Morgunblaðið - 01.10.2020, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2020
SVALALOKANIR
Svalalokanir frá Glerborg eru nýtískulegar
og falla vel að straumum og stefnum
nútímahönnunar.
Lokunin er auðveld í þrifum þar sem hún opnast inná við.
Hægt er að fá brautirnar í hvaða lit sem er.
Svalalokun verndar svalirnar fyrir regni, vindi og ryki og eykur
hljóðeinangrun og breytir notkun svala í heilsársnotkun.
Glerborg
Mörkinni 4
108 Reykjavík
565 0000
glerborg@glerborg.is
www.glerborg.is
2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG
FÁÐU TILBOÐÞÉR AÐKOSTNAÐAR-LAUSU
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.i
Konum í prestastétt hefur farið
fjölgandi og nú er svo komið að
kynjahlutföll eru nánast jöfn. Þetta
er athyglisvert þegar haft er í huga
að ekki eru liðin nema rétt 46 ár síð-
an fyrsta konan var vígð til prests.
Fyrst til að hljóta vígslu var séra
Auður Eir Vilhjálmsdóttir. Hún var
vígð til þjónustu á Suðureyri við
Súgandafjörð, af Sigurbirni Einars-
syni biskupi. Athöfnin fór fram í
Dómirkjunni í Reykjavík 29. sept-
ember 1974 og því voru liðin 46 frá
þessum sögulega atburði sl. þriðju-
dag.
Eins og staðan er í dag eru 75
karlar og 68 konur starfandi sem
prestar á vegum Þjóðkirkjunnar,
Biskupsstofu. Það eru 52% karlar og
48% konur. Þessar upplýsingar fékk
Morgunblaðið hjá Ingunni Ólafs-
dóttur, mannauðsstjóra Þjóðkirkj-
unnar. Á árunum í kringum 1993-
1996 var kynjahlutfallið 60/40, þ.e.
karlar um 60% og konur um 40%,
svo konur hafa verið að sækja á
undanfarna áratugi. Til
prestastéttarinnar teljast sókn-
arprestar, prestar, héraðsprestar,
prestar erlendis, sérþjónustuprestar
(t.d. prestur heyrnleysingja, prestur
innflytjenda, fangaprestur og prest-
ur fatlaðra) og sjúkrahúsprestar.
Fleiri konur hafa vígst
Um það bil sex einstaklingar vígj-
ast til prests á ári ef meðaltal er tek-
ið frá árunum 2013-2019. Á þeim
tíma hafa 21 karlmaður og 28 konur
vígst, upplýsir Ingunn.
Það sem af er árinu 2020 hefur
verið ráðið í 14 störf presta hjá Þjóð-
kirkjunni. Ráðningu hafa hlotið níu
konur og fimm karlar.
Fyrsta konan sem vígðist var
Auður Eir árið 1974. Næst vígðust
fjórar konur árið 1981, Dalla Þórð-
ardóttir, dóttir Auðar, Agnes M.
Sigurðardóttir, Hanna María Pét-
ursdóttir, Miyako Þórðarson (í þess-
ari röð), svo 1983 ein kona, Sólveig
Lára Guðmundsdóttir, 1985 ein
kona, Helga Soffía Konráðsdóttir.
Næst árið 1987, Arnfríður Guð-
mundsdóttir, Hulda Hrönn M.
Helgadóttir og Yrsa Þórðardóttir.
Eftir það hafa konur verið vígðar ár-
lega. Kona númer 100 var vígð 22.
september 2019, Aldís Rut Gísla-
dóttir. Kona númer 104 var vígð síð-
stliðinn sunnudag, Guðrún Eggerts
Þórudóttir, til prestsþjónustu í
Ólafsfjarðarprestakalli.
Það var Geirþrúður Hildur Bern-
höft sem fyrst kvenna lauk prófi frá
guðfræðideild Háslóla Íslands, eða
árið 1945. Hún sótti aldrei um brauð
eða tók vígslu heldur starfaði lengi
sem ellimálafulltrúi Reykjavíkur-
borgar. Síðan liðu 18 ár uns næsta
kona útskrifaðist, Auður Eir.
Eins og gefur að skilja var mikið
fjallað um það í blöðunum haustið
1974, þegar Auður Eir var vígð til
prestsstarfa. Morgunblaðið fjallaði
um málið á heilli opnu á sjálfan
vígsludaginn, 29. september, og leit-
aði álits nokkurra einstaklinga, bæði
vígðra og leikmanna. Flestir við-
mælenda blaðsins lýstu yfir ánægju
með að konur tækju pretsvígslu en
þrír prestar voru því mótfallnir og
vísuðu til guðfræðilegra raka.
Málið kom til afgreiðslu í stjórn
Prestafélags Íslands þar sem fjórir
af fimm stjórnarmönnum lýstu sig
samþykka því að biskup veitti kon-
um vígslu. Jafnrétti kynjanna og ís-
lensk löggjöf gerði andstöðu óraun-
hæfa.
Morgunblaðið ræddi einnig við dr.
Þóri Kr. Þórðarson, prófessor í guð-
fræði, sem sagði að áhugi stúlkna á
guðfræðinámi væri heldur lítill. Þess
hefði ekki orðið vart að hann færi
vaxandi eins og reyndin væri á
Norðurlöndum. Þetta átti heldur
betur eftir að breytast.
Konur sækja fram í kirkjunni
Kynjahlutföll presta í þjóðkirkjunni eru orðin nánast jöfn Nú eru liðin rétt 46 ár
síðan fyrsta konan hlaut vígslu Fleiri konur hafa fengið ráðningu í störf á þessu ári
Ljósmynd/Hreinn S. Hákonarson
Prestsvígsla Guðrún Eggerts Þórudóttir vígsluþegi, Agnes M. Sigurðardóttir og sr. Elínborg Sturludóttir fremst.
Fyrir ofan eru sr. Guðrún Karls Helgudóttir, sr. Sigurður Grétar Helgason og sr. Arnfríður Guðmundsdóttir.
Morgunblaðið/Eggert
Biskupsvígsla 2012 Ólafur Ragnar Grímsson forseti gengur til altaris og
Agnes M. Sigurðardóttir biskup og Auður Eir útdeila brauði og víni.
Kiwanisklúbburinn Jörfi hefur fært
Félagi lesblindra eina milljón kr. að
gjöf í tilefni af 45 ára afmæli klúbbs-
ins. Fjármunirnir fara til eflingar á
starfi Félags lesblindra.
Félag lesblindra vinnur að því að
auka vitund og þekkingu á lesblindu
á Íslandi. Í þeim tilgangi heldur fé-
lagið úti skrifstofu til að mæta þörf
lesblindra, aðstandenda þeirra,
kennara og fleiri fyrir fræðslu, að-
stoð og hagsmunagæslu. Félagar
eru nú orðnir rúmlega 2.000.
Meginstarf félagsins felst í
fræðslu og ráðgjöf, jafnt fyrir ein-
staklinga, stofnanir og vinnustaði.
Reglulega eru haldin fræðsluerindi í
skólum fyrir nemendur, foreldra og
kennara um lesblindu og hvernig
nota má tölvur, hljóðbækur og önnur
hjálpartæki og úrræði til aðstoðar.
Meðal annarra verkefna má nefna að
félagið og Félagsvísindastofun Há-
skóla Íslands eru að hefja rannsókn
á kvíða og lesblindu.
Við þetta starf reiðir félagið sig á
styrki frá samtökum, fyrirtækjum
og einstaklingum.
Afhending Einar Hrafn Jóhannesson, Guðmundur S. Johnsen, Snævar
Ívarsson, Friðrik Hafberg og Guðmundur Helgi Guðjónsson.
Framlag til fræðslu
Félags lesblindra
Kiwanisklúbburinn Jörfi veitir styrk
Nemendur í guðfræði- og
trúarbragðafræðideild Háskóla
Íslands eru um 70 talsins og
kynjaskipting jöfn, samkvæmt
upplýsingum sem blaðið fékk
hjá Ásdísi Guðmundsdóttur
deildarstjóra.Við deildina eru 7
námsleiðir í grunn- og fram-
haldsnámi og námið fjölbreytt.
Þeir sem læra til prests
ljúka fimm ára námi alls.
Þriggja ára 180e BA-námi í
guðfræði og 120e tveggja ára
námi á meistarastigi, sem líkur
með mag. theol.-prófi. Á árinu
2020 hafa átta kandidatar lok-
ið mag.theol.-námi, 4 konur og
4 karlar.
Fyrir 10 árum var kynjaskipt-
ing sú að konur voru um 60%
nemenda í deildinni en karlar
um 40%. Hélst það hlutfall
fram til um 2015 en síðan hef-
ur kynjaskiptingin jafnast.
Sjö náms-
leiðir í boði
GUÐFRÆÐIDEILDIN