Morgunblaðið - 25.09.2020, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2020
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Akranesi | Sími 511 2022 | dyrabaer.is
Úrval náttúrulegra bætiefna og fóðurs fyrir hunda og ketti.
Nánar á dyrabaer.is
HOLLUSTA OG HEILBRIGÐI FRÁ
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Alþjóðleg samtök blaðaútgefenda,
WAN-IFRA, hafa útnefnt Lands-
prent, prentsmiðju Morgunblaðsins, í
svokallaðan Stjörnuklúbb bestu
blaðaprentsmiðja heims. Prent-
smiðjan tók fyrr á árinu þátt í keppn-
inni „International Color Quality
Club“ og náði þar mjög góðum
árangri. Keppnin byggist á því að
prentunin er skoðuð og mæld yfir
langt tímabil. Aftarlega í blaðinu var
daglega prentaður lítill kubbur með
mislitum punktum og eru gæði prent-
unarinnar m.a. mæld eftir þeim.
Guðbrandur Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Landsprents, segir
árangur Landsprents byggjast á fag-
legum og vönduðum vinnubrögðum,
góðum búnaði og metnaði allra
starfsmanna prentsmiðjunnar. „Við
þökkum þennan góða árangur frá-
bæru og metnaðarfullu starfsfólki,
sem leggur sig allt fram um að skila
góðu verki alla daga. Prentvél Lands-
prents er afar vönduð og allur annar
tækjakostur einnig mjög góður. Við
vitum líka að auglýsendur alveg sér-
staklega kunna að meta hvernig við
stöndum að verki í gæðamálum,“ seg-
ir hann.
Í hópi þeirra bestu
Prentsmiðja Morgunblaðsins heiðruð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gæðin í fyrirrúmi Stefán Stefánsson að störfum í prentsmiðjunni í gærkvöldi.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Samtök atvinnulífsins tilkynntu í gær að
forsendur lífskjarasamninganna væru
brostnar. ASÍ komst að þveröfugri nið-
urstöðu og telur að forsendur samning-
anna hafi staðist. Launa- og forsendu-
nefnd ASÍ og SA kom saman í gær og
náði ekki sameiginlegri niðurstöðu um
mat á forsendunum og hefur lokið störf-
um.
„Að mati SA er ljóst að tiltekin tíma-
sett vilyrði í yfirlýsingu stjórnvalda frá
3. apríl 2019 hafa ekki gengið eftir, sem
veitir báðum samningsaðilum heimild til
að lýsa því yfir að forsendur kjarasamn-
inga hafi brostið,“ segir í tilkynningu frá
SA síðdegis í gær. „Grundvallar-
forsenda kjarasamninganna um aukna
verðmætasköpun í atvinnulífinu, sem er
forsenda launahækkana, hefur ekki
gengið eftir og kallar á endurskoðun
samninganna.
Framkvæmdastjórn SA hefur það
hlutverk að taka afstöðu til þess hvort
kjarasamningar eigi að halda gildi sínu.
Vegna þeirrar ákvörðunar mun fram-
kvæmdastjórnin boða til allsherjar-
atkvæðagreiðslu á meðal aðildarfyrir-
tækja SA um afstöðu þeirra til
uppsagnar kjarasamninga, sem taki
gildi hinn 1. október 2020,“ segir í til-
kynningu SA.
Öllum tillögum SA hafnað
Í lífskjarasamningunum segir að ef
forsendur standist ekki skuli kalla sam-
an sameiginlegan fund samninganefnda
sem leiti samkomulags um viðbrögð við
því til að vinna að því að samningarnir
haldi gildi sínu. Náist ekki samkomulag
skal sá sem vill ekki að samningurinn
haldi gildi sínu tilkynna það fyrir kl. 16
hinn 30. september
SA líta svo á að samtökunum sé heim-
ilt að segja kjarasamningum upp um
komandi mánaðamót komi verkalýðs-
hreyfingin ekki til móts við atvinnulífið
og aðlagi kjarasamninga að gjörbreyttri
stöðu efnahagsmála. Samkvæmt forystu
SA hafa samtökin leitað leiða í form-
legum og óformlegum samtölum við for-
ystu verkalýðshreyfingarinnar til að
bregðast við forsendubrestinum og bent
á gjörbreyttar aðstæður í efnahagslíf-
inu. Engar forsendur séu fyrir hækkun
launakostnaðar í atvinnulífinu.
Í tilkynningu SA í gær segir að sam-
tökin hafi kynnt ASÍ nokkrar leiðir, s.s.
að bregðast við með því að lengja í
kjarasamningum og fresta öllum dag-
setningum þeirra sem nemur lenging-
unni en að lífskjarasamningurinn verði
að fullu efndur. Í öðru lagi voru settar
fram hugmyndir um tímabundna lækk-
un framlags atvinnurekenda í lífeyris-
sjóði og í þriðja lagi tillögur um tíma-
bundna frestun endurskoðunar
kjarasamninga meðan ekki liggur fyrir
hvort og hvenær bóluefni gegn kórónu-
veirusjúkdómnum kemur.
