Morgunblaðið - 01.10.2020, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 01.10.2020, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2020 SVALALOKANIR Svalalokanir frá Glerborg eru nýtískulegar og falla vel að straumum og stefnum nútímahönnunar. Lokunin er auðveld í þrifum þar sem hún opnast inná við. Hægt er að fá brautirnar í hvaða lit sem er. Svalalokun verndar svalirnar fyrir regni, vindi og ryki og eykur hljóðeinangrun og breytir notkun svala í heilsársnotkun. Glerborg Mörkinni 4 108 Reykjavík 565 0000 glerborg@glerborg.is www.glerborg.is 2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG FÁÐU TILBOÐÞÉR AÐKOSTNAÐAR-LAUSU BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.i Konum í prestastétt hefur farið fjölgandi og nú er svo komið að kynjahlutföll eru nánast jöfn. Þetta er athyglisvert þegar haft er í huga að ekki eru liðin nema rétt 46 ár síð- an fyrsta konan var vígð til prests. Fyrst til að hljóta vígslu var séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir. Hún var vígð til þjónustu á Suðureyri við Súgandafjörð, af Sigurbirni Einars- syni biskupi. Athöfnin fór fram í Dómirkjunni í Reykjavík 29. sept- ember 1974 og því voru liðin 46 frá þessum sögulega atburði sl. þriðju- dag. Eins og staðan er í dag eru 75 karlar og 68 konur starfandi sem prestar á vegum Þjóðkirkjunnar, Biskupsstofu. Það eru 52% karlar og 48% konur. Þessar upplýsingar fékk Morgunblaðið hjá Ingunni Ólafs- dóttur, mannauðsstjóra Þjóðkirkj- unnar. Á árunum í kringum 1993- 1996 var kynjahlutfallið 60/40, þ.e. karlar um 60% og konur um 40%, svo konur hafa verið að sækja á undanfarna áratugi. Til prestastéttarinnar teljast sókn- arprestar, prestar, héraðsprestar, prestar erlendis, sérþjónustuprestar (t.d. prestur heyrnleysingja, prestur innflytjenda, fangaprestur og prest- ur fatlaðra) og sjúkrahúsprestar. Fleiri konur hafa vígst Um það bil sex einstaklingar vígj- ast til prests á ári ef meðaltal er tek- ið frá árunum 2013-2019. Á þeim tíma hafa 21 karlmaður og 28 konur vígst, upplýsir Ingunn. Það sem af er árinu 2020 hefur verið ráðið í 14 störf presta hjá Þjóð- kirkjunni. Ráðningu hafa hlotið níu konur og fimm karlar. Fyrsta konan sem vígðist var Auður Eir árið 1974. Næst vígðust fjórar konur árið 1981, Dalla Þórð- ardóttir, dóttir Auðar, Agnes M. Sigurðardóttir, Hanna María Pét- ursdóttir, Miyako Þórðarson (í þess- ari röð), svo 1983 ein kona, Sólveig Lára Guðmundsdóttir, 1985 ein kona, Helga Soffía Konráðsdóttir. Næst árið 1987, Arnfríður Guð- mundsdóttir, Hulda Hrönn M. Helgadóttir og Yrsa Þórðardóttir. Eftir það hafa konur verið vígðar ár- lega. Kona númer 100 var vígð 22. september 2019, Aldís Rut Gísla- dóttir. Kona númer 104 var vígð síð- stliðinn sunnudag, Guðrún Eggerts Þórudóttir, til prestsþjónustu í Ólafsfjarðarprestakalli. Það var Geirþrúður Hildur Bern- höft sem fyrst kvenna lauk prófi frá guðfræðideild Háslóla Íslands, eða árið 1945. Hún sótti aldrei um brauð eða tók vígslu heldur starfaði lengi sem ellimálafulltrúi Reykjavíkur- borgar. Síðan liðu 18 ár uns næsta kona útskrifaðist, Auður Eir. Eins og gefur að skilja var mikið fjallað um það í blöðunum haustið 1974, þegar Auður Eir var vígð til prestsstarfa. Morgunblaðið fjallaði um málið á heilli opnu á sjálfan vígsludaginn, 29. september, og leit- aði álits nokkurra einstaklinga, bæði vígðra og leikmanna. Flestir við- mælenda blaðsins lýstu yfir ánægju með að konur tækju pretsvígslu en þrír prestar voru því mótfallnir og vísuðu til guðfræðilegra raka. Málið kom til afgreiðslu í stjórn Prestafélags Íslands þar sem fjórir af fimm stjórnarmönnum lýstu sig samþykka því að biskup veitti kon- um vígslu. Jafnrétti kynjanna og ís- lensk löggjöf gerði andstöðu óraun- hæfa. Morgunblaðið ræddi einnig við dr. Þóri Kr. Þórðarson, prófessor í guð- fræði, sem sagði að áhugi stúlkna á guðfræðinámi væri heldur lítill. Þess hefði ekki orðið vart að hann færi vaxandi eins og reyndin væri á Norðurlöndum. Þetta átti heldur betur eftir að breytast. Konur sækja fram í kirkjunni  Kynjahlutföll presta í þjóðkirkjunni eru orðin nánast jöfn  Nú eru liðin rétt 46 ár síðan fyrsta konan hlaut vígslu  Fleiri konur hafa fengið ráðningu í störf á þessu ári Ljósmynd/Hreinn S. Hákonarson Prestsvígsla Guðrún Eggerts Þórudóttir vígsluþegi, Agnes M. Sigurðardóttir og sr. Elínborg Sturludóttir fremst. Fyrir ofan eru sr. Guðrún Karls Helgudóttir, sr. Sigurður Grétar Helgason og sr. Arnfríður Guðmundsdóttir. Morgunblaðið/Eggert Biskupsvígsla 2012 Ólafur Ragnar Grímsson forseti gengur til altaris og Agnes M. Sigurðardóttir biskup og Auður Eir útdeila brauði og víni. Kiwanisklúbburinn Jörfi hefur fært Félagi lesblindra eina milljón kr. að gjöf í tilefni af 45 ára afmæli klúbbs- ins. Fjármunirnir fara til eflingar á starfi Félags lesblindra. Félag lesblindra vinnur að því að auka vitund og þekkingu á lesblindu á Íslandi. Í þeim tilgangi heldur fé- lagið úti skrifstofu til að mæta þörf lesblindra, aðstandenda þeirra, kennara og fleiri fyrir fræðslu, að- stoð og hagsmunagæslu. Félagar eru nú orðnir rúmlega 2.000. Meginstarf félagsins felst í fræðslu og ráðgjöf, jafnt fyrir ein- staklinga, stofnanir og vinnustaði. Reglulega eru haldin fræðsluerindi í skólum fyrir nemendur, foreldra og kennara um lesblindu og hvernig nota má tölvur, hljóðbækur og önnur hjálpartæki og úrræði til aðstoðar. Meðal annarra verkefna má nefna að félagið og Félagsvísindastofun Há- skóla Íslands eru að hefja rannsókn á kvíða og lesblindu. Við þetta starf reiðir félagið sig á styrki frá samtökum, fyrirtækjum og einstaklingum. Afhending Einar Hrafn Jóhannesson, Guðmundur S. Johnsen, Snævar Ívarsson, Friðrik Hafberg og Guðmundur Helgi Guðjónsson. Framlag til fræðslu Félags lesblindra  Kiwanisklúbburinn Jörfi veitir styrk Nemendur í guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands eru um 70 talsins og kynjaskipting jöfn, samkvæmt upplýsingum sem blaðið fékk hjá Ásdísi Guðmundsdóttur deildarstjóra.Við deildina eru 7 námsleiðir í grunn- og fram- haldsnámi og námið fjölbreytt. Þeir sem læra til prests ljúka fimm ára námi alls. Þriggja ára 180e BA-námi í guðfræði og 120e tveggja ára námi á meistarastigi, sem líkur með mag. theol.-prófi. Á árinu 2020 hafa átta kandidatar lok- ið mag.theol.-námi, 4 konur og 4 karlar. Fyrir 10 árum var kynjaskipt- ing sú að konur voru um 60% nemenda í deildinni en karlar um 40%. Hélst það hlutfall fram til um 2015 en síðan hef- ur kynjaskiptingin jafnast. Sjö náms- leiðir í boði GUÐFRÆÐIDEILDIN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.