Morgunblaðið - 03.09.2020, Qupperneq 68
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
mánudaga - sunnudaga 12-18
20-50%
Sparadu-
af borðstofu-
húsgögnum
LÝKUR MÁNUDAGinn
7. september
20-25%
Sparadu-
af öllum borðbúnaði
TOKE BORÐSTOFUBORÐ 3 plankar,
vaxolíuborin eik. Svartir fætur. 160x90 cm.
99.900 kr.NÚ 79.900 kr.
HYPE BEKKUR Svart PU (gervileður), svartir fætur. 153x61x85 cm.
89.900 kr.NÚ 71.900 kr. Einnig til með brúnu PU (gervileðri).
SILJA BORÐSTOFUSTÓLL Grábrúnt eða
dökkgrátt flauesláklæði. Svartir fætur. 23.900 kr.
NÚ 18.900 kr.
ENIX BORÐSTOFUSTÓLL hvít plastskel
með krómfótum. Einnig til með svartri setu og
svörtum fótum. 9.900 kr. NÚ 6.900 kr.
SPAraðu 5.000
Nú18.900
SPAraðu 18.000
Nú71.900
SPAraðu 20.000
Nú79.900
SPAraðu 3.0
Nú6.900
00
Loftleikur, Aerotics, er heiti sýningar á nýjum verkum
eftir myndlistarkonuna Margréti H. Blöndal sem verður
opnuð í i8 galleríi við Tryggvagötu í dag, fimmtudag,
milli klukkan 17 og 19. Í kynningu á sýningunni segir
Margrét að hún vinni alltaf með innsetningar, þvert á
miðla og form; stundum snúi hún miðlum á hvolf, nálg-
ist skúlptúra sem teikningar og teikningar sem skúlp-
túra. Þá geti orð verið sem hnit sem loft leikur um og
kveikt á verkum. Innsetningar Margrétar eru alltaf við-
brögð við rýminu sem hún vinnur sýningar sínar í.
Loftleikur Margrétar H. Blöndal
opinn gestum í i8 galleríi í dag
FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 247. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
„Ég heyrði fyrst af áhuga Le Havre þegar ég kom heim
frá Ítalíu í byrjun sumars,“ segir knattspyrnukonan
Berglind Björg Þorvaldsdóttir í samtali við Morgun-
blaðið í dag. „Planið var svo bara að klára tímabilið
heima á Íslandi og taka svo stöðuna eftir það þar sem
samningur minn átti að renna út eftir tímabilið.
Hlutirnir hafa hins vegar gerst mjög hratt undan-
farna daga og að lokum ákveða þeir að kaupa mig frá
Breiðabliki.“ Berglind er því á leið til Frakklands og
skilur eftir sig skarð í liði Breiðabliks. »57
Hlutirnir gerðust hratt í
viðræðum Le Havre og Breiðabliks
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Veitingahúsið Askur, eitt elsta veit-
ingahús landsins, hefur verið við Suð-
urlandsbraut í Reykjavík hátt í 60 ár
og eigendurnir, sem hafa verið
nokkrir, hafa verið brautryðjendur á
mörgum sviðum. María Jóhanns-
dóttir og Haukur Ragnarsson keyptu
staðinn 2006 og hefur María rekið
hann ein síðan 2017. „Lengst af hefur
gengið mjög vel, en vegna kórónu-
veirunnar hefur reksturinn eðlilega
verið þungur frá því í mars. Íslend-
ingar hafa samt haldið tryggð við
okkur, þess vegna hef ég ekki lokað
og vona að ekki komi til þess.“
Magnús Björnsson rak Matstofuna
Vík í Keflavík frá 1957 en þegar flot-
inn fór austur vegna Austfjarðasíld-
arinnar 1963 og starfsemi verktaka-
fyrirtækja nær lognaðist út af á
svæðinu um svipað leyti var sjálf-
hætt. Magnús var hugmyndaríkur,
fór til Bandaríkjanna þar sem hann
aflaði sér upplýsinga um hvernig
grilla ætti kjúklinga, einn stofnenda
McDonalds smíðaði fyrir hann potta
og pönnur og Askur varð að veru-
leika um miðjan sjöunda áratuginn.
Þar bauð hann meðal annars upp á
grillaða kjúklinga með frönskum og
kokteilsósu, sem landinn kunni vel að
meta.
Sígildir réttir
„Við bjóðum enn upp á marga
þessara gömlu, sígildu rétta og fasta-
gestir vita að hverju þeir ganga,“ seg-
ir María. „Til dæmis er Bérnaise-
sósan alltaf jafn vinsæl og margir
koma við bara til þess að kaupa hana
og taka með sér heim,“ heldur hún
áfram. Bætir við að hádegishlað-
borðið á virkum dögum og steikar-
hlaðborðið á sunnudagskvöldum hafi
lengi verið eitt aðalsmerki Asks og sé
það enn. Sérréttamatseðillinn sé fjöl-
breyttur með mismunandi óskir við-
skiptavina í huga, heimsendingar-
þjónustan hafi komið sér sérstaklega
vel undanfarna mánuði auk þess sem
hún bjóði upp á veisluþjónustu. „Frá
upphafi hefur stefnan verið að halda
verði fyrir mat og drykk lágu. Við
höfum lagt áherslu á að hafa faglært,
íslenskumælandi fólk í vinnu, ég er
með frábært starfsfólk og margir
hafa unnið með mér frá því við keypt-
um staðinn.“
Fyrir um 15 árum var mikill upp-
gangur í veitingahúsarekstri og
María segir að viðskiptavinum hafi
fjölgað jafnt og þétt árlega, þar til
kórónuveiran barði að dyrum. „Eins
og allir á þessum vettvangi þurftum
við skyndilega að takast á við erfitt
verkefni. Það hefur verið mikill skóli,
við höfum lært mikið og megum vera
þakklát fyrir það.“
Askur varð strax vinsælt steikhús
og María segir að viðskiptavinirnir
hafi haldið tryggð við staðinn. „Sem
betur fer erum við með mjög marga
fastakúnna, sem koma ár eftir ár,“
segir hún. „Þegar ég byrjaði hérna
komu börn með foreldrum, öfum og
ömmum og nú eru þessi börn vaxin
úr grasi og farin að mæta með börnin
sín. Þessi fastheldni skiptir okkur
gríðarlega miklu máli, ekki síst í
ástandi eins og nú ríkir, þegar er-
lendu ferðamennirnir eru víðs fjarri.“
María leggur áherslu á að fylgja
ráðleggingum sóttvarnalæknis í hví-
vetna. Hún segir að tveggja metra
reglan sé í hávegum höfð, fjöldatak-
markanir séu virtar og spritt og ein-
nota hanskar innan seilingar. „Við
reynum að bjóða upp á eins öruggt
umhverfi og hægt er og sem betur fer
hafa íslenskir viðskiptavinir haldið
tryggð við okkur. Þeir halda okkur
gangandi,“ áréttar hún.
Askur á góðri siglingu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Askur María Jóhannsdóttir hefur staðið vaktina í um hálfan annan áratug.
Eigandi eins elsta veitingahúss landsins aðlagar sig að
breyttu umhverfi Tryggð Íslendinga hefur verið mikilvæg
Kræsingar Hlaðborðin hafa lengi notið vinsælda.