Morgunblaðið - 25.09.2020, Page 35
HANDBOLTINN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Afturelding er áfram ósigruð í úr-
valsdeild karla í handknattleik, Ol-
ísdeildinni, en liðið vann sterkan
tveggja marka sigur gegn Selfossi
á Varmá í Mosfellsbæ í 3. umferð
deildarinnar í gær.
Leiknum lauk með 26:24-sigri
Aftureldingar sem náði mest fimm
marka forskoti í fyrri hálfleik,
11:6, en Arnór Freyr Stefánsson
var afar drjúgur í marki Aftureld-
ingar í hálfleiknum og varði þrjú
vítaköst.
Selfyssinum tókst að laga stöð-
una undir lok fyrri hálfleiks og
Afturelding leiddi með þremur
mörkum í hálfleik, 14:11.
Selfyssingar byrjuðu seinni hálf-
leikinn af krafti og tókst að jafna
metin í 16:16. Afturelding rankaði
við sér eftir þetta, náði þriggja
marka forskoti, 22:19, og hleypti
Selfyssingum ekki nálægt sér aft-
ur.
Guðmundur Árni Ólafsson og
Úlfar Monsi Þórðarson voru
markahæstir í liði Mosfellinga með
fimm mörk hvor og þá varði Arnór
Freyr tólf skot í markinu.
Guðmundur Hólmar Helgason
var atkvæðamestur Selfyssinga
með átta mörk og Vilius Rasimas
varði sextán skot í marki Selfyss-
inga, þar af þrjú vítaköst.
Þórsarar unnu botnslaginn
FH vann sinn annan leik í röð í
deildinni þegar Fram kom í heim-
sókn í Kaplakrika í Hafnarfirði en
leiknum lauk með 28:22-sigri Hafn-
firðinga.
FH leiddi með fimm mörkum í
hálfleik, 15:10, en Framarar byrj-
uðu síðari hálfleikinn ágætlega og
tókst að minnka muninn í tvö mörk.
Lengra komust þeir hins vegar
ekki og FH fagnaði öruggum sigri í
leikslok.
Ásbjörn Friðriksson var
atkvæðamestur Hafnfirðinga með
sex mörk en Phil Döhler varði
þrettán skot.
Vilhelm Poulsen skoraði átta
mörk fyrir Framara og Lárus
Helgi Ólafsson var með fimmtán
skot varin.
Þá átti Ihor Kopysjynskyi stór-
leik fyrir Þórsara þegar liðið heim-
sótti ÍR í botnslag deildarinnar í
Austurberg í Breiðholti.
Leiknum lauk með 26:21-sigri
Þórsara en Kopyshynskyi skoraði
tíu mörk í leiknum, þar af þrjú úr
vítaköstum.
Liðin skiptust á að skora í fyrri
hálfleik en þegar fimm mínútur
voru til leiksloka leiddi Þór með
þremur mörkum, 22:19. Þórsarar
skoruðu þá þrjú mörk í röð og
gerðu þannig út um leikinn.
Valþór Atli Garðarsson skoraði
fimm mörk fyrir Þórsara og Jovan
Kukobat varði fimm skot.
Hrannar Ingi Jóhannsson var
markahæstur ÍR-inga með átta
mörk og Óðinn Sigurðsson var með
sex skot varin.
Mosfellingar komnir á toppinn
FH-ingar höfðu betur gegn ólseigum
Frömurum Þórsarar lögðu ÍR-inga
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kaplakriki FH-ingurinn Ásbjörn Friðriksson stöðvar Framarann Vilhelm
Poulsen. Þeir voru markahæstu leikmenn liðanna í gærkvöld.
