Morgunblaðið - 30.09.2020, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 30.09.2020, Qupperneq 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 2020 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt Húsviðhald Hreinsa þakrennur fyrir veturinn, og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Raðauglýsingar Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum. Skammbeinsstaðir 1D, Rangárþingi ytra, deiliskipulag Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 10.9.2020 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Skammbeinsstaðir 1D. Heildarstærð skipulagssvæðis er um 12 ha. Gert er ráð fyrir að byggja íbúðarhús, gestahús og skemmu. Aðkoma að skipulagssvæðinu er frá Hagabraut (nr. 286). Svínhagi SH-20, Rangárþingi ytra, deiliskipulag (Endurauglýsing) Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 25.7.2019 að auglýsa tillögu að deiliskipula- gi fyrir Svínhaga SH-20. Tillagan tekur til byggingarreita þar sem heimilt verður að byggja íbúðarhús, frístundahús / gestahús og gróðurhús/geymslu. Aðkoma að skipulagssvæðinu er frá Þingskálavegi (268). Tillagan er hér endurauglýst vegna tímaákvæðis í skipulagslögum. Tillögurnar liggja frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 11. nóvember 2020 Har. Birgir Haraldsson Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra RANGÁRÞING YTRA Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 8.30-12.30, nóg pláss. Stólaleik- fimi í Hreyfisal kl. 10. Jóga 60+ með Grétu kl. 12.15 og 13.30. Söng- stund við píanóið, með Helgu kl. 13.45. Kaffi kl. 14.30-15. Bóka-spjall kl. 15. Nánari uppl. í 411-2702. Við minnum jafnframt alla gesti á að virða þær reglur og fjarlægðartakmörk sem gilda vegna Covid 19, en eins og við þekkjum geta þær breyst með stuttum fyrirvara. Árbæjarkirkja Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12 og léttur hádegisverður á eftir gegn vægu gjaldi. Opið hús, félagsstarf fullorðinna í safnaðar- heimilinu kl. 13 til 16: Alda María mætir með stólaleikfimi og Brynja Baldursdóttir fjallar um karla í Njálu. Kaffi og með því á eftir í boði kirkjunnar. Allir hjartanlega velkomnir. Árskógar Opin vinnustofa kl. 9-12. Opin smíðastofa kl. 9-15. Stóla- dans með Þóreyju kl. 10.30. Spænskukennsla kl. 14. Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.55. Innipútt Skógarmanna kl. 13-14. Spænsku- kennsla kl. 14. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni, allir velkomnir. S. 411-2600. Boðinn Hádegismatur kl. 11.20-12.30. Handavinnustofa opin frá kl. 12.30-16. Miðdagskaffi kl. 14.30-15.30. Alltaf heitt á könnunni og allir velkomnir. Bólstaðarhlíð 43 Morgunkaffi í handavinnustofu kl. 10. Námskeið í tálgun kl. 9.15-11.45. Volare heilsu- og snyrtivörur til sölu frá kl. 11.30- 15. Spiladagur, frjáls spilamennska kl. 12.30-15.50. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15. Breiðholtskirkja Félagsstarf eldri borgara í Breiðholtskirkju ,,Maður er manns gaman" er alla miðvikudaga kl. 13.15. Byrjum kl. 12 með kyrrðarstund og eftir hana er súpa og brauð. Hjartanlega velkomin. Bústaðakirkja Félagsstarfið á sínum stað á miðvikudögum kl. 13-16. Spil, handavinna, upplestur, hugleiðing og bæn. Ung og upprennandi söngkona, Katrín Eir Óðinsdóttir, syngur fyrir okkur yfir kaffibollanum. Hlökkum til að sjá ykkur, starfsfólk Fossvogsprestakalls. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi, spjall og blöðin við hring- borðið kl. 8.10-11. ATHUGIÐ BREYTTUR OPNUNARTÍMI: Upplestrar- hópur Soffíu kl. 10-12. Línudans kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30- 12.30. Tálgun með Valdóri kl. 13-15.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Allir velkomnir óháð aldri og búsetu. Nánari uppl. í síma 411-2790. Garðabær Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11, grímuskylda. Leir í Smiðju kl. 13. Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16.30 og 17.15. Gerðuberg 3-5 Kl. 8.30-16 opin handavinnustofa. Kl. 9-12 útskurður með leiðbeinanda (Grænagróf). Kl. 11 leikfimi Helgu (Háholt). Kl. 12.30-15 Döff félag heyrnalausra (Lágholt). Kl. 13-16 útskurður pappa- módel með leiðbeinanda. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 13 postulínsmálun, heitt á könnunni kl. 9 til 16. Gullsmári Myndlist kl. 9. Postulínsmálun og silfursmíði kl. 13. Línu- dans kl. 14. Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Útskurður og tálgun með leiðbeinanda frá kl. 9-12, 500 kr. dagurinn, allir velkomnir. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Dansleikfimi kl. 13-13.45. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Framhaldssaga kl. 10.30. Handavinnuhópur kl. 13-16. Korpúlfar Glerlistanámskeið með Fríðu hefst á ný í dag, kl. 9, full- bókað en laust á næsta námskeið í glerlist miðvikudaginn 28. októ- ber. Lagt af stað í haustferðina um Suðurstrandir stundvíslega kl. 9 frá Borgum, áætluð heimkoma kl. 16.30, Emil fararstjóri. Gönguhópar kl. 10 gengið frá Borgum og inni í Egilshöll. Keila í Egilshöll kl. 10, allir velkomnir. Qigong með Þóru Halldórsd. kl. 16.30 í Borgum. Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag er postulínsmálun í handverks- stofu milli kl. 9-12. Bókband verður á sínum stað fyrir hádegi, kl. 9-13 og eftir hádegi, kl. 13-17. Þá hlustum við saman á hlaðvarp í hand- verksstofu kl. 13.30. Verið velkomin til okkar á Lindargötu 59. Við minnum á að fara eftir sóttvarnarreglum og virða fjarlægðarmörk. Seltjarnarnes Gler og bræðsla kl. 9 og 13. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12. Timburmenn í Valhúsaskóla kl. 13. Handavinna, samvera og kaffi í salnum á Skólabraut kl. 13. Af gefnu tilefni; við höldum ítrustu sóttvörnum. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30-12.15, panta þarf matinn daginn áður. Handavinnuhópur hitt- ist kl. 13. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30-15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586. Vantar þig fagmann? FINNA.is mbl.is alltaf - allstaðar fasteignir Í dag kveðjum við hvunndagshetjuna og baráttujaxlinn hana Ólöfu frænku okkar. Frá fæðingu fékk Ólöf að hafa fyrir lífinu, en skapfestan og lífsviljinn sem einkenndu hana hjálpuðu henni að vinna hverja baráttuna á fætur ann- arri. Það sem heftir þroska þinn efldi minn Allt sem þú gafst mér: þú kynntir mig Sorginni og Voninni og kenndir mér að ekkert er sjálfsagt (Þórarinn Eldjárn) Það er nákvæmlega það sem Ólöf kenndi okkur, að ekkert er sjálfsagt, hvorki heilsa né öll kraftaverkin sem felast í þroska barns sem lærir að beita líkama sínum og tjá sig að vild. Við þurf- um að minna okkur á að slíkt er ekki sjálfsagt og líka læra að þakka fyrir allar litlu og hvers- dagslegu stundirnar sem eru svo verðmætar. Ólöf kunni að njóta þeirra, njóta góðu daganna með fólkið sitt í kringum sig. Fólkið sitt, sem var samhenta kjarna- fjölskyldan, sambýlisfólk og allir þessir yndislegu umönnunaraðil- ar sem hafa auðgað líf hennar frá því hún var lítil. Ólöf hélt alltaf veglega upp á afmælið sitt og fagnaði þannig lífinu. Hún bauð þá öllu fólkinu sínu til veislu og toppaði hún þessi veisluhöld fyrir ári, í sept- ember, þegar hún hélt upp á þrítugsafmælið sitt, það var stór sigur og heljarinnar fjör. Það er ekki tilviljun að elsku Gyða og Bjarni voru foreldrar hennar, almættið vissi hverjir Ólöf Bjarnadóttir ✝ Ólöf Bjarna-dóttir fæddist 21. september 1989. Hún lést 15. sept- ember 2020. Útför Ólafar fór fram 24. september 2020. væru bestir í þetta stóra hlutverk, þau voru sverð hennar og skjöldur. Þá var hún Ólöf mín hepp- in með bræður, Níels og Óskar, sem oft færðu fórn- ir fyrir systur sína, en jafnframt mót- aði hún þá og á sitt í mannkostum þeirra. Ólöf fæddist 21. september og á blaðsíðu 21 í Ljóðabók Árna Grétars Finnssonar September- rós er að finna eftirfarandi ljóð sem einnig ber heitið Septem- berrós: September og ennþá springur út ein stök rós, þó farið sé að hríma, rétt eins og hún þá bera flestir blóm en bara oft á röngum stað og tíma. Við syrgjum fallegu hetjuna okkar, en trúum því um leið að nú sé hún frjáls, laus úr viðjum líkamans. Minningin lifir um sterkan persónuleika og baráttu- jaxl. Hildur og Ingigerður Einarsdætur. Elsku Ólöf, þá er kominn tími til að kveðjast í síðasta sinn. Við systkinin viljum þakka þér fyrir allar stundirnar sem við eyddum saman í faðmi fjölskyld- unnar. Þú kenndir okkur í verki hvernig skal sýna baráttuvilja og þrautseigju. Hvíldu í friði elsku frænka, minningin um þig mun lifa í hjörtum okkar. Ég held ég skynji hug þinn allan hjartasláttinn rósin mín. Er kristallstærir daggardropar drjúpa milt á blöðin þín. Finna hjá þér ást og unað yndislega rósin mín. Eitt er það sem aldrei gleymist, aldrei það er minning þín. (GGH) Einar Sveinsson, Ester Inga Sveinsdóttir og Ragnheiður Sveinsdóttir. Ég á margar minningar tengdar ömmu. Svo margar. Allar góðar. Amma var með einstaka sýn á lífið og til- veruna. Henni þótti svo vænt um fólkið sitt og við vissum það. Fangið hennar var alltaf opið og alltaf tími fyrir faðmlög. Einhvernveginn gat hún allt og allt sem hún gerði gerði hún vel. Hún bakaði besta bakkelsið, prjónaði fallegustu flíkurnar, poppaði besta poppið og gaf bestu knúsin. Svona gæti ég hald- ið endalaust áfram. Ein af mínum fyrstu minning- um er úr eldhúsinu í Árhvammi. Ég var t.d. fljót að læra hvar amma geymdi rúsínurnar og laumaðist gjarnan í þær. Amma kallaði mig gjarnan „litlu músina sína“. Ég kynnti mig líka oft þannig. Úr forstofunni, þegar ég kom í heimsókn, kallaði ég oft inn og lét hana vita að þetta væri bara litla músin hennar að koma. Einu sinni þegar ég var lítil, kannski svona 4 ára, hringdi sím- inn í Árhvammi, ég stökk til og svaraði. Konan á hinum endanum Jenný Júlíusdóttir ✝ Jenný Júl-íusdóttir fædd- ist 14. mars 1934. Hún lést 9. sept- ember 2020. Útför Jennýjar fór fram 18. sept- ember 2020. á línunni spurði hver þetta væri og ég kynnti mig óhik- að að þetta væri litla músin hennar ömmu. Þetta atvik rifj- uðum við amma reglulega upp. Elsku amma. Ég veit ekki hvernig hægt er að koma orðum að tilfinning- unum sem eru búnar að berjast um í mér síðustu daga og vikur. Það er svo sárt og erfitt að kveðja en á sama tíma er mér létt að vita af því að baráttan er yfirstaðin. Þú barðist hetjulega eins og við var að búast. Ég er svo þakk- lát fyrir allan tímann sem ég fékk með þér, allt sem ég fékk að læra af þér og tímann með þér núna síðustu dagana geymi ég að eilífu. Þakklát fyrir að fá að halda í höndina á þér og söngla aðeins fyrir þig. Hvers vegna þetta lag veit ég ekki. Svo lít ég upp og ég sé við erum saman þarna tvær stjörnur á blárri festingunni sem fær- ast nær og nær. Ég man þig þegar augu mín eru opin hverja stund en þegar ég nú legg þau aftur fer ég á þinn fund. (Megas) Elsku amma, takk fyrir allt. Jenný Dögg Heiðarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.