Morgunblaðið - 25.09.2020, Blaðsíða 1
HEIMILI OGHÖNNUN
SæbjörgGuðjónsdóttir
Katrín Atladóttir færðieldhúsið inn í borðstofuí stað þess að flytja
Endurhannaði sitt eigiðheimili af mikilli snilld
MAMMA
F Ö S T U D A G U R 2 5. S E P T E M B E R 2 0 2 0
Stofnað 1913 225. tölublað 108. árgangur
KATRÍN TÓK
ÍBÚÐINA Í
GEGN Í KÓFINU
48 SÍÐNA SÉRBLAÐ
Þeir sem stunda sjódrekaflug (e. kitesurfing) kvarta ekki und-
an þeim mikla vindi sem verið hefur á höfuðborgarsvæðinu
undanfarið. Kjöraðstæður hafa verið til sjódrekaflugs eins og
sjá má á mynd sem ljósmyndari Morgunblaðsins náði nýverið
af Einari Garðarssyni sjódrekaflugmanni. Á myndinni sést
Einar svífa nokkra metra í loft upp við Gróttuvita. „Við erum
svona 20 til 30 manna hópur sem gerir þetta hér á Íslandi.
Þetta er umhverfisvænt og hressandi og það er virkilega
gaman að geta notað rokið á Íslandi í eitthvað uppbyggilegt,“
segir Einar í samtali við Morgunblaðið. Sjódrekaflugmenn
nota uppblásna flugdreka til þess að svífa um á milli þess sem
þeir renna sér á brettum sínum á öldunum fyrir neðan þá.
Sjódrekaflugmenn nýta haustlægðirnar til íþróttaiðkunar
Morgunblaðið/Eggert
Bæjarstjórn Vestmannaeyja hef-
ur fallist á ósk Vegagerðarinnar
um endurskoðun á þjónustusamn-
ingi um ferjusiglingar á milli lands
og Eyja vegna breyttra forsendna.
Málið snýst um viðbótarkostnað
vegna meiri mönnunar skipsins en
gert var ráð fyrir þegar samið var.
Samgöngustofa krafðist þess að
fleiri menn yrðu í áhöfn nýja Herj-
ólfs, þegar mönnunin var endur-
skoðuð, en gert var ráð fyrir í þjón-
ustusamningi Vegagerðarinnar við
Vestmannaeyjabæ um ferjusigl-
ingar. Kostnaður Herjólfs ohf. er
því mun meiri en gert var ráð flyrir
og er ein helsta ástæðan fyrir mikl-
um taprekstri félagsins í ár. Vest-
mannaeyjabær telur að ríkið eigi að
greiða þennan aukakostnað. Vega-
gerðin viðurkennir breyttar for-
sendur en vísar til annarra ákvæða
og fyrirvara þar sem fram kemur
að greiðslur þurfi að vera innan
fjárveitinga. Þess vegna ákvað
Vegagerðin að óska formlega eftir
endurskoðun samnings. »11
Samningur um Herj-
ólf endurskoðaður
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
ætlar að boða deiluaðila á vinnumark-
aði á sinn fund til að fara yfir stöðuna.
Samtök atvinnulífsins sögðu í gær að
forsendur lífskjarasamningsins væru
brostnar og því þyrfti að grípa til við-
eigandi ráðstafana. Drífa Snædal, for-
seti ASÍ, er á öndverðum meiði og
segir það munu senda mjög alvarleg
skilaboð út í samfélagið ef launa-
hækkanir verði frystar.
„Við munum boða þessa aðila til
fundar, til að fara yfir stöðuna með
þeim sameiginlega,“ segir Katrín í
samtali við Morgunblaðið. „Því það er
alveg ljóst að ef það stefnir í átök á
vinnumarkaði, þá er það mikið
áhyggjuefni í þeirri stöðu sem blasir
við í samfélaginu núna, vegna heims-
faraldurs og afleiðinga hans,“ bætir
hún við. Spurð hvort það sé afstaða
stjórnvalda, að forsendur kjarasamn-
inga séu ekki brostnar, segir Katrín:
„Það liggur algjörlega fyrir að hvað
stjórnvöld varðar þá teljum við okkur
hafa staðið við allar þær yfirlýsingar
sem við gáfum í tengslum við kjara-
samninga. Við höfum lagt áherslu á
það, að allt það sem við gáfum yfirlýs-
ingu um hefur annaðhvort gengið eft-
ir á samningstím-
anum eða er í
vinnslu. En síðan
er það auðvitað
aðilanna sjálfra að
meta forsendurn-
ar sín á milli.“
Halldór Benja-
mín Þorbergsson,
framkvæmda-
stjóri SA, segir að
boðað verði til at-
kvæðagreiðslu meðal aðildarfyrir-
tækja samtakanna um hvort segja
eigi lífskjarasamningnum upp. Að
hans sögn mun þeirri atkvæða-
greiðslu ljúka í síðasta lagi á þriðju-
dag. ASÍ hafi hafnað beiðni SA um
samstarf þar sem leita átti lausna.
Órói á vinnumarkaði
Forsætisráðherra boðar deiluaðila á vinnumarkaði til
fundar ASÍ og SA á öndverðum meiði um samningsbresti
MSA segja forsendur … »2
Drífa
Snædal
Katrín
Jakobsdóttir
Halldór Benjamín
Þorbergsson
Samanburður
á samningum um
aflaheimildir í
Namibíu leiðir í
ljós að Samherji
greiddi markaðs-
verð fyrir kvóta
sem félagið
leigði í landinu.
Þetta kemur
fram í tilkynn-
ingu frá Sam-
herja í tilefni af umfjöllun um
rekstur félagsins í Namibíu.
„Ávirðingar sem settar hafa
verið fram um verð fyrir leigu á
aflaheimildum tengjast ásökunum
um að dótturfélög Samherja hafi
greitt mútur til að tryggja sér afla-
heimildir langt undir markaðs-
verði,“ segir í tilkynningunni.
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
Samherja, segir Jóhannes Stefáns-
son, fyrrverandi framkvæmda-
stjóra Samherja í Namibíu, ekki
hafa haft í heiðri gildi félagsins og
starfsreglur. »12
Greiddu markaðs-
verð fyrir kvótann
Björgólfur
Jóhannsson
SMÁ
MÓTEITUR
VIÐ SKÖMM
KÓPAVOGSKRÓNIKA 36