kirkpatrick, eins og hún hét fullu nafni.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Kolbrún Benediktsdóttir
varahéraðssaksóknari
María Pálsdóttir
leikkona og stofnandi Hælisins
Meg Ryan
kvikmyndaleikkona
... stærsti
uppskriftarvefur
landsins!