Morgunblaðið - 01.10.2020, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 1. O K T Ó B E R 2 0 2 0
Stofnað 1913 231. tölublað 108. árgangur
25%
AFSLÁTTUR
AF HEILSU- OG
LÍFSSTÍLSVÖRU
M
ALLT AÐHEILSU- OG LÍFSSTÍLSDAGAR
24. SEPTEMBER - 4. OKTÓBER
OFURTILBOÐá hverjum degi!
Kynntu þér öll
frábæru tilboðin í
Heilsublaði Nettó!
NÝSKÖPUN MUN
DRÍFA ÁFRAM
HAGVÖXT KONUR SÆKJA FRAM
NÝTT LEIKRIT
FRUMSÝNT
Á FÖSTUDAG
KYNJAHLUTFÖLL PRESTA 20 MORÐGÁTA 52IÐNÞING 16 SÍÐUR
Andrés Magnússon
Karl Blöndal
Listi yfir 411 Íslendinga, sem koma fyrir í
gagnasafni kínverska fyrirtækisins Zhenhua,
er birtur í Morgunblaðinu í dag. Þar má finna
fjölda nafna áhrifafólks í íslensku þjóðfélagi,
en einnig barna þeirra, maka og skyldmenna
annarra.
Þar má finna töluvert af stjórnmálafólki,
núverandi og fyrrverandi, starfsmönnum
utanríkisþjónustu og annarrar stjórnsýslu,
auk margs fólks úr atvinnu- og viðskiptalífi,
ekki síst það sem átt hefur í einhverjum
tengslum við Kína. Þá má greina sérstakan
áhuga á réttvísinni, bæði dómurum og lög-
reglu, en eins er talsvert þar um fjölmiðla-
fólk.
Talið er að þessi 411 nöfn séu ekki nema
brot af þeim Íslendingum, sem safnað hefur
verið upplýsingum um, hugsanlega um 10%.
Þannig má t.d. ráða að eftir eigi að koma í
ljós upplýsingar um tiltekna einstaklinga, þar
sem sjá má nöfn barna þeirra eða maka með-
al þeirra nafna, sem þegar hafa komið í ljós.
Ekki verður séð að um Íslendinga hafi verið
safnað öðru en opinberum upplýsingum.
Gagnalekinn hefur vakið gríðarlega athygli
um heim allan, enda er talið að í fórum kín-
verska fyrirtækisins séu persónuupplýsingar
um 2,4 milljónir manna í nær öllum ríkjum
heims.
Óljóst er um tilgang þessarar yfirgrips-
miklu gagnasöfnunar, en fyrirtækið Zhenhua
Data gumar af því að kínversk stjórnvöld,
herinn og ámóta stofnanir séu meðal helstu
viðskiptavina sinna.
Sködduðu öryggisafriti af gagnagrunni var
lekið til bandarísks fræðimanns, sem kom því
áleiðis til ástralsks netöryggisfyrirtækis, sem
fengist hefur við að dirka upp upplýsingar úr
grunninum. Í samtali við Morgunblaðið, sem
birt er í dag, sagði Robert Potter fram-
kvæmdastjóri þess, að hann teldi ósennilegt
að það tækist að endurheimta allan grunninn,
en vel mætti vera að fleiri færslur kæmu upp
úr krafsinu.
411 ÍSLENDINGAR Á SKRÁ
Zhenhua-gagnalekinn inniheldur mögulega nöfn um 4.000 Íslendinga
Nafnalisti 411 Íslendinga í gögnunum birtur í Morgunblaðinu í dag
Íslendingar Þegar hefur tekist að finna 411 færslur um Íslendinga í Zhenhua-gagnalekanum, þar á meðal þau 40, sem hér sjást að ofan. Nafnalistann
má finna á síðum 18 og 19, en talið er að hugsanlega hafi verið safnað þar persónuupplýsingum um fjögur þúsund Íslendinga í óljósum tilgangi.
Zhenhua-gagnaleikinn
» Gagnagrunni með persónuupplýs-
ingum um 2,4 milljónir manna var lekið
frá Kína.
» Kínverska fyrirtækið Zhenhua Data
safnaði þeim saman í óljósum tilgangi,
en meðal helstu viðskiptavina eru kín-
versk stjórnvöld, her og njósnastofnanir.
» Flestar upplýsingarnar, ekki þó allar,
hafa verið fundnar hér og þar á netinu og
settar saman.
M Íslendingar á nafnalista »18-19
Bók Ragnars Jónassonar,
Mistur, er á toppi metsölu-
lista Der Spiegel þessa vik-
una sem mest selda kiljan í
Þýskalandi. Fyrr í sumar
hafa bækur hans Dimma og
Drungi verið í 2. og 3. sæti á
listanum. Enginn íslenskur
höfundur mun áður hafa
verið í efsta sæti metsölu-
listans, en listi Spiegel mæl-
ir sölu á yfir 4.200 útsölu-
stöðum víðs vegar í Þýskalandi.
„Það er algerlega óraunverulegt að sjá ís-
lenska bók á toppnum á metsölulista í 80 millj-
ón manna þjóðfélagi. Ég bjóst ekki við að það
væri hægt og bæði ég og útgefendur mínir er-
um í smááfalli,“ sagði Ragnar í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Bækur Ragnars hafa verið þýddar á um 30
tungumál og samið um rétt á útgáfu þeirra í
um 40 löndum. Frakkland hefur til þessa verið
stærsti markaðurinn fyrir bækur Ragnars, en
miðað við velgengnina í Þýskalandi í sumar
gæti sá markaður fljótlega siglt fram úr
Frakklandi. »2
Í efsta sæti
metsölulistans
í Þýskalandi
Ragnar
Jónasson
„Óraunverulegt að sjá
íslenska bók á toppnum“
Alþingi, hið 151. í röðinni, verður sett í dag
með hefðbundinni dagskrá. Undantekningin
er þó að færri gestum er boðið til þingsetn-
ingar vegna sóttvarnareglna almannavarna.
Viðmælendur blaðsins á þingi segja að fjár-
lögin og efnahagsaðgerðir stjórnvalda vegna
kórónuveirunnar verði stóra málið við upp-
haf þingsins. Katrín Jakobsdóttir forsætis-
ráðherra flytur stefnuræðu sína í kvöld. Í
samtali við Morgunblaðið segist Katrín síður
eiga von á mikilli andstöðu við aðgerðirnar.
Hún vonast einnig eftir breiðri sátt um að
taka breytingar á stjórnarskránni til af-
greiðslu á þinginu. »6
Vonast eftir samstöðu um
stjórnarskrárbreytingar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Alþingi Allt gert klárt í gær fyrir þingsetninguna.