Morgunblaðið - 25.09.2020, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 25.09.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2020 Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is DVERGARNIR Þungar og öflugar undirstöður DVERGARNIR R HNERRIR DURGURJÖTUNN DRAUPNIR ÞJARKUR Þessir dvergar henta vel sem undirstöður þar sem þung og öflug festing er aðalatriði. Í ritstjórnargreininni Tý í Við-skiptablaðinu er vikið að fjár- hagsvanda sveitarfélaganna og er tilefnið „þjóðstjórn“ Akureyrar- bæjar. Týr bendir á að Akureyri sé „ekki eina sveitar- félagið í fjárhags- vandræðum. Í árs- hlutauppgjöri stærstu sveitar- félaga landsins fyrir fyrri hluta ársins kemur fram að fjárhags- staða þeirra hefur versnað til muna“.    Þá er bent á að eftir góðæri síð-ustu ára hafi ríkissjóður verið vel undir samdrátt búinn en hið sama eigi ekki við um sveitar- félögin, „þrátt fyrir að þau inn- heimti flest hámarksútsvar og há fasteignagjöld. Þau eru það illa rekin að það mátti í raun ekkert út af bregða til að setja rekstur þeirra í algjört uppnám“.    Um Reykjavíkurborg segir aðhún sé litlu skárri en Akur- eyri með eiginfjárhlutfall upp á 3% og hratt vaxandi skuldir. „Rekstur borgarinnar er ósjálfbær en stærstu áhyggjur borgarfulltrúa snúa þó iðulega að einhverju allt öðru en fjárhag hennar. Allt er þetta óþægileg áminning um það að einkageirinn á einn að bera þungann af samdrættinum í hag- kerfinu. Á meðan þúsundir starfs- manna missa vinnuna í einkageir- anum hefur ekki einn opinber starfsmaður misst vinnuna. Týr óskar engum þess að missa starf sitt, en það kemur að lokum að því að einkageirinn getur ekki haldið uppi hinu opinbera.“    Er ekki hugsanlegt að hið opin-bera geti sparað líkt og einkageirinn verður að gera? Eða á að bíða þar til einkageirinn getur ekki meir? Er hið opinbera undanskilið? STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Ellefu fyrirtæki í Kópavogi hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um innleiðingu heimsmarkmiðs Samein- uðu þjóðanna um sjálfbæra þróun inn í sína starfsemi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ. Fyrirtækin sem hafa skrifað undir eru Íslandsbanki, Reginn, Sky Lag- oon, Prófító bókhaldshús, BYKO, Festi, Valka, Mannvit, Trygginga- stofnun, Hótel Kríunes og Bruna- bótafélag Íslands, eignarhaldsfélag. Í tilkynningu segir að verkefninu hafi formlega verið hleypt af stokk- unum á fundi Kópavogsbæjar sem haldinn var í tilefni útgáfu skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinn- ar, OECD, um þátttöku Kópavogs- bæjar í alþjóðlegu verkefni OECD um innleiðingu heimsmarkmiðanna hjá sveitarfélögum og þróun mæli- kvarða því tengdra. „Markaðsstofa Kópavogs hvetur fyrirtæki og stofnanir í bænum til að innleiða heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna í stefnu sína og daglegan rekstur og sýna þannig samfélags- lega ábyrgð í verki. Allir vinni saman að því að bæta umhverfið og sam- félagið og gera Kópavog, Ísland og heiminn allan að betri stað til að búa og starfa í,“ segir Björn Jónsson, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Kópavogs, í tilkynningu. Ellefu skrifa undir heimsmarkmið  Stefna að sjálfbærri þróun í starfsem- inni  Alþjóðlegt verkefni OECD Morgunblaðið/Sigurður Bogi Kópavogur Ellefu fyrirtæki stefna á að uppfylla heimsmarkmið SÞ. „Við höldum baráttunni áfram. Með niðurstöðu gerðardóms fengum við verkefnið til baka. Nú reynum við að ljúka ferlinu með því að klára stofn- anasamninga við heilbrigðisstofnan- ir til að hjúkrunarfræðingar sjái endanlega hver laun þeirra eru,“ segir Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræð- inga. Félagið hefur sent frá sér ályktun þar sem þess er krafist að hjúkrun- arfræðingar fái laun í samræmi við menntun, ábyrgð í starfi og framlag til heilbrigðisþjónustu. Vanmetin kvennastétt Guðbjörg segir að úrskurður gerðardómsins bæti ekki úr því. Vís- ar hún í greinargerð með úrskurði gerðardómsins þar sem meðal ann- ars kemur fram að dómurinn telur að vísbendingar séu um að hjúkr- unarfræðingar séu vanmetin kvennastétt hvað varðar laun með tilliti til ábyrgðar. Sérstaklega eigi það við þegar horft er til þess að al- mennir hjúkrunarfræðingar eru gjarnan í hlutverki teymisstjóra og samhæfingaraðila milli annarra fag- stétta. Þá séu þeir ráðgefandi í fram- línu og fyrsta snerting skjólstæðings í bráðatilfellum. Einnig komi fram vísbendingar um það í launagrein- ingu Landspítala að starfshópar í stéttarfélögum þar sem karlar eru fjölmennari séu að jafnaði með hærri laun en hjúkrunarfræðingar, án þess að störf þeirra séu endilega metin meira virði í starfsmati. Spurð um framhald málsins segir Guðbjörg að niðurstaða gerðardóms sé gild og endanleg. Hún gildi til árs- ins 2023. Hjúkrunarfræðingar muni halda baráttunni áfram. helgi@mbl.is Reynt að ljúka stofnanasamningum  Hjúkrunarfræð- ingar halda kjara- baráttu sinni áfram Morgunblaðið/Árni Sæberg Hraðar Hjúkrungarfræðingar á þönum á bráðadeild Landspítala.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.