Morgunblaðið - 30.09.2020, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 30.09.2020, Qupperneq 25
MENNING 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 2020 SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI AÐRAR MYNDIR Í SÝNINGU: * Harry Potter * Hvolpasveitin (ísl. tal) * The Secret : Dare to dream * The New Mutants SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Frábær ný teiknimynd fyrir alla fjölskylduna. FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS Nýjasta Meistaraverk Christopher Nolan ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ The Guardian The Times The Telegraph Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is AF LISTUM Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Leikhópurinn LalaLab frum-sýndi fyrr í þessum mánuði íTjarnarbíói fjölskyldusýn- inguna Tréð eftir Agnesi Wild og Söru Martí Guðmundsdóttur í leik- stjórn höfunda. Sýningin, sem er hluti af Listahátíð í Reykjavík 2020, var upphaflega á dagskrá í vor en frestaðist vegna kórónuveirufarald- ursins sem nú gengur yfir heims- byggðina og sett hefur daglegt líf margra úr skorðum. Í upphafi verks kynnumst við drengnum Alex og fjölskyldu hans sem býr í ónefndu landi þar sem auð- veldlega má rækta sítrónur úti við. Í heimilisgarðinum stendur sítrónutré sem fylgt hefur fjölskyldunni í marg- ar kynslóðir og veitt henni mikil- væga næringu. Eftir stutta kynn- ingu kemur heilmikill jarðskjálfti sem jafnar heimili fjölskyldunnar við jörðu og skilur Alex eftir einan og yfirgefinn, en hann var einn úti í garði þegar skjálftinn gekk yfir og bjargaðist því. Grein af sítrónutré fjölskyldunnar er það eina sem hann hefur með sér þegar hjálparsveit bjargar honum. Fyrsti viðkomustað- urinn er í hjálparbúðum í miðri eyði- mörk. Fljótlega kemst Alex að því að afleggjarinn hans þrífst ekki í þeim jarðvegi og veðurfari sem þar ríkir. Til að bjarga sítrónutrénu sínu legg- ur hann því upp í leiðangur með við- komu í stórborginni og myrkum skógi áður en hann loks finnur sama- stað þar sem tréð er fært um að skjóta rótum og blómstra á ný, drengnum til mikillar ánægju. Auðvelt er að sjá afleggjara sítrónutrésins sem myndlíkingu fyrir menninguna, fortíðina og sög- una í heimalandi Alex sem hann vill fyrir engan mun glata. Drengurinn hefur eðlilega þörf fyrir að rækta tengslin við uppruna sinn, enda eru þeir sem þekkja fortíðina og skilja nútímann öðrum hæfari til að skapa framtíðina, eins og Gunnar Dal heimspekingur og skáld komst að orði. Höfundar verksins vinna vel með ótta Alex og áhyggjur þar sem hann spyr sig iðulega spurninga sem byrja á „Hvað ef …?“ og ímyndar sér auðveldlega allt hið versta þegar ekki nýtur leiðsagnar og umhyggju full- orðins einstaklings sem lætur sér annt um velferð hans. Sýningin Tréð er ekki aðeins sögð með hefðbundnum meðölum leikhúss- ins heldur leika útklipptar teikni- myndir úr smiðju Elínar Elísabetar Einarsdóttur stórt hlutverk í útfærsl- unni. Myndir Elínar eru tjáningar- ríkar í einfaldleika sínum og dúkku- lísur persóna njóta sín vel í samspili við módelleikmyndina. Leikararnir Kjartan Darri Kristjánsson og Elísabet Skagfjörð miðla sögunni með hjálp um 200 úrklippna sem þau setja inn fyrir framan myndavél og er myndefninu varpað upp á stóran skjá. Útfærslan minnir um margt á teikni- mynd, ekki síst þar sem stór hluti sögunnar er fyrirfram upptekinn og spilaður í hljóðkerfi salarins. Þar mæðir mest á Óðni Benjamin Munthe sem ljær Alex rödd sína með fram- úrskarandi hætti og tekst að miðla bæði gleði og sorg með áhrifaríkum hætti. Stór hópur leikara talar fyrir persónur verksins og gerir það mjög vel. Hljóðmynd Stefáns Arnar Gunn- laugssonar var sérlega vel heppnuð og tónlist Sóleyjar Stefánsdóttur, sem hún flutti sjálf á sviðinu, þjónaði stemningu verksins vel. Leikmynd Evu Bjargar Harðardóttur og lýsing Inga Bekk og Kjartans Darra mynd- uðu einnig góðan ramma um söguna. Reglulega var teiknimyndin á skjánum brotin upp með leiknum sen- um á sviðinu þar sem Kristján Darri var í hlutverki Alex og Elísabet túlk- aði Mónu, systur hans. Bæði fóru þau vel með hlutverk sín. Á sama tíma var þeim nokkur vorkunn að þurfa að keppa við skjáinn sem miðil, því eðli málsins samkvæmt er skjárinn mun frekari á athygli. Eftir stendur samt að Tréð er metnaðarfull og falleg sýning þar sem sjónum er beint að stöðu flóttabarna sem eru sérlega viðkvæmur hópur. Stuttu eftir frumsýninguna vorum við minnt á hversu krefjandi og hættu- legar aðstæður barna á flótta eru þeg- ar sex manna fjölskylda fór í felur af ótta við hvað biði þeirra væru þau send til heimalands síns. Þau hafa nú fengið dvalarleyfi hérlendis á grund- velli mannúðarsjónarmiða og geta vonandi hlúð að sínu sítrónutré á sama tíma og þau halda áfram að aðlagast íslensku samfélagi og auðga það. Hvað ef …? Vörpun „Reglulega var teiknimyndin á skjánum brotin upp með leiknum senum á sviðinu,“ segir í rýni um Tréð. Meira en 5.000 manns, og þar á meðal menntamálaráðherra Frakka, hafa undirritað áskorun til Macrons Frakklandsforseta þess efnis að hann láti færa jarðneskar leifar skáldanna Pauls Verlaines (1844-1896) og Arthurs Rimbauds (1854-1891) í heiðursgrafreitinn í Panthéon í París. Félagarnir teljast meðal merkustu skálda síns tíma og voru elskendur um skeið en sam- bandið endaði er Verlain skaut á Rimbaud og sat inni fyrir það í tvö ár. Skoðanir eru afar skiptar um það hvort flytja eigi líkamsleifar skáldanna og eru ættingjar þeirra til að mynda á móti því. Skáldbræður Paul Verlain og Arthur Rim- baud meðan allt lék í lyndi í sambandinu. Vilja fá skáldin flutt í Panthéon Í bókakaffi Borg- arbókasafnsins í Gerðubergi í kvöld, miðviku- dagskvöld, kl. 20 munu Chanel Björk Sturludótt- ir, Jelena Ciric og Mars Proppé ræða um bók- menntir í póli- tísku samhengi. Í tilkynningu segir að í kjölfar Black Lives Matter-byltingarinnar hafi stóraukist sala á bókum sem fjalla um kynþáttafordóma. Í því sambandi verður velt upp spurn- ingum eins og hvort nóg sé að lesa bara bók? Og hvaða bók á þá að lesa? Hver er munurinn á fræðibók- um í þessu samhengi, ævisögum og skáldsögum höfunda sem tilheyra jaðarhópum? Bókmenntir í póli- tísku samhengi Chanel Björk Sturludóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.