„Á formannafundi ASÍ 22. september
sl. var öllum tillögum SA hafnað og bætt
um betur með því að hóta víðtækum
verkföllum,“ segir í tilkynningu SA.
Frumvarp á haustþingi
Í tilkynningu ASÍ eru rifjaðar upp
þrjár forsendur samninganna. Kaup-
máttur launa hafi aukist um 4,8% og
kaupmáttarforsendan því staðist. Stýri-
vextir hafi lækkað úr 4,5% í 1% og
vaxtaforsendan því staðist. „Tímasett
loforð stjórnvalda hafa staðist utan
ákvæði um bann við 40 ára verðtryggð-
um lánum. Frumvarp sem tekur á því
máli verður hins vegar lagt fram á kom-
andi haustþingi og er það mat ASÍ að
framlagning þess á næstu vikum feli í
sér efndir á þeim lið yfirlýsingar ríkis-
stjórnarinnar frá apríl 2019 […],“ segir í
tilkynningu ASÍ.
Haft er eftir Drífu Snædal, forseta
ASÍ, að verkalýðshreyfingin hafi boðið
frið á vinnumarkaði og fyrirsjáanleika.
„Með því sýnum við ábyrgð á erfiðum
tímum,“ segir hún. Samninganefnd ASÍ
hefur verið kölluð til fundar fyrir hádegi
í dag.
SA segja forsendur
samninga brostnar
Aðildarfélög SA kjósa um hvort segja eigi upp samningum
Morgunblaðið/Hari
Undirritun Lífskjarasamningarnir voru undirritaðir 3. apríl á síðasta ári. Við at-
kvæðagreiðslu um þá voru tæplega 92 þúsund launþegar á kjörskrá.
„Fyrsti, annar og þriðji valkostur Samtaka
atvinnulífsins var sá að ná samningum við
ASÍ um viðbrögð vegna kórónuveirukrepp-
unnar,“ segir Halldór Benjamín Þorbergs-
son, framkvæmdastjóri SA. „Við þeim um-
leitunum fengum við þrefalt nei. Það þýðir
að næsta skref er að framkvæmdastjórn SA
mun boða til allsherjaratkvæðagreiðslu á
meðal aðildarfyrirtækja SA um það hvort
þau vilji segja upp kjarasamningnum vegna
forsendubrests eða hvort þau kjósi að hann
haldi gildi sínu,“ segir Halldór.
Þeirri atkvæðagreiðslu mun ljúka í síðasta lagi á þriðjudag-
inn í næstu viku að sögn hans.
SA telja ekki forsendur fyrir launahækkunum skv. samn-
ingunum um næstu áramót vegna gjörbreyttrar stöðu í efna-
hagslífinu. Halldór bendir á að 300 milljarðar séu horfnir út
úr hagkerfinu ef miðað sé við upphaflegar efnahagsforsendur
sem lágu til grundvallar kjarasamningunum. Við því þurfi að
bregðast. Hann segir ASÍ ekki hafa léð máls á neinni þeirra
leiða sem SA lögðu til „og hafnaði umræðu um leiðirnar“, seg-
ir hann. omfr@mbl.is
Fengum þrefalt nei
Halldór Benjamín
Þorbergsson
Katrín Jak-
obsdóttir
forsætisráð-
herra segir
áhyggjuefni
að upp
spretti deil-
ur milli að-
ila á vinnu-
markaði.
„Við mun-
um boða
þessa aðila til fundar til að
fara yfir stöðuna með þeim
sameiginlega. Það er alveg
ljóst að ef það stefnir í átök á
vinnumarkaði, þá er það mik-
ið áhyggjuefni í þeirri stöðu
sem blasir við á vinnumarkaði
núna, vegna heimsfaraldurs
og afleiðinga hans.“
Katrín segir jafnframt að
stjórnvöld hafi staðið við allar
þær skuldbindingar sem þau
hafi gefið í tengslum við
kjarasamninga. Það sé undir
aðilum vinnumarkaðarins
komið að meta forsendur lífs-
kjarasamningsins sín á milli.
sh@mbl.is
Ætlar að boða
deiluaðila á
sinn fund
Katrín
Jakobsdóttir
Drífa Snæ-
dal, forseti
ASÍ, segir
að mjög al-
varleg
skilaboð
yrðu send
út í sam-
félagið ef til
launafryst-
ingar
kæmi. Hún
segir að í lífskjarasamningi
sé kveðið á um hóflegar
launahækkanir og að for-
sendur samningsins séu ekki
brostnar. Hagvöxtur á samn-
ingstímanum hefur aukist
um 4,8%, stýrivextir lækkað
úr 4,5% í aðeins 1% og stjórn-
völd staðið við sitt að mestu,
nema það að leggja bann við
verðtryggðum lánum til 40
ára.
„Það er okkar mat að það
sé best fyrir efnahagslífið að
standa við samninga og
halda friði á vinnumarkaði,“
sagði Drífa í samtali við
mbl.is í gær.
Friður fáist
með efnd
samninga
Drífa
Snædal