Morgunblaðið - 01.10.2020, Blaðsíða 48
48 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2020
Mikilvægi C-vítamíns er óumdeilt, en C-vítamín er m.a. þekkt fyrir
að stuðla að eðlilegri starfsemi ónæmis- og taugakerfis ásamt
því að draga úr þreytu og lúa.
Óhætt að nota á meðgöngu og meðan á brjóstagjöf stendur.
Bragðgóður munnúði með náttúrulegt kirsuberja- og bláberja bragði.
C-vítamín munnúði ásamt andoxunarefnum frá acerola ávöxtnum,
B2 vítamíni, seleni og grænu tei.
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna.
C-vítamín
munnúði
NÝTT
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Deildu því sem þú veist og hvettu
þá sem vanir eru að liggja á sínu, til þess að
slaka aðeins á. Ekki láta það á þig fá þótt
það gangi á ýmsu í öllum lífsins ævintýrum.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er ekkert að því að leyfa barninu í
sér að njóta sín. Prófaðu að víkka út sjón-
deildarhringinn og lærðu eitthvað nýtt.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Óvænt tækifæri mun bjóðast þér
og það ríður á miklu að þú kunnir að bregð-
ast rétt við. Lukkan mun elta þig á röndum
næstu daga.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Einhver gæti beðið þig um skoðun
þína á einhvers konar hönnun í dag. Liggðu
ekki á skoðunum þínum en vertu nærgæt-
inn.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þetta er ekki góður dagur til þess að
skrifa undir samninga eða taka mikilvægar
ákvarðanir. Stígðu varlega til jarðar og
ígrundaðu málin vel áður en þú gerir nokk-
uð.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Öðrum kann að virðast erfitt að
fylgja þér eftir og finnast þú segja eitt í dag
og annað á morgun. Haltu þínu striki.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það muna reyna á samböndin í fjöl-
skyldunni og þú mátt hafa þig allan við til
þess að halda fólkinu saman. Reyndu að
sætta deiluaðila.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það að sækjast eftir stöðu
gerir hana raunverulega í þínum augum.
Leggðu hart að þér og þú munt uppskera
laun erfiðis þíns.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Dagdraumar eru góðir þegar
þeir eiga við en hversdagurinn er oft annar
og það er hann sem þú átt skoða.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Reyndu að sýna lipurð, þegar þú
vinnur málstað þínum framgang. Það má
vera að verkefnin þín séu ekki nógu
heillandi í þínum augum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Nú er rétti tíminn til þess að
gera langtímaáætlanir fyrir heimilið og
vinnuna. Einhver þér eldri og reyndari kann
að hjálpa þér í dag.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ættir kannski að endurskoða af-
stöðu þína til málefna sem tengjast heim-
ilinu og fjölskyldunni. Hvíldu þig aðeins á
hinum stranga dómara innra með þér.
B
enný Sif Ísleifsdóttir
fæddist á Egilsstöðum
en ólst upp á Eskifirði.
En þótt Benný tilheyrði
stórri fjölskyldu voru
sjaldnast allir heima. „Pabbi var skip-
stjóri á togurum, lengst af á Fá-
skrúðsfirði, og eldri systkini mín tínd-
ust til mennta eitt af öðru þar til að
lokum við mamma vorum einar eftir
þegar ég var tíu ára. Mínar glöðustu
stundir í æsku voru þegar systkini
mín komu í jóla- og sumarleyfi og
þegar pabbi kom í land, en að sama
skapi þótti mér erfitt að kveðja.“
Benný gekk í grunnskóla á Eski-
firði „Ég var í fámennum fyrirmynd-
arbekk sem kennarar slógust um að
fá að kenna og ég man enn nafna-
romsuna sem lesin var upp úr kladd-
anum á hverjum morgni. Það situr í
mér eins og gömul þula.“
Eins og margir krakkar af fjörð-
unum fór Benný í Alþýðuskólann á
Eiðum og var þar í tvö ár. Þar kunni
hún vel við sig og hefði glöð viljað
vera lengur en þar var ekki í boði
frekara nám og stúdentsprófi lauk
hún því frá Menntaskólanum á Egils-
stöðum.
„Ég innritaðist í uppeldisfræði við
Háskóla Íslands eftir stúdentspróf en
hitti ekki á rétta hillu og elti kærast-
ann minn og núverandi eiginmann til
Lancaster á Englandi þar sem hann
stundaði nám í markaðsfræði. Þar úti
lauk ég diplómunámi í Youth and
Community Studies.“
Eftir að þau komu frá Englandi
bjuggu þau í Reykjavík í nokkur ár
en fluttu austur í heimahagana vorið
1995, þá þriggja manna fjölskylda en
fljótlega voru dæturnar orðnar fjór-
ar. „Við vorum á Eskifirði í 11 góð ár
en fluttum í Kópavog haustið 2006 og
skömmu síðar fæddist sonur okkar.
Ég var lengi heimavinnandi, sá um
börn og bú. Mig hafði alltaf dreymt
um stóra fjölskyldu og gat ekki hugs-
að mér að börnin væru lengur en
hálfan daginn á leikskóla. Meðan við
bjuggum á Eskifirði var ég í fjarnámi
í hagnýtri íslensku og reyndar einnig
í söngnámi.“
Eftir að fjölskyldan flutti suður
settist Benný aftur á skólabekk og
kláraði bæði grunnnám og meistara-
nám í þjóðfræði við HÍ. „Þar hitti ég
jafn mikið á rétta hillu eins og ég hitti
á ranga í uppeldisfræðinni tuttugu
árum áður. Þjóðfræðin var eins og
réttur maður á réttum stað og við
smullum eins og ástfangið par. Loka-
ritgerðirnar mínar til BA- og MA-
prófs fjölluðu um ættarnöfn Ís-
lendinga út frá menningar-
pólitík og sjálfsmynd.“
Eftir útskrift hefur Benný
unnið við skriftir. Hún hefur
gefið út tvær barnabækur,
Jólasveinarannsóknina og Álfarann-
sóknina, og tvær sögulegar skáldsög-
ur; Grímu og Hansdætur.“
Fyrsta skáldsaga Bennýjar,
Gríma, sem kom út haustið 2018,
hlaut Nýræktarstyrk Miðstöðvar ís-
lenskra bókmennta og nú í ár hreppti
hún Hljóðbókaverðlaun Storytel sem
besta skáldsagan. Í dag, á afmæl-
isdegi höfundar, kemur svo út önnur
skáldsaga Bennýjar, Hansdætur.
„Vegna kófsins verður ekki boðið til
afmælis- og útgáfuhófs í raunheimum
en bókin verður fáanleg hjá Forlag-
inu í dag á sérstöku tilboðsverði með
áritun og heimsendingu á höfuðborg-
arsvæðinu en skellt í póst til þeirra
sem búa fjær.“
Benný segist engin
sérstök afreksmann-
eskja í frístundum en
þau hjónin gangi sér
til heilsubótar, oftast
ríkishringinn í hverf-
inu en stundum upp á
einhverja hóla og fjöll
eða meðfram sjó, enda
sakni hún sjávarins.
„Við erum iðin við
ferðalög, utan land-
steina þegar það mátti
en enn frekar innan-
Benný Sif Ísleifsdóttir, rithöfundur og þjóðfræðingur – 50 ára
Hjónin Benný Sif elti kærastann sinn til Lancaster og nú eru þau hjón.
Fagnar afmælinu með nýrri bók
Fjölskyldan Öll fjölskyldan samankomin á fermingardegi Baldvins Ísleifs, yngsta afkomandans, þann 22. ágúst sl.
Frá vinstri eru: Benný Sif, Sóldís Alda, Særós Eva, Baldvin Ísleifur, Salný Vala, Selma Dagmar og Óskar.
Útgáfa Hansdætur
kemur út í dag.
Til hamingju með daginn
60 ára brúðkaupsafmæli
Demantsbrúðkaup eiga í
dag Margrét Guðmunds-
dóttir og Einar Róbert
Árnason. Þau voru gefin
saman af séra Garðari
Svavarssyni í Laugarnes-
kirkju 1. október 1960. Þau
verða að heiman á brúð-
kaupsdaginn.
Demants-
brúðkaup
40 ára Guðmundur
Bjarki ólst upp á Sel-
fossi en býr núna í
Kópavogi. Hann er
jarðfræðingur og starf-
ar sem sérfræðingur í
umhverfis- og
auðlindaráðuneytinu.
Helstu áhugamálin eru samvera með
fjölskyldu, íþróttir, bassaleikur og að
njóta íslenskrar náttúru.
Maki: Magðalena Ósk Guðmundsdóttir,
f. 1979, viðskiptafræðingur.
Börn: Bjarki Rúnar, f. 2013, og Rakel
Björk, f. 2020.
Foreldrar: Ingvar Guðmundsson, f.
1956, húsasmiður og Gíslína Guðrún
Jónsdóttir, f. 1955, ritari. Þau búa á
Selfossi.
Guðmundur Bjarki Ingv-
arsson
40 ára Hera ólst upp
í Kópavogi en býr í
Vogum á Vatnsleysu-
strönd. Hera vinnur á
leikskóla í Vogum og
er í háskólanámi.
Helstu áhugamálin
eru samvera með fjöl-
skyldu og vinum og á þessum tímum eru
gönguferðir í sérstöku uppáhaldi.
Maki: Kjartan Ingi Jónsson, f. 1978,
kennari í Vogunum.
Börn: Stefán Svanberg, f. 2001, Jökull
Þór, f. 2007, Þórunn Sif, 2009 og Svan-
borg Ósk, f. 2015.
Foreldrar: Svanborg Svansdóttir, f. 1962
og Bergur Álfþórsson, f. 1964. Ágúst
Jónsson, f. 1959. Svanborg og Bergur
búa í Vogunum.
Hera Ágústs
Bergsdóttir