ÍÞRÓTTIR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2020
Mary Vignola, leikmaður Þróttar úr
Reykjavík, mun leika með Íslandsmeist-
urum Vals í úrvalsdeild kvenna í knatt-
spyrnu, Pepsi Max-deildinni, á næstu
leiktíð en þetta staðfesti Nik Cham-
berlain, þjálfari Þróttar, við mbl.is í
gærkvöld. Vignola mun fylla skarðið
sem Hallbera Guðný Gísladóttir skilur
eftir sig en íslenska landsliðskonan er á
leið í nám til Svíþjóðar eftir áramót og
mun því að öllum líkindum ekkert spila
með Valsliðinu næsta sumar. Vignola,
sem er 22 ára gömul, gekk til liðs við
Þróttara frá Tennessee-háskólanum í
Bandaríkjunum fyrir þetta tímabil.
Kristján Leifur Sverrisson, sem leik-
ið hefur með Haukum í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik, er genginn í raðir
Breiðabliks. Kristján er 24 ára og var
nokkuð áberandi í liði Hauka fyrir
nokkrum árum en var hins vegar ekki
með á síðasta tímabili. Kristján er af
miklu körfuboltakyni en systur hans
Helena og Guðbjörg leika með Val.
Gabríel Sindri Möller er einnig kominn
til Blika en hann var í Bandaríkjunum
síðasta vetur. Gabríel er 21 árs og fékk
sitt körfuboltauppeldi í Njarðvík en hef-
ur einnig leikið með Hamri og Skalla-
grími.
Bandaríski körfuknattleiksmaðurinn
Eric Wise snýr aftur til Grindvíkinga
sem hafa samið við hann um að leika
með þeim í vetur. Hann kemur í staðinn
fyrir Brandon Conley sem var á leið til
Grindavíkur en varð að hætta við vegna
veikinda. Wise spilaði fimm leiki með
Grindavík árið 2015 þar sem hann var
að meðaltali með 26 stig og 10 fráköst í
leik. Hann er þrítugur framherji og lék
síðast með Munkkiniemen í finnsku B-
deildinni.
Sænski knattspyrnumaðurinn Zlat-
an Ibrahimovic greindist með kórónu-
veiruna í gær og var sendur í ein-
angrun. Hann missti þar með af því að
spila með AC Milan gegn Alfonsi Sam-
psted og samherjum
í Bodö/Glimt í Evr-
ópudeildinni á San
Siro í Mílanó í
gærkvöld. Einn
leikmanna AC
Milan hafði
greinst með
smit og lið-
ið fór því
allt í skim-
un í fyrra-
dag. Þar
reyndist
Zlatan sá
eini sem
greindist
jákvæður
fyrir veirunni.
Eitt
ogannað
Keflvíkingar eru einum sigurleik
frá því að endurheimta sæti sitt í
úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu
eftir sigur á Haukum, 1:0, í lykilleik
toppbaráttu 1. deildarinnar á
heimavelli sínum í gærkvöld. Paula
Germino-Watnick skoraði sigur-
markið á lokamínútu fyrri hálf-
leiks. Keflavík er því með sjö stiga
forskot á Hauka, sem eru í þriðja
sæti, þegar þrjár umferðir eru eft-
ir. Keflavík á eftir að mæta Víkingi
og Gróttu, og svo Haukum aftur í
lokaumferðinni, og nægir einn sig-
ur enn.
Keflavík þarf bara
einn sigur enn
Morgunblaðið/Hari
Keflavík Natasha Anasi og sam-
herjar eru á leið í efstu deild.
Liverpool og Manchester City kom-
ust bæði í sextán liða úrslit enska
deildabikarsins í knattspyrnu í
gærkvöld. Liverpool fór auðveldari
leið og vann C-deildarlið Lincoln,
7:2. Takumi Minamino og Curtis
Jones skoruðu tvö mörk hvor,
Xherdan Shaqiri, Marko Grujic og
Divock Origi eitt hver.
City þurfti að hafa meira fyrir
því að vinna B-deildarlið Bourne-
mouth á heimavelli, 2:1. Liam Del-
ap kom City yfir, Sam Sturridge
jafnaði, en Íslandsvinurinn Phil
Foden skoraði sigurmark City.
Stórliðin sigldu
áfram í bikarnum
AFP
Skoraði Phil Foden fagnar sig-
urmarkinu í gærkvöld.
Evrópu- og Þýskalandsmeistarar
Bayern München bættu enn einum
titlinum í safnið í gærkvöld þegar
þeir sigruðu Evrópudeildarmeist-
ara Sevilla frá Spáni, 2:1, í fram-
lengdum leik um Meistarabikar
Evrópu í Búdapest.
Spánverjarnir komust yfir þeg-
ar Lucas Ocampos skoraði úr víta-
spyrnu á 13. mínútu en Leon Gor-
etzka jafnaði fyrir Bayern á 34.
mínútu eftir sendingu frá Robert
Lewandowski.
Staðan var 1:1 eftir venjulegan
leiktíma en undir lok fyrri hálf-
leiks framlengingarinnar skoraði
Javier Martínez sigurmark Bay-
ern, 2:1.
Leikið var frammi fyrir 20 þús-
und áhorfendum á Puskas Arena.
AFP
Sigursælir Leikmenn Bayern fagna eftir sigurinn í Búdapest í gærkvöld.
Bayern er líka meist-
ari meistaranna
Norrænu Íslendingaliðin FC Köb-
enhavn, Malmö og Rosenborg eiga
öll fyrir höndum heimaleiki í um-
spilinu um sæti í riðlakeppni Evr-
ópudeildarinnar í fótbolta eftir
góða heimasigra í 3. umferðinni í
gærkvöld.
Malmö, lið Arnórs Ingva
Traustasonar, burstaði Lokomo-
tiva Zagreb frá Króatíu, 5:0, og
fær Granada frá Spáni í heim-
sókn.
Rosenborg, lið Hólmars Arnar
Eyjólfssonar, vann Alanyaspor frá
Tyrklandi 1:0 og fær hollenska
stórliðið PSV Eindhoven í heim-
sókn til Þrándheims.
FC Köbenhavn, lið Ragnars
Sigurðssonar, skellti Piast Gliwice
frá Póllandi, 3:0, á Parken og leik-
ur þar gegn Rijeka frá Króatíu.
Magnaður sigur Færeyinga
Óvæntustu úrslit 3. umferð-
arinnar í gærkvöld eru stórsigur
færeyska liðsins KÍ frá Klaksvík á
Dinamo Tbilisi frá Georgíu, 6:1, í
Þórshöfn. Færeyingarnir fara til
Írlands og mæta Dundalk í leik
um sæti í riðlakeppninni.
Tottenham slapp áfram með
3:1-sigri á Shkëndija í Norður-
Makedóníu og fær heimaleik gegn
Maccabi Haifa frá Ísrael.
Gamla stórveldið AC Milan
marði heimasigur á Alfonsi Sam-
psted og félögum í Bodö/Glimt frá
Noregi, 3:2, og mætir Rio Ave í
Portúgal í umspilinu.
Celtic og Flora Tallinn, liðin
sem unnu KR, eru bæði komin í
umspilið. Flora mætir Dinamo
Zagreb á útivelli (það hefði verið
verkefni KR) og Celtic mætir Sa-
rajevo á útivelli. vs@mbl.is
Íslendingaliðin fá
umspil á heimavelli
AFP
Áfram Leikmenn Tottenham fagna
marki í Norður-Makedóníu.
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin:
Meistaravellir: KR – Stjarnan ............ 16.15
1. deild karla, Lengjudeildin:
Olísvöllur: Vestri – Keflavík ................ 16.15
3. deild karla:
Þorlákshafnarvöllur: Ægir – KV ........ 16.30
Fylkisvöllur: Elliði – Tindastóll ............... 19
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin:
TM-höllin: Stjarnan – HK ................... 17.45
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
TM-höllin: Stjarnan – Haukar ............ 20.30
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Víkin: Víkingur – ÍR............................. 18.45
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Hertz-höll: Kría – Hörður.................... 20.30
Í KVÖLD!