Morgunblaðið - 01.10.2020, Síða 60

Morgunblaðið - 01.10.2020, Síða 60
25% aföllumvörum* *20% afsláttur af sérpöntunum. Gildir ekki um vörur á áður niðursettu verði ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is mánudaga - sunnudaga 12-18 1. 5. október- Afmæli Afmælisgjöf Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU FYRIR ÞÁ SEM VERSLA FYRIR 5.000 EÐA MEIRA WWW.ILVA.IS GILDIR Í VEFVERSLUN Gefum 12 x 10.000 gjafakort Taktu þátt með því að versla í vefverslun ILVA. Drögum út 12 heppna viðskiptavini þriðjudaginn 6. október Frí heimsending Sinfóníuhljómsveit Íslands býður upp á ókeypis hádegistónleika í Eldborgarsal Hörpu í dag og hefjast þeir kl. 12.15. Hópur hljóðfæraleikara hljómsveitarinnar mun flytja þekkta og fallega serenöðu fyrir blásara, selló og kontrabassa eftir Antonín Dvorák, undir stjórn Evu Ollikainen, nýskipaðs aðalstjórnanda sveitarinnar. Í samræmi við sóttvarnalög verður sætaframboð tak- markað og nálægðarmörk milli gesta verða virt. Tón- leikagestir eru beðnir að sækja sér miða á vef hljóm- sveitarinnar eða í miðasölu Hörpu. Sinfóníuhljómsveitin leikur serenöðu eftir Dvorák í hádeginu FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 275. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Verður LeBron James NBA-meistari í körfuknattleik í fjórða sinn eða verður liðsheild Miami Heat of sterk fyr- ir hann og Los Angeles Lakers? Einvígið er hafið í Disneylandi og Gunnar Valgeirsson fjallar ítarlega um það í pistli á íþróttasíðu Morgunblaðsins í dag. »51 Ræður LeBron James við sterka liðsheild Miami Heat? ÍÞRÓTTIR MENNING safninu í Seattle, The National Nordic Museum in Seattle, með fjáröflun vegna húsnæðis á Hvolsvelli í huga. „Margir ferðamenn koma til Íslands vegna sögunnar og ég sé fyrir mér að Njálurefillinn eigi eftir að draga fólk til landsins næstu þúsund árin.“ Víkingur og járnkarl Ingvar flutti fimm ára með for- eldrum sínum til Bandaríkjanna 1962. Hann var áhrifamaður í bandarísku viðskiptalífi í áratugi, starfaði meðal annars með Bill Gates og Steve Jobs, var framkvæmdastjóri hjá bókunar- fyrirtækinu Expedia og síðar hjá Nin- tendo of America. Fyrir skömmu tók hann sæti í fjárfestingarráði Eyris Venture Management og í stjórn Eyr- is Sprota II. „Við erum hætt að vinna og ferðumst mikið,“ segir hann, en þau eru jöfnum höndum í Kirkland, sem er skammt frá Seattle, á Havaí og í Reykjavík. „Við segjum oft að við viljum bara búa á eldfjallaeyju.“ Keppni í hálfum járnkarli verður á Havaí í vor og býr Ingvar sig undir hana. Hann segist reyndar ekki fara á fullt fyrr en eftir áramót en haldi sér við fram að því með því að hjóla, hlaupa og synda í samtals um sjö tíma á viku, en tvöfaldi æfingatímann eftir áramót. „Veðrið er alltaf gott á Havaí og mér finnst skemmtileg til- breyting að hlaupa í misjöfnu veðri, roki og rigningu, eins og er svo oft í Reykjavík,“ segir hann. „Þá finnst mér ég vera víkingur.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Hjónin Kládía og Ingvar Pétursson, fjárfestir og ráðgjafi, hafa búið í Reykjavík undanfarin fimm sumur. Í sumar ætluðu þau að ganga Jakobs- veginn, um 800 km pílagrímsleið frá Saint-Jean-Pied-de-Port í Frakk- landi að dómkirkjunni í Santiago de Compostela á Spáni, en kórónuveiru- faraldurinn kom í veg fyrir það. Kládía hefur samt haldið sig við markmiðið og er komin langleiðina með að ganga „Jakobsveginn“ í Reykjavík og nágrenni, er búin að ganga tæplega 600 kílómetra. Á með- an hefur Ingvar æft sig í þríþraut. Kládía segir að þar sem hún búi í Reykjavík hluta úr ári sé mikilvægt að þekkja borgina. Þess vegna hafi hún skipulagt „Jakobsveginn“ eftir borgarskipulaginu og tekið eitt hverfi fyrir í einu, en byrjað á því að ganga frá miðbænum út á Seltjarn- arnes og til baka 25. júlí. „Síðan hef ég gengið í þrjá og hálfan til fimm tíma flesta virka daga, allt að 25 kíló- metra á dag,“ segir hún. „Markmiðið er að ganga allar götur í Reykjavík og sýna um leið að hægt er að skila jákvæðu verki þrátt fyrir kórónu- veirufaraldur og samkomubann.“ Njálurefillinn merkilegur Þekking Kládíu á borginni hefur aukist til muna samfara göngunni. „Þegar ég varð íslenskur ríkisborg- ari sagðist ég vilja vera fyrirmynd, góður borgari,“ segir hún og áréttar mikilvægi þess að þekkja umhverfi sitt. Á göngunni hafi hún séð margt, kynnst áður ókunnugri list og menn- ingu og margt hafi komið á óvart. „Ánægjulegt er að sjá að dagheimili og skólar eru á bestu stöðum. Ég vinn fyrir góðgerðarsamtökin Cate- chesis of the Good Shepherd, sem ég kalla Táknfræði góða hirðisins, í þágu barna í Bandaríkjunum og það gleður mig að sjá börnin sett í for- gang.“ Kládía tók þátt í gerð Njálurefils- ins á Hvolsvelli og hefur vakið at- hygli á honum vestra, meðal annars kynnt hann á norræna þjóðminja- Gengur Jakobsveginn á götum Reykjavíkur  Kládía Pétursson lætur faraldurinn ekki stöðva sig Í Viðey Kládía og Ingvar Pétursson eru mikið á ferðinni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.