Morgunblaðið - 25.09.2020, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 25.09.2020, Blaðsíða 32
32 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2020 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú lætur reyna á sannfæring- arkraft þinn. Leitaðu ekki langt yfir skammt heldur slakaðu á og þegar ró er komin yfir þig blasir lausnin við. 20. apríl - 20. maí  Naut Staldraðu við og hugleiddu hvort þú vanrækir þína nánustu vegna vinnu. And- stæðingar þínir eru ekki margir. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Láttu það ekki aftra þér þótt breytingatillögur þínar fái lítinn hljóm- grunn. Lykilorðin eru samvinna og mála- miðlun. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú samþykkir að fara í ferðalag. Gott er að ræða saman því samskiptaskortur veldur því oft að hvorugur veit til hvers er ætlast. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er ekki á þínu valdi að bera ábyrgð á hamingju annarra. Talaðu hreint út við vinnufélaga þína. Gott líf byggist ekki bara á vinnu. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Næsti mánuður verður skemmti- legur. Samkenndin liggur í loftinu en þú ættir þó að varast að lofa upp í ermina á þér bara til að þóknast öðrum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú grípur til aðgerða, sérstaklega sem kosta einhver fjárútlát. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Áhyggjur þínar af komandi verkefni eru ekki þær einu. Einhver dýrkar allt sem þú gerir, þér finnst óþægilegt að vera sett/ur á stall. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Eitt er að vita hvað maður vill og annað að biðja um það. Gefðu þér tíma til að hlusta á þinn innri mann og komast að því hvað bjátar á. 22. des. - 19. janúar Steingeit Sannaðu trúna sem þú hefur á sjálfan þig með því að fylgja eftir hug- myndum þínum af fullum krafti. Treystið því að allt fari vel. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú færð tækifæri til að hefja samningaviðræður að nýju svo gerðu það upp við þig hvort þú átt að hrökkva eða stökkva. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er svolítið hastarlegt að upp- götva það að hafa leitað lausnarinnar yfir lækinn, þegar hún var allan tímann við höndina. verið að vinna saman lengi og haldið árlega jólatónleika í Mosfellsdalnum. „Þessi litla grúppa, hefur gert víð- lensku óperunnar, Kammersveit Reykjavíkur, Íslensku hljómsveitinni og Íslenska blásarakvintettinum. Björn var skólastjóri Tónlistar- skóla FÍH frá árinu 1987 til 2019 og miðlaði þar sinni reynslu til komandi kynslóða. Einnig var hann einn af stofnendum og framkvæmdastjóri Menntaskóla í tónlist til ársins 2019. Nú myndi margur ætla að tónlistin væri ærinn starfi og ástríða, en Björn var einnig mjög áberandi í íþrótta- heiminum og muna margir eftir hon- um úr meistaraflokki KR á árunum 1968-76, en hann varð Íslandsmeist- ari með KR 1968. Síðan hefur hann þjálfað mikið frá 1975, bæði í KR og hjá Þór á Akureyri og fleiri liðum og eins þjálfaði hann landslið Færeyja þau tvö ár sem hann bjó þar. „Ég hafði auðvitað mikinn áhuga á fótbolta og var bara þokkalegur í þeirri íþrótt og eftir að ég fór að spila með meistaraflokki KR 1968 var bara ekki aftur snúið. Ég reyndi að vinna eins vel og ég gat með hvoru tveggja og aldrei fannst mér leið- inlegt, sem segir kannski meira en nokkuð annað.“ Björn hefur verið virkur í félags- starfi tónlistarfólks og var varafor- maður Félags íslenskra hljómlistar- manna 1986-1987 og formaður frá 1987-2018 auk þess að vera í stjórn Íslensku hljómsveitarinnar. Hann var stjórnarmaður í Nordisk Musik- er Union frá 1987 og forseti samtak- anna frá 1998 til 2002. Björn var einnig fyrsti forseti Tónlistarráðs Ís- lands sem stofnað var 1990 og er þá ótalin stjórnarseta í SUT og IHM auk þess að sitja í Listráði Hörpu frá stofnun til 2018. Árið 2018 var Björn gerður að heiðursmeðlimi Félags ís- lenskra hljómlistarmanna. Björn er meðlimur í sveitinni Diddú og drengirnir, en þau hafa B jörn Theódór Árnason fæddist 25.9. 1950 í Reykjavík en fluttist til Svíþjóðar þriggja ára gamall í tvö ár þar sem faðir hans nam skurðlækningar. Fimm ára flutti hann í vesturbæ Reykjavíkur og spilaði fótbolta á Framnesvellinum, varð KR-ingur og gekk í Melaskólann til ársins 1959 þegar fjölskyldan flutti í Hlíðarnar og bjó þar næsta áratuginn. Hann hélt þó alltaf tryggð við KR. „Maður var brennimerktur um leið og ekki alltaf einfalt þar sem flestir voru í rauðum og bláum búningi í þessu hverfi,“ segir Björn. Það átti enda eftir að koma á daginn að KR og tónlist áttu eftir að vera áberandi í hans lífi. „Þegar ég var 15 ára gaf Vilborg systir mín mér plötu, en „long play“- plötur þóttu miklir dýrgripir á þess- um tíma. Fram að þessu hafði ég ekki mikið hlustað á klassíska tónlist, en ég varð að spila þessa plötu fyrst ég var kominn með hana í hendurnar. Það má því segja að ég geti þakkað Vilborgu systur fyrir að hafa farið í tónlistina.“ Björn lauk blásarakennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 1975 og einleikaraprófi á fagott frá sama skóla 1976. Síðan var ferðinni heitið í Tónlistarháskólann í Vínar- borg í Austurríki þar sem hann var á árunum 1976-1980. Þegar heim var komið kenndi Björn við Tónlistar- skólann á Akranesi, í Færeyjum í tvö ár, þar sem hann var einnig ráðgjafi við uppbyggingu Tónlistarskóla Færeyja, í Njarðvík og á Seltjarn- arnesi. Hann var lausráðinn fagott- leikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands 1970-2000 og lék inn á upptökur sem einleikari með hljómsveitinni auk þess að leika með hljómsveit Ís- reist og farið m.a. til Kanada, Frakk- lands, Ítalíu og Hollands. Það er al- veg yndislegt að vinna með Diddú og Björn Theódór Árnason tónlistarmaður – 70 ára Fjölskyldan Hér eru allir samankomnir, f.v.: Jens, Úlfhildur Lokbrá, Hroll- ur, Árni, Sigurlín, Björn, Þóranna, Kolbeinn og Röskva fremst á myndinni. Hljómplata kveikti tón- listareldinn Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Skólastjórinn Björn var skólastjóri FÍH yfir 30 ár. Frá vinstri: Björn , Svana Víkingsdóttir yfirkennari og Sigurður Flosason aðstoðarskólastjóri Til hamingju með daginn Reykjavík Hugrún Arna fæddist á Landspítalanum í Reykjavík 23. nóv- ember 2019. Hún vó 3.678 g og var 50 cm á lengd. Foreldrar hennar eru Mar- grét Ósk Guðbergsdóttir og Númi Finnur Aðalbjörnsson. Nýr borgari 40 ára Pawel fæddist í Póllandi en hefur búið í Reykjavík frá 8 ára- aldri. Hann er forseti borgarstjórnar og borgarfulltrúi Við- reisnar. Pawel hefur mikinn áhuga á skipu- lagsmálum, útihlaupum og ræktun. Maki: Anna Hera Björnsdóttir, stærð- fræðingur, f. 1980, danskennari og sér- fræðingur hjá Landsbankanum. Synir: Ágúst, f. 2008 og Ólafur Jan, f. 2012. Foreldrar: Stanislaw Jan Bartoszek, f. 1956, sérfræðingur hjá Valitor, og Emilia Mlynska, f. 1957, náms- og starfsráðgjafi hjá Mími og kennsluráðgjafi hjá grunn- skólum Reykjavíkur. Pawel Bartoszek 40 ára Tinna ólst upp í Reykjavík en býr núna í Kópavogi. Hún er sérfræðingur á gæðasviði hjá lyfja- fyrirtækinu Teva. Tinna hefur mikinn áhuga á hreyfingu, allri útivist og að vera með fjölskyld- unni. Maki: Sigurður Sæberg Þorsteinsson, f. 1980, framkvæmdastjóri hjá Advania. Dætur: Þórdís Katla, f. 2004, Signý Hekla, f. 2007 og Hrafntinna, f. 2014. Foreldrar: Þorbjörg Kolbrún Ásgríms- dótir grunnskólakennari, f. 1945 og Rögnvaldur Gunnarsson, tæknifræð- ingur hjá Vegagerð ríkisins, f. 1948. Þau búa í Kópavogi. Tinna Margrét Rögnvaldsdóttir ÞJÓNUSTA FYRIR ÁSKRIFENDUR HLJÓÐMOGGI FYRIR FÓLK Á FERÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.