Morgunblaðið - 01.10.2020, Blaðsíða 42
Sonja Sif Þórólfsdóttir
sonja@mbl.is
Þóra segist vera mikill grúskari og
hún hefur áhuga á fólki og samfélag-
inu sem við lifum í. Hún segist þó ekki
hafa mikið fræðst um eigin sögu fyrr
en hún skrifaði bókina Mörk sem
kom út árið 2015. „Sagan krafðist
þess að ég færi að grúska í sögum úr
móðurættinni og þá komst ég að því
hvað það er gaman að horfa aðeins
aftur fyrir sig og tengja sig við kyn-
slóðirnar, gömlu Reykjavík og draga
fram sögur sem hverfa annars í tím-
ans haf,“ segir Þóra í viðtali við
mbl.is.
Viðmælendur eru Lilja Pálmadótt-
ir, Hannes Þór Halldórsson, Ágústa
Eva Erlendsdóttir, Unnsteinn Manu-
el Stefánsson, Hera Hilmarsdóttir og
Bogi Ágústsson en viðmælendurna
valdi Þóra ásamt leikstjóranum Lalla
Jónssyni og framleiðsluteyminu hjá
Republik sem framleiðir þættina.
„Það voru ótal margar sögur og
viðmælendur sem ég hefði gjarnan
vilja koma að en komust ekki að í
þessari seríu og verður úr nógu að
velja ef það verður farið út í að gera
fleiri þætti fyrir Símann. Þetta er
flókið viðfangsefni og í raun eins og
að gera sex heimildarmyndir fremur
en hefðbundna viðtalsþætti og því
mikill tími sem fer í að gera hvern og
einn þátt,“ segir Þóra.
Heimsóttu Angóla rétt
fyrir heimsfaraldur
Í þættinum um Unnstein Manuel
ferðast þau til Angóla en hann er ætt-
aður þaðan. Þóra segir ferðina hafa
verið magnaða en þau rétt komust í
hana áður en kórónuveiran setti
mark sitt á heiminn.
„Angóla er alveg sér á báti og þetta
var einhvern veginn eins og að vera
staddur í öllum borgum í heiminum í
einu því það er svo mikil fjölbreytni
og áberandi misskipting í Angóla.
Nútímaleg höfn og sögulegar bygg-
ingar þegar maður horfir í eina átt og
svo æpandi fátækt ef þú horfir í aðra
átt og allt í bland. Millistéttin þar býr
við fábreyttan kost og skertan að-
gang að vatni og rafmagni.
Ég var ágætlega undirbúin því ég
hafði heimsótt fátækasta land í Afr-
íku ári áður þegar ég fór til Malaví á
vegum UN Women en þarna kom fá-
tæktin meira aftan að mér því ásjóna
borgarinnar ber þess merki að það
eru miklar auðlindir í landinu. Það
var magnað að fá að heimsækja þá
staði sem móðir Unnsteins, Ana
Maria, hefur munað alla tíð en hún
fór frá landinu barn að aldri. Við
heimsóttum meðal annars nokkurs
konar paradísareyju eða tanga sem
við sigldum til. Ana Maria hefur ekki
getað heimsótt það síðan út af heilsu-
farslegum aðstæðum, annars hefðum
við tekið hana með okkur en ég vona
að þátturinn færi hana svolítið heim
til upprunalandsins þegar hún horfir
á hann,“ segir Þóra.
En hver er Þóra?
„Ég er eins og svo margir Íslend-
ingar, eins og Bogi Ágústsson orðar
svo vel í þáttunum, komin af vinnu-
fólki, húsfreyjum, bændum, verka-
fólki, kennurum og alls konar fólki af
öllum stéttum eftir því hve við förum
langt aftur í fortíðina. Ég held að það
leynist áhugaverðar sögur í öllum
ættum en það er til dæmis ein ást-
arsaga sem mér finnst áhugaverð í
móðurættinni minni og ég tel að ég
eigi þessari ástarsögu meðal annars
lífið og genasamsetninguna að
þakka,“ segir Þóra.
Forfaðir hennar Guðmundur Ingi-
mundarson, fæddur árið 1844 í Torfa-
staðasókn, vildi læra til prests en
fékk ekki leyfi frá foreldrum sínum til
þess. Ekki fyrr en vinnukonan Guð-
björg Egilsdóttir kom í sveitina og
ljóst var að þau hefðu fellt hugi sam-
an.
„Þá var honum skipað að fara til
Reykjavíkur til náms og verða að
manni en fékk ekki leyfi til að gifta
sig. Hann fór suður með eigur sínar
til að selja í því skyni að kosta námið
en hann seldi allt nema hest og reið
til baka og sótti Guðbjörgu sína og
þau fluttust saman til Grindavíkur
og Guðmundur fór að vinna á bát og
þau eignuðust fimm börn. Guð-
mundur lifði einungis til fertugs því
hann stakk sig á öngli og lést úr
blóðeitrun en þau eiga áttatíu og sjö
afkomendur sem eru nú á lífi og ef
ekki fyrir þessa óhlýðni hans við for-
eldrana væri ég og ættin ekki til,“
segir Þóra.
Það leynast áhugaverðar
sögur í öllum ættum
Leikkonan Þóra Karítas Árnadóttir er handritshöfundur og umsjónarmaður þáttanna Hver ertu? sem hefja göngu sína
í Sjónvarpi Símans í dag, fimmtudaginn 1. október. Í þáttunum eru ættartré nokkurra þjóðþekktra Íslendinga grandskoðuð.
Ljósmynd/Saga Sig
Grúskari Þóra Karítas er umsjónarkona þáttanna Hver ertu?
Ljósmynd/Republik
Fyrst Lilja Pálmadóttir er fyrsti viðmælandi þáttanna.
Ljósmynd/Republik
Ættartré Í þáttunum eru ættartré þekktra Íslendinga skoðuð.
Ljósmynd/Republik
Heimaslóðir Unnsteinn Manuel á ættir að rekja til Angóla.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2020
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15
ARCO gólflampi
Achille & Pier Giacomo Castiglioni 1962
Verð 349.000,-
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (með Visa / Euro) í allt að 6 mánuði.