Morgunblaðið - 25.09.2020, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 25.09.2020, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2020 25. september 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 138.05 Sterlingspund 175.64 Kanadadalur 103.5 Dönsk króna 21.685 Norsk króna 14.679 Sænsk króna 15.462 Svissn. franki 149.83 Japanskt jen 1.3132 SDR 194.23 Evra 161.4 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 198.0954 Hrávöruverð Gull 1888.1 ($/únsa) Ál 1744.0 ($/tonn) LME Hráolía 41.67 ($/fatið) Brent Baldur Arnarson baldura@mbl.is Samherji leigði aflaheimildir í Nam- ibíu á markaðsverði. Fullyrðingar um hið gagnstæða eru því alrangar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samherja en félagið fól lögmannsstof- unni Wikborg Rein að yfirfara samn- inga Samherja við Fishcor og Nam- gomar um leiguna í Namibíu. Voru þeir samningar svo bornir saman við samninga við önn- ur félög sem leigð- ur var kvóti af en alls voru 39 tilvik borin saman. Naut Wikborg Rein aðstoðar ráðgjafa sem stofan leitaði til. Spurður hverjir hafi sett fram þessar fullyrðingar vísar Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Samherja, til umfjöllunar í fjölmiðlum. „Við erum að vísa þarna í fjölmiðla- umfjöllun bæði hér á landi og erlendis frá nóvember á síðasta ári til dagsins í dag. Þar má nefna Stundina, Kveik, Al Jazeera o.fl.“ Hafna ásökunum um mútur – Hvað var fullyrt? „Það hefur verið fullyrt í fjölmiðl- um, meðal annars Kveik og í Stund- inni, að félög tengd Samherja hafi greitt mútur til að tryggja sér aðgang að aflaheimildum. Við höfum ávallt neitað þeirri ásökun. Við þessa ásök- un um mútugreiðslur hafa svo verið samofnar fullyrðingar um að félög tengd Samherja hafi ekki greitt markaðsverð fyrir þær aflaheimildir sem þau leigðu. Við létum fram- kvæma samanburð á verði til að kanna sannleiksgildi þessara fullyrð- inga og sá samanburður leiðir í ljós að það verð, sem félög tengd Samherja greiddu, var ekki undir markaðsverði í Namibíu,“ segir Björgólfur um meginniðurstöðuna. Ásakanir í fjölmiðlum – Hafnar Samherji því að hafa greitt mútur? „Samherji hafnar því staðfastlega að hafa greitt mútur. Hvorki Sam- herji, né nokkur félög tengd Sam- herja, hafa nokkru sinni greitt mútur. Varðandi kvótaviðskipti Samherja í Namibíu þá hef ég ekki séð annað en að félög tengd Samherja hafi greitt markaðsverð fyrir kvótann og þá fæ ég ekki séð að mútur hafi nokkurn tímann verið greiddar.“ – Hvað með greiðslur til meintra „hákarla“ [þ.e. þriggja aðila sem áttu að hafa fengið ríflega umbun fyrir að greiða götu Samherja í landinu, í því skyni að fá kvóta]? „Við lítum svo á að um hafi verið að ræða lögmætar greiðslur og höfnum því alfarið að greiðslur til þessara að- ila hafi verið mútur.“ Leigðu kvóta af einkaaðilum og ríkisfyrirtæki Stærstur hluti þeirra aflaheimilda var leigður af einkaaðilum, þar á með- al Namgomar sem fékk úthlutaðar aflaheimildir á grundvelli samnings um veiðar milli Angóla og Namibíu. Þá leigðu félög tengd Samherja afla- heimildir af Fishcor, sjávarútvegs- fyrirtæki í eigu namibíska ríkisins. Fyrir utan fyrrnefndar ávirðingar segir í tilkynningu Samherja að „því [hafi] verið haldið fram að félög í sam- stæðu Samherja hafi gert allt til að greiða eins lágan skatt í Namibíu og þau mögulega gátu og að þessir sam- verkandi þættir, ásamt ríkulegum hagnaði af starfseminni í Namibíu, þýði að Samherji hafi í reynd arðrænt þróunarríki“. – Hverjir héldu því fram að Sam- herji hefði reynt að lágmarka skatt- greiðslur eins og kostur er? „Þessar ásakanir komu m.a. fram í Stundinni og í bók sem fréttamenn Kveiks gáfu út á síðasta ári og fjallar um starfsemi Samherja í Namibíu.“ Greiddu alla sína skatta – Hafnar Samherji þessari fullyrð- ingu? Hvernig þá? „Við teljum að félög tengd Sam- herja hafi greitt alla þá skatta í Nam- ibíu sem þeim bar að greiða sam- kvæmt lögum. Við höfum áður tjáð okkur um skattgreiðslur í Namibíu í fréttatilkynningu sem við sendum frá okkur hinn 7. ágúst sl. Þar kom fram að félög tengd Samherja hefðu greitt samtals að jafnvirði um 6,5 milljarða kr. til ríkissjóðs Namibíu á meðan þau voru í rekstri. Þar er annars vegar um að ræða heildarskattgreiðslur og hins vegar sértæka skatta fyrir nýtingu aflaheimilda. Þess utan greiddu félög tengd Samherja alls 12 milljarða kr. fyrir aflaheimildirnar sjálfar og stór hluti þeirrar fjárhæðar rann til stofn- ana og fyrirtækja í eigu ríkisins.“ – Það segir jafnframt í tilkynning- unni að „til að komast að því hvað hafi verið rétt markaðsverð í viðskiptum með aflaheimildir, þau ár sem félög tengd Samherja voru með starfsemi í Namibíu, var farið yfir samninga Samherja við sex namibísk félög sem voru handhafar aflaheimilda og höfðu engin innbyrðis tengsl“. Hvert og eitt þessara félaga hafi starfað á frjálsum markaði og aðeins haft arðsemissjón- armið að leiðarljósi við leigu aflaheim- ilda. Hver vann þessa rannsókn? „Þá vísa ég til fyrra svars. Wikborg Rein og ráðgjafar á hennar vegum unnu þessa athugun.“ Geta ekki birt samninga – Væri hægt að sjá niðurstöðurnar? Þ.e. talnagögnin sem um ræðir? „Við höfum ekki birt samningana sjálfa en þar koma tölurnar fram. Ástæðan er meðal annars sú að þarna er um að ræða gagnkvæma samninga sem félög tengd Samherja gerðu við önnur fyrirtæki í Namibíu. Við þurf- um að afla samþykkis umræddra fé- laga áður en við getum birt upplýs- ingar úr þessum samningum, enda ríkir trúnaður um verð og annað efni samninganna. Þá er okkur ekki heim- ilt að miðla upplýsingum úr samning- um hjá ótengdum félögum sem við höfðum aðgang að í þessari vinnu,“ segir Björgólfur. Alls 39 tilvik borin saman Í tilkynningunni segir einnig að við samanburð á því verði sem Samherji greiddi í samningum við Fishcor og Namgomar hafi alls verið ráðist í samanburð í 39 tilvikum. Í öllum til- vikum nema einu hafi verðið sem Samherji greiddi fyrir aflaheimildir, skv. samningum við Fishcor og Nam- gomar, verið jafnhátt eða hærra en það verð sem greitt var skv. samn- ingum við önnur fyrirtæki. Spurður hver hafi unnið þessa rannsókn fyrir Samherja vísar Björg- ólfur til fyrra svars. Þá þyrfti að leita samþykkis annarra aðila, líkt og áður, fyrir birtingu gagna. Verðið var jafnhátt eða hærra Athugunin sem unnin var fyrir Samherja fól einnig í sér samanburð á verði í sambærilegum samningum sem önnur útgerðarfyrirtæki, innlend sem erlend, gerðu við handhafa afla- heimilda í Namibíu. „Þetta var gert til að ganga úr skugga um að það verð sem Samherji greiddi samkvæmt samningum við Fishcor og Namgomar hefði ekki ver- ið óeðlilega lágt og einnig til að eyða grunsemdum um að þeir samningar sem stuðst var við hefðu sérstaklega verið valdir til að tryggja hagfelldan samanburð. Í miklum meirihluta þeirra samninga, sem skoðaðir voru í þessari síðari athugun, var það verð sem greitt var samkvæmt samning- um við Fishcor og Namgomar jafn- hátt eða hærra en það verð sem um- rædd útvegsfyrirtæki greiddu fyrir sínar aflaheimildir,“ sagði í tilkynn- ingunni. Björgólfur vísaði til fyrri svara þegar hann var spurður hver hefði unnið þessa rannsókn fyrir Samherja og hvort Morgunblaðið gæti fengið að sjá umrædd talnagögn. Skortur var á eftirliti Í niðurlagi tilkynningarinnar segir að „þrátt fyrir að einstaka starfsmenn hafi ekki gætt þeirra vinnubragða og starfsaðferða sem Samherji kapp- kostar í allri starfsemi sinni er ljóst að félagið ber ábyrgð á eftirfylgni, aga og eftirliti og ber að grípa inn í með afgerandi hætti þegar ekki er gætt þeirrar árvekni sem krafa er gerð um. Ljóst virðist að við leigu á aflaheim- ildum í Namibíu hefur í einhverjum tilvikum skort á slíkt eftirlit og inn- grip. Það breytir þó ekki megin- niðurstöðu þessarar athugunar sem er að Samherji hafi greitt markaðs- verð fyrir þann kvóta sem félagið leigði“, sagði þar m.a. Spurður hvaða starfsmenn gengu ekki fram í samræmi við starfsreglur félagsins segir Björgólfur vísað til Jó- hannesar Stefánssonar, fv. fram- kvæmdastjóra Samherja í Namibíu, sem hafi stýrt og borið ábyrgð á starf- seminni í Namibíu. „Reksturinn í Namibíu undir hans stjórn einkenndist af fjármálaóreiðu sem er algjörlega á skjön við stefnu Samherja og þau gildi sem við vinnum eftir. Þá kom í ljós vorið 2016 að reksturinn var hreinlega í molum og það var ein af ástæðunum sem réðu því að Jóhannesi var sagt upp störf- um,“ segir Björgólfur. Uppteknir af Seðlabankamáli – Hvers vegna skorti á eftirlit og inngrip við leigu á aflaheimildum? „Það eru tvær ástæður fyrir því. Þau ár sem hér um ræðir voru stjórn- endur Samherja mjög uppteknir af svokölluðu Seðlabankamáli, sem hefði í reynd getað riðið félaginu að fullu, og þess vegna var ekki nákvæmt eft- irlit með því að starfsemin í Namibíu væri í lagi. Síðan er mikilvægt að halda til haga, sem við höfum alltaf lagt áherslu á, að við höfum treyst starfsfólki okkar. Eftirlitskerfi Sam- herja hefur í gegnum árin byggst upp á trausti. Rekstur félaga okkar víða um heim gekk vel, þrátt fyrir að at- hygli æðstu stjórnenda hafi verið á Seðlabankamálinu, vegna þess að þeir sem stýrðu umræddum félögum í samstæðunni stóðu undir því trausti sem þeim var sýnt. Það gekk hins vegar ekki eftir í Namibíu, því mið- ur,“ segir Björgólfur Jóhannsson, for- stjóri Samherja. Greiddu markaðsverð í Namibíu  Samherji segir rannsókn sýna að félagið hafi greitt markaðsverð fyrir kvóta sem félagið leigði  Fullyrðingum um mútur og arðrán hafnað  Stjórnandi í Namibíu hafi ekki fylgt starfsreglum Björgólfur Jóhannsson Morgunblaðið/Sigurður Bogi Samherji Félagið hefur svarað gagnrýni á starfsemina í Namibíu. ● Úrvalsvísitala aðallista Kauphallar Ís- lands lækkaði í gær um 1,08%. Mest varð lækkunin á bréfum í Icelandair Group, eða um 3,39% í fjögurra milljóna króna við- skiptum. Næstmesta lækkunin varð á bréf- um fasteignafélagsins Regins, eða 2,22% í 349 milljóna króna viðskiptum. Gengi fé- lagsins var 15,45 krónur á hvern hlut í lok dags. Þriðja mesta lækkun gærdagsins varð á bréfum Arion banka, eða um 1,85% í 134 milljóna króna viðskiptum. Gengi fé- lagsins í lok dags í gær var 74,1. Eitt félag hækkaði í verði í gær, sjáv- arútvegsfyrirtækið Brim, en bréf félagsins hækkuðu um 1,19%. Er gengi bréfanna nú 42,4 krónur hver hlutur. Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,08% í gær Laugavegi 178,105 Rvk. | Sími 551 3366 | www.misty.is Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl.10-14 Sachi frá elomi komin aftur BH 11.900,- Buxur 4.650,-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.