Morgunblaðið - 01.10.2020, Blaðsíða 60
25%
aföllumvörum*
*20% afsláttur af sérpöntunum. Gildir ekki um vörur á áður niðursettu verði
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
mánudaga - sunnudaga 12-18
1. 5. október-
Afmæli
Afmælisgjöf
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
FYRIR ÞÁ SEM VERSLA FYRIR
5.000 EÐA MEIRA
WWW.ILVA.IS
GILDIR Í VEFVERSLUN
Gefum 12 x 10.000 gjafakort
Taktu þátt með því að versla í
vefverslun ILVA. Drögum út
12 heppna viðskiptavini
þriðjudaginn 6. október
Frí heimsending
Sinfóníuhljómsveit Íslands býður upp á ókeypis
hádegistónleika í Eldborgarsal Hörpu í dag og hefjast
þeir kl. 12.15. Hópur hljóðfæraleikara hljómsveitarinnar
mun flytja þekkta og fallega serenöðu fyrir blásara,
selló og kontrabassa eftir Antonín Dvorák, undir stjórn
Evu Ollikainen, nýskipaðs aðalstjórnanda sveitarinnar. Í
samræmi við sóttvarnalög verður sætaframboð tak-
markað og nálægðarmörk milli gesta verða virt. Tón-
leikagestir eru beðnir að sækja sér miða á vef hljóm-
sveitarinnar eða í miðasölu Hörpu.
Sinfóníuhljómsveitin leikur
serenöðu eftir Dvorák í hádeginu
FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 275. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Verður LeBron James NBA-meistari í körfuknattleik í
fjórða sinn eða verður liðsheild Miami Heat of sterk fyr-
ir hann og Los Angeles Lakers? Einvígið er hafið í
Disneylandi og Gunnar Valgeirsson fjallar ítarlega um
það í pistli á íþróttasíðu Morgunblaðsins í dag. »51
Ræður LeBron James við sterka
liðsheild Miami Heat?
ÍÞRÓTTIR MENNING
safninu í Seattle, The National Nordic
Museum in Seattle, með fjáröflun
vegna húsnæðis á Hvolsvelli í huga.
„Margir ferðamenn koma til Íslands
vegna sögunnar og ég sé fyrir mér að
Njálurefillinn eigi eftir að draga fólk
til landsins næstu þúsund árin.“
Víkingur og járnkarl
Ingvar flutti fimm ára með for-
eldrum sínum til Bandaríkjanna 1962.
Hann var áhrifamaður í bandarísku
viðskiptalífi í áratugi, starfaði meðal
annars með Bill Gates og Steve Jobs,
var framkvæmdastjóri hjá bókunar-
fyrirtækinu Expedia og síðar hjá Nin-
tendo of America. Fyrir skömmu tók
hann sæti í fjárfestingarráði Eyris
Venture Management og í stjórn Eyr-
is Sprota II. „Við erum hætt að vinna
og ferðumst mikið,“ segir hann, en
þau eru jöfnum höndum í Kirkland,
sem er skammt frá Seattle, á Havaí
og í Reykjavík. „Við segjum oft að við
viljum bara búa á eldfjallaeyju.“
Keppni í hálfum járnkarli verður á
Havaí í vor og býr Ingvar sig undir
hana. Hann segist reyndar ekki fara
á fullt fyrr en eftir áramót en haldi
sér við fram að því með því að hjóla,
hlaupa og synda í samtals um sjö
tíma á viku, en tvöfaldi æfingatímann
eftir áramót. „Veðrið er alltaf gott á
Havaí og mér finnst skemmtileg til-
breyting að hlaupa í misjöfnu veðri,
roki og rigningu, eins og er svo oft í
Reykjavík,“ segir hann. „Þá finnst
mér ég vera víkingur.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Hjónin Kládía og Ingvar Pétursson,
fjárfestir og ráðgjafi, hafa búið í
Reykjavík undanfarin fimm sumur. Í
sumar ætluðu þau að ganga Jakobs-
veginn, um 800 km pílagrímsleið frá
Saint-Jean-Pied-de-Port í Frakk-
landi að dómkirkjunni í Santiago de
Compostela á Spáni, en kórónuveiru-
faraldurinn kom í veg fyrir það.
Kládía hefur samt haldið sig við
markmiðið og er komin langleiðina
með að ganga „Jakobsveginn“ í
Reykjavík og nágrenni, er búin að
ganga tæplega 600 kílómetra. Á með-
an hefur Ingvar æft sig í þríþraut.
Kládía segir að þar sem hún búi í
Reykjavík hluta úr ári sé mikilvægt
að þekkja borgina. Þess vegna hafi
hún skipulagt „Jakobsveginn“ eftir
borgarskipulaginu og tekið eitt
hverfi fyrir í einu, en byrjað á því að
ganga frá miðbænum út á Seltjarn-
arnes og til baka 25. júlí. „Síðan hef
ég gengið í þrjá og hálfan til fimm
tíma flesta virka daga, allt að 25 kíló-
metra á dag,“ segir hún. „Markmiðið
er að ganga allar götur í Reykjavík
og sýna um leið að hægt er að skila
jákvæðu verki þrátt fyrir kórónu-
veirufaraldur og samkomubann.“
Njálurefillinn merkilegur
Þekking Kládíu á borginni hefur
aukist til muna samfara göngunni.
„Þegar ég varð íslenskur ríkisborg-
ari sagðist ég vilja vera fyrirmynd,
góður borgari,“ segir hún og áréttar
mikilvægi þess að þekkja umhverfi
sitt. Á göngunni hafi hún séð margt,
kynnst áður ókunnugri list og menn-
ingu og margt hafi komið á óvart.
„Ánægjulegt er að sjá að dagheimili
og skólar eru á bestu stöðum. Ég
vinn fyrir góðgerðarsamtökin Cate-
chesis of the Good Shepherd, sem ég
kalla Táknfræði góða hirðisins, í
þágu barna í Bandaríkjunum og það
gleður mig að sjá börnin sett í for-
gang.“
Kládía tók þátt í gerð Njálurefils-
ins á Hvolsvelli og hefur vakið at-
hygli á honum vestra, meðal annars
kynnt hann á norræna þjóðminja-
Gengur Jakobsveginn
á götum Reykjavíkur
Kládía Pétursson lætur faraldurinn ekki stöðva sig
Í Viðey Kládía og Ingvar Pétursson eru mikið á ferðinni.