Morgunblaðið - 01.10.2020, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 01.10.2020, Blaðsíða 36
36 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2020 Verslun OPTICAL STUDIO á Hafnartorgi 1. árs 20% afsláttur Fyrsti október 2020 markar þau tímamót að 71 ár er liðið frá stofnun Alþýðulýðveld- isins Kína. Vegna CO- VID-19 get ég ekki boðið íslenskum vinum mínum á Íslandi í mót- töku til að fagna þess- um tímamótum í eigin persónu. Samt sem áð- ur langar mig að minn- ast þessara tímamóta með þessari stuttu grein þar sem við getum litið yfir farinn veg og gægst inn í framtíðina. Árið 2020 hefur verið langt frá því að vera venjulegt ár, fyrir bæði Kína og veröldina alla. Alheimsfaraldur COVID-19 æðir nú um heimsbyggð- ina og ógnar bæði lífi og heilsu fólks og hefur haft alvarleg áhrif á efna- hagslega og félagslega þróun allra. Kínversk alþýða hefur staðið sam- einuð í baráttunni við þá áskorun að berjast gegn faraldrinum og hefur lagt mikið á sig og fært miklar fórn- ir, en mikill árangur hefur náðst á tiltölulega skömmum tíma í barátt- unni við COVID-19. Kína er með fyrstu löndum heimsins til að koma böndum á faraldurinn og fyrsta stóra efna- hagskerfi jarðar til að jafna sig og er efna- hagslífið aftur orðið traust og líflegt. Þetta mun án efa auka bjart- sýni og skapa tækifæri til samvinnu við Ísland og umheiminn. Síðan faraldurinn hófst hefur Kína tekið fullan þátt í hinu al- þjóðlega viðbragði gegn COVID-19 og hefur gert sitt besta til að bregðast tímanlega við á opinn, gagnsæjan og ábyrgan hátt. Kína tilkynnti farald- urinn til WHO eins fljótt og auðið var, og veitti umsvifalaust upplýs- ingar og deildi reynslu til um 180 landa á heimsvísu. Kína hefur veitt fjárhagslegan stuðning sem nemur um 50 milljónum bandaríkjadala til WHO í tveimur greiðslum, sent 34 sérfræðingateymi heilbrigðisstarfs- fólks til 32 landa, sent hjálpargögn í 283 pökkum til 150 landa og fernra alþjóðlegra samtaka, og útvegað og sent hjúkrunarvörur til 200 landa. Kína heitir því að þau COVID-19- bóluefni sem verða þróuð í Kína, þegar þróun og öryggisprófun þeirra verði lokið, muni standa heimsbyggðinni allri til boða. Kína hefur hingað til, og mun í framtíðinni, deila þekkingu sinni og reynslu í baráttunni gegn kórónu- vírusnum með heimsbyggðinni. Ársins 2020 mun ætíð vera minnst sem ársins þar sem Kína og Ísland veittu hvort öðru ómetanlegan stuðning við að komast yfir erfiðleik- ana á þessum myrku tímum. Síðan faraldurinn braust út hafa ríkis- stjórnir beggja landanna og almenn- ingur boðið hvort öðru dýrmæta hjálp með sameiginlegri sýn og hvatningu og nýr kafli hefur hafist í traustum samskiptum ríkjanna. Xi Jinping, forseti Kína, og Li Keqiang forsætisráðherra skiptust á bréfum við Guðna Th. Jóhannesson forseta Íslands og Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra, og skiptust á sam- úðarkveðjum og tjáðu sínar bestu óskir hvert til annars ásamt bar- áttukveðjum til að berjast saman gegn faraldrinum. Almenningur í báðum löndunum hefur einnig tjáð hvor öðrum umhyggju og stuðning á fjölbreyttan hátt, eins og að skiptast á kveðjum, tónlistarflutningi og með hvetjandi myndböndum. Þessar hjartnæmu kveðjur hafa snert streng í hjarta íbúa beggja land- anna. Kínverska sendiráðið á Íslandi brást skjótt og aðstoðaði Ísland við kaup og flutning á hjúkrunarvörum frá Kína. Við stóðum einnig fyrir því að hafa samband við sex kínverskar stofnanir og fyrirtæki sem útveguðu andlitsgrímur, einnota hlífðarföt og andlitsskildi að andvirði 35 milljóna króna sem gjöf til Íslands. Samfélag Kínverja á Íslandi hugsaði til heima- landsins og þeim og kínverskum fræðimönnum og námsmönnum á Íslandi tókst að safna 1,57 milljónum króna til stuðnings Wuhan í baráttu sinni gegn vírusnum. Mig langar að nota þetta tækifæri og tjá hugheilar þakkir til lands- manna og vina sem hafa stutt bar- áttu Kína gegn vírusnum og staðið þétt að baki tvíhliða samskiptum þjóðanna. Á árinu 2020 höfum við orðið vitni að gríðarlegum breytingum á hinu alþjóðlega landslagi. Heimurinn berst við COVID-19-faraldurinn og fer jafnframt í gegnum dýpstu grundvallarbreytingar á heims- myndinni sem hafa orðið í heila öld, við verðum jafnframt vitni að vax- andi óstöðugleika, óvissu, vaxandi einangrunarhyggju, einhliða af- stöðu, ásamt síauknum árásum á al- þjóðlegar stofnanir. COVID-19 minnir okkur á að við búum í sam- tvinnuðu alheimsþorpi með sameig- inlega hagsmuni. Öll lönd eru tengd sterkum böndum og eiga sameig- inlega framtíð. Við ættum að fagna þeirri heimssýn að veröldin verði sameinuð í framtíðinni og hagur eins sé hagur allra. Kína mun halda áfram að styðja heilshugar alþjóðakerfi sem byggir á grunni Sameinuðu þjóðanna. Kína sækist eftir opinni og sameiginlegri þróun og mun staðfastlega halda sig við að byggja upp opið alþjóðlegt hagkerfi og mun standa með hinu marghliða viðskiptasamstarfi sem byggist á stefnu Alþjóðavið- skiptastofnunarinnar. Kína leitar eftir framsækinni, samþættri, grænni og opinni framþróun og mun halda áfram að grípa til öflugrar stefnumótunar og aðgerða sem mið- ast að því að útblástur CO2 nái há- marki fyrir árið 2030 og nái kolefn- isjöfnun fyrir árið 2060. Kína er tilbúið til að styrkja alþjóðlegt sam- starf með öðrum löndum hvar sem er í veröldinni í þeirri viðleitni að viðhalda alþjóðasamstarfi, frjálsum viðskiptum, viðbrögðum gegn lofts- lagsvánni og viðhalda sjálfbærri þró- un með það að markmiði að skapa samfélag jarðarbúa með sameig- inlega framtíð, saman getum við byggt betri veröld fyrir framtíð jarð- ar! Þróun í Kína hefur sýnt eftirtekt- arverðan árangur og vakið athygli umheimsins, framþróun í Kína á sér bjarta framtíð og mun ekki verða stöðvuð. Við munum halda áfram að halda okkur við þá slóð að feta leið friðsamlegra framfara og munum aldrei sækjast yfir yfirráðum eða út- þenslu. Á næsta ári munum við minnast þess að 50 ár eru liðin síðan Kína og Ísland tóku upp stjórnmála- samband. Ég hef trú á því að með sameiginlegu átaki muni samskipti landanna halda áfram að batna og færast upp á nýtt stig. Ég vona að við munum ná að sigrast á CO- VID-19 í náinni framtíð, og að fólk um víða veröld nái að vinna einarð- lega saman að nýrri framtíð fyrir mannkynið. Vinnum saman að bjartri framtíð mannkyns Eftir Jin Zhijian »Kína hefur hingað til, og mun í fram- tíðinni, deila þekkingu sinni og reynslu í baráttunni gegn kórónuveirunni með heimsbyggðinni. Jin Zhijian Höfundur er sendiherra Kína á Íslandi. Hvar er næsta verkstæði? FINNA.